Alþýðublaðið - 25.08.1974, Side 6
TÚNEYRAÐ
ÞEGAR NAZARETH KOM TIL
HUÖMLEIKAHALDS A ISLAHDI
Maggi Kjartans: Júdas voru
bestir i Höiiinni og Maggi vildi
eiga bjór handa öllum.
I. þáttur, laugardagur eftir
hádegi
Sviðið er skrifstofa Ámunda
Amundasonar. Auk hans eru þar
Helgi Pétursson, blaðamaður
v/Timann og fyrrum liðsmaður
Eió, Pétur Kristjánsson, söngvari
Pelican, Jón Ólafsson, innflytj-
andi Nazareth og undirritaður.
PK: Hvernig gengur þetta Jón?
Hvað ertu búinn að selja mikið af
miðum?
JÓ: Ég veit það ekki almenni-
lega.
AA: Ég var að hringja niður i
Faco og þeir voru búnir að selja
400 miða. Það er nú allt og sumt.
Jó: Svo er selt i Keflavik,
gleymdu þvi ekki.
AA: Já, þar eru i mesta lagi
Harmleikur í fjórum þattum
farnir 100 miðar.
HP: Hvað þarftu að selja
marga miða til að sleppa?
Jó: Ég veit það ekki, ég pæli
ekkert i þessu.
HP: Nú?
JÓ: !
ÓV: Hvaða helvitis vitleysa er
þetta, heldurðu að þú vitir það
ekki, maður?
Jó:Nei, hvað heldurðu að ég sé
að pæla i þvi?
ÓV: Hver gerir það þá? Jósa-
fat?
Jó: Ég flyt inn þessa hljóm-
sveit og þetta er allt á minu nafni.
Ég sé bara enga ástæðu til að
vera að segja ykkur þetta. Ykkur
kemur það ekkert við.
PK: Ha ha ha.
ÓV: Við vitum það alveg jafn
vel og þú, Jón, að þú átt enga pen-
inga til að standa fyrir svona lög-
uðu. Það er sótt um allt á nafni
Jósafats — eða Kyndils.
Jó: Nei, það er allt á minu
nafni. Ég er skráður prókúruhafi
fyrirtækisins Joke Records og
annar eigenda og það erum við
sem fáum Nazareth hingað upp.
(Amundi hverfur inn i hliðar-
herbergi og biður Jón að koma
með sér. Þar eru þeir I 5 eða 10
minútur. A meðan gera HP, PK &
ÓV tilraun til að reikna út kostnað
og inntekt. Slegið á, að minnst
þurfi 3000 manns og með fullu
húsi, 5000 manns, fái Jón Jósafat
Joke um hálfa aðra milljón i
vasann. Þeir Amundi og Jón
Jósafat Joke koma aftur inn
og snara af reikningsdæminu og
þá bregður svo við,að JJJ er með
allar tölur i kollinum. JJJ býr sig
undir að fara með skjalatösk-
una).
JÓ: Heyrðu Pétur: við vorum
að spekúlera i að halda smáveislu
fyrir þá eftir konsertinn. Væruð
þið ekki til i að spila? Þetta á að
vera inni Sigtúni.
Gitarleikarinn Manuel Charlton
og bassistinn Pete Agnew
PK: Ég vil græða lika.
HP, ÓV, AA: Ha ha ha.
Jó: Ja, já, já. Hvað viljið þið
fá?
PK: Ég veit ekki, hvað eigum
við að spila lengi?
Jó: Jæja, við sjáum til með
þetta, ég tala við þig aftur.
ÓV: Hvernig er það Jón, fær
ekki blaðið boðsmiða eða eigum
við að fara inn á blaðamanna-
pössum?
Jó:Þið fáið enga boðsmiða. Ég
hef ekkert með það að gera.
HP: Hvað meinarðu?
Jó: Alþýðublaðið hefur ekki
skrifað einn staf um hljómleikana
og ekki Timinn heldur. Ég hef
ekkertút úr þvi að láta skrifa um
þá eftir á.
ÓV: Ég er búinn að vera i
mánaðarfrii og það getur verið
skýring en það kemur málinu
ekkert við. Heldurðu að blöðin séu
eitthvað sérstaklega fyrir þig?
HP: Þú hefur auk þess hlaupið
daglega niður á Mogga og
Amundi upp á Visi og þar fyrir
utan hef ég vist skrifað um þessa
hljómleika. Ég skrifaði fyrstu
greinina en siðan ekki söguna
meir, enda hef ég afskaplega lit-
inn áhuga — og Timinn sömuleið-
is — á svona skripaleikjum, eins
og allt þetta Nazareth-vesen hef-
ur verið.
Jó: (Þögn).
ÓV: Þið virðist allt of margir
halda það, að þið getið notað blöð-
in að vild, látið þau blása upp alls
konar kjaftæði, sem ykkur dettur
i hug, og hafið greinilega ekki
hugmynd um hvert þeirra hlut-
verk i rauninni er.
Jó: Jæja, ég verð að fara. Ég
sendi ykkur miðana upp á blað, er
það ekki i lagi?
Söngvarinn Dan McCafferty ber
að ofan og i kynferðisbuxum.
II. þáttur, mánudagur kl.
18.30 á Hótel Holti
(Sviðið er glæsilegur bar á hótel-
inu, þar sem þeir félagar i Naza-
reth búa ásamt fylgifiskum.
Jósafat Arngrimsson er nýlega
farinn út eftir leyndardómsfull
samtöl við Jón Ólafsson. Mættir
eru blaðamenn og ljósmyndarar:
SvG og sh af Morgunblaðinu, Gsal
af Tímanum, ÓH og ÞJM af Visi
og ÓV af Alþýðublaðinu. Naza-
reth ganga i salinn, segja halló og
Nazareth á sviðinu f Höllinni á þriðjudagskvöldið. Frá vinstri: Darrell Sweet, trommuleikari, Manuel Charlton, Pete Agnew og Dan
McCafferty.
Ómar Valdimarsson
0
nó
Sunnudagur 25. ágúst 1974.