Alþýðublaðið - 10.05.1974, Qupperneq 1
HANNIBAL
VALDIMARSSON: „
FORSETA ISLANDS
BAR AD VEITA SVIGRUM
TIL MEIRIHLUTASTIÚRNAR”
FOSTUDAGUR
10. maí 1974. - 70. tbl. - 55. árg.
100 hjól-
hýsi frá
OSA til
Eyja
Rætt hefur verið um
það i bæjarstjórn
Vestmannaeyja að
kaupa frá Banda-
rikjunum hundrað
hjólhýsi til þess að
bæta úr brýnasta
húsnæðisskortinum i
Eyjum á meðan
uppbygging fer fram,
að þvi er Reynir Guð-
steinsson, skólastjóri
og bæjarfulltrúi, sagði
við Alþýðublaðið i
gær.
Einnig sagði
Reynir, að rætt hafi
verið i bæjarstjórninni
að kaupa litil bráða-
birgðahús, 40-50
fermetra að stærð,
frá hinum Norður-
löndunum, sem yrðu
Vestmannaeyingum
til reiðu þar til þeir
komast i varanlegt
húsnæði.
—Forseti (slands veitti aldrei tækifæri
eða svigrúm til að kanna möguleikana á
myndun þingræðislegrar meirihluta-
stjórnar á Alþingi, eins og hann hefði þó
átt að gera. Svo fórust orð Hannibal
Valdimarssyni, formanni Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna, er frétta-
maður blaðsins hafði tal af honum í gær.
Hannibal hafði áður en til þingrofs
kom, lýst því yf ir í f jölmiðlum og á þingi,
að hann vildi láta mynda nýja stjórn.
—Ég var ekki búinn að mynda þá stjórn í
hendi mér, sagði Hannibal ennfremur,
—það segir sig sjálft. Það, sem ég vildi
gera, var að láta kanna möguleikana á
myndun meirihlutastjórnar eftir að
ríkisstjórn Ölafs Jóhannessonar hafði
ekki meirihluta á Alþingi.
Sjálfstæðismenn
vildu stjórn allra
— nema Alþýðubandalagsins
—Við sjálfstæðis-
menn ræddum með
okkur ýmsa mögu-
leika á myndun nýrrar
rikisst jórnar til
skamms tima og þá
ekki sist möguleikana
á myndun fjögurra
Forkastanjegt
framferði hjá ðlafi
í fyrsta skipti sem lýðveldið Island hefur verið án Alþingis, segir Gylfi
— Aðferð sú, sem Öl-
afur Jóhannesson við-
hafði við þingrofið í fyrri-
nótt, er að minurv dómi
algerlega forkastanleg,
sagði Gylfi Þ. Gislason,
þegar Alþýðublaðið ræddi
við hann i gær um siðustu
viðburði i stjórnmál-
unum. Siðan islenska lýð-
veldið var endurreist
hefur enginn forsætisráð-
herra hegðað sér með
likum hætti. íslendingar
hafa siðan lýðveldið var
endurreist aldrei verið
Alþingislausir, fyrr en nú,
og slikt ófremdarástand,
. sem er i andstöðu við
allar þingræðisreglur,
eiga þeir fyrrverandi
stjórnlagaprófessor að
þakka.
— Mér skilst, að hann
hafi ekki rætt þá aðferð,
sem hann beitti við þing-
rofið i þingflokki sinum,
sagði Gylfi enn fremur,
enda drógu ýmsir þing-
menn Framsóknarflokks-
ins enga dul á undrun sina
á þessu háttarlagi i fyrra-
kvöld. Hitt þarf að sjálf-
sögðu enginn að undrast,
þótt forsætisráðherrann
hafi ekki sýnt skósveinum
sinum úr Alþýðubanda-
laginu, sem honum tókst
að halda i rikisstjórn,
meiri tillitssemi en svo,
að láta þá ekki vita um
þessa fyrirætlun sina fyrr
en á ráðherrafundi á mið-
vikudagsmorgun. En
auðvitað kyngdu þeir
þessu eins og öðru, sem
nauðsynlegt hefur verið,
til þess að halda völdum
sem lengst.
—■ En hvað merkir það i
raun fyrir stjórn lands-
málanna, þegar þing er
rofið með þessum hætti?
— Það merkir, að að-
staða Framsóknar- og
Alþýðubandalagsráð-
herranna er orðin sú, að
þeir geta gefið út bráða-
birgðalög án þess að eiga
það á hættu, að meirihluti
þingmanna geti kafist
þess, að Alþingi komi
saman, felli bráðabirgða-
lögin þegar i stað og
hindri þannig fram-
kvæmd þeirra. Slikt vald
hafa islenskir ráðherrar
hingað til ekki haft i sögu
lýðveldisins. Það er ekki
litið ánægjulegt fyrir
mann, sem kann að hefja
aftur kennslu i stjórn-
lagafræði við Háskóla Is-
lands næsta haust að hafa
orðið fyrstur til þess.
