Alþýðublaðið - 27.08.1974, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 27.08.1974, Blaðsíða 7
 Storsta ökningen isvensk dagspress! l:ahalvárct 1974 blev de stora morgoDtidningarnas halvár. OiiteborKs-Posten ökade sln upplaga, myckct. Svcnska Dagbladet fick en rejiil skjnts framát Sydsvenskn Dogbladet och Arbetet i Malmö dkade ocksá. Men mest Bkade Dagens Nyheter. Sveriges stdrsta morgontldningi +8. pcr ut&vninjE’sctag w— jcr utgivnmgfsdag har fíángen, en av de största uppkgevinsterna i en ttxig, obruten fiéríe av upplageframgángar för Dti gens Nyhetcr. Sádana upplagevinster gör en morgon* ÍMÍMM|Í och sakligt mformerar om skeendet, dag for dag, innanför iandets granser och utanffir dcm. í SttKikholm, Solna och Tensta, Hkavjil som i Limd, Vástervik och Luieá, Lissabón, Wash- íngton och Famagusta. Att lasa D.igcns Nyhctcr regcibundet íir att híhig.-i med i tiiskussioncn, antingen den galier príscr, íöner och skattcr eiler sport, TV och iUm, Kissíny.cr, WUaon och do Spinola. Vi giadcr oss myckct fiver utt iasama ..........'au^.................. de för Ðagens Nyh Dagens Nyheters upplaga J:a halvárct X97L MedelneUoupíiL VsrdáfSar SfindajÞr Pcr«t,-dag Abonuetóiír l;a halvárct 1974 mm mstz 5S8.556 M3.533 456^30 «t992 SS6.C8 3SÍ.410 * 5Æ3 « K338 ♦ m& Siffroraa hnr kootroíkrrat* av Tidnhxgwtatistik AH <TS). Dagens Nyheter Dagens Nyheter fagnafti að vonum tölunum um upplag stensku blaftanna og auglýstu marga daga I röft heilsiftur. Meftal annars auglýsingar af þessu tagihafa gertDN aft þvlblafti, sem þaft er I dag: eitt besta dagblaft i heimi. l)i‘ f lesta sitM'khoiiiinrc llisic l)a^‘ii$ Jpeta1 i nmrse. • 'mfi* * W*v«**1/ y/ pVJVí^1 öo'^ ajv«.A \j\0 0? p\>G SVrí — dregur úr sölu síðdegis- og vikublaða. Jafnframt aukast fjárhagserfiðleikar sænskrar blaðaútgáfu. A undanförnum tveimur árum hefur upplag sænskra vikublafta minnkað um hartnær 200.000 ein- tök. A siftasta ári juku stóru morg- unblöftin i Stokkhólmi og Gauta- borg um 20.000 eintökum við upplag sitt. Siftdegis- og kvöldblöðin standa nokkurn veginn i staft, og er þaft þar i landi skýrt að nokkru leyti meft þeirri staftreynd, aft á undan- förnum þremur árum hefur lausa- söluverft þeirra hækkaft um 30 aura sænska. Þessar tölur voru birtar i Sviþjóð um miðjan mónuðinn og hafa vakið mikla athygli þar i landi, sem og viðar iSkandinaviu og Evrópu. Allt frá striðslokum hefur það verið einkennandi fyrir dag-, viku-, og kvöldblöð um allan heim, að upplög hafa minnkað hlutfallslega og hinn tittnefndi „blaöadauði” gerir eng- an greinarmun á löndum. Astæðan er vafalaust sú, að aðrir fjölmiðlar hafa verið að taka við (útvarp og sjónvarp fyrst og fremst) og blöðin hafa ekki áttað sig á breyttum að- stæðum, sem aö sjálfsögðu hafa breytt hlutverk þeirra i för með sér. Af sænsku morgunblöðunum var það Dagens Nyheter, stærsta morgunblað Sviþjóöar, sem jók mest við sig — 8.338 eintök að jafn- aði fyrstu sex mánuði þessa árs, miðað við sama tlma i fyrra. Stærsta slðdegisblaöiö, Expressen, sem gefið er út af sama fyrirtæki (Bonniers), tapaði hinsvegar 5.211 eintökum daglega. Þessar tölur eru