Alþýðublaðið - 24.07.1974, Blaðsíða 5
Útgefandi Blað hf.
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (áb)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Útbreiðslustjóri: Þráinn Þorleifsson
Aðsetur ritstjórnar: Skipholt 19, simi:
28800. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10:
simi 28660 og 14906.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10: simi 14900,
Blaðaprent hf,
ÓFREMDARÁSTAND
Meginvandi sérhverrar rikisstjórnar á Islandi
hefur ávallt verið að fást við aðsteðjandi vanda-
mál efnahagslifsins. Einkum og sér i lagi hefur
það varið baráttan við verðbólguna, sem sett
hefur svip sinn á þær aðgerðir. Verðbólga hefur
löngum verið landlæg á Islandi og allar rikis-
stjórnir hafa reynt eftir mætti að vinna bug á
henni.
Það verk hefur þeim misjafnlega vel tekist.
Engri rikisstjórn hefur tekist að vinna bug á
þessu erfiða vandamáli, sem raunar er orðið
þjóðarmeinsemd. En sumum hefur tekist betur
en öðrum að hafa hemil á verðbólgunni og hin-
um illu fylgifiskum hennar.
Það fer t.d. ekkert á milli mála, að sú rikis-
stjórn, sem Alþýðuflokkurinn átti aðild að nú
siðast, stóð sig til muna betur i baráttunni við
verðbólguna, en sú rikisstjórn, sem setið hefur
að völdum s.l. þrjú ár. í þau tólf ár, sem fyrr-
nefnda rikisstjórnin sat að störfum, var verð-
bólgan u.þ.b. 10% á ári að meðaltali — og var
það vissulega meiri verðbólga, en æskilegt hefði
verið. En hvað er það samanborið við um eða
yfir 50% verðbólgu eins og spáð er um yfirstand-
andi ári — siðasta valdaár samsteypustjórnar
Alþýðubandalagsins, Samtakanna og Fram-
sóknarflokksins? Hafi viðreisnarstjórninni ekki
tekist nægilega vel viðnámið gegn verðbólgunni
á valdaskeiði sinu, hvað má þá segja um þá
rikisstjórn, sem setið hefur að völdum s.l. þrjú
ár?
Alþýðublaðið efar það ekki, að þeir flokkar,
sem þá héldu um stjórnvölinn, vildu gera sitt
besta til þess að hefta verðbólguþróun i landinu.
Enginn stjórnmálamaður vill stuðla að ástandi
eins og þvi, sem nú rikir. En þvi miður tókst
ekki betur til en þetta.
HVAÐ VERÐUR AÐ GERA?
Næstu rikisstjórnar — hver sem hún annars
verður — biður þvi erfitt verkefni, þvi bregðast
þarf við með festu og öryggi til þess að koma i
veg fyrir, að óðaverðbólgan leggi efnahagslíf
landsins og afkomu heimilanna i rúst. Þær að-
gerðir, sem óhjákvæmilegt er að beita, verða án
efa erfiðar og jafnvel þungbærar. En Alþýðu-
blaðið minnir á, að það hafa ekki allir lands-
menn tapað á ástandinu. Verðbólgan hefur lika
skapað hópi einstaklinga og félaga óhemjugróða
og sú rikisstjórn, sem vill vinna að lausn efna-
hagsvandamálanna i samstarfi við launþega-
samtökin, verður að sýna þann vilja sinn i verki
með þvi að bera fyrst niður hjá þeim, sem
matað hafa krókinn á ófremdarástandinu á
kostnað annara.
Verkalýðshreyfingin hefur þráfaldlega sýnt
það, að þegar kreppir að þjóðinni, þá er al-
menningur i landinu fús til þess að mæta vanda-
málunum af ábyrgð og skilningi. En það hlýtur
að vera réttlætiskrafa launafólksins i landinu,
að byrðar þær, sem leggja skal á þjóðina, verði
réttlátlega á lagðar. Að þeim verði ekki hlift,
sem mest hafa auðgast á hinu óeðlilega ástandi.
Það er e.t.v. út i hött að fara enn á ný að tala
um ,,hin breiðu bök”. En staðreyndin er samt
sem áður sú, að þessi breiðu bök eru til i þjóð-
félaginu og þau eru ekki vandfundin. Sérhver al-
þýðumaður getur bent stjórnmálamönnunum á,
hvar þau eru, finni þeir þau ekki sjálfir.
Og það eru þessi breiðu bök, sem nú verða að
bera sinn réttláta skerf af byrðunum. Það hlýtur
að verða meginkrafa alþýðusamtakanna i
landinu og þeirra stjórnmálaafla, er þeim fylgja
að málum.
alþýðuj
ERLENDIS FRÁ:
hafréttarrAdstefman
FRÁ NORSKII SJOHARMIBI
Hafréttarráðstefnan í
Caracas hefur nú setið að
störfum um nokkurt skeið
og eru miklar vonir bundn-
ar við störf hennar og það
af miklu fleiri þjóðum, en
okkur islendingum. Hags-
munirnir eru vissulega
margvíslegir og áhugamál
in ólík, en talsvert hefur
verið rætt og ritað um mál-
efni tengd ráðstefnunni í
nágrannalöndum okkar
þar sem viðhorf hinna ein-
stöku ríkja og sér-áhuga-
mál þeirra hafa komið
fram.
