Alþýðublaðið - 04.07.1974, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 04.07.1974, Blaðsíða 1
Gylfa Þ. Gíslason Ragnar biður um vinsamlegar viðræður Þióðviliinn hellir úr skálnm reiði sinnar FIMMTUDAGUR 4. júli 1974 - 115. tbl. 55. árg. Hverjum veröur falin stjórnarmyndunin? Forseti íslands hefur átt viðtal við formenn allra stjórnamálaflokka, sem sæti eiga á Alþingi þvi, er kvatt verður saman á næstunni. Er hér um að ræða upphafsviðræður varðandi myndun rikisstjórnar, en engin ákvörðun hefur verið tekin um hverj- um verður falið það verkefni, og ekki er heldur ljóst hvenær sú ákvörðun verður tekin. Þó má búast við að hennar verði ekki langt að biða. Nefnd borgarráðs og menntamálaráðuneytis: HáSKOUNN DREGUR OF — SJÁ BÍLASÍÐU MARGA TIL „Uppeldisleg og þjóö- félagsleg rök hnfga aö AAæjorka við túnfótinn þvf, aö nauösynlegt sé aö losa um hiö einhæfa kerfi framhaldsmennt- unar hér á landi, sem um of mótast af aka- demiskri hefö og beinir sivaxandi fjölda nem- enda til háskólanáms á sama tima og annaö framhaldsnám á erfitt uppdráttar, þó aö þarf- ir þjóölifsins séu vafa- litiö aörar en af þvf mætti ætla”. Þetta segir meöal annars i álitsgerö nefndar, sem skipuö var af menntamálaráöu- neytinu og borgarráöi Keykjavikur til þess aö fjalla um framkvæmda- og fjárfestingaráætlun vegna byggingar skóla- mannvirkja iReykjavik 1974-1980, og um skipt- ingu aldursflokka á skólastig og skóladvöl nemenda. Aö frumkvæöi fræösluráös Reykjavik- ur og borgarráös voru teknar upp viöræöur milli borgaryfirvalda og menntamáiaráöu- neytisins um aö koma á samfelldum skóladegi nemenda. Fól mennta- málaráöuneytiö Andra tsakssyni, prófessor, og Indriöa H. Þorlákssyni, deildarstjóra, aö annast þessar viöræöur af sinni hálfu, en borgarráö haföi faliö Kristjáni J. Gunnarssyni, fræöslu- stjóra, þaö hlutverk af hálfu borgarinnar. Einnig tóku þeir Björn Halldórsson, skrifstofu- stjóri, og Ragnar Georgsson, skólafull- trúi, þátt f þessu starfi. t álitsgerö nefndar- innar segir, aö fljótlega hafi oröiö ljóst, aö verk- iö yrði ekki unnið á viö- unandi hátt, nema vinna þaö sem lið i heildaráætlun um skólabyggingar i borg- inni. Einnig kom i ljós, aö veigamikið atriöi I þvisambandi var aö Ilta á allt skólakerfiö neöan háskólastigs sem eina heild. Er álit nefndar- innar um margt at- hygiisverö, en ekki hvaö sistað þvileyti, sem hér er vitnað til aö framan, þar sem sagt er, aö skólakerfiö valdi þvi, aö annað framhaldsnám en háskólanám eigi erf- itt uppdráttar, enda þótt þaö þjóni ekki þörfum þjóölifs i þeim mæli, sem þessi þróun gefur tilefni til að ætla. Krúnurakstur í Eyjum Tveir ótuktar aðkomupiltar I Vestmannaeyjum tóku upp á þvi fyrir skömmu, aö ráöast þar á fávita og krúnuraka hann. Héldu þeir honum meö valdi á meöan. Þetta mæltist illa fyrir meöal Eyjaskeggja, og hugðu margir á hefndir. Eftir dansleik fyrir skömmu, tóku svo nokkrir reiöir Eyjabúar sig til og handsömuöu piltana. Hvort sem sækja þurfti skæri, eða einhver hefur haft þau meðferðis, þá krUnurökuöu þeir piltana tvo, og þykir nU harma fávitans hefnt þar sem hár piltanna var stolt þeirra. Alþýðublaðið spurði Gylfa Þ. Gislason að þvi i gær, hvort hann gæti sagt nokkuð um viðtal forseta tslands við hann i gærmorgun. Gylfi svaraði; — Það hefur aldrei tiðkast, að greina opin- berlega frá þvi, sem fer milli forseta tslands og flokkaformanna undir slikum kringumstæð- um. Flokksst'jórn Alþýðuflokksins hélt fund i fyrradag um við- horfin eftir kosningarn- ar. Upplýsingar þær, sem ég veitti forsetan- um, grundvölluöust að sjálfsögðu á þvi, sem fram kom á þeim fundi. — Þjóðviljinn ræðst harkalega á þig og Al- þýðuflokkinn i gær. Hvað viltu segja um það? — Þjóðviljinn segir frá þvi yfir þvera for- siöuna að ég bendi á Geir Hallgrimsson sem forsætisráðherraefni, þótt blaðið viti, þegar fréttin er birt, að viðtal okkar forseta tslands hefur ekki átt sér staö. Það, sem ég hef að- spuröur sagt viö fjöl- miðla um væntanlega stjórnarmyndunartil- raunir er það eitt, hvað ég telji liklegast að ger- ast muni samkvæmt fyrri reynslu. En eitt- hvað virðist ástandið á heimili Aiþýðubanda- lagsins vera undarlegt. t fyrrakvöld hringir Ragnar Arnalds til min, kurteis og alúðlegur, eins og hans er von og visa, og segir mér frá þvi, að ég eigi von á bréfi frá framkvæmda- stjórn og þingflokki Alþýðubandalagsins, þar sem óskað sé eftir viðræðum milli flokka okkar um þá stöðu, sem nú sé komin upp i islenskum stjórnmálum eftir nýafstaðnar kosningar. Þetta bréf kom siðdegis i gær og verður auðvitað lagt fyrir flokksstjórnina. En samtimis þvi og Alþýöubandalagið ósk- ar eftir vinsamlegum viðræðum er ráðist heiftarlega á mig persónulega og Alþýðu- flokkinn i Þjóðviljan- um. Ekki veit ég hvort skýringin er sú, að her viti hægri höndin ekki, hvað sú vinstri gerir, eða að hér er aðeins um venjuleg Þjóðvilja- vinnubrögð að ræða. Ég mun einhvern tima seinna vikja að þvi, sem Þjóðviljinn segir um sögu Alþýðu- flokksins. Nú skal ég láta nægja að benda á, að þegar hann rekur atkvæðahlutfall Alþýðuflokksins I ára- tugi, þá sleppir hann kosningunum 1967, þeg- ar Alþýðuflokkurinn var sigurvegari kosninganna. Eru þó ekki nema sjö ár siðan. Við tækifæri mætti einnig rifja upp sitt hvað úr sögu Alþýðu- bandalagsins, sem Þjóðviljinn lika vill gleyma. Kristján Þorgeirsson, bréfberi á Brúarlandi ber einkennlsbúning póstmanna með lúðri kaskeiti og svipu i póst- ferðinni, sem nú er lögð af stað riðandi norður i land undir forystu Þor- láks Ottesen. Þegar sið- ast fréttist gekk ferðin að óskum, enda veður ákjósanlegt. I nótt gistu póstmrenn hjá Hjalta Sigurbjörnssyni að Kiðafelii i Kjós, og þarf þá ekki að spyrja um viðurgerning. Fleiri myndir af þessari merkilegu póstferð er að finna á blaðsiðu —. m 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.