Alþýðublaðið - 07.12.1974, Side 7

Alþýðublaðið - 07.12.1974, Side 7
I minningu skipverja af b/v Guðbjörgu ÍS 46 Kveðja frá Sjómannafélagi Isfirðinga Er þegar öflgir ungir falla sem sfgi i ægi sól á dagmálum. (B.Th.) Laugardagur og siðustu korn nóvembermánaöar voru að renna úr stundaglasi timans. Mannfjöldinn á hafnarbakkan- um á tsafirði stóð þögull álengd- ar. Skuttogarinn Guðbjörg tS var að leggja að landi. Fáni skipsins blakti i hálfa stöng, sem og hvarvetna i bænum. Þetta nýja og glæsilega skip var að þessu sinni skip sorgarinnar, hönd dauðans hvildi yfir. Þrir skipverjar voru ekki lengur i tölu lifenda. Að morgni laugardags 30.' nóv. s.l. flaug sú helfregn um Isafjarðarkaupstað, að daginn áður hefði b/v Guðbjörg orðið fyrir brotsjó er skipið var að veiðum um 50 sjómilur út af Bjargi og þrir skipverja drukknað. Menn setti hljóða. Enn einu sinni og skilið eftir blæðandi und, enn einu sinni haföi maðurinn með ljáinn lóst- iö islenskt sjávarpláss ægihöggi og skilið eftir blæðandi und, enn einu sinni hafði Ægir konungur krafist fórna. Með skipinu voru lik tveggja hinna látnu, einn gisti hina votu gröf. Það er á slikum stundum, sem viö mannanna börn óskum þess eins, að við getum stöðvað hjóí tlmans, já, að við mættum snúa þvi örlitið til baka og breyta rás viðburða. Við verðum svo óendanlega smáir og stöndum vanmáttugir frammi fyrir óbreytanleik mannlegs lifs. Þrir sjómenn eru skyndilega burt- kallaðir frá eiginkonum og börnum, það er klippt á þráðinn og ekkert virðist eftir nema auðnin og tómið, það er sem sigi I ægi, sól á dagmálum. ótöldu störf, sem hann lét félag- inu i té. Guðmundur kvæntist eftirlif- andi konu sinni, Rögnu Sólberg, frá Súgandafirði, 31. des. 1964. Þau eignuðust tvö börn, en áður en til hjónabands þeirra var stofnað höfðu þau hvort um sig eignast afkomanda. Stjúpson sinn ól Guðmundur upp, sem eigin sonur væri. Gilnimdir Gblmi var fæddur á tsafirði 19. mai 1935, sonur þeirra hjóna Glsla heitins Guðmundssonar og Þorbjargar Likafrónsdóttur konu hans. Guðmundi heitnum var sjávarseltan I blóð borin og ung- ur að árum tók hann sér stöðu i framsveit þeirra, er sækja gull i greipar hafsins. Hann var viðurkenndur dugnaðarmaður aö hverju, sem hann gekk. Guðmundur Gislason var fé- lagshyggjumaður. Hann tók virkan þátt i samtökum stéttar- bræðra sinna og valdist þar til trúnaðar- og forystustarfa. Hann gegndi margvislegum trúnaðarstörfum innan Sjó- mannafélags Isfirðinga, vara- formaður þess varð hann 1969 og ári siðar formaður og þeirri stöðu gegndi hann til hins sið- asta. Þá átti hann sæti i Sjó- mannadagsráði, húsnefnd Alþýðuhúss Isfirðinga, fyrir samtök sin sat hann á þingum A.S.V., A.S.I. og Sjómannasam- bandsins. Þá hafði- hann um árabil verið varafulltrúi i bæj- arstjórn Isafjarðar. Guðmundur heitinn var einn af frumkvöðlum þess, að is- firzkum sjómönnum var reistur veglegur minnisvarði s.l. sum- ar. Bar hann það mál mjög fyrir brjósti og einlæg var gleði hans er hann sá þann draum sinn rætast. Sem fyrr segir valdist Guð- mundur til forystu i Sjó- mannafélagi Isfirðinga. Við leiðarlok