Alþýðublaðið - 10.05.1974, Side 3
MIKLAR BREVTINGAR Á LISTUM
FRAMSOKNAR OG IHALDS
TIL ALMNGISKOSNINGANMA f SIIMAR
Allt útlit er nú fyrir töluverðar
breytingar á framboðslistum
stjórnmálaflokkanna til al-
þingiskosninganna i næsta
mánuði. Mestar breytingar
verða á listum Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðis-
flokksins. Umtalsverðar
breytingar verða liklega ekki á
listum Alþýðuflokksins, Alþýðu-
bandalagsins og SFV en þessa
dagana eru stjórnmálamenn á
miklum og löngum fundum og
leggja á ráðin.
Menn, kunnugir málefnum
Alþýðubandalagsins, segja
Jónas Árnason liklega ekki ætla
aftur i framboð en Ragnar
Arnalds, formaður AB, sagðist i
gær ekki vita um neinn þing-
mann flokks sins, sem ekki
ætlaði að gefa kost á sér aftur.
Af framsóknarmönnum gefa
ekki kost á sér þeir Eysteinn
Jónsson, Björn Pálsson á
Löngumýri, Páll Þorsteinsson,
Bjarni Guðbjörnsson og Agúst
Þorvaldsson. Talið er nær full-
vist, að i stað Eysteins Jóns-
sonar i efsta sæti flokksins á
Austurlandi komi Vilhjálmur
Hjálmarsson frá Brekku i Mjóa-
firði. Um nýja menn á lista
framsóknar er ekki vitað með
vissu, en niðurstöður mið-
stjórnarfundar flokksins á
dögunum þykja benda til þess,
að róttækari armurinn fái þar
litlu og fáu að komið.
Miklar breytingar verða á
þingliði Sjálfstæðisflokksíns.
Fimm þingmenn gefa ekki kost
á sér aftur, þeir Jóhann
Hafstein, Magnús Jónsson frá
Mel, Auður Auðuns, Birgir
Kjaran og Steinþór Gestsson á
Hæli. Þá þykir og ýmislegt
benda til þess, að Ólafur
Einarsson, sveitarstjóri i
Garðahreppi, gefi ekki kost á
sér aftur, enda hann sagður
orðinn leiður á þinginu, svo og
Matthias Bjarnason.
Varamaður Magnúsar Jóns-
Tapið varð þá tvær
á mánuði hverjum
„Dæmigerð Alþýðublaðsfrétt
— bullfrétt —”, sagði Þjóðvilj-
inn á forsiðu laugardaginn 2.
febrúar sl., og átti þar við for-
siðufrétt i Alþýðublaðinu daginn
áður þar sem haft var eftir
Kristjáni Ragnarssyni, fram-
kvæmdastjóra LIÚ, að tapið á
hverjum skuttogara hafi verið á
siðasta ári um ein milljón króna
á mánuði. Byggði Þjóðviljinn
sin ummæli á orðum Hauks
Helgasonar, hagfræðings, sem
var formaður nefndar þeirrar,
sem kannaði afkomu skuttogar-
anna á árinu 1973 og ennfremur
sagði i Þjóðviljafréttinni, að það
sé „ekki i fyrsta sinn, sem hann
(þ.e. Kristján Ragnarsson)
gengur fram i þvi að mála
skrattann á vegginn, ef hann
telur að það geti komið
stjórnarandstöðunni vel”.
Kristján Ragnarsson málaði
skrattann hinsvegar það
daufum litum á vegginn að
þessu sinni, að sú tala, sem
hann nefndi i sambandi við
tapið á togurunum, er um það
bil helmingi of lág. Niðurstaða
nefndarinnar, sem birt var 7.
mars sl., og Haukur Helgason
staðfesti með undirskrift sinni,
var nefnilega sú, að tapið af
nýjum skuttogurum af stærri
gerðinni var hvorki meira né
minna en rétt rúmar tvær
milljónir á mánuði, eða 24.285
milljónir króna að meðaltali af
togara yfir allt árið.
Tapið af minni skuttogurun-
um var heldur minna, eða að
ítölsk stakk
danskan
á Akranesi
ítölsk ung kona stakk danskan
eiginmann sinn með rýting i
bakiðuppi á Akranesi laust eftir
páskana, og var maðurinn
þegar fluttur á Borgarspitalann
i Reykjavik, en konan sett i
gæsluvarðhald.
sonar hefur að undanförnu verið
Halldór Blöndal og vill hann að
sjálfsögðu halda þvi sæti er
Magnús dregur sig i hlé. En
norður á Akureyri er Jón
Sólnes, bankastjóri og forseti
bæjarstjórnar þar, i hug-
leiðingum og telur sig eiga rétt á
sætinu.
Slagurinn innan Sjálfstæðis-
flokksins stendur um varaþing-
sætin, einna helst um sæti 8.
þingmanns Reykvikinga, sem
Birgir Kjaran hefur skipað, 3.
sæti á Vesturlandi, sem Ásgeir
Pétursson, sýslumaður i
Borgarnesi, hefur haldið og loks
3. sæti á Vestfjörðum, sem
Asberg Sigurðsson hefur skipað
að undanförnu.
öruggt má telja, að Albert
Guðmundsson bjóði sig fram i
Reykjavik og virðast allir sjálf-
stæðismenn sammála um ágæti
þess. Sjálfstæðisflokkurinn
hyggst að þessu sinni ekki efna
til prófkjörs, heldur verður það
milljónir
meðaltali 15.3 milljónir króna af
hverjum togara. Siðan er i
skýrslunni spáð 14.1 milljón
króna tapi á yfirstandandi ári
miðað við nýja togara af stærri
gerðinni, en um 10,5 milljón
króna tapi á minni togurunum.
