Alþýðublaðið - 11.08.1974, Síða 1

Alþýðublaðið - 11.08.1974, Síða 1
SUNNUDAGS- LEIÐARINN AUSTURSTRÆTI ÞaB var mjög góð hugmynd hjá borgaryfirvöldum Reykja- vikur að gera helming Austur- strætis að göngugötu, en slik stræti tiðkast nú mjög um mið- bik borga. Helst hefði Austur- stræti allt átt að verða slik gata. Vonandi verður það siðar. Þá er það ekki siður ánægju- legt, að i sambandi við glæsilegt þjóðhátiðarhald Reykjavikur- borgar skuli hafa verið komið fyrir i þessu gamla stræti ágætri sýninu höggmynda, sem hljóta aö vera öllum, sem um götuna ganga, sérstakt augnayndi. Skemmtilegt væri, ef þetta gæti orðið upphaf þess, að Austur- stræti yrði ekki aðeins vett- vangur þeirra, sem vilja ganga rólega sér til hugarhægðar eða skreppa i búð, heldur einnig hinna, sem hafa áhuga á listum og vilja geta virt fyrir sér lista- verk undir berum himni. Það, sem þó setur mestan svip á hið nýja Austurstræti og gefur þvi mest gildi, er, að þar skuli hafa verið komið fyrir brjóstmynd af Tómasi Guðmundssyni, þjóðskáldi ís- lendinga nú i dag og einu mesta skáldi, sem Islendingar hafa átt i sögu sinni. Þess munu aðeins tvö dæmi, að reistar hafi verið á almannafæri höggmyndir af mönnum, meðan þeir voru á lifi. Hið fyrra dæmi er mynd Sigur- jóns Ölafssonar af séra Friðrik Friðrikssyni við Lækjargötu, og nú mynd Sigurjóns af Tómasi Guðmundssyni i Austurstræti. A þessu fer vel. I báðum tilfel um er um stórmenni andans að ræða. Séra Friðrik var mesti æskulýðsleiðtogi, sem íslendingar hafa eignast, stór brotinn trúmaður og lærdóms maður, sem hafði djúp áhrif á fleiri en eina kynslóð. Tómas Guðmundsson er mesta skáld samtiðar sinnar. Hann hefur kveðið fegurð og gleði inn i sál Islendinga, hann hefur sungið þjóð sinni nýjan söng, sem er bæði ljúfur og sterkur, bæði þýður og hljómmikill, og gefið lifi samtiðarmanna sinna nýtt og bætt gildi. Sum kvæði Tóm- asar Guðmundssonar eru án efa meðal hins besta, sem ort hefur verið i Evrópu i nútimanum. Reykvikingum er Tómas Guðmundsson sérstaklega kær vegna þess, að enginn hefur honum fremur kennt þeim að þykja vænt um borgina sina, jafnvel vera stoltir af henni, þvi að enginn hafði fyrr ort um borgina af hlýju og nærfærni, samfara hógláta gáska, eins og Tómas Guðmundsson gerði. Þess vegna stóð auðvitað eng- um nær að reisa fyrstu myndina af Tómasi Guðmundssyni en Reykvikingum, og hvergi er hún betur komin en i Austurstræti. En fleiri og stærri munu eflaust á eftir koma. Allar munu þó slikar myndir verða forgengi- legar, eins og öll mannanna verk, sem gerð eru úr dauðu efni. En i þjóðarsál íslendinga mun mynd Tómasar Guðmundssonar lifa um alla framtið, heilsteypt og óbrjótan- leg, vegna þeirrar ævarandi listar, sem hann hefur gefið þjóð sinni. GÞG Sunnudagur 11. ágúst 1974. - 147. tbl. 55. árg.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.