Alþýðublaðið - 28.11.1974, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 28.11.1974, Blaðsíða 12
alþýðu I n RTíTtíl Bókhaldsaðstoó meó tékka- KOPAVOGS APÓTEK færslum Qpiö öll kvöld til kl. 7 BÚNAÐAR- Laugardaga til kl. 12 \A/ BANKINN SENDIBILAS7ÖÐIN Hf ALÞYÐUBLADIÐ HEIM- SÆKIR VINNUSTADI ADBUNAÐUR F A VINNUSTAD Alþýðublaöið mun í dag og næstu blöðum heim- sækja vinnustaði og ræða við fólk, um hvernig á- stand og aðstaða er á vinnustöðum i dag. Við byrjuðum á að líta við í vélsmiðjunni Þrym, og hittum þar fyrst fyrir þá Jón Óliversson, lær- ling í véivirkjun, og Guð- jón Jónsson, rennismið. Jón hafði þetta um að- stöðuna að segja: „Hér er mjög þröngt um alla starfsemi, loft- hæðin er of lág, og húsið líklega ekki upphaflega byggt fyrir smiðjurekst- ur". Guðjón tók í sama streng. Öskar Ólafsson verkamaður sagði, þegar hann var spurður um hávaða, hvort hann væri mikill, og hvort hann not- aði eyrnahlífar: „Hann er mismunandi, en gefur oft verið ansi mikill. Ef að keyrir um þverbak, þá nota ég hlífar, en það finnst mér hálf þving- andi vegna gleraugn- anna. Hér er mjög þröngt eins og þú sérð, og lítið pláss. Hreinlætisaðstaða er hér mjög góð, eins og þú sérð, ef þú lítur fram í kompuna þar sem klósettið er staðsett". Jón Kristinsson vél- virki sagði eftirfarandi um hávaðann: „Það er stundum mikill hávaði, en hlífar nota ég við og við. Aðstaða er hér svona og svona. Kaffistofan er ágæt, en hreinlætisað- staða lök". Þá höfðum við tal af Birni Gíslasyni, forstjóra Þryms, sem í þessu kom aðvífandi. Fer hér á eftir það sem hann hafði um aðbúnaðinn að segja, og væntanlegar úrbætur í þeim efnum. „í sam- bandi við hávaðann og varnir gegn honum, vildi ég vekja athygli á því, að við erum nú þegar búnir að kaupa tvo umganga af eyrnahlífum á mann- skapinn, en þær eru bara ekki notaðar, og heldur ekki augnhlífarnai; sem við sköffum, nema á renniverkstæðinu. Ann- ars er það um aðbúnaðinn að segja, að ýmsa galla sem koma fram í því sambandi,, má rekja til starfsmannanna sjálfra, og hvernig þeir ganga um. Hér er að vísu þröngt, en þess ber að gæta að þjónusta okkar er geysi viðamikil, og mætti eiginlega segja að við hölf um f lotan um gangandi. Ot á það fást hins vegar engar fyrir- greiðslur, og því fer sem fer. Við fáum í sumum tilfellum seint eða aldrei greitt það sem við gerum við fyrir útgerðina, en ef gert er við skip erlendis, fá þeir aðilar sem gera við þar greitt undir eins. Því er það að við erum ekki í betra húsnæði. Hreinlætisaðstaða er kannski ekki upp á það besta, en það stendur til bóta, mjög fljótlega". Þessu næst fórum við yfir í Sindra, og tókum tali nokkra menn, sem unnu þar. Fyrstur fyrir vörum varð Guðjón Magnússon, eldsmiður. Hann sagði: „Ég held að aðstaðan sé hvergi sæmi- leg, það er yfirleitt þann- ig. Hér vantar mikið á, að aðstæður séu normal. Hvort ég noti heyrnahlíf- ar? Ég heyri nú það illa, að það væri hættulegt. Ég hef unnið í öllum greinum járniðnaðarins, og þetta er örugglega versta vinn- an, og sú verst borgaða, sem hægt er að f á. Það er allt hættulegt við þessa iðn,, og hætta á allskonar eitrunum, svo sem gas- eitrunum og zinkeitrun- um, og rafsuðuloft er tal- ið mjög óhollt". Jón Ó, Vilhjálmsson kvartaði helst yfir því,að lærlingar væru alltaf settir í rafsuðuna, en hann er að læra vélvirkj- un". Það er frekar lítið um að við lærum vél- virkjun hérna", sagði hann. Birgir Ágústsson, vél- virki, er trúnaðarmaður verkalýðsf élagsins á staðnum. Fer hér á eftir það sem hann sagði. „Það er baneitrað loft hérna inni, og við verðum að fara út annað slagið til að lifa. Ástandið hér er svo ferlegt, að þeir sem hing- að koma f rá raf magns og öryggiseftirlitinu, trúa ekki sínum eigin augum, og eru farnir að koma með Ijósmyndara og láta taka myndir, skýrslum sínum til staðfestingar, því annars myndi enginn trúa þeim. En það er sama hvað er skrifað niður og hvað mikið er kvartað, það er ekkert gert í málunum. Við erum nú búnir að standa í þvargi í tvö ár, og ennþá hefur ekkert gerst. Það strandar allt á kerfinu. Verkalýsðfélagið getur ekkertgert, Oryggiseftir- litið ekkert, enginn getur eða vill gera neitt. „Þetta ástand hefur nú alltaf verið mjög svipað í vélsmiðjunum, síðan ég man eftir", sagði Ásgeir Einarsson, forstjóri í Sindra. En upp á síðkast- ið hefur þetta verið magnað mjög upp, og menn eru farnir að sjá mengun í öllu. Annars er það rétt, að vélsmiðjan er sem slík ekki hentug f yrir þau verkefni, sem við höf um tekið að okkur upp á síðkastið eins og það sem við höfum smíðað fyrir Straumsvík og Kísiliðjuna. Málið er bara þannig, að við þyrftum að geta stækkað eða aukið við okkur, en til þess þyrftum við að njóta auk- innar fyrirgreiðslu frá ríkinu. Iðnaðinum er bara ekki treyst fyrir pening- um. Annars er ég einmitt að fara á fund í kvöld, þar sem þessi mál mun bera á góma, og Gunnar Thoroddsen verður fyrir svörum. Ég hafði einmitt ætlað að spyrja hann rækilega út úr um rekstursmál járniðnaðar- ins". FIMM á förnum vegi--------------------------;------------------------- Á að lækka kosningaaldurinn í 18 ár? Jón Ingi Baldursson, barþjónn: „Jú af hverju ekki? Það er ekk- ert vitlaust að leyfa ungu fólki að ráöa einhverju um þetta.” Hjördis Eyjólfsdóttir: „Það veit ég ekkert um. Ég hef ekkert hugsað um það.” ólafur ólafsson: „Alveg hik- laust.” Gunnar Þórðarson, verkamað- ur: „Já endilega, bara til að fá skoðun unga fólksins á málun- um.” Asta Jónsdóttir, húsmóðir: „Mér finnst það allt i lagi.”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.