Grein sú, er hér birtist i
lauslegri þýðingu, var rit-
uð nú fyrir skömmu í
norska Arbeiderbladet —
málgagn norska Verka-
mannaflokksins — og fjall-
ar um sérstök áhugamál
Norðmanna tengd hafrétt-
arráðstefnunni. Höfundur
greinarinnar er Rolf Hell-
em, Stórþi ngsmaður
Verkamannaflokksins, en
t hann á sæti i iðnaðarnefnd
Stórþingsins. Hellem er
fimmtugur að aldri og
járnbrautarstarfsmaður
að starfi. Hann var fyrst
kjörinn á Stórþingið árið
1965 og situr þar sem þing-
maður Nordland-k jör-
dæmis.
Norðmenn hafa lengi verið
mikil fiskveiði- og siglingaþjóð.
Nú ráðum við einnig yfir þriðj-
ungi af hinum evrópska land-
grunnssökkli þar sem finna má
oliuauðlindir, sem enginn veit enn
hve miklar eru.
Framtiðarstefna okkar hlýtur
að mótast af þvi, að Noregur neð-
ansjávar er miklu stærri og auð-
ugri af hráefnum, en sá hluti Nor-
egs, sem ofansjávar er.
Almennar þjóðréttarreglur og
Genfarsáttmálinn frá 1958 (Land-
grunnssáttmálinn )veitir Noregi
yfirráð yfir landgrunni, sem að
mestu kemur heim og saman við
landfræðilegan landgrunnsstöpul
Noregs. Landgrunnssáttmálinn
frá 1958, sem byggir á nýtingar-
hæfi (eins langt út ogdýpt hafsins
leyfir nýtingu) er takmarkaður
við tæknilega nýtingargetu. En
frá þvi það samkomulag var gert
hefur tækninni fleygt fram. Nú
þekkir tæknin engin takmörk
önnur, en nýtingartakmörkin. Og
þar með er kapphlaupið hafið um
sjálfan úthafsbotninn.
Það ætti að vera sameiginlegt
hagsmunamál allra þjóða að
setja sem fyrst reglur um skil
hins alþjóðlega hafsbotnssvæðis
og nýtingarlandgrunns einstakra
strandrikja. Það gæti orðið af-
drifarikt slys og sorgarsaga, ef
tæknin ynni sigur á hafdjúpinu
áður en tekist hefur að koma á fót
samþjóðlegri stjórnun á hagnýt-
ingu úthafsbotnsins, sem gæti
stýrt og stjórnað nýtingu hrá-
efnalinda úthafanna og úthafs-
botnsins.
Markalinur landgrunns Noregs
eru skarpari en flestra annarra
rik]a, sem land eiga að Norður-
sjó. Þetta gildir norður að 62.
breiddargráðu. Þar nyrðra eru
ekki skýrar markalinur milli
landgrunns Noregs og Skotlands.
En annað kemur þar einnig til
— sem sé spurningin um hvar
greina skuli á milli yfirráðasvæða
Nore'gs og Sovétrikjanna.
Umkringt norsku landgrunns-
svæði liggur svo eyjan Svalbarði,
sem er norskt land samkvæmt
Svalbarða-sáttmálanum en meö
ákveðnum mörkuðum skilyrðum.
Rolf Hellem, Stórþingsmaður,
höfundur greinarinnar.
öll þau 41 riki, sem eru aðilar að
Svalbarða-sáttmálanum hafa að-
gang að náttúruauölindum þar
eftir reglum, sem settar eru i
námuvinnslulögum eyjarinnar.
Þetta á einnig við um borun eftir
oliu og vinnslu hennar. Sval-
barðasáttmálinn felur einnig i sér
ákvörðun um landhelgi Sval-
barða, sem er 4 milur eins og
raunar fyrir Noreg lika. En utan
þessara fjögurra milna gilda hin
almennu norsku lagaákvæði um
landgrunn og nýtingu þess.
Svalbarði hefur ekkert eigiö
landgrunn. Landgrunn eyjarinn-
ar er nefnilega ekki nefnt i sátt-
málanum. Þetta merkir að land-
grunnsmálið á sama hátt og önn-
ur málefni eyjarinnar, sem ekki
eru leyst i sáttmálanum, falla
undir venjulega norska lagasetn-
ingu. Miðlinureglan, sem ákveð-
in er i Genfarsamkomulaginu frá
1958, gildir heldur ekki fyrir Sval-
barða. Miðlinureglan fjallar um
skiptingu landgrunns milli
tveggja rikja, sem bæði eiga til-
kall til sameiginlegs landgrunns.
