Alþýðublaðið - 11.10.1974, Side 8
„Hef áhuga á
atvinnumennsku”
sagði Karl Þórðarsoa Akranesi í
viðtali við Alþýðublaðið í gær
,/Jú það væri vissulega
gaman að fara út í at-
vinnumennskuna. Ekki
vantar áhugann hjá mér.
Eins og er, þá er ég að læra
rafvirkjun og er á
samningi í því námi. Núna
er ég í Iðnskólanum og
verð í honum fram að ára-
mótum. Ég þyrfti að vísu
að hugsa mig vel um áður
en ég gerði eitthvað, það er
víst best að flana ekki að
neinu f þessum málum."
Eins og kunnugt er urðu
nokkrar deilur um val lands-
liðsins á sinum tima og vildu
margir meina að Karl Þórðarson
hefði átt þar öruggt sæti. Karl er
19 ára og hefur leikið meö m.fl.
Akurnesinga i tvö ár og staðið sig
mjög vel, sérstaklega i sumar en
þá var hann einn skæðasti
sóknarmaður liðsins.
Jafntefli
án marka
Mikiö var rætt um þaö i
sumar þegar liðin voru að
gera jafntefli hérna og þótti
mönnum litiö um.
Það er viöar en hér þar sem
ieikir enda með markalausu
jafntefii; i Englandi á Port
Vale metiö. A siöustu 11 árum
hefur 51 leikur hjá félaginu
endað með marklausu jafn-
tefii. Næsta félag er Bourne-
mouth með 47 og Workington
46 jafnteflisleiki.
Karl Þórðarson ÍA hefur vakið mikla athygli í sumar fyrir
leikni sina í knattspyrnu. Hugsanlegt er að hann geri nú
knattspyrnu að atvinnu sinni I framtiöinni.
West Ham vinnur nú
hvern sigurinn
á fætur öðrum
Trevor Brooking er maðurinn á bakvið velgengnina
Trevor Brooking á allan heiðurinn af sóknarleik West Ham og matar
framlinumennina með frábærum sendingum sinum.
Landsliðin
í körfunni
Nú um helgina leikur
islenska körfuboltalandsliðið
tvo landsleiki við ira.
írska liðið er skipað eftir-
töldum leikmönnum:
No: 4 John Mc Gowan, bak-
vörður með 11 landsleiki aö
baki.
No: 15 Andy Houlihan, fram-
herji.
No: 8 John Cooney, yngsti
leikmaður liösins meö 1 lands-
leik að baki, efnilegasti leik-
maður ira i dag.
No: 10 Antony Cronneliy,
aðalmiðherji liösins 2 metrar
á hæð, mjög sterkur varnar-
maður, hefur leikið 11 lands-
leiki.
No: 7 Frank O’Flynn, er
fyririiði liðsins með 10 lands-
leiki að baki, leikur I stöðu
framherja og þykir mikil
skytta.
No: 9 Tom Hickey, bakvörður
með 1 landsieik.
No: 12 Raudie O’Connor,
miðherji með 16 landsleiki að
baki.
No: 11 Dave Fitzsimonds,
stjarna liðsins meö 18 iands-
leiki að baki, teikur með
Crystal Palace i Englandi.
No: 5 Ken Mc Entire, bak-
vörður sem hefur leikiö 7
landsleiki.
Þjálfari liðsins er Tom
O’Brien, og honum til aðstoðar
er Alf O’Riordan.
islenska landsliðið verður
skipað eftirtöldum leik-
mönnum: Kolbeinn Pálsson
KR, Jón Sigurðsson Armanni,
Agnar Friðriksson ÍR, Birgir
Jakobsson ÍR, Hilmar
Viktorsson KR, Kári
Mariusson Val, Jóhannes
Magnússon Val, Birgir
Guðbjörnsson KR, Bjarni
Gunnar Sveinsson ÍS, Simon
ólafsson Armanni, Torfi
Magnússon Val, Kolbeinn
Kristinsson iR. Þjálfari er
Einar Bollason.
West Ham hefur tekið miklum
framförum að undanförnu i
ensku deildarkeppninni. Félagið
er nú iið, sem ailir tala um, það
leikur skemmtilegan sóknarleik
og uppsker mörk f staðinn. 20
mörk i 4 leikjum segja sína sögu
um það. Þessi mikla breyting á
liðinu hefur komið mjög á óvart
og klóra nú knattspyrnusérfræð-
ingar sér i höfðinu af undrun yfir
þessari miklu breytingu sem orð-
ið hefur á liðinu.
