Alþýðublaðið - 10.05.1974, Síða 5
Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður, Freysteinn Jóhannsson. Stjórn-
málaritstjóri, Sighvatur Björgvinsson.
Aðsetur ritstjórnar, Skipholti 19, simi:
28800. Afgrciðsla: Hverfisgötu 8-10, simi:
14900. Auglýsingar, Hverfisgötu 8-10,
simi: 28660 og 14906. Blaðaprent hf.
Ólafur tekur sér alræðisvöld
111 hefur ganga rikisstjórnar ólafs Jóhannes-
sonar verið en verst ætlar hún að verða sú sið-
asta. Þegar einn stjórnarflokkurinn vék frá
stuðningi við stjórnina og fyrir lá á Alþingi van-
trauststillaga á hana studd af meirihluta lög-
lega kjörinna fulltrúa þjóðarinnar á löggjafar-
samkomu landsinsrþá greipforsætisráðherra til
þess ráðs að nota vald það, sem honum var einu
sinni fengið af meirihluta þingheims, til þess að
„losa sig við þingið”, eins og hann sjálfur sagði
og reka þingmenn heim. Með þvi að beita þvi
valdi, sem honum var á sinni tið fengið af meiri-
hluta þingmanna en meirihluti þingmanna nú
vill svipta hann, þá tók forsætisráðherra i sinar
hendur allt vald á íslandi næstu tvo mánuði og
fer nú sjálfur ásamt fimm hjálparkokkum sin-
um með allt það vald, sem rikisstjórn íslands og
60 þjóðkjörnum alþingismönnum er fengið sam-
kvæmt landslögum. Á Islandi situr þvi ekki
lengur að völdum þingbundin rikisstjórn heldur
fámennisstjórn sex ráðherra, sem neitaði að
lúta vantrausti, svipti þingmenn, sem þjóðin
hafði kjörið i lýðræðislegum kosningum, öllu
umboði sinu, og ætlar sér svo að stjórna landinu
næstu vikurnar með tilskipunum án þess svo
mikið sem að leita samráðs við þing eða þjóð.
Og meðal þessara sex ráðherra, sem tóku sér
alræðisvöld á íslandi i andstöðu við m eirihluta
löglega kjörins þjóðþings, eru tveir kommúnist-
ar. Engum stjórnmálamanni i allri Vest-
ur-Evrópu öðrum en ólafi Jóhannessyni hefði
dottið i hug að beita valdi, sem meiri hluti þjóð-
þings vildi svipta hann, til þess að tryggja
kommúnistum slik alræðisvöld.
En aðferðir ólafs Jóhannessonar eru grófari
en það eitt að neita að lúta vantrausti en rjúfa i
staðinn þing. Hann er eini forsætisráðherrann á
íslandi i sögu landsins sem lýðveldis, sem hefur
framkvæmt þingrof með þeim hætti að láta það
taka gildi frá og með þeim degi, sem þingrofsúr-
skurðurinn er lesinn — og ákveða þannig, að
engin löggjafarsamkunda skuli vera til i landinu
i margar vikur.
Frá þvi ísland gerðist lýðveldi hefur þing
nokkrum sinnum verið rofið, en ávallt með þeim
hætti, að alþingismenn hafa ekki verið sviptir
þvi umboði, sem þjóðin fékk þeim i kosningum,
fyrr en á kjördegi. í fræðiriti sinu telur Ólafur
Jóhannesson sjálfur, að sú leið sé skynsamlegri
og eðlilegri en hin, sem hann samt sem áður
valdi, vegna þess, að þá sé þó til alþingi á Is-
landi, sem hægt sé að kalla saman ef sérstakar
aðstæður skapist.
