Alþýðublaðið - 27.08.1974, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 27.08.1974, Blaðsíða 8
Skagamenn urðu íslandsmeistarar 1974 þeir hafa ekki tapað leik í 1. deild og eiga olokiö einum leik sem skiptir engu máli — því ðnnur lið geta ekki náð þeim að stigum Akurnesingar tryggöu sér Is- landsmeistaratitilinn i knatt- spyrnu 1974, þegar þeir sigruöu Viking á Skipaskaga á laugar- daginn 2 — 1. beir eiga einum leik ólokiö viö KR en sá leikur skiptir engu máli fyrir hvorugt liöiö. önnur liö geta ekki náö Skaga- mönnum aö stigafjölda og KR — ingar geta ekki unniö og ekki falliö. í leiknum á laugardaginn byrjuöu Vikingar meö miklum krafti og voru betri aöilinn I leikn- um fram undir miöjan hálfleik- inn. Þá skoraði Jóhannes Bárðar- son nokkuð óvænt mark fyrir Víkinga, þegar hann hugðist gefa boltann fyrir markið en öllum aö óvörum og honum lika sigldi bolt- inn beint i markiö. Daviö mark- vöröur var ekki viðbúinn, hélt aö boltinn kæmi fyrir markið. Eftir markið fóru Skagamenn aö láta meira aö sér kveöa og tóku smám saman leikinn I sinar hendur. Þegar ein minúta er eftir til leikhlés, leikur Karl Þóröarson upp aö endamörkum og gefur lag- lega á Jón Alfreðsson sem skýtur viöstööulaust i markiö án þess að Diörik i marki Vikings kæmi nokkrum vörnum viö. 1 seinni hálfleik tóku Skaga- menn leikinn i sinar hendur og voru þá Vikingar heppnir að fá ekki nema eitt mark á sig. Geta þeir þakkað Diöriki og smá heppni aö mörkin uröu ekki fleiri. Seinna mark Skagamanna kom á 32,min. Þá skallaöi Jón Gunn- laugsson laglega inn eftir auka- spyrnu. Sigur Akurnesinga I leiknum var fyllilega veröskuldaöur þvi þeir léku mun betur en Vikingar, en staöa þeirra er ekki glæsileg þessa stundina. Af Vikingunum var Eirikur Þorsteinsson bestur, Magnús Þorvaldsson átti i nokkrum erfiöleikum meö aö gæta Karls Þóröarsonar. Ekki er hægt aö taka neinn ákveöinn leikmann Skagamanna fram yfir annan. Liöiö er mjög jafnt og hefur það gert gæfumun- inn hjá liöinu i sumar, auk þess sem þeir Skagamenn hafa gaman af leiknum og er samspil þeirra oft skemmtilegt. Atli Þór jafnar lir vltaspyrnunni, litlu niunaöi að Þorbergi Atlasyni I marki Fram tækist að hafa hendur á boltanum. LOFTI í HNEFARNIR VORU Á LEIK FRAM OG KR í Keflvikingar tryggðu sér þátt- tökurétt I EUFA keppninni næsta sumar þegar þeir sigruöu Val i miklum rokleik á Laugardals- vellinum á sunnudagskvöldiö 3-1. 1 fyrri hálfleik léku Valsarar undan rokinu en lltill broddur var I sóknaraðgeröum þeirra og áttu Keflvikingar i engum vandræöum með að bægja hættunni frá. Oðru hvoru áttu svo Keflviking- ar upphlaup á móti vindinum en þau voru lika máttlaus og sköp uöu litla hættu. A siöustu minút- um hálfleiks sækja Keflvikingar aö marki Vals, Grétar Magnús- son skýtur I áttina aö markinu, Jóhannes Eövaldsson hugöist skalla frá, en tókst ekki til betur en svo að hann skallaði i Sigurð Haraldsson markvörö og i eigið mark. Seinni hálfleikinn byrjuöu Vals- menn meö miklum látum og strax á fyrstu minútunum áttu þeir fjöldann allan af marktækifær- um. Þegar þeir Alexander og Ingi Björn stóöu hvaö eftir annaö