Tveir nýliðar sem félagið
keypti nýlega hafa skoraö flest af
þessum 20 mörkum félagsins. Að-
ur en þeir komu til West Ham,
voru þeir algjörlega óþekktir, en
þeireru Bill Jennings, sem keypt-
ur var frá 3. deildarfélaginu Wat-
ford, og Keith Robson frá New-
castle.
Þá má ekki gleyma leikreynd-
asta manni liðsins, Trevor Brook-
ing, sem ekki hvað sist á þátt i
velgengni West Ham um þessar
mundir. Brooking er miðvallar-
spilari og stjórnar sókn liðsins og
matar samherja sina með frá-
bærum sendingum, sem gefa
mörk.Þegar West Ham sigraði
Burnley núna nýlega hreinlega
lék Brooking sér að leikmönnum
Burnley og West Ham sigraði
örugglega I miklum markaleik 5-
3.
„Það er ekki nokkur vandi að
skora mörk þegar maður fær jafn
góðar sendingar og Brooking gef-
ur á okkur,” segir Bill Jennings
um Brooking.
t vor þegar West Ham var I
bráðri fallhættu átti Brooking
mestan heiðurinn af að bjarga
liðinu frá falli. Með frábærum
leik og baráttuvilja smitaði hann
samherja sina og þeim tókst að
verjast falli.
i fyrstu leikjum West Ham i
haust var Brooking meiddur og
gat þvi ekki leikið með og gekk þá
allt á afturfótunum hjá liðinu.
Það tapaði hverjum leiknum á
fætur öðrum og að lokum varð
framkvæmdastjóri þess Ron
Greenwood að segjastarfi sinu
lausu. Nýr framkvæmdastjóri
John Lyall var ráðinn og byrjaöi
hann að gera breytingar á liðinu.
Eftir að Brooking hafði náð sér
eftir meiðslin var hann scttur i
framlinuna en fann sig ekki i
þeirri stöðu. Það gekk svo langt
aö hann óskaði eftir að verða sett-
ur á sölulista, þar sem félagið
gæti ekki notað hann á réttan
hátt. Þetta leiddi svo til þess að
þeir Jennings og Robson voru
keyptir til félagsins og settir i
framlinuna og Brooking fékk að
leika á miðjunni, þar sem hann
gat stjórnað hlutunum.
„Siðan ég lék með skólaliðun-
um hef ég hvergi getað fundið
mig annars staðar en á miðj-
unni”, segir Brooking. „Þar lék
ég, þegar ég lék með skólaliöi
Englands, og þar hef ég átt mina
bestu leiki.”
Þaö var West Ham sem upp-
götvaði Brooking I fyrstu, þá lék
hann með skólaliði. Hann fékk
fljótlega að leika með aðalliðinu
þá sem táningur, en var ekki fast-
ur maður i iiðinu sem þá hafði
menn eins og Martin Peters,
Geoff Hurst og Bobby Moore.
Þetta var erfitt fyrir hann og oft
bað Brooking um að verða seldur
en önnur félög sýndu þessum
óþekkta leikmanni engan áhuga
og hann varð áfram hjá West
Ham. Það kom þó að þvi að þeir
leikmenn West Ham sem voru i
HM liði Englendinga 1966 voru
seldir til annarra félaga og nú
komu nýir menn fram I sviðsljós-
ið. Einn af þeim var Brooking og
fljótlega liktu enskir knatt-
spyrnusérfræðingar honum við
Martin Peters. Þarna var kominn
maður framtfðarinnar hjá félag-
inu. „Ég hef alltaf litið upp til
Martins Peters”, segir Brooking
og hef tekið hann sem fyrirmynd
mína”.
Nú er lika sá timi kominn að
Brooking hefur tekið stöðu Peters
i landsliðinu og I vor lék hann sinn
fyrsta landsleik gegn Portugal,
og fyrir sumarleyfi knattspynru-
manna I Englandi voru landsleik-
irnir orðnir fjórir. Brooking likar
best aö leika sóknarleik og nýtur
sin best þá, hann er þvi feginn að
nú taka dómararnir föstum tök-
um á grófum leik sem hann er litt
hrifinn af.
Nú á næstunni leika Englend-
ingar landsleik við Tékka i
Evrópukeppni landsliða, og er
Brooking ofarlega á blaði yfir þá
leikmenn, sem Don Revie hyggst
nota I þeim leik.
0
Föstudagur. 11. október. 1974.