Alþýðublaðið - 11.08.1974, Side 7
Látið Ijós ykkar skína
reynt að gera þeim siðar-
nefndu til hæfis verð ég að vita
óskir þeirra. — Vilja menn
kannski meiri skrif um kapp-
akstur, eða er of mikið skrifað
um hann? Sakna menn þó i
hans stað greina um viðhald á
bilum eða greina um það,
hvernig má auka vélarafl bila
og jafnvel aksturseiginleika?
Vilja menn fá fleiri greinar
um reynsluakstur, eða finnst
mönnum þær greinar kannski
harla litils virði?
Mér þætti vænt um að fá
svör við einhverjum af þess-
um spurningum og mörgum
fleirum og bið þvi óþolinmóð-
ur við simann eftir að spjalla
við lesendur mina — númerið
er 28800 á timabilinu kl. 13—20
— eða sjá bréf frá þeim i póst-
inum — heimilisfangið er Al-
þýðublaðið, Skipholti 19,
Reykjavik, pósthólf 320.
Handvirk á.
daginn —
sjálfvirk
á nóttunni
Þessi sjálfsafgreiðslubensindæla er hin fyrsta sinnar tegundar i
heiminum, að þvi er bestu heimildir herma. Oliuauðhringurinn
British Petroleum lét setja hana upp fyrir skömmu I iitlum bæ i
Englandi þar sem hún er til reynslu, hvort stúlkan er iika til reynslu
vitum við ekki. Galdurinn við þessa dælu er sá, að á daginn er af-
greitt af henni bensin á venjulegan hátt, en á nóttunni er henni
breytt I sjálfsala þannig, að aðeins þarf að stinga I hana aur til að
bensínið taki aö streyma.
Bilaþátturinn hefur nú aftur
göngu sina eftir rúmlega mán-
aðar hlé, sem stafaði af
sumarfríi umsjónarmanns, og
standa vonir til, að i nánustu
framtiö verði honum haldið úti
af endurnýjuðum krafti. En til
að svo verði þarf ekki einungis
að koma til hress og úthvildur
umsjónarmaður, heldur er
æskilegt, að lesendur geri sig
nú gildandi og láti i ljós vilja
sinn um efni þáttarins.
Það verður að segjast, að til
lengdar er erfitt að halda úti
skrifum um svo afmarkað
efni, og þó um leið fjölbreytt,
og bila og umferð án þess að
hafa hugmynd um, hvernig
lesendum fellur efnið.
Kannski finna einhverjir efni
við sitt hæfi, en alveg eins lik-
legt er, að ýmsir sakna greina
um efni, sem þeir vildu gjarn-
an lesa um. Til þess að ég geti
Utflúraður
sportbíll
Sportbilar eru á dagskrá I bila-
þættinum i dag, og er þvi ekki úr
vegi að birta mynd af einum
þeirra fáu sportbila, sem til eru
á landinu. Við rákumst á hann
þennan Opel 1900 niöri I bæ I vik-
unni, og auk þess að vera falleg-
ur sportbill er hann skreyttur á
mjög óvanaiegan hátt, eins og
sjá má. Þess konar skreytingar
eru að sjálfsögðu upprunnar i
Bandarikjunum eins og annað i
þessum dúr, og fyrst fór aö bera
á slikum skreytingum hér á
ameriskum „köggum” svosem
Mustang og öðrum álika bflum
GRAND PRIX 1974
Reggazzoni kontinn uppfyrir Fittipaldi
Síðan við sögðum siðast frá
heimsmeistarakeppninni i For-
mula 1 hafa ýmis tiðindi gerst á
kappakstursbrautunum, — en
þau helst, að Emerson Fitti-
paldi hefur ekki lengur foryst-
una en er fallinn niður I þriðja
sæti. Efstir eru þeir Clay
Reggazoni, Ferrari, með 44 stig,
númer tvö Jody Scheckter,
Tyrrel-Ford, 41 stig, og siöan
kemur Fittipaldi á McLaren-
Ford með 37 stig. t
Sviinn Ronnie Peterson vann
glæsilegan sigur i Dijon i
Frakklandi 7. júli á gamla JPS
Lotusnum sínum, sem er orðinn
5 ára gamall og sannaði enn
einu sinni, að þegar billinn
heldur út keppnina standast fáir
honum snúning. Keppnin var að
mestu leyti einvigi milli Lotus
og Ferrari, sem AuSturrikis-
maðurinn Niki Lauda ók, én
hann varð annar. Emerson
Fittipaldi varð að stoppa I 27.
hring vegna oliuleka i vélinni á
Tyrrel-Fordinum.