eru honum færðar ein- lægar þakkir fyrir störf hans i þágu félagsins og isfirskrar sjó- mannastéttar. Orðum hættir til að verða fátækleg, en af heilum huga er honum nú þakkað sam- starf og leiðsögn. Skarð hans verður vandfyllt, en minning hans mun lifa i sögu félagsins. Hafi hann þökk fyrir öll þau Ari kvæntist 8. sept. 1956 Kol- brúnu Sigurðardóttur, Bents- sonar, sem ættuð er frá tsafirði. Lifirhún mann sinn ásamt fjór- um börnum, sem þeim varð auðið. Ari Auðunn Jónssonvar fædd- ur á Hvammstanga hinn 16. ágúst 1933. Foreldrar hans voru þau Jón heitinn ölafssn, úr- smiður og kona hans Vilborg Guðmundsdóttir, sem lifir son sinn. Um 17 ára að aldri fluttist hann til Reykjavikur þar sem hann átti heima þar til hann fluttist búferlum með fjölskyldu sina til tsafjarðar i september 1973 og hafði hann þvi dvalist hér rúmt ár. Ari heitinn hafði stundað sjó- mennsku yfir tveggja áratuga skeið, verið i siglingum og á tog- urum. Hann var dugandi sjó- maður og vel liðinn af sam- starfsmönnum. Er þar skarð fyrir skildi. Sem fyrr segir var hann ný- fluttur til tsafjarðar, en eigi að siöur hafði hann fest hér rætur, hann hafði byrjað byggingu ibúðarhúss og hér átti fram- tiðarheimili hans að standa. En skjótt brá sól sumri. MINNINGARORÐ Bjarni M. Sigurðsson Garðar Jónsson var fæddur á tsafiröi 28. sept. 1950 og var þvi aðeins 24 ára að aldri. Hann var sonur þeirra hjóna Jóns Helga- sonar, matsveins, og Þorgerðar Gestsdóttur, sem búsett eru á Isafirði. Strax að lokinni skólagöngu fór hann til sjós og stundaði þau störf ætið siðan. Fyrir hart nær tveimur árum varð hann fyrir þvi slysi við störf á hafi úti, að hnifur hrökk i andlit hans, svo hann missti sjón á öðru auga. Atti hann i langvinnum erfið- leikum sakir þessa, en nú fyrir skömmu virtist lifið blasa við á ný og hafði hann tekið upp fyrri störf, er kallið kom svo óvænt. Er að honum mikill sjónarsvipt- ir og með honum er genginn góður drengur. Hinn 20. nóvember 1971 gekk Garðar að eiga eftirlifandi konu sina Sesselju Ingólfsdóttur frá Bolungarvik. Áttu þau tvö börn, bæði I æsku. t dag er i fvrsta sinni lagður blómsveigur að minnismerki is- firzkra sjómanna, ,,til heiðurs þeim, sem horfnir eru” eins og letrað er á fótstall styttunnar. Hljóðirstöndum við álengdar og drúpum höfði. Við drúpum höfði i hljóðri þökk og bæn. Við biðj- um aðstandendum hinna látnu félaga okkar, eiginkonum, börnum, foreldrum og öðrum ættingjum blessunar Guðs. Megi hinn algóði himnafaðir halda sinni mildu verndarhendi yfir þeim og leiða þau og styrkja á ókomnum dögum. Megi minn- ingin um góða drengi vera þeim huggun i þeirra sára og mikla harmi. Við biðjum hinum látnu félög- um blessunar, er þeir hafa nú lagt út á djúpið mikla. Hafi þeir þökk fyrir allt og allt. Sjómannafélag tsfirðinga Minning GARDAR lONSSON f. 28/9 1950 d. 29/11 1974 Þegar mér barst sú hörmu- lega fregn að hann frænda minn hann-Gæja, eins og hann var alltaf kallaður, hefði tekið fyrir borö á b/v Guðbjörgu IS 47 ásamt tveim félögum sinum, setti mig hljóðan. Gat það verið að búið væri að taka hann aðeins 24 ára frá ungri