Alþýðublaðið - 25.08.1974, Side 7
r
Omar Valdimarsson
fá sér sæti hjá blaðamönnum og
ljósmyndurum.)
Jó: Strákar, bara eitt áður en
við byrjum. Þið minnist ekki á
þetta vesen allt, ég meina
Amunda og það allt. Það er al-
gjört skilyrði.
ÓV, SvG, sh, ÓH, Gsal, ÞJM:
(Þögn).
Jó: Ókey? Þetta er sem sagt
klárt. Ekki minnast á það við þá.
Annars slúttum við fundinum.
ÓV: Ég er ekkert viss um að þú
getir sett okkur svona skilyrði,
Jón.
Jó: Annars verður enginn
fundur. Þeir vita ekkert um þetta
og ég lofaði meira að segja að
halda engan blaðamannafund.
Þetta er ekkert þeirra mál og ég
lét vita á öllum blöðunum, þegar
ég boðaði á fundinn, að þetta
mætti ekkert tala um.
Gsal: Er nokkur ástæða til að
vera að hártoga þetta lengur?
Við gætum haldið þvi áfram i all-
an dag.
ÓV: Allt i lagi, ég fékk bara
skilaboð.
(Fundurinn hefst og gengur
eðlilega fyrir sig. Nazareth eru
hreinlegir og elskulegir strákar,
sem taka sig alvarlega og nokkra
hefur alltaf langað að koma til Is-
lands. Evrópa er betri en
Amerika og konsertinn i KB-höll-
inni i Khöfn kvöldið áður var ein-
hver sá albesti, sem þeir höfðu
nokkru sinni spilað á. Þeim eru
boðin glös og Jón Jósafat Joke
sportar um með staup).
ÓV: (Stendur upp og gengur til
JJJ): Býður þú ekki i glas?
JÓ: Nei.
ÓV: ?.
jó: Ég hef bara ekki efni á þvi.
Ég er kominn i svo æðislegan
halla. Ef það gengur vel á morg-
un (þriðjudag) þá höldum við
frekar gott partý. Ertu nokkuð
svekktur?
ÓV: Nei, alls ekki. Mér þótti
þetta bara óvenjulegt en ég skil
ástandið.
JÓ: He he.
III. þáttur/ þriöjudagur.
Hljómleikar í Laugardals-
höll
(A sviðinu er Hallgrimur rótari
Björgólfsson með úrvalslið.
Hávaðinn er geysilegur og ekkert
sérstakt kemur út úr þvi, Þeim
liður greinilega frekar illa á svið-
inu enda höfðu þeir ekki fengið
tækifæri til að taka hljóðprufu.
Þeir taka þrjú lög og er fagnaö
sæmilega.Júdas eru næstir og
höfðu fengið að taka hljóðprufu.
Maggi Kjartans veifar bjórflösku
og segir: — Ég vildi að ég ætti
nógan bjór handa öllum i salnum.
Aheyrendur fagna. Þeir flytja
nokkur af lögum Magga, hætta i
miðju lagi og hann segir: — Nú,
gefum við bara sklt i þetta orginal
stöff og tökum gamalt og gott
Stones-lag. Loks koma Nazareth
og hávaðinn magnast um allan
helming og að sama skapi verður
allt ógreinilegra. Hljómsveitin er
hörmuleg og ég man i rauninni
ekki eftir öðrum eins f janda siðan
ég lenti á hljómleikum Marc
Bolan og T. Rex i Gautaborg fyrir
tveimur árum. Fyrir þetta var
verið að borga 1500 krónur per
rass! Um 2000 manns fagna litið
en þeir eru þó klappaðir upp.
Töluvert er flutt af segulbandi,
þvi Nazareth skilja, að „krakk-
arnir” vilja heyra lögin eins og
þau eru á plötunum. Halli rótari
var betri og Júdas miklu betri.
Menn virtust á einu máli um að
þeir hefðu verið mjög góðir.
Ljósadýrðin er snotur og i lokin
gýs upp reykur og ljósadýrðin
verður meiri. Ekkert betra gerð-
ist á þessum hljómleikum).
IV. þáttur/ miðvikudags-
morgun. Skrifstofa toll-
stjóra í Rvík.
(Hér er til stór bók með færsl-
um yfir alla þá, sem þurfa að
borga skemmtanaskatt. Þar er
gerð grein fyrir hljómleikum i
Laugardalshöllinni 20. ágúst 1974.
Skemmtana- og söluskattur
greiðist af Kyndli h/f i Keflavik).
ó. vald.
Eingöngu frumsamið efni
á hljomleikum Pelican
Kristján Guðmundsson,
pfanóleikari frá Akureyri. Þar
heyrðu þeir i Pelican i honum og
pöntuðu hann strax suður.
Hljómleikar Pelican verða I Austurbæjarbiói á miðvikudags-
kvöldið kl. 23.30. Þar mun hljómsveitin flytja eingöngu eigið efni og
er það i fyrsta skipti siðan Trúbrot frumfluttu „...lifun” fyrir þrem-
ur árum, að islensk hljómsveit flytur eingöngu eigið efni á heilum
tónleikum.
Þeir félagarnir i Pelican eru staðráðnir i að gera þessa hljómleika
eftirminnilega og hefur undirbúningsvinna þegar staðið i hartnær
heilan mánuð og er sá undirbúningur nú að sjálfsögðu kominn á
lokastig. Þeir æfa nú stift alla daga, og með þeim æfa þeir Kristján
Guðmundsson, pianóleikari frá Akureyri, sem á sinum tima tók þátt
i „Bravó-ævintýrinu”, og Hlöðver Smári Haraldsson, fyrrum pianó-
og orgelleikari íslandiu. Þeir munu á hljómleikunum aðstoða I
nokkrum lögum og leika á pianó ,orgel og mini-moog synthesizer.
