Alþýðublaðið - 28.08.1974, Síða 8
Undanurslitin í Bikarkeppninni í kvöld
Þá leika Skagamenn við Völsunga Húsavík og Valur við Víking á Laugardalsvellinum
„Höfum áhorfendurna og loftið”
segja Þingeyingarnir
„Kominn tími til að vinna Bikar-
keppnina” segja Skagamenn
í kvöld veröa tveir hörkuleikir i
Bikarkeppni KSl, þegar Skaga-
menn fara til Húsavikur og'leika
viöheimamenn og Vikingar leika
gegn Val á Laugardalsvellinum.
Báöir leikirnir hefjast kl. 19:00.
Á Húsavik ætti aö geta orðið um
skemmtilega viðureign að ræða.
Húsvikingar komu á óvart og slóu
Vestmannaeyinga úr keppninni
og Skagamenn áttu i nokkrum
erfiðleikum með ólafsvikur Vik-
ingana á heimavelli þeirra siðar-
nefndu.
Þar sem leikurinn verður leik-
inn á malarvelli ætti það að verða
heimamönnum i hag.
„Völlurinn hjá okkur er nokkuð
góður af malarvelli að vera”,
sagði Magnús Torfason i viðtali
við Alþýðublaðið. En hann hefur
ásamt Hreini Elliðasyni leikið
meðislenska landsliðinu, en þess-
ir tveir eru burðarásarnir i liði
Húsvikinga. „Við verðum með
okkar sterkasta lið og það ásamt
þingeyska loftinu verður Skaga-
mönnum að falli”, sagði Magnús
þegar við spurðum hann um úrslit
leiksins.
„Við ætlum okkur að vinna
leikinn hvað sem það kostar”,
sagði Stefán Haraldsson sem
leikur bakvörð i liði Húsvikinga
og fær hann þaö erfiða hlutverk
að gæta Karls Þórðarsonar. „Þar
sem við höfum áhorfendurna með
okkur ætti okkur að takast að
vinna Skagamennina”.
„Viö stefnum að þvi I upphafi
keppnistimabilsins að vinna bæöi
Bikarinn og Islandsmeistaratitil-
inn” sagði Þröstur Stefánsson f
liði Skagamanna. „Við leggjum
sérstaklega mikla áherslu á að
vinna núna, þvi okkur hefur
aldrei tekist að vinna Bikarinn.
En fimm sinnum höfum við leikið
til úrslita en aldrei tekist að vinna
svo nú er kominn timitilað snúa
blaðinu við”.
A Laugardalsvellinum ætti lika
að geta orðið um skemmtilega
viðureign að ræða þegar Valur
mætir Viking.
Við spáum að það verði Akur-
nesingar og Valsmenn sem sigri i
kvöld og leiki til úrslita i Bikar-
keppninni.
Þeir Eyleifur Hafsteinsson tA og PáH Björgvinsson Viking verða báðir meö liðum sinum f kvöid f bar
áttunni i undanúrslitum Bikarkeppninnar.
Sér eftir öllu og
vill leika aftur
Hinn ódæli framherji Quens
Park Rangers, Stan Bowles sem
yfirgaf æfingastöð enska lands-
liðsins fyrir leikinn við Skota
vegna þess að hann var settur út
úr liðinu sér nú eftir öllu saman
og biður fyrirgefningar á hegðun
sinni.
Eftir atvik þetta sagði Joe
Mercer sem þá stjórnaði enska
landsliðinu: „Hann fær aldrei að
leika framar með landsliði Eng-
lands”.
„Minn heitasti draumur nú er
að fá annað tækifæri til að leika
fyrir land mitt og sérstaklega nú
eftir að Don Revie hefur tekið við
liðinu. Ég hef spurt fram-
kvæmdastjóra minn Gordon Jago
hvort hann hafi heyrt frá Knatt-
spyrnusambandinu, en þeir hafa
ekkert látið i sér heyra. Ég hef
ekki verið beðinn um að gefa
skýringar á hegðun minni, en þó á
ég von á þvi að verða settur i
keppnisbann. Hverjir möguleikar
minir eru veit ég ekki, en min
heitasta ósk er að fá annað tæki-
færi til að leika fyrir England”,
sagði Bowles.
Denis Law
Sá gamli kappi Denis Law hef-
ur ákveðið að leggja knattspyrnu-
skóna á hilluna eftir frábæran
keppnisferil.
Hann varð fyrst frægur þegar
hann var seldur frá Huddersfield
til Man. City fyrir 53 þúsund pund
1960 sem þá var met upphæð.
Þaðan fór hann svo til Torinó á
ttaliu, en var keyptur aftur til
Englands þá til Man. Untd.
Sigfús setti met
Sigfús Jónsson 1R setti Islands-
met I 10.000 m hlaupi á frjáls-
iþróttamóti i Moskvu á mánudag-
inn.
Hann hljóp á 30.31,4 m. Eldra
metið átti hann sjálfur 30.56.0 sett
fyrr i sumar.
Auk Sigfúsar taka þeir óskar
Jakobsson og Ágúst Ásgeirsson
báðir i ÍR þátt i mótinu. óskar
komst i lokakeppnina i kringlu-
kastinu, en Agúst sem náði sinum
besta árangri i 1500 m hlaupi
somst ekki I lokakeppnina.
Sigfús Jónsson iR setti tslandsmet f 10.000 m hlaupi á frjálsfþráttamáti
f Moskvu.
Erlendur
tekur ekki
fyrri
ákvörðun
aftur
„Ég hef ekki tekið þá a-
kvörðun mina aftur að verða
ekki með á Evrópumeistara-
mótinu”, sagði Erlendur
Valdimarsson i viðtali við Al-
þýðublaðið i gær.
„Þessi árangur hjá mér á
Snæfellsnesinu kom mér mjög
á óvart, þvi ég hef litið tekið
þátt i keppni i sumar. Fólk vill
halda þvi fram að ég eigi rok-
inu að þakka árangurinn en ég
vil ekki viðurkenna að það sé
eina ástæðan. Það voru fleiri
kringlukastarar á mótinu en
ég, en ekki bættu þeir sinn
fyrri árangur. Ég tók þá
ákvörðun að taka ekki þátt I
Evrópumeistaramótinu fyrst
og fremst vegna þess að að-
staða okkar sem stundum köst
er engin. Við fáum inni þrisv-
ar I viku á Laugardalsvellin-
um og erum hálfpartinn rekn-
ir út þaðan eftir æfingarnar.
Kastvöllurinn nýi átti að vera
kominn i gagnið i fyrra en
hann er ekki nothæfur enn.
Ég hefði gaman að þvi að fá
að sjá framan i þá kastara
sem taka þátt i EM ef þeim
væri boðin sú æfingaraðstaða
sem hér er og á ég þar við
Melavöllinn, þvi þrjár æfingar
á viku á Laugardalsvellinum
hafa litið að segja”.
er hættur
Miðvikudagur 28. ágúst 1974.