Skömmu eftir að skýrslan var
gerð opinber, eða 29. april,
héldu skuttogaraeigendur með
sér fund, á vegum LIÚ, og gerðu
þeir fundarsamþykkt þar sem
þeir lýstu undrun sinni yfir þvi,
að rikisstjórnin skuli ekki þegar
hafa gert ráðstafanir i samræmi
við tillögur nefndarinnar til þess
að skapa rekstrargrundvöll-
Daninn vann við uppsetningu
nýrra tækja i sementsverk-
smiðjunni á Akranesi, og hafði
tekið konu sina með.
Eitt kvöldið kastaðist i kekki
milli hjónanna, með þeim
afleiðingum að suðrænn blóðhiti
konunnar náði yfirhöndinni á
gjörðum hennar með fyrr-
greindum afleiðingum.
Meiðsli mannsins reyndust
ekki eins alvarleg og þau
sýndust i fyrstu, og er hann nú
útskrifaður af spitalanum.
Konan var einnig látin laus,
enda eru þau bráðlega á fötum
út aftur. —
HORNIÐ
„Politik pá
sengekanten”
M.L. hringdi: „Ég var að sjá
um daginn eina af þessum
dönsku rúmstokksmyndum,
„Marzurka pá sengekanten”.
Mér datt nú svona i hug,
þegar ég hlustaði á umræðurnar
á Alþingi meðan það var og hét
og inn i þær spunnust sjúkralega
Björns Jónssonar, hvort ekki
væri upplagt til Islands-
sögunnar að nefna þessa siðustu
viðburði i stjórnmálunum:
„Politik pá sengekanten”.”
Hér nieð tilkynnist til í'irmaskrár
Reykjavíkur, að ég undirritaður, Her-
mann Auðunsson, Silfurteigi 1, Rvík, rek
með ótakmarkaðri ábyrgð fyrirtæki, sem
heitir Jólasveinninn, Norðurpólnum. Ttt-
gangur þess er dreifing jólaskrauts og
skyld starfsemi.
Firmað rita ég þannig:
Jólasveinninn, Norðurpólnum.
Hermann Auðunsson.
Reykjavík, 1. febriiar 1974.
Hermann Auðunsson.
(776
tilutverk fulltrúaráðs flokksins
að stilla upp listum.
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamála-, samgöngu- og
félagsmálaráðherra, sagðist i
viðtali við fréttamann blaðsins i
gær ekkert geta sagt um hvort
hann gæfi kost á sér aftur en
ýmsir hafa látið að þvi liggja, að
hann muni hætta öllum
afskiptum af stjórnmálum. —
Sem stendur hef ég um nóg
annað að hugsa, sagði Magnús,
og hef ekki haft tima til að
leggja þessar spurningar fyrir
mig.
Frestur til að skila framboðs-
listum til alþingiskosninganna
30. júni rennur út miðviku-
daginn 29. mai. Áhugamenn,
jafnt sem atvinnumenn i pólitik,
þykjast vissir um, að baráttan i
þessum kosningum báðum
rennimeira eða minna i eitt.
Kennarar athugið
Nokkra kcnnara vantar að barna- og gagnfræðastigsbekkjum
Egilsstaðaskóla næsta vetur.
Æskilegar kennslugreinar m. a. danska, stærðfræði, eðlis-
fræði og leikfimi stúlkna.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Ólafur Guðmundsson
í síma 97-1146 eða 1217.
Skólanefnd Egilsstaðaskólahverfis.
Auglýsing
um breyíing ó forsetaúrskurði frá 16. júlí 1973, sam-
anber breytingu á forsetaúrskurði fró 14. júlí 1971,
um skipting starfa róðherra.
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra er hér með gcrð sú breyt-
ing á forsetaúrskurði frá 16. júlí 1973, samanber brcytingu
á forsctaúrskurði frá 14. júlí 1971, um skiþting starfa ráð-
hcrra, að Magnús Torfi Ólafsson, menntamálaráðherra fer
mcð ráðhcrrastörf þau, scm Birni Jónssyni voru falin í ncfnd-
um forsetaúrskurði.
Þctta birtist hér mcð þeim, sem hlut eiga að máli.
/ forsœtisráðuneytinu, 6. mai 1974.
Ólafur Jóhannesson.
Guðmundur Benediktsson
Lausar stöður
við Æfinga- og tilraunaskóla Kennarahóskóla íslands
Lausar cru til umsóknar nokkrar stöður fastra æfingakenn- '
ara við Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla íslands. [
Um er að ræða kennslu yngri nemenda og kennslu á síðari '
hluta skvldustigs, 10—15 ára, m.a. í íslensku, eðlisfræði o. fl. \
greinum. '
Einnig eru lausar nokkrar almennar kennarastöður við
Æfinga- og tilraunaskólann. \
, Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Llmsóknum, ásamt upplýsingum um námsferil og störf, skal '
komið til menntamálaráðunevtisins, Hverfisgötu 6, Reykja-
vík, fvrir 31. maí 1974. — Umsóknareyðublöð fást í ráðu
nevtinu. 1
Menntamólaráðuneytið,
6. maí 1974. 1
i--——------------------------------------------------—-----1
Föstudagur 10. maí 1974.
©