En með valdbeitingu ólafs Jóhannessonar i
fyrrinótt lagði hann niður alþingi íslendinga um
tveggja mánaða skeið. Sama hvaða stórvið-
burðir kunna að gerast hér heima eða erlendis á
næstu vikum er þvi ekki hægt að kalla neitt þing
saman. ólafur og fimmburar hans i rikisstjórn-
inni eru þvi einvaldir á íslandi þennan tima. Svo
gróflega hefur enginn forsætisráðherra i sögu
lýðveldisins íslands beitt valdi sinu gegn þingi
og þjóð.
alþýðu
nnmu]
Græna byltingin
hrein blekking
fTARLECAR TILL06UR IIM SKIPOLAGS-
OR UMHVERFISMÁL FRA MINNIHLUTANUM
Á borgarstjórnarfundi þann 18.
april s.l. fóru fram miklar um-
ræ&ur um hina svonefndu
„Grænu byltingu” borgarstjórn-
armeirihlutans. Borgarfulltrúar
minnihlutans lögðu þar fram
greinargerð um afstöðu sina til
málsins og fluttu mjög itarlegar
ræður, þar sem þeir sýndu fram á
með mörgum dæmum, hversu
áætlun sú um græn svæði og
göngustiga, sem borgarstjórnar-
meirihlutinn ætlar að gera að
aðal-kosningamáli sinu, er ákaf-
lega illa og hroðvirknislega unn-
in. Sögðu þeir m.a. að auðsætt
væri, að áætlunin öll væri unnin
með það fyrst og fremst fyrir
augum að búa til „billegt” kosn-
ingamál fyrir borgarstjórann og
samflokksmenn hans, en það mál
væri með afbrigðum illa og
óvandvirknislega unnið. Þá fluttu
borgarfulltrúar minnihlutans
einnig tillögu um „Grænu byiting
una”, þar sem m.a. segir, að
vegna mikillar ónákvæmni og
misræmis, sem i áætluninni gæt-
ir, samþykki borgarstjórnin að
visa henni til endurvinnslu jafn-
framt þvi, sem þá verði gerðar á
áætluninni miklar breytingar til
bóta. Verði endurvinnslunni lokið
þannig að unnt verði að leggja
áætlunina fyrir við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar fyrir árið 1975.
Auk þessarar tillögu og grein-
argerðar, sem henni fylgdi, þar
sem bent var með mörgum dæm-
um á misræmi og mikla
ónákvæmni i áætlun borgarstjór-
ans, þá fluttu borgarfulltúar
minnihlutaflokkanna einnig tvær
aðrar tillögur i mörgum liðum. Sú
fyrri fjallaði um veiði- og fiski-
ræktarmál, þar sem lagt er til að
gerð verði áætlun um skipulagn-
ingu og nýtingu vatnasvæðis
Reykjavikurborgar. M.a. bentu
fulltrúar minnihlutaflokkanna á
ýmis verkefni, sem vinna þyrfti i
þessu sambandi, þ.á.m. þessi:
Að allt vatnasvæði borgarinnar
verði skipulagt og þvi lýst á
grundvelli visindalegrar þekk-
ingar auk þess sem fram fari líf-
fræðilegar rannsóknir á ám og
vötnum i nágrenni borgarinnar til
þess að kanna, hvernig auka megi
þar veiði.
Að ráðstafanir verði þegar
gerðar til þess að tvöfalda vatns-
magn fyrir fiskiræktarstöðina við
Elliðaár þannig að hún geti annað
bæði fiskikynbótuni og fiskeldi
fyrir allt vatnasvæði borgarinn-
ar.
Að árhólmarnir i Elliðaánum
verði skipulagðir nú þega og laxi
greidd leið upp i árnar. Jafnframt
verði gerðar mengunarrannsókn-
ir á vatni ánna.
Að komið verði á tengingu úr
Elliðaánum um Bugðu og upp i
Hólmsá. Með þvi að opnast ný
svæði fyrir lax og veiðisvæði
Elliðaánna myndi tvöfaldast.
Að vatnsmiðlun á vatnasvæði
Elliðaánna verði stóraukin til
þess að draga úr næstum árviss-
um vetrarflóðum, er sópa burt
með sér laxaseiðum og spilla
gróðri.
Að áhersla verði lögð á silungs-
rækt i Elliðavatni og reynt að
koma upp silungaklaki i kvislum
ofan vatnsins.
Að mengungareftirlit á Elliða-
ársvæðinu verði stórlega hert.
Að aukin verði starfsemi Æsku-
lýðsráðs að veiðimálum unglinga
og að tillögur, sem fyrir liggja
um, að vatni verði hleypt á vest-
urkvisl Elliðaánna neðan Arbæj-
arstiflu i þeim tilgangi að silung-
ur gangi þar upp verði athugaðar
nánar, þar sem vatnsmagn ánna
yfir sumartimann sé ekki það
mikið, að til skiptanna sé.