fyrir opnu marki en tókst á ein- hvern óskiljanlegan hátt aö klúöra. Um miöjan hálfleikinn jafnaöi Jóhannes Eðvaldsson meö góöu skallamarki eftir fyrirgjöf frá litla bróöur, Atla. Keflvikingar voru ekki á þeim buxunum aö gefast upp og rétt á eftir nær Steinar Jóhannsson for- ystunni aftur fyrir Keflvikinga þegar hann skoraöi beint úr auka- spyrnu. Rétt fyrir leikslok skoraöi svo Hilmar Hjálmarsson þriöja mark Keflvikinga og sitt fyrsta mark i 1. deild. En hann kom inná fyrir Jón ölaf I seinni hálfleik og stóö sig vel þann stutta tima sem hann fékk aö vera inná. Eftir gangi leiksins var sigur Keflvikinga sanngjarn þvi Vals- menn náöu aldrei saman og var Jóhannes óvenju daufur i leiknum sem kann að hafa sitt að segja á leik liösins. Hjá Keflvikingum var vörnin betri hluti liðsins, en framlinan hjá þeim var óvenju dauf til aö byrja með en lagaöist þegar á leikinn leið. Leikinn dæmdi Guömundur Haraldsson ágætlega. ■ ■■ Jón Gunnlaugsson skoraöi úrslitamarkiö I leiknum gegn Viking. Þarna hefur hann betur I viöureign viö Óskar Valtýsson ÍBV I leik fyrr I sum- ar. KEFLVÍKINCAR TRYGGDU SÉR UEFA RÉTTIHN EFTIR SIGUR GEGN VAL í ROKLEIK Harkan I leiknum hjá Fram og KR gekk svo langt að dómar- inn Óli Ölsen sem litil tök haföi á leiknum visaði þeim ólafi Ólafssyni KR og Sigurbergi Sig- steinssyni Fram af leikvelli i fyrri hálfleik. Þetta er einn sá grófasti leikur sem leikinn hefur verið I sumar og lét dómarinn leikmenn liöanna komast upp meö gróf brot án þess aö gera athugasemd. Við þetta varö leikur sumra svo grófur aö jafn- vel samherjum var nóg boðið. Má þar nefna leik Jóns Péturs- sonar Fram, sem átti ekkert skylt viö knattspyrnu oft á tiö- um. Heföi dómarinn haft bein I nefinu heföi honum skilyröis- laust boriö aö vikja Jóni af leik- velli. Gildi leiksins fyrir báöa aðila kann aö hafa sett sinn svip á leikinn, en úrslit leiksins sem lauk með jafntefli eru sanngjörn eftir atvikum. Framarar urðu fyrri til að skora, það var Ásgeir Eliasson GIsli Torfason hefur átt mjög góöa leiki meö liöi IBK eftir aö hann byrjaöi aftur aö leika meö liöinu. sem skoraöi fyrir Fram i fyrri hálfleik eftir aukaspyrnu. Aöur hafði Atla Þór verið brugöið innan vitateigs en ekkert dæmt. Rétt eftir aö Framarar höfðu skorað markiö var þeim ólafi og Sigurbergi visað af leikvelli eins og áöur getur og eftir það lá við hvað eftir annað að upp úr syði milli leikmanna beggja lið- anna. I seinni hálfleik sóttu KR-ing- ar öllu meira og voru sóknir þeirra mun hættulegri en Fram- ara. 1 einni sóknarlotu KR er bakveröi þeirra Guöjóni Hilmarssyni brugðið innan vita- teigs og vitaspyrna dæmd. Atli Þór skoraði úr vitaspyrnunni, en litlu munaði að Þorbergi Atlasyni markverði Fram tæk- ist aö verja. Hjá Fram voru þeir Marteinn Geirsson og Ásgeir Elisson bestu mennirnir og létu aldrei hafa sig út i grófan leik. Hjá KR voru varnarmennirn- ir sterkastir, en lið þeirra er mjög jafnt og erfitt að gera upp á milli leikmannanna. Leikinn dæmdi Óli Ólsen og haföi litil tök á leiknum eins og áöur er getið. o Þriöjudagur 27. ágúst 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.