Alþýðublaðið - 15.09.1974, Page 6

Alþýðublaðið - 15.09.1974, Page 6
BÍLAR OG UMFERÐ Gerið við lakkskemmdirnar frá í sumar Nú er farið að hausta og fram- undan er rigningartið, en siðan taka snjórinn og vetrarveðrin við. Það er þvi ráðlagt að fara að hugsa til þess að búa bilinn undir veturinn, og á meðan veðrið er ennþá sæmilega gott er ekki svo vitlaust að byrja á lakkskemmdum eftir stein- kastið i sumar. Stór og lftil göt i lakkinu geta orðiö byrjunin að ryðskemmd- um, ef ekki er gert við þau i tlma, og i rigningum og röku veðri er ryðið ekki lengi að búa um sig. Þessar viðgerðir þurfa alls ekki að vera kostnaðarsam- ar, og það er engin ástæða til að eyða i þær rándýrri viðgerð á verkstæði, — ef þið gerið sjálf verður kostnaðurinn ekki nema fáein hundruð krónur. Það sem til þarf er gömul dagblöð, limband, finn sand- pappir, grunnur og lakk, sem ýmist fæst i sprautudósum eða sem pensillakk. Fáist ekki rétt- ur litur i sprautudósum (sprei—”), né pensillakk i rétt- um lit, hjá viðkomandi umboði, er hægt að fá lakkið lagað, og er þá ekki annað en finna lita- númerið, sem yfirleitt er á plötu i vélarrúmi bilsins. Lökk fást blönduð I ýmsum varahluta- verslunum, og vegna persónu- legrar reynslu vil ég nefna Orku, Laugavegi 178 og Blossa Skipholti 35. Á meðfylgjandi mynfum er sýnd viðgerð á stað þar sem er- fitt er að sprauta, eða við lita- skiptingu annarsvegar og glugga hinsvegar. Ef verið er að gera við gat á stórum eins litum fleti þarf ekki limband né pappir. Þá er galdurinn að draga vel úr litnum yfir á óskemmda flötinn til þess að viðgerðin sjáist sem minnst. Göt I lakkinu eftir steinkast veldur mörgum áhyggjum. Smám saman ryðgar járnið þar sem lakkið hefur flagnað af, og i kringum götin tekur það smám saman að bólgna upp, eftir þvi sent ryðið breiðist út. — Byrjið á þvi að þvo bílinn vel og hreinsið vel feiti og bón, sem vera kann i kringum götin. Hyljið vel gúmmilista, króm eöa þá hluta bílsins, sem eru i öðrum lit og eru nálægt götunum. Það er best að gera með limbandi af þeirri gerðinni, sem málarar nota á litasamskeytum. Bússið vandlega með sandpappir. Nauðsynlegt er að pússa vandlega með sandpappir. Nauðsynlegt er aö pússa alveg inn i járn þar sem ryð er, þannig að ekkert verði eftir af þessu „krabbameini bilsins”, Kippið ykkur ekkert upp við það þótt þið skemmiö lakkið á stórum fleti umhverfis gatiö. m------------------------>- Hreinsið allt ryk, sem myndast hefur við pússninguna, meö mjúkum bursta. Þetta verður að gera mjög vandlega, þvi minnsta rykögn sest i gegnum lakkið, og hafi citthvað orðið eftir af rykinu gæti farið svo, að þið yrðuð að byrja aftur á verkinu. Þegar þiö hafið lokið við að slipa vel og vandlega er komið að þvi að undirbúa sprautunina. Leggið dagblöð yfir þá staði, sem ekki á að sprauta. Þetta er sérstaklega mikilvægt, ef þið eruð að vinna við stað, sem er nálægt glugga eða öðrum lit, eins og sýnt er á myndunum. m-------------------------->- Þá er komið að grunninum. Hann er ódýrari sem pensillakk, og lökk eru orðin svo góð nú á dögum, að engin pensilför eiga að þurfa að sjást. Þess verður þó að gæta, að lakkið renni ekki til, en það er best að gera með þvi að bera nógu lítið á I einu. Ef það þekur ekki i fyrstu yfirferð er best að láta það þorna og mála aftur. m--------► m--------------► Þegar sprautaö er úr dós er mikilvægt að fara eftir leiðbeiningunum, sem prentaðar eru á dósirnar. Sérstaklega er mikilvægt að halda dósinni i þeirri fjarlægð, sem ráölagt er i leiðarvisin- um. Best er að sprauta litlu i einu og hreyfa höndina mjúklega fram og aftur til að lakkið verði sem jafnast. Þegar lakkið er orðið þurrt má taka pappirinn og limbandið af. Gerið þaö ekki með einu snöggu andbragöi, — það getur eyðilagt allt verkið. Rifið það af rólega, það er betra en að öll vinnan sé til einskis. m-------► m------------► 0 Sunnudagur 15. september 1974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.