eiginkonu sinni og tveim litlum börnum? Garðar Gunnar Jónsson- eins og hann hét fullu nafni var fæddurhér á Isafirði. Foreldrar hans voru þau hjónin Þorgerður Gestsdóttir og Jón Helgason matsveinn hér I bæ. Hann hóf ungur sjómennsku og stundaði hana til dauðadags. Að undan- skildu rúmu einu og hálfu ári, þvl um haustið 1972, varð hann fyrir þvi slysi við vinnu sina á sjónum, að fá hnif i annað augað, svo að taka varð það burt og hann varð að vera undir stöðugri læknishendi allan timann. Það voru margar ferðirnar hjá honum milli tsaf jarðar og Reykjavikur sem hann þurfti að fara i þess- um miklu veikindum sinum. Það var honum mikil stoð hvað hann átti elskulega eiginkonu, sem stóð fast við hliðina á hon- um I þessum miklu veikindum hans. Hann gekk að eiga Sesselju Ingólfsdóttur frá Bolungarvik og þau gengu i hjónaband 20. nóvember 1971. Þau eignuðust tvær litlar dætur, sem eru Helga 3 ára og Gerður á öðru ári. Það er mikill harmur kveðinn að ungri eiginkonu og litlu dætrun- um að sjá eftir ungum eigin- manni og föður. Ennfremur er mikill söknuðurinn hjá foreldr- um hans og systkinum sem nú verða aðsjá eftir ungum syni og bróður. Gæi minn, ég vil nota þetta tækifæri til að þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum saman, það lifir minning frá okkar bernskuárum, sem ég mun aldrei gleyma. Ég bið guð að styrkja elskulegu eiginkonu þlna, litlu börnin þin, foreldra þlna, systkini þin og aðra að- standendur þina i þessari miklu sorg. Guð geymi þig. Gestur Halldórssor Guðmundur Gíslason f. 19. maí 1935 d. 29. nóv. 1974 Mig setti hljóðan er ég frétti um hið hörmulega slys um borð i skuttogaranum Guðbjörgu 1S 47, er þrir skipverjar drukknuðu er þeir voru við störf sin, eftir að brotstjór reið yfir skipið. Einn af þessum þremur mönnum var minn góði og tryggi vinur Guðmundur Gisla- son, sem ég vil minnast með nokkrum orðum. Þar sem ég veit að það var frekar að skapi Guðmundar að láta verkin tala, en að hafa um þau mörg orð mun ég ekki vera langorður. Ég hafði fylgst með ferli hans frá tólf ára aldri, og fljótlega uppúr þvi þótti mér sýnt hvert stefndi varðandi hans lifsstarf. Enda byrjaði hann mjög ungur á sjónum, og starfaði þar allt til dauðadags. Guðmundur var há- seti á ýmsum skipúm héðan frá tsafirði og einnig frá Hafnar- firði til ársins 1958, en þá tekur hann fiskimannapróf hér á tsa- firði. Er siðan stýrimaður og skipstjóri á m/b Asbirni eign Samvinnufélags tsfirðinga, og i þvi starfi lágu leiðir okkar fyrst saman i starfi, en ég var þá starfsmaður sama félags á öðr- um bát. Siðan höfum við átt náið samstarf i gegnum félagsstörf sjómanna. Við störfuðum sam- an I Skipsstjóra- og stýrimanna- félaginu Bylgjunni i nokkur ár, og nú slðustu árin I Sjómanna- dagsráði tsafjarðar. Siðasta samvinna okkar var i framkvæmdanefnd minnis- varða sjómanna á tsafirði, en þvi verkefni lauk er minnis- varðinn var vigður 15. sept. s.l. Við öll störf sin að málefnum sjómanna lagði Guðmundur á sig mikið og óeigingjarnt starf, sem okkur ber að virða og þakka. Það var skemmtilegt að vinna með svo áhugasömum og drenglunduðum