Alþýðublaðið - 28.11.1974, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 28.11.1974, Blaðsíða 8
Verða tveir í kjöri sem formannsefni á þingi KSÍ um helgina? # Ellert B. Schram hefur þegar ákveðið að gefa kost á sér. # „Hef ekki tekið ákvörðun”, sagði Hafsteinn Guðmundsson sem er líklegur til að fara í framboð ,,Það hefur jú verið orðað við mig, að ég gæfi kost á mér til for- mannskjörs, sagði Hafsteinn Guðmundsson I Keflavík i viðtali við Alþýðublaðið i gær i tilefni af þeim orðrómi um að hann myndi fara i framboð gegn núverandi formanni KSl Ellerti B. Schram á KSl þinginu um helgina. En Ellert hefur þegar lýst þvi yfir, að hann muni verða i fram- boði aftur. ,,Hvað ég geri vil ég ekkert segja um að svo stöddu,” sagði Hafsteinn. ,,Það verður bara að koma i ljós á þinginu. Þetta var svona i fyrra lika þá voru ýmsir aðilar, sem vildu að ég gæfi kost á mér i formannskjörið en úr þvi varð þá aldrei þá”. Þá spurðum við Hafstein hvernig honum litist á að fjölga liðunum um tvö i 1. deild. ,,Ég er ekki hrifin af þvi eins og málin standa nú, en nú á næstunni verða teknir nokkrir nýir vellir i notkun, má þar nefna Hafnar- fjörð, Kópavog og tvo velli i Reykjavik. Þegar þessir vellir eru komnir i gagnið finnstmér málið horfa öðru visi við”. Nú hafa hinir erlendu þjálfarar lýst þvi yfir að þeir telji nauðsyn- legt að liðin hér fái fleiri leiki á keppnistímabilinu, fái þau það ekki sé litil von um að okkur fari fram. Hvað um þetta atriði? „Eins og ég sagði áðan þá er ég mótfallinnfjölgun eins og málin standa i dag, en það eru til aðrar leiðir tilað fjölga leikjunum en að fjölga i deildinni, Get ég nefnt sem dæmi aðferðina hjá Skotum I þvi sambandi. Þeir hafa á prjón- unum áform um að fækka liðun- um i 1. deild og taka upp f jórfalda umferð. Þetta er lika hugsanleg leið hjá okkur”, sagði Hafsteinn að lokum. Eins og hér kemur fram er Haf- steinn á móti þvi að liðunum i 1. deild verði fjölgað og er ekki ólik- legt að þau félög sem eru andvig fjölgun hyggist styðja við bakið á honum i baráttunni við Ellert gefi Hafsteinn kost á sér. Ljóst er, að tillaga stjórnar KSl um fjölgun I deildinni kemur til með að verða mikið hitamál á þinginu og ekki óliklegt að geti komið til með að dragga dilk á eftir sér. Ellert B. Schram i baráttunni á knattspyrnuvellinum fyrr á árum. Nú mun hann væntanlega lenda i mikilli baráttu á þingi KSÍ um helgina. HAF- STEINN BOÐAR TIL FUNDAR Eitthvað mun sennilega standa ti! hjá Hafsteini Guð- mundssyni I sambandi við það hvort hann muni gcfa kost á sér sem formaður KSt á þing- inu um helgina. tþróttasiðan hefur það eftir áreiðanlegum heimildum aö Hafsteinn sé bú- inn að boða fund með utanbæj- arfélögunum i Kópavogi á laugardagsmorguninn til að kanna viðhorf þeirra. Lið Axels tapaöi sínum fyrsta leik og missti þar með af efsta sætinu Lið Axels Axelssonar Danker- sen tapaði slnum fyrsta leik um siðustu helgi I deildarkeppninni þýsku. Tapaði félagið fyrir neðsta liðinu Hamburger SV, sem um leið komst af botninum