Alþýðublaðið - 27.08.1974, Qupperneq 1
Bílasmiöjan h.f.
hættir starfsemi
sinni 1. október
nk., og hefur
starfsmönnum
verið boðin öll tæki
fyrirtækisins til
láns endurgjalds-
laust vilji þeir
setja upp eigin
bílasmiðjur. — Hús
Bilasmiðjunnar að
Tunguhálsi 2 hefur
verið selt Rikis-
spítölum, en sá að-
íli hafði áður keypt
hluta af húsinu og
rekur þar þvotta-
hús.
> 3
Nú á að sigra í
Bikarnum einnig
Þröstnr StefániMl Bet !s-
landsmeistarabikarinn,
sem Skagamenn
sibast 197«.
,,Við erum mjög
ánægðir með
þjálfarann okkar
hann Kirby og þökk-
um honum þann
árangur, sem liðið
hefur náð í sumar,"
sagði Þröstur
Stefánsson mið-
vörður Akurneáihga
í viðtali við Alþýðu-
blaðið eftir leikinn
við Víking, en eins
og kunnugt er
sigruðu Skagamenn
Víkingá Skipaskaga
á laugardaginn og
urðu þar með (s-
landsmeistarar
,,Ég tel okkur
leika bestu knatt-
spyrnuna á íslandi
og eigum við því
þennan heiður fylli-
lega skilið. Lið okk-
ar er mjög jafnt og
enginn einn leik-
maður, sem skarar
framúr. Fólk tekur
helst eftir því ef
leikmaður á slakan
leik.
Kirby hefur mjög
góða stjórn á leik-
mönnunum og held-
ur góðum aga. Þeg-
ar við komum á æf-
ingar þá hefur hann
alltaf eitthvað nýtt
og við vitum aldrei
hvað verður á næstu
æfingu. .
Næst er að vinna
Bikarinn, við höfum
leikið fimm sinnum
til úrslita í Bikar-
keppninni og alltaf
tapað. Núna er
ætlunin að sigra
bæði íslandsmótið
og Bikarkeppnina.
Að því stefndum við
frá upphafi", sagði
Þröstur að lokum.
Kaninn sást aldrei
betur í Reykjavík,
en þegar nýja loft-
netið var prófað!
Nú eru aðeins
fimm dagar til
mánaðamóta, en
fyrir mánaðamót-
in eiga sendingar
Keflavíkur-
sjónvarpsíns að
vera takmarkaðar
við"VÖIIinn einan."
Á sunnudags-
morguninn sl. voru
tæknimenn vallar-
sjónvarpsins að
reyna hinn nýja út-
búnað, sem komið
hefur verið upp á
nýbyggðu mastri,
og voru þeir í
stöðugu sambandi
við þrjá aðila í
Reykjavík, til þess
að fylgjast með
hvernig til tækist.
Kom þá í Ijós, að
sja Idan haf a
sendingar Kefla-
víkursjónvarpsins
sést betur í borg-
inni, og voru allir
þrír sammála um
það.
N ý j u ú t -
sendingatækin
sendu í fyrstu út á
100 watta styrk-
leika eins og til
stendur, en þar
sem hindrunar-
skermurinn hafði
engar truflandi
verkanir, var út-
sendingastyrkur-
inn lækkaður.
Það var ekki
fyrr en styrkurinn
hafði verið
lækkaður í 40 wött,
að myndin á sjón-
varpsskermunum í
Reykjavík varð að
snjó, en þá sást
heldur ekki neitt í
sjónvarpstækjum á
Ke f I a v í.k u r-
flugvelli lengur.
GEIR
FORSÆTISRADHERRA
Geir Haligrímsson, formaöur Sjálfstæðis-
flokksins, verður forsætisráðherra næstu
ríkisstjórnar islands. ólafur Jóhannesson,
formaður Framsóknarflokksins, mun ganga
á fund forseta islands fyrir hádegi í dag og
tilkynna honum, að flokkarnir tveir hafi
komið sér saman um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar undir forsæti Geirs. Ráðherrum
verður fjölgað um einn og verða þeir átta
talsins, fjórir frá hvorum flokki.
Gunnar Thoroddsen verður iðnaðarráð-
herra, Matthías Bjarnason, sjávarútvegs-
málaráðherra og Matmias A. Mathiesen
verður fjármálaráðherra. Auk þessa munu
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins fara með
kirkjumál, félagsmál, heilbrigðismál og
tryggingamál.
ólafur Jóhannesson verður viðskipta- og
dómsmálaráðherra, Einar Ágústsson verður
utanríkisráðherra áfram og Halldór E. Sig-
urðsson verður áfram landbúnaðarráðherra
og mun einnig fara með samgöngumál.
Fjórði ráðherra Framsóknarflokksins verð-
ur Vilhjálmur Hjálmarsson og verður hann
men nta má la ráðherra.
VILJA ENDURVINNA
HÉRLENDIS
,, V/id höfum lengi
verið að velta þessu
fyrir okkur, — fyrst
og fremst með þjóð-
arhagsmuni fyrir
augum, en allir vita,
hvað flutningsgjöld
á pappír til (slands
eru gífurlega há,
auk þess sem hrá-
efni eru að ganga til
þurrðar um allan
heim". Þetta sagði
Gunnar Ásgeirsson í
samtali við frétta-
mann Alþýðublaðs-
ins í gær, en hann og
félagi hans, Jón
Steinar Guðmunds-
son, hafa farið þess
á leit við borgarráð,
að borgin veiti þeim
stuðning til að koma
á fót aðstöðu til
söfnunar og endur-
vinnslu á pappir og
pappa.
„Við höfðum vonaö, að
einhver annar færi i
þetta, en þegar þaö varö
ekki, ákváðum við að
ganga i það sjálfir, en viö
gerum okkur grein fyrir
þvi, að það tekur mörg ár
að koma þessu i kring”,
sagði Gunnar ennfremur.
Hafa þeir félagar viðað
að sér upplýsingum um
þessi mál frá nágranna-
löndunum, og hefur Jón
Steinar, sem er efnafræð-
ingur að mennt og er nú
að taka doktorsgráðu i
Englandi, m.a. skoðað
verksmiðjur þar i landi,
þar sem pappir er endur-
unninn.
Hugmynd þeirra félaga
er að koma i fyrstu á
söfnunarkerfi til að safna
saman pappir og pappa,
og reisa til þess skemmu,
sem að þeirra áliti þarf að
vera 1000 fermetrar að
stærð. bar yrði pappirinn
flokkaður eftir verðgildi
og notagildi og fluttur út i
stórum skömmtum, t.d.
fjórum sinnum á ári, þar
til búið væri að koma upp
verksmiðju, sem ynni úr
pappirnum hér. Sagði
Gunnar, að hugmyndin sé
að safna pappir hjá stærri
fyrirtækjum, en ekki fara
út i að taka hann úr sorpi
frá heimahúsum.
Að sögn Gunnars fór
fram fyrir 15árum á veg-
um Iðnaðarmálastofn-
unarinnar, sem þá hét,
ram.sókn á þessum mál-
um. Kom þá til landsins
bandariskur sérfræðing-
ur, sem sagði að rann-
sókninni lokinni, að ekki
væri hagkvæmt að setja
upp endurvinnslu þá, þar
sem hvorki væri nægilega
mikið af úrgangspappa
né markaðurinn nógu
stór. Sagði hann, að eftir
20 ár eða svo gæti endur-
vinnsla orðiö hagkvæm.
40 ÁRA VINNA
HENNAR I GARD-
INUM Á AD FARA
UNDIR STEIN-
STEYPU KERFISINS
I BAKSÍÐA