manni sem Guðmundi, og félagsmál sjó- manna áttu hug hans allan. Allir sem til þekkja vita að skoðanir okkar féllu þó ekki saman i þjóðmálum, og oft ræddum við þau mál hispurs- laust, en aldrei urðu þau mál þó til þess að kasta skugga á okkar vináttu eða okkar samstarf vegna þessara mála. Við vorum alltaf sammála um að halda þessum ágreiningi okkar utan við félagsstörf okkar, og ég vil láta þess getið nú að það er ánægjulegt að geta minnst þess að þetta héldum við báðir. Guðmundar Gislasonar mun ég ætið minnast sem sérstaks góðvildarmanns. Mér er vel Ijóst að þeir sem þekktu Guð- mund litið gátu við fyrstu kynni virst hann hrjúfur i viðmóti, en þegar betur var að gáð var nú samthlýtt hjarta þar á bak við. Hann var ávallt reiðubúinn að leggja góðum málum lið, og þá sér i lagi þeim er snertu þá sem minna máttu sin i þjóðfélaginu. Ég veit ég mæli fyrir munn okkar allra sem störfuðum með honum bæði i félagsmálum sem öðru, er ég segi að vandfyllt verði i hans starf. En eigi má sköpum renna. Vegir Guðs eru órannsakanleg- ir. Mest hefur þó misst kona hans og börn, öldruð móðir og aðrir ástvinir. Ragna min, um leið og ég þakka ykkur alla þá vinsemd sem ég hef alltaf mætt á heimili ykkar, vil ég segja við þig og börnin, minnist alltaf, og takið til eftirbreytni það góða sem var i fari Guðmundar. Að endingu kveð ég þerinan góða vin með trega, um leið og ég vil þakka honum fyrir marg- ar ógleymanlegar samveru- stundir. Minningarathöfn um Guð- mund, ásamt jarðarför þeirra tveggja félaga hans er fórust með honum fer fram I Isafjarð- arkirkju i dag, Ég, kona min og börn sendum aðstandendum öllum dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þessara góðu drengja. Kristján J. Jónsson I Ég vil i nokkrum fátæklegum orðum minnast vinar mins Guð- mundar H. Gislasonar, sem hvarf i hafið djúpt af Jökli á næst siðasta degi nóvember- mánaðar. Hann byrjaði ungur að stunda sjó eins og titt er um margt sjó- mannsefnið, og eftir nokkurra ára sjómennsku lauk hann 120 tonna fiskimannaprófi á ísafirði 1958. Var hann siðan skipstjóri eða stýrimaður á ýmsum skip- um héðan, ásamt öðrum fleirum störfum á sjó, eftir þvi sem að- stæðurhæfðu honum hverju sinni. Guðmundar mun jafnan verða minnst, sem eins eftir- tektarverðasta manns i isfirskri sjómannastétt. Pesónuleiki hans var slikur, að menn löðuð- ust ósjálfrátt að honum. Þegar hann sagði eitthvað þá var eftir þvi tekið. t kringum hann rikti engin lognmolla. Oftar en einu sinni heyrði ég hann segja þessi orö. „Það er að þora að vera manneskja”. Hann þorði að vera manneskja og segja það umbúðalaust, sem honum þótti að. Mér verður það gjarnan minnistætt hve unglingar og ungir menn virtust hafa ánægju af návist hans. Aldrei þreyttist hann á þvi að hvetja unga sjó- menn til þess að leita sér menntunar i sambandi við störf sin. Fáa þekkti ég sem höfðu betra hjartalag til þeirra sem minna máttu sin, enda var hann ávallt fyrstur manna til þess að hvetja til aðstoðar, ef einhver átti i erf- iðleikum eða um sárt að binda. Þær voru margar samkomurn- ar sem hann stóð fyrir i hjálpar- skyni