I deild- inni, en félagið hafði aðeins hlotið eitt stig i keppninni. Viö þetta óvænta tap Danker- sen komst Gummersbach i fyrsta sætið. En úrslitin I norðurdeild- inni urðu þessi: Kiel—Gummersbach 18-19 Rheinhausen—Wellinghofen 19-18 Bad Schwartau -Phönix Essen 23-14 Hamburg SV—Dankersen 14-11 Staðan i norðurdeildinni er nú þessi, þegar hvert leikið 5 leiki. félag hefur stig mörk Gummersbach 9 95:79 Dankersen 9 89:69 Wellinghofen Phönix Essen 6 95:86 (-eftir 6 leiki) 6 107:103 Bad Schwartau 5 74* 67 Kiel 5 91:93 Grambke 4 84:97 Hamburger 3 66:70 Rheinhausen 2 79:94 Hannover 2 71:93 1 suðurdeildinni gengur Göpp- ingen mjög vel og sigraði stórt I sinum leik um helgina, en úrslitin þar urðu þessi : Rintheim—Milbertshoffen 20-17 leikinn fyrr í vikunni Huttenberg—Leutershausen 21-13 Steinheim—Butzbach 12-10 Groswallstadt—-Berlin 20-18 Hofweier—Rintheim 26-16 Göppingen—Milbertshofen 25-17 Staðan I suðurdeildinni er þessi eftir 5 leiki: Göppingen 8 103:93 Huttenberg 7 90:73 Leutershausen 7 71:69 Steinheim 7 62:61 Rintheim 6 108:111 Hofweier 5 94:96 Groswallstad 5 82:81 Milbertshoffen 4 86:99 Butzbach 3 73:79 Berliner 0 63:80 Enn einu sinni urðu hrað- upphlaupin okkur að falli þegar hollenska kvennalandsliðið sigraði það íslenska Enn einu sinni varð islenskt handknattleikslandslið að lúta i lægra haldi, vegna þess hve liðið var seint i vörnina. Þetta fengu islensku handknattleiksstúlk- urnar okkar að reyna i gær- kvöldi þegar landsliðið okkar mætti landsliði Hollands i Laugardalshöllinni. Leiknum lauk með eins marks sigri Hol- lands 10:9, eftir að staðan hafði veriö 6:4 i hálfleik þeim i vil. Eins og áður sagði voru það hraöupphlaup hollensku stúikn- anna sem gerðu út um leikinn. þvi þær skoruðu 6 af 10 mörkum sinum úr hraðupphlaupum. Landslið okkar byrjaði vel i leiknum, komst fljótlega yfir 3:1, en þá fór allt I baklás og þær hollensku skoruðu fjögur mörk i röð áður en þvi islenska tókst að skora aftur. Af þessum fjórum mörkum voru tvö úr hraðupp- hlaupum. Þá loksins kom is- lenskt mark, en þær hollensku voru fljótar að svara fyrir sig með enn einu hraðupphlaupinu. I seinni hálfleik kom nokkuð góður leikkafli hjá islenska lið- inu og þvi tókst að jafna, en fá- dæma klaufaskapur hjá Is- lensku stúlkunum varð til þess að þær hollensku skoruðu næstu þrjú mörk og komust i 10:7 og tryggðu sér raunar með þvi sig- ur I leiknum. Þó islenska liðið skoraði tvö siðustu mörk leiks- ins var sigur þeirra hollensku aldrei i hættu. Leikur islenska liðsins var nokkuð tilviljanakenndur og gerðu stúlkurnar sig sekar um mörg ljót mistök i leiknum. Þá er það mjög slæmt hjá liðinu eins og áður er nefnt, hversu lengi það var i vörnina. Hollenska liðið lék mjög takt- iskan handknattleik, þar sem boltinn var látinn ganga mjög hratt á milli, en það háði liðinu greinilega, að engin langskytta er I liðinu. Leikinn dæmdu þeir Björn Kristjánsson og Óli Olsen mjög vel. o Fimmtudagur 28. nóvember 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.