Verði sérstakri 5 manna nefnd
ralið að gera nánari tillögur til
borgarstjórnar um þessi mál.
Auk þeirra tillagna, sem að
framan voru nefndar, fluttu borg-
arfulltrúar minnihlutaflokkanna
á umræddum borgarstjórnar-
fundi einnig tillögu um, að þróun-
arstofnun og skip.ulagsstjóra
verði falið að undirbúa og láta
fara fram hugmyndasamkeppni
um framtiðarskipulag Elliðaár-
svæðisins ásamt umhverfi Elliða-
vatns.
Þá fluttu borgarfulltrúar
minnihlutans einnig á þessum
sama borgarstjórnarfundi mjög
itarlega tillögu um skipulagningu
Oskjuhliðarsvæðisins sem úti-
vistarsvæði, þar sem m.a. segir
svo:
Við skipulagningu svæðisins
verði fyst og fremst miðað við eft-
irfarandi þætti:
1. Grafnar verði laugar inn I hlið-
ina og komið fyrir heitum kerj-
um, aðstöðu til sólbaða, bún-
ings- og hreinlætisaðstöðu.
Jafnframt verði settir upp
tennisvellir, minigolf og önnur
útilifsaðstaða.
Þess verði gætt, að laugar og
vellir verði felld inn i hliðina og
umhvcrfið sem allra best.
Umhverfið verði áfram sem
náttúrulegast og jafnframt
skreytt með gosbrunnum og
listaverkum.
2. i hliðinni verði komið upp garði
með suðrænum gróðri undir
hvolfþaki.
3. Veitingaaðstaða verði á svæð-
inu og endurvakin sú hugmynd
að reisa veitingahús uppi á
tönkum með útsýni yfi borgina.
4. Frárennsli hitaveitutankanna
verði notað til upphitunar
Nauthólsvikur.
Með flotgirðingu verði afmark-
aður upphitaður sjóbaðstaður.
5. Viðræður vcrði hafnar við
Kópa vogskaupstað um fram-
tiðarnýtingu Fossvogsins, þar
sem miðað verði við, að vogur-
inn verði fyrst og fremst sjó-
baðstaður með aðstöðu fyrir
skemmtibáta og sjóskiði
o.s.frv.
6. Gerð verði i samvinnu viö
Kópavogskaupstað áætlun um
hreinsun Fossvogs fyrir öllu
frárennsli sem allra fyrst.
Fjölmargar aðrar tillögur um
skipulagsmál i Reykjavik voru
einnig fluttar af borgarfulltrúum
minnihlutaflokkanna á umrædd-
um borgarstjórnarfundi og verð-
ur þeirra siðar getið i Alþýðu-
blaðinu ásamt hinni nákvæmu út-
tekt þeirra á hinni svonefndu
„Grænu byltingu”, sem m.a. leið-
ir i ljós þau hroðvirknislegu
vinnubrögð, sem þar hefur verið
beitt, en skv. áætluninni um
„Grænu byltinguna” er mjög viða
ekkert tillit tekið til núverandi
eða frambúðargatnakerfis borg-
arinnar, mikils misræmis gætir
milli einstakra korta yfir götur og
gönguleiðir og viða er gleymt
skipulögðum ibúðarlóðum, sem
gangstiga ætti skv. áætluninni
að leggja þvers og kruss yfir.
Var auðsætt, að borgarfulltrú-
um meirihlutans komu mjög á
óvart þeir mörgu ágall-
ar, sem borgarfuiltrúar minni-
hlutans bentu á að væru á
„Grænu-byltingaráætluninni” og
varð þeim fátt um svör á fundin-
um.
Kosningaskrifstofa
J-listans
er að Laugavegi 33
Símar 28718-28765
UtankjörstaðaatkvœSagreiSsla fer fram daglega frá
kl. 10—12, 14—18 og 20—22, á helgum dögum kl.
14-18.
Kosið er í Hafnarbúðum við Tryggvagötu.
Sjálfboðaliðar óskast til starfa.
Þeir, sem lána vilja bíla á kjördegi, vinsamlegast
hafi samband við skrifstofuna að Laugavegi 33, —
símar 28718 og 28765.
Alþýðuflokkurinn S.F.V.
Föstudagur 10. maí 1974.
9