við aðra. Guðmundur stóð i fylkingar- brjósti sjómanna hér i mörg ár, enda var hann formaður Sjó- mannafélags tsfirðinga. Þar er nú skarð fyrir skildi sem vand- fyllt verður. Konu hans, Rögnu og börnum þeirra Gisla og Sóleyju, ásamt Rafni stjúpsyni hans bið ég blessunar á þessum þungbæru timum. Einnig sendi ég móður hans og systkinum minar inni- legustu samúðarkveðjur. Þann 15. september s.l. var afhjúpað hér minnismerki is- firskra sjómanna. Ég held að ég kasti ekki rýrð á neinn, þó ég segi að Guðmundur hafi verið aðal hvata- og framkvæmda- maður þessa atburðar. Megi minning hans lifa i þessu merki ásamt allra þeirra is- firsku sjómanna, sem farnir eru að höfum eilifðarinnar. Halldór Hermannsson Sérfræðingur - Iðntækni- og rannsóknastörf Rannsóknastofnun iðnaðarins óskar eftir að fastráða háskólamenntaðan sérfræðing (menntun á sviði raunvisinda eða verk- fræði). Stofnunin leitast nú við að efla tengsl sin og auka þjónustu við iðnaðinn og einstak- ar iðngreinar. Æskilegt væri að umsækj- andi gæti tekið að sér störf sem lúta að þessu. Einnig væri það kostur ef umsækj- andi hefði nokkur kynni af tréiðnaði. Hér getur orðið um sjálfstætt og áhugavert starf að ræða, ef heppilegur maður fæst. Upplýsingar eru veittar hjá stofnuninni að Keldnaholti, simi 8 54 00. Umsækjendur greini frá menntun sinni og fyrri störfum i umsókn og ennfremur hvers konar verkefnum þeir mundu helst hafa áhuga á. Umsóknir sendist Rann- sóknastofnun iðnaðarins, Keldnaholti, fyrir 10. janúar 1975. Laus staða Staða læknis við heilsugæslustöð i Búðar- dal er laus til umsóknar. Umsóknarfrest- ur er til 3. janúar 1975. Staðan veitist frá 10. janúar 1975. Umsóknir sendist heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 6. desember 1974. F. 29.11 1894, hvarf 25.8 1974 Laugardaginn 30. nóv. fór fram minningarathöfn I ólafs- vfkurkirkju um Bjarna M. Sig- urðsson, sem týndist á berjamó undir Jökli 25. ágústs.l. og mikil leit vargerð að, en án árangurs. Sóknarpresturinn, séra Arni Bergur Sigurbjörnsson.flutti minningarræðu, kirkjukór Ólafsvikurkirkju og frú Hrefna Bjarnadóttir dóttir hins látna, söng einsöng. Fjölmenni var við athöfnina, bæði héðan úr þorp- inu og nærliggjandi byggðum. Mér þykir hlýða að fara nokkrum orðum um þenna mæta mann. Bjarni Matthías Sigurðsson var fæddur 29.11. 1894, að Lág i Eyrarsveit, sonur hjónanna Sigurðar Sigurðsson- ar, bónda þar og konu hans Guð- rúnar Bjarnadóttur. Hann var einn af sjö börnum þeirra hjóna. Faðir hans, sem stundaði sjó- sókn með búskapnum og var formaður, drukknaði I Lárós þegar Bjarni var fjögurra ára. Þá fór Bjarni i fóstur til hjón- anna Vigfúsar Vigfússonar og Sólveigar Bjarnadóttur, móður- systur sinnar, að Kálfárvöllum i Staðarsveit, og dvaldist þar uns hannvar 12ára. Þá fluttisthann til móður sinnar, sem þá var komin til Ólafsvíkur, og þar gekk hann i skóla. Hér stundaði hann ýmis störf, vann m.a. að þvi að hlaða upp skansinn fyrir framan verslunarhús Proppé bræðra, sem stóð óhaggaður þangað til hann fór undir aðal- götu þorpsins, sem nú heitir Ólafsbraut. Upp úr fermingar- aldri