Með hverjum aðgöngumiða, sem kostar 600 krónur (og getur það
liklega talist til tiðinda á þessum siðustu og verstu timum, þegar
sæti á gólfinu I Höllinni i næstum 200 db. kostar 1500 krónur) fylgir
sérprentuð dagskrá með lista yfir lögin, sem flutt verða og fleiri
upplýsingum.
Pelican eru i mjög góðu formi þessa dagana, hafa haft mikið að
íera og má nefna sem dæmi, að fyrr i þessum mánuði voru þeir með
nær 800 manns i Tónabæ og á milli 200 og 300 biðu árangurslaust
fyrir utan á meðan á dansleiknum stóð.
Aðgöngumiðasala á hljómleika Pelican á miðvikudaginn hófst sl.
miðvikudag i Austurbæjarbiói og eru miðar ekki seldir annars
staðar.
Upphaflega var ætlpnin að halda hljómleikana 14. ágúst eins og
blaðið sagði frá á sinum tima en vegna anna hljómsveitarinnar, var
ákveðið að fresta þeim um viku. Siðan var þeim enn frestað um viku
vegna Nazarethhljómleikanna.
Hlööver Smári Haraldsson,
pfanó- og orgelleikarinn úr ts-
landiu, pottþéttur hljóðfæra-
leikari.
PELICAN: Þeir ætla aö gera allt sjálfir — en njóta Iftlllega aðstoöar þeirra Kristjáns og Smára. Hijóöstjóri á tónleikunum á miöviku-
daginn verður Siguröur Arnason, fyrrum bassaleikari Náttúru. Frá vinstri á myndinni eru: ómar óskarsson, Pétur Kristjánsson, As-
geir óskarsson, Björgvin Gislason og Jón Ólafsson.
VflLDIÐ TIL FÓLKSINS!
A berangri poppsins:
Það litur út fyrir að enn einu
sinni standi Ámundi með
pálmann i höndunum. Hann
missti af Nazareth eftir tölu-
verðan bardaga en fékk svo
loforð fyrir Slade á slikk gegn
þvi að fallast frá málshöfðun á
breska umboðsfyrirtækið.
Amundi hefur allt frá þvi I
.fyrrahaust talað um að Slade
væru að koma og jafn oft hefur
þvi verið slegið upp I blöðum,
en I þetta skipti virðist allt
ætla að standast.
Hljómsveitir eins og
Nazareth og slagur af þvi tagi,
sem stóð á milli Amunda og
Jóns ólafssonar, eru til þess
eins að hafa eyðileggjandi
áhriL Enginn vafi leikur á þvi,
að töluvert stór hópur, sem að
öðrum kosti hefði haft áhuga á
að leggja leið sina á hljóm-
leika Nazareth, hefur þótt of
illur þefur af öllu málinu til að
eiga nokkuð við það. Fátt eitt i
sambandi við komu hljóm-
sveitarinnar var traustvekj-
andi og þar sem útlit er fyrir
að nokkur halli hafi orðið á
fyrirtækinu, er langt i frá að
öllum bókum hafi verið lokað.
Þau „eyðileggjandi áhrif”,
sem getið er hér að framan,
eru eyðileggjandi áhrif á frek-
ari hljómsveitakomur hingað
til lands. Það er i rauninni
furðulegt, að það skuli vera
lenska, að aldrei geti komið
hingað erlend hljómsveit án
þess að hálfur heimurinn þurfi
að fara á annan endann.
Aður en Nazareth komu
hingað til lands, höfðu öll dag-
blöðin, sem útgefin eru i
Reykjavik, lýst þvi yfir —
réttilega — að hljómsveitin
væri ein vinsælasta i heimi um
þessar mundir. Það þýðir þó
aíls ekki, að hún sé með þeim
bestu, eins og sannaðist svo
eftirminnilega á hljómleikun-
um.
Af heimsókn hljómsveitar-
innar má þó draga einn lær-
dóm: Bráðnauðsynlegt er að
koma föstu skipulagi á slikar
heimsóknir i framtiðinni. Best
er að einn aðili (og það þarf
ekkert endilega að vera
Amundi eða Jón Ólafsson) sjái
um framkvæmd slikra hljóm-
leika. Það þarf töluverða
þekkingu og þjálfun i faginu
til að geta staðið i hljómleika-
haldi á sómasamlegan hátt og
ævintýramenn, sem ætla sér
að ná i skjótan gróða, eru ein-
vörðungu til trafala. Þeir, sem
taka að sér að flytja erlendar
hljómsveitir til landsins — og
jafnvel þeir, sem hafa eitt-
hvað að gera með innlendar
hljómsveitir — verða að gera
sér grein fyrir þvi, að þeir
hljóta sjálfir alltaf að vera
númer þrjú.
Fyrst og fremst er það
fólkið, sem sækir hljóm-
leikana eða dansleikinn, sem
um ræðir. An þess fólks gerð-
ist ekkert. 1 öðru lagi er það
viðkomandi hljómsveit eða
skemmtikraftur, sem ætlar
að skemmta fólkinu og i þriðja
lagi er það framkvæmda-
aðilinn.
Valdið til fólksins!
ó.vald.
TÓHEYRAÐ
Sunnudagur 25. ágúst 1974.
t *