— Nú mun forseti is-
lands ekki hafa leitað
neins samráðs við for-
menn þingflokkanna eða
eftir áliti þeirra áður en
hann lét að ósk forsætis-
ráðherra um að heimila
þingrof. Getur þetta ekki
talist óeðlilegt þegar
vitað var, að fyrir alþingi
lá vantrauststillaga á
rikisstjórnina, sem var
studd af meirihluta þing-
heims?
— Ég tel ekki rétt á
þessu stigi að ræða þátt
forseta islands i þessu
máli. Hann hlýtur að hafa
gert sér ljóst, að með þvi
að heimila þingrof af
þessu tagi án nokkurs
samráðs við formenn
þeirra þingflokka, sem
höfðu meirihluta á Al-
þingi og flutt höfðu tillögu
um vantraust á rikis-
stjórnina var hann, að
framkvæma stjórnar-
athöfn, sem á sér ekkert
fordæmi i sögu lýð-
veldisins og ég geri ráð
fyrir, að stjórnlagafræð-
ingar muni láta i ljós
skoðun sina á við rétt
tækifæri.
— Hvað hyggst Alþýðu-
flokkurinn fyrir á næst-
unni?
— Alþýðuflokkurinn
mun nú þegar hefja
undirbúning að framboð-
um um land allt
Siðdegis i dag mun svo
nefnd sú, sem siðustu
flokksþing Alþýðuflokks-
ins og SFV kusu til þess
að ræða sameiningu og
samstarf flokkanna,
koma saman til fundar,
sagði Gylfi Þ. Gislason að
lokum.
flokka stjórnar,
þ.e.a.s. stjórnar Sjálf-
stæðisflokks, Fram-
sóknarflokks, Alþýðu-
flokks og Samtaka
frjálslyndra og vinstri
manna.
Þetta sagði Geir
Hallgrimsson,
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, i viðtali við
fréttamann blaðsins i
gærkv„ldi. —-Þá
athuguðum við einnig
möguleikana á
myndum þriggja
flokka stjórnar, með
Framsóknarflokknum
og annaðhvort
Alþýðuflokknum eða
Samtökunum og eins
gátum við hugsað
okkur myndun
stjórnar — til skamms
tima — með Alþýðu-
flokknum og Samtök-
unum i trausti þess, að
Magnús Torfi hefði
látið málefni sitja
fyrir mönnum, eins og
hann hefur lýst yfir.
Einnig athuguðum við
og ræddum möguleik-
ana á þvi, að Sjálf-
stæðisflokkurinn
myndaði minnihluta-
stjórn einn en varinn
gegn vantrausti.
Geir vildi ekki ræða
um þátt forseta lýð-
veldisins i málinu en
sagði það skoðun sina,
að það hefði átt að
„kanna möguleika
nánar út þessa viku og
jafnvel lengur.”
Geir Hallgrimsson
taldi þingrofið ótima-
bært án þess að
frekari tilraunir hefðu
verið gerðar og sagði
það leifar af einveldi
konungdæmisins.
Að lokum sagði
formaður Sjálfstæðis-
flokksins: —Ég tel það
mjög varhugavert, að
landið verði þinglaust
i þessa tvo mánuði og
harma það.
Þeir gefa ekki
kost á sér við
kosningarnar
í sumar
3 ► 3 Þ'3 ► 3 ► 3
rs
Sameiningarlistinn
Á fundi, sem haldinn
var samtimis hjá Alþýðu-
flokknum og SFV i
Reykjavik þann 20. april
s.l. var einróma sam-
þykktur sameiginlegur
framboðslisti þessara
aðila við borgarstjórnar-
kosningarnar i Reykjavik
Fimmtán efstu sæti
skipa: íBjörgvin
Guðmundsson borgarfull-
trúi, 2. Steinunn
Finnbogadóttir borgar-
fulltrúi, 3. Guðmundur
Magnússon skólastjóri, 4.
Einar Þorsteinn
Ásgeirsson arkitekt, 5.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
kennari, 6. Guðmundur
Bergsson sjómaður, 7.
Sigurður Blöndal nemi, 8.
Bragi Jósefsson deildar-
stjóri,9. Pétur Sigurðsson
varaform. Sjómannafel.
Rvikur, 10. Sigurður
Guðmundsson verka-
maður, 11. Helga
Guðmundsdóttir verka-
kona, 12. Margrét
Auðunsdóttir fyrrv. form,
Sóknar, 13. Emanúeí
Morthens forstjóri, 14.
Valborg Böðvarsdóttir
fóstra, 15. Guðmundur
Sigurþórsson fulltrúi.