mjög athyglisverðar fyrir þá sök, að á undanförnum árum hefur hreyfingin miklu frekar verið i hina áttina: morgunblöðin hafa oröiö að draga saman seglin og siðdegis- blöðin hafa komistá verulegt skrið. Siðdegisblöðin eru léttari, auðmelt- ari og sjaldnast eins alvarleg og morgunblöðin. Dæmi um þessa þróun er meira aö segja að finna hér á Islandi, sbr. velgengni Visis á undanförnum árum. Lesendum Dagens Nyheter kem- ur þó ekki sérlega á óvart, að les- enáahópur blaðsins skuli stækka. DN er tvimælalaust eitt af bestu og áreiðanlegustu fréttablöðum i Evrópu — og þar með heiminum og ekki alls fyrir löngu var það á al- þjóðlegri skrá yfir 10 bestu dagblöð i heiminum. Annað stærsta morg- unblað Sviþjóöar, Göteborgs-Post- en, sem gefið er út i rúmlega 300.000 eintökum daglega, bætti einnig verulega viö sig á fyrstu sex mánuöum ársins, eða 7.457 eintök. Bæði DN og GP þakka þessa aukn- ingu að einhverju leyti dauða Gautaborgarblaðsins Göteborgs Handels- och Sjöfartstidende (HT) i fyrrahaust. Þá bætti Stokkhólmsblaðið Svenska Dagbladet við sig 6.270 eintökum en Sydsvenska Dagblad- et, sem gefið er út i Malmö, bætti aðeins viö sig 72 eintökum. Þar bætti meira viö sig siðdegisblaðið Kválls-Posten, eða 2.860 eintökum en þar er samt sem áður um minnkun að ræða, þvi lengi vel jók Kválls-Posten mun meira viö sig en önnur sænsk dagblöð. Aftonbladet, sem gefiö er út i Stokkhólmi, Gautaborg og Malmö, stóð f stað þessa sex fyrstu mánuði ársins. Þar er kennt um verðhækk- un siðdegisblaöanna: á timabilinu hækkuöu þau úr 75 aurum eintakið i lausasölu i 90 aura. Olof Lagercrantz, einn ritstjóra Dagens Nyheter, sem hér er mörg- um að góðu kunnur, skrifaöi leið- ara i blað sitt 14. ágúst, daginn áður en tölurnar um upplag sænsku blaðanna voru birtar. Þar segir hann meðal annars undir fyrir- sögninni „Traust lesendanna”. „Að okkar áliti er það til fram- dráttar fyrir blöðin i heild, að morgunblöðin, með kröfur sinar um alhliða upplýsingamiðlun og breiða þjóðfélagsvakandi, gangi vel. Þau (morgunblöðin) hafa nógu lengi lifað og átt það á hættu, að tapa hlutum markaðanna til kvöld- blaðanna”. Eins og segir i upphafi, þá voru það vikublöðin, sem fóru verst út úr timabilinu, samanlagt upplag þeirra minnkaði um 70.000 eintök. A sama tima i fyrra minnkaði upp- lag þeirra um 120.000 eintök. Sam- tals er upplag vikublaðanna i Svi- þjóð nú 4.5 milljónir eintaka og eru þá ekki reiknuð með fagblöö og blöö eins og Vi, blað samvinnu- manna þar i landi. Það segir sig sjálft, að upplagsminnkun um 200.000 eintök kemur illa viö útgef- endur, þar sem þau eintök, sem siðust koma úr prentvélunum, gefa mestan arð. Minnkandi upplag þýðir einnig, að erfiðara verður að fá auglýsingár og þvi hafa mörg vikublaðanna gripið til þess ráðs, að hækka ekki auglýsingaverð sitt — eða hreinlega að lækka það. Hin svokölluðu „vinnukonud blöð” Svia (damtidningar) stóðu I stað, heimilisblöðin hröpuðu niður um 33.000 eintök og „herrablöðin”, æsisagna og klámblöð á borö við Lektyr og FIB-Aktuellt, töpuðu 35.000 eintökum. Allt i allt voru það tiu vikublöð sem juku við upplag sitt og á sama tima