Með þessu hófst baráttan um
fyrsta sætið i heimsmeistara-
keppninni, en fram til þessa
hafði Fittipaldi verið efstur. Nú
Ronnie Peterson á JPS Lotusnum
vann annan GP-sigur sinn á árinu
fimm ára gamla Lotus.
nægöi þriðja sæti Ciay Reggaz-
soni, sem ekur Ferrari, til að
komast i efsta sætið. Fittipaldi
tókst siðan að laga stöðuna á
Brands Hatch i Bretlandi 21.
júli, en þar náði hann öðru sæti
og tók aftur forystuna að stigum
i heimsmeistarakeppninni.
A Brands Hatch var það Jody
Scheckter, sem sigraði á JPS
Lotus-Ford, en hann hefur vakið
gifurlega athygli i Formula 1
undanfarið og varð m.a. fjórði i
Frakklandi. t Nurnbergring I
Þýskalandi 4. ágúst náði hann i
mikilvæg stig með þvi að ná
öðru sæti, og þarmeð var hann
kominn i annað sæti i heims-
meistarakeppninni með 41 stig.
Sigurvegari i Nurnbergring var
Clay Reggazzoni, en það nægði
honum til að ná aftur forystunni
með 44 stig. Fittipaldi hlaut
ekkert stig i Þýskalandi og
hrapaði niður i þriðja s®ti.
A eftir Scheckter i Þýskalandi
kom Carlos Reuteman á Brab-
ham-Ford, en Peterson náði
fjóröa sæti, og Jackie Ickx á
JPS-Lotus varð fimmtu. Sjötti
varð nýtt andlit i Formula 1,
Tom Pryce á UOP Shodru, en
i franska Grand prix þar sem hann
. Báða sigrana vann hann á þessum
hann vakti fyrst á sér athygli á
Brands Hatch þar sem hann
varð númer sjö og er talinn
mjög efnilegur ökumaður. Hann
tók fyrst þátt I GP i Zandwoort i
Hollandi 23. júni, en þar lenti
hann i árekstri við James Hunt
á fyrsta hring og þeir urðu báðir
að hætta keppni.
Niki Lauda, sem hefur unnið
marga góða sigra fyrir Ferrari i
ár, er nú i fjórða sæti i heims-
meistarakeppninni, með 36 stig,
aðeins einu stigi á eftir Fitti-
paldi. Margir telja vafalaust, að
hann eigi að vera i efsta sæti, en
hrein og skær óheppni kom i veg
fyrir, að svo væri. Hann hafði
forystuna lengst af á Brands
Hatch, en þegar fimm hringir
voru eftir sprakk hjá honum.
Hann þráaðist við og ætlaði að
ljúka keppninni án þess að
stoppa, en á siðasta hring varð
hann að láta skipta um dekk.
Það gekk mjög-fljótt fyrir sig,
og svo var forskotið mikið, að
hann hafði enn möguleika á
sigri, en hann komst aldrei af
stað. Ástæðan var sú, að mikill
mannfjöldi hafði safnast saman
i kringum bilinn. Þaö tókst ekki
að ryðja bllnum braut fyrr en
um seinan, og þessi aðdáenda-
hópur kostaði Lauda sigurinn.
Þetta atvik verður kært og reynt
að fá Lauda dæmdan sigurinn,
en óliklegt er talið, að það fáist
fram.
Staðan i Grand prix fyrir
Formula 1 1974 stendur þannig:
1. Reggazzoni 44 stig
2. Scheckter 41 stig
3. Fittipaldi 37stig
4. Lauda 36stig
5. Peterson 23stig
6. Reuteman 15stig
UMSJÓN: ÞORGRIMUR GESTSSON
Sunnudagur 11. ágúsf 1974
o