En enginn getur kallað Svalbarða
sérstakt riki. Það er hluti af kon-
ungsrikinu Noregi. Það virðist
þvi eðlilegt og sjálfsagt, bæði út
frá landfræðilegum staðreyndum
og reglum þjóðarréttar, að land-
grunnið, sem umlykur Svalbarða,
sé norskt yfirráðasvæði og i eigu
norska rikisins.
Miklir hagsmunir, bæði nýting-
arlegir og hernaðarlegir, eru
tengdir hinu viðáttumikla land-
grunni i Barentshafi. Til þessa
hefur helsta auðlind Barentshafs-
ins verið fiskur. En enginn getur i
dag neitað þvi, að þar kunni að
finnast mikil auðæfi önnur — bæði
olia og málmar. Sumir hafa
meira að segja sagt, að i þessu
landgrunni, sem bæði tilheyrir
Noregi og Sovétrikjunum, sé að
finna auðugustu oliulindir jarðar-
innar. Og þá mega menn ekki
heldur gleyma mikilvægi oliunn-
ar frá herfræðilegu sjónarmiði.
Landgrunnsskil Noregs og
Sovétrikjanna i Barentshafi
verða ekki rædd af hafréttarráð-
stefnunni i Caracas. En það mál
er engu að siður i nánum tengsl-
um við landgrunnsmálin og land-
grunnsstefnuna, sem þar eru
rædd. Fyrsta og mikilvægasta
verkefnið hlýtur að vera að kom-
ast að einhverju þvi samkomu-
lagi um Barentshafið, sem dregur
úr hættu á deilum um yfirráð þar.
Ég hef áður varpaö þeirri hug-
mynd fram, hvort ekki reyndist
unnt að koma á einhverju sam-
starfi milli Noregs og Sovétrikj-
anna um rannsóknir og hugsan-
lega oliuvinnslu á „landamæra-
svæðum” landgrunnsins þarna.
Væri slikt framkvæmanlegt
myndi það skapa nýja og áður
óþekkta möguleika m.a. tækifæri
til samkomulags um skynsam-
lega nýtingu auðlinda þessara
hafsvæða án þess að hætta verði á
rányrkju þar.
En það eru ytri takmörk land-
grunnsins sem rædd verða á ráð-
stefnunni i Caracas. Þar riður á
að niðurstaða fáist sem fyrst. Þaö
verður að koma i veg fyrir það, aö
stórveldin hef ji einn góðan veður-
dag sin á milli deilur um svæði,
sem ættu að vera alþjóðleg yfir-
ráðasvæði — „sameiginlegur arf-
ur mannkynsins alls”. Þessar
döpru framtiðarhorfur — sem
gætu ræst, ef tæknin ein fær að
ráða framþróun mála — ættu að
hvetja þjóðir heims til þess að
vinna bug á tregðulögmálinu,
sem alla jafna gildir i alþjóðleg-
um samskiptum. Og auk þess er
málið i nánum tengslum við nátt-
úruvernd og nýtingu auðlinda,
bæði varðandi alþjóðleg viðhorf
og viðhorf einstakra rikja i þess-
um efnum.
Það má vel vera að 200 mílna
efnahagslögsaga nægi ekki til
þess að Noregur fái öll yfirráð
eigin landgrunns eins og land-
grunnið er mælt i dag. En eins og
mér skilst, að málið sé vaxið, þá
ætti að vera unnt að tryggja
strandrjkjum að þau geti haldiö
réttindum sinum og hagnýtingar-
itökum landgrunns utan 200 milna
ef þau hafa tekið sér slikan rétt nú
þegar eða áður en hið alþjóðlega
samkomulag um 200 milna efna-
hagslögsögu verður gert. Norska
landgrunnið er landfræðileg og
liffræðileg heild, sem ætti að vera
unnt að varðveita óskert.
öfugt við útfærslu fiskveiðilög-
sögunnar er spurningin um ystu
mörk landgrunns ekki knýjandi
fyrir Noreg eins og mál standa
nú. En landgrunnsmálið verður
að skoðast i ljósi framtiðarþróun-
ar og hagnýtingu hafs og hafs-
botnssvæða. Ef hafsvæðin utan
nýtingarlögsögu strandrikja eiga
eftir að verða „sameiginlegur
arfur mannkynsins alls”, þá má
það helst ekki verða samkvæmt
skilmálum stórveldanna heldur á
grundvelli samninga, sem gerðir
eru af þjóðum heims i sameigin-
legri tílraun þeirra tii þess aö
finna lausn áður en það er orðið
um seinan.
Frá A-listanum á Vestfjörðum
VINNINGSNÚMER í
KOSNINGA
HAPPDRÆTTI
Dregið hefur verið i Kosningahapp-
drætti A-listans á Vestfjörðum. Vinning-
urinn — ferð til Mallorca fyrir einn og dvöl
i ibúð — kom á miða nr. 340. Var miðinn
seldur á ísafirði.
Vinningshafi er beðinn að snúa sér til
Gunnlaugs Guðmundssonar, ísafirði, eða
Sighvatar Björgvinssonar, simi 73244, og
vitja vinningsins.
A-listinn á Vestf jörðum.
Miðvikudagur 24. júli 1974.
o