Alþýðublaðið - 28.11.1974, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 28.11.1974, Qupperneq 9
ATHUGASEMD FRÁ DÓMARA x .4 < il A Seinni landsleikurinn verð- ur í Hafnarfirði í kvöld 1 kvöld leikur islenska kvennalandsliðið i handknatt- leik seinni landsleikinn við landslið Hollands. Leikurinn i kvöld verður leik- inn i íþróttahúsinu i Hafnarfirði og hefst kl. 20:00. Eins og oft hefur komið fram að undanförnu eru 10 ár siðan kvennalandsliðið lék hér siðast landsleik i heimavelli. En nú vilja forráðamenn handknatt- leiksins að breyting verði á að hafa þeir i þvi sambandi ýmis verkefniá prjónunum i þvi sam- bandi. Má þar nefna að á milli jóla og nýárs er mjög liklegt að Bandarikjamenn komi hingað með kvennalandslið sitt og leiki hér tvo leiki. Þá munu Færey- ingar koma hingað með sitt landslið og endurgjalda heim- sókn okkar til Færeyja fyrr i haust. í hálfleik mun Ömar Ragnar- sson verða með flokk skemmti- krafta og ætti þvi áhorfendum i Hafnarfiröi ekki að leiðast i hálfleik. Þeir skemmta i hálfleik á meðan kvenfólkið hvilir sig I kvöid. Þá veröur hinn bráðsnjalli Ómar Ragnarsson fremstur með flokk skemmtikrafta á f jölunum i iþróttahúsinu i Iiafnarfirði. A mynd- inni má þekkja tvo af þeim sem þar verða, en þaðeru Laddi og Arni Johnsen. Það eru þrjár hendur á lofti við að stöðva Arna Indriðason Gróttu i leiknum við Fram um siðustu helgi, en Arni skoraöi og Grótta vann upp fi marka forskot Framara og náði jafntefli I leiknum. Um næstu helgi leika nýliðarnir viö tslandsmeistarana. PRESTON HÆSTU HELEI EIN UMFERD UM Sú nýbreytni hefur verið tekin upp i Islandsmótinu i hand- knattleik i 1. deild karla, að leika heila umferð um helgar. Þessi nýskipan verður þó ,ekki ura hverja helgi, en fyrir ára- mót verður tvisvar leikið heila umferð. Um næstu helgi verður þetta fyrirkomulag reynt i fyrsta sinn, en þá verður leikin heil umferð. A laugardaginn verða tveir leikir i Hafnarfirði þá leika Haukar við tR og Grótta mætir FH. Vert er að geta þess að þessir leikir eru á nokkuö ó- venjulegum tima, eöa kl. 15:30. Þá hefst fyrri leikurinn. A und- an þessum leikjum verður leik- inn ^inn leikur i 1. deild kvenna, þá leika FH og Þór og hefst sá leikur kl. 14:30. A sunnudaginn verður mótinu svo haldiö áfram i Laugardals- höllinni, þá leikur Armann við Viking og Fram við Val. Leikur Armanns og Vikings hefst kl. 15:00, sem lika er nokkuð óvenjulegur timi, en að sögn þeirra hjá mótanefnd virðist fólk mæta mjög vel á þessum tlma á sunnudögum til að sjá handbolta. Það hafi greinilega komið fram þegar stórleikir hafa farið fram á þessum tima á undanförnum árum og sé það þess vegna sem þeir ætla að reyna þessa nýbreytni. A undan leikjunum i 1. deild verður einn leikur i 2. deild. Þá leika Þróttarar við KA og hefst sá leikur kl. 13:45. Aö loknum leikjunum i 1. deild karla verður svo á dagskrá einn leikur i 1. deild kvenna, þá leika Vikingur og Armann. En auk þessara leikja verður leikið i iþróttahúsinu á SeUjarnarnesi og hefst keppnin þar kl. 13:00 á sunnudaginn. Þá áttu einnig að fara fram nokkrir leikir i hinu nýja iþróttahúsi i Garðahreppi, en smiöi hússins er ekki lokiö og varð þvi aö fresta leikjunum fram yfir áramót. TÖKST ÞAÐ í ANNARRI TILRAUN Lið Bobby Charlton.Preston átti i miklu basli með Blyth Spartans á laugardaginn i 1. umferð ensku Bikarkeppninnar. Blyth skoraði fljótlega i leiknum og hafði eins marks forystu lengst af, en leik- mönnum Preston tókst að jafna seint i seinni hálfleik og þar með að fá aukaleik á heimavelli. Liðin reyndu svo með sér i Preston á þriðjudagskvöldið og nú sýndu leikmenn Preston allt annan og betri leik en á laugar- daginn og sigruðu örugglega 5-1. Sama kvöld voru nokkrir leikir i sömu keppni og urðu úrslit þeirra þessi: Stafford Ranger-Stockport 1-0 Swansea-Kettering 1-1 Hereford-Gillingham 1-0 Cambridge-Hitchin Town 3-0 Vegna fréttar okkar i blaðinu i gær um að báðir dómararnir i leik KR og Fylkis i 2. deild á sunnudagskvöídið hefðu ekki mætt til leiks og um töf leiksins af þeim orsökum um 45 minút- ur, hafði Ingvar Viktorsson annar þeirra dómara sem dæma áttu leikinn samband við okkur og vildi að það rétta kæmi fram i málinu. „Þegar að ég vissi að ég yrði erlendis með FH i leiknum i Evrópukeppninni, hafði ég sam- band við Jón Erlendsson for- mann dómaranefndar HSl og tilkynnti honum um að ég gæti ekki dæmt leikinn af þeim or- sökum. Benti hann mér þá á að hafa samband við meðdómara- minn Þóri Úlfarsson og ætti hann að sjá um að útvega sér meðdómara i minn stað. Þetta gerði ég, að tilkynna Þóri að hann yrði að útvega sér dómara I minn stað' BARCELONA TAPADI Ekki gengur liði Johans Cruyff sem best i spönsku deildarkeppninni þessa dag- ana. Um siðustu helgi lék Barcelona við Espanol á heimavelli og tapaði leiknum mjög óvænt 2-5, Við þennan óvænta sigur komst Espanol upp i 2. sæti á eftir Real Madrid sem gefur sig hvergi og trjónar nú i fyrsta sæti. Real Madrid með þá Paul Breitner og Giinter Netzer i fylkingarbr jósti lék viö Granada og lauk ieiknum meö 6 marka jafntefli. Johan Cruyff Fimmtudagur 28. nóvember 1974. o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.