minnkaði upp- lag ellefu slfkra blaða. Þá sakar ekki að geta þess, að Det Básta (Úrval) hefur misst á timabilinu 30.800 eintök. Svipaða sögu mun vera að segja af systurblaði Det Básta hérlendis, úrvali, sem er ekki svipur hjá sjón frá þvi sem áð- ur var — og má nefna sem dæmi, að þessa dagana er mai-hefti 1974 nýlega komið út. A sama hátt og hérlendis fá sænsk blöð rikisstyrk og nemur hann i allt þar i landi um fjórðungi af heildarveltu dagblaðanna, sem eru rúmlega 100 talsins. Sú velta er tveir milljarðar sænskra króna eða rúmlega 50 milljarðar isl. kr. mið- aö við gengi fyrir helgina. Samt sem áður fer fjárhagur sænskra dagblaða versnandi og æ fleiri blöð neyðast til að draga saman seglin á einn eða annan hátt. Hið opinbera hefur komið til að- stoðar þeim blöðum, sem hvað verst eru stödd. Ástæöan fyrir því, að stjórnvöld koma blöðum til að- stoðar er að sjálfsögöu sú, að skoð- ana-og prentfrelsi manna á ekki að skerðast fyrir þá ástæðu eina, að ekki eru til peningar. A undanförnum árum hefur kom- ið til nýr andstæðingur sænskra blaða og á það sama viö viðar. Það eru auglýsingablöð, sem dreift er ókeypis. Upplög þeirra eru yfirleitt mjög stór og auglýsendur sjá sér hag i að auglýsa frekar i þeim en i dagblöðunum, sem ekki eru i jafn stóru upplagi. Nú er svo komiö í Sviþjóð, að ýmsir blaðaútgefendur eru farnir að hugleiða hvort þeir eigi ekki að halda blöðum sinum gangandi með slikum auglýsinga- blöðum — það er að segja ef rikis- valdið kemur ekki til aðstoðar á einhvern hátt. —ó.vald. Mm fíu kftndi* iw> iUfí&td«m m&nga som jwufr.eKmr? Jufladnjiartom#ár, iirtia mer Kinner hiinda',uutnait du F.íkr hnr du evhntftttt din VSfor gemtílern? $<\nl hHruhtr. rrt tcdandra roian kánrM (iii Anvdndrr du hupangen, Mcn Vsi intc tidtn rinnti ifmndig nu. tlífpar du kovta fiA iehfotuMmuilclkrporta. Expressen, sem einnig er gefið út af Dagens Nyheter AB — og er að stórum hluta i eigu Bonnier- fjölskyldunnar — hafði ekki eins mikið að gleðjast yfir. DN birti þessa heilsiðuaug- lýsingu frá Expressen, þar sem blaðið segist ekki ætla að sitja rólegt yfir svona tiðindum. Undcr försla halváret i ár var Exprcsscn över 110.000 excmplar större an nágon annan dagstidning pcr utgivningsdag. Def tyckcr vi iir trevligt. Mcn under samma tid har vdr uppíaga minskat med ca 5000 cxcmpiar per utgivningsdag. Det irriterar. Och det tánkcr vi intc ta stillasittande. fSsiff'0.' Uð hmimt \974, lörárctrirtg u&n i» boivaret p-...„„ vJd«wí8?.lS3(-5.8S3). Sóntíagor653,'4&(-ll2). H«tgdag*r ?;S.583{-17.??7).> Sænskt vikurit „flettir ofan af’ ástalífi konungsins — tengslafólk sænsku konungsfjölskyldunnar lætur til skarar skríða gegn blaðinu Stjórn sænska blaða- mannasambandsins hefur sent ritstjórum og blaðamönnum viku- ritsins FIB/Aktuellt bréf, sem ýmsum hefur þótt þeir eiga að lesa vel og vandlega. Það fjallar um siðareglur blaðamanna. Blaðið birti ekki alls fyrir löngu grein — undirritaða með dul- nefni — þar sem birt voru nokkur heimilis- föng sem „hin leyni- legu ástarhreiður konungsins”. Jafn- framt voru birt nöfn allmargra stúlkna, sem blaðið segir koma reglulega til nefndra húsa til að eiga þar „kærleiksnætur með kónginum”. Stjórn blaðamannafélagsins litur á þessa grein sem skýlaust brot á siða- reglum sinum, þar sem segir meðal annars: „Forðast ber birt- ingu efnis, sem getur skaðað helgi einkalifs- ins, sé opinber birting ekki i þágu al- mennings.” Á siðasta þingi sænska blaðamanna- sambandsins voru og samþykktar nýjar reglur, sem hljóða á svipaðan hátt. Dagens Nyheter sagði nýlega i leiðara, að reglur sem þessar væru bæði sjálf- sagðar og auðskildar. G r e i n i n i FIB/Aktuellt hefur skaðleg áhrif á heiður blaðamanna, segir i bréfinu frá stjórn sam- bandsins. Þeir starfs- menn FIB/ Aktuellt, sem hafa skrifað, rit- stýrt og samþykkt greinina, álita ef til vill ekki sjálfir, að þeir hafi blaðamannsheiður, sem beðið hefur álits- hnekki af henni. Það kann að vera rétt túlk- un, segir enn fremur i bréfi stjórnarinnar. En’ viðbrögðin við þessari grein gera hana að öðru og meira en einkamáli þeirra sjálfra. Frelsi og vald blaðanna er ekki jafn sjálfstætt frá heiðri blaðamannastéttar- innar og FIB/Aktuellt og nokkrir helstu keppinautar þeirra halda kannski. Vissulega verður fólk i sviðsljósinu og opinberum stöðum, eins og til dæmis konungurinn, segir i leiðara DN, oft að sætta sig við augu al- mennings og blaða. En engin. opinber staða getur afsakað grófar aðdróttanir að heiðar- leika og einkalifi fólks. Grin FIB/Aktuellt fjallar ekki aðeins um konunginn, heldur er þar einnig bent á annað fólk, sem ekki gegnir opinberum embættum. Greinin er heldur ekki nein undantekning, heldur sérlega sóðalegt dæmi um þær éinka- lif sofsóknir, sem ákveðin vikublöð stunda. í bréfinu til blaðsins bendir stjórn blaða- mannasambandsins á, að i samningum blaða- manna sé eftirfarandi tekið fram: „Blaða- manni má ekki skipa að skrifa gegn sann- færingu sinni eða að taka að sér niður- lægjandi verkefni.” Þekkja blaða- mennirnir — og rit- stjórnin — á FIB/Aktu- ellt þessa reglu? spyr DN. Eða finnst þeim kannski ekkert niður- lægjandi? En þetta er ekki það eina, sem FIB/Aktuellt má þola vegna sænsku konungsfjölskyld- unnar. Bræðurnir Per og Tord Magnússynir (Tord er giftur Kristinu prinsessu) hafa stefnt blaðinu fyrir ærumeið- ingar. Ástæðan er grein i blaðinu, sem bar fyr- irsögnina ,, FIB/ Aktu- ellt flettir ofan af mál- um Tossa Magnús- sonar” (FIB/A avslöjer Tosse Magnussons affárer). Þar heldur blaðið þvi meðal annars fram, að þeir bræður, sem fást að einhverju leyti við málningar- og litasölu, selji lit, sem ekki upp- fyllir gæðakröfur. í greininni er einnig gefið i skyn, að Tord Magnússon lifi á ein- hverjum viðskiptum, sem ekki séu öll hin heiðarlegustu. Bræðurnir krefjast nú fangelsisdóms yfir ábyrgðarmanni blaðs- ins og fara fram á 100.000 sænskar krónur hvor i skaðabætur. Þess má geta, að FIB/Aktuellt hefur af og til birt greinar um ísland og islensk mál- efni, aðallega drykkju- skap og lauslæti is- lenskra stúlkna og nokkrir islenskir blaðamenn hafa endur- birt greinarnar án nokkurra athuga- semda 0 Þriðjudagur 27. ágúst 1974. Þriðjudagur 27. ágúst 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.