fór hann til Ólafs, bróður sins i Stykkishólmi, og lærði þar trésmiði og var þar i þrjú ár, en lauk ekki þvi námi. 1919 fór hann til Þingeyrar við Dýra- fjörð til náms hjá Guðmundi J. Sigurðssyni, og vann siðan hjá honum við verkstæði hans fram til vors 1943, en þá flutti hann hingað til ólafsvikur, og keypti þá hálft verkstæði Guðjóns, bróður sins hér, Vélsmiðjuna Sindra, sem þeir starfræktu sið- an saman til ársloka 1964. Það fór snemma mikið orð af hagleik Bjarna M. Sigurðsson- ar. Verkstæði Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri, sem Bjarni vann við, var mikið fyrirtæki. Til Þingeyrar kom mikið af skipum, þar á meðal togarar, innlendir sem erlendir, sem þurftu að láta gera við vél- ar sinar og tæki, sem verkstæði annaðist, auk þess sem þar fór fram margskonar nýsmiði. Bjarni hafði það m.a. með hönd- um að gera mót úr tré fyrir það, steypa skildi i verkstæðinu, og gerði það jafnan i skúr heima hjá sér. Þar i grenndinni strandaðiá þeim árum erlendur togari. úr honum keypti Bjarni mahonivið, sem hann notaði til smiða sinna. Hann smiðaði úr þessum viði margskonar muni fyrir bú sitt og auk þess forláta borð, sem þau hjónin gáfu vin- um sinum i brúðargjöf. Þá smiðaði Bjarni einnig fyrir bú sitt margskonar hluti úr kopar, þar á meðal einar þrjár sykur/^' tangir. Voru flestir hlutir á heimili hans smiðaðir með eigin hendi. En i bruna 19.11. ’47, er heimili hans hér i ólafsvík, Gimli, brann til ösku, glataðist þetta með öllu. Þegar Bjarni kom til ólafs- vikur vorið 1943, var hér vél- bátaútgerð nýkomin til sögu, en I örum vexti, og frystihús ný- lega tekið til starfa. Var þvi mikil þörf fyrir aukna þjónustu við bátana og frystihúsið I smiðjunni, sem var hin eina hér á staðnum. Koma Bjarna mark- aði timamót i sögu smiðjunnar og tókst ágætt samstarf með þeim bræðrum. Smiðjan efldist að húsakosti og tækjum og varð virt og ágætt fyrirtæki. Þegar þorskanetaveiðar komu til hér i Ólafsvik, komu til sögu ný vandamál hjá sjómönnunum. Hinir gömlu láðadrekar, sem notaðir voru við netin i fyrstu, héldu ekki netunum I hinni bröttu og straumhörðu álbrún, svo að allt fór I eina bendu! Bjarni leysti þennan vanda með þvi að smiða nýjan dreka, neta- plóginn. Þá kom það á daginn, að skifan á linuspilinu hélt illa netunum, en Bjarni, með hugviti sinu og hagleik, smiðaði nýja skifu á spilið, og er nú þetta hvorttveggja, netaskifan og netaplógurinn notað viða um land, þar sem þorskanet eru stunduð. Margt er hér ósagt um störf Bjarna, en honum féll aldrei verk úr hendi. Bjarni giftist eftirlifandi konu sinni, Vigdisi Sigurgeirsdóttur, 14. okt. 1922. Þau eignuðust sex börn, og eru þrjú þeirra á lifi. Fyrsta barn sitt misstu þau á 1. ári hér i Ólafsvik, eitt barn þeirra, tviburi, dó i fæðingu og uppkominn son, i blóma lifsins, Gunnai forstjóra hér i ólafsvik, misstu þau 1970, 42ára að aldri. Börn þeirra, sem eftir lifa eru þessi: Hrefna, gift ólafi Kristjánssyni, verkstjóra i ólafsvik, Sigurgeir, rennismið- ur og arftaki föður sins i iðninni, giftur Sigurdisi Egilsdóttur frá Reykjavik, og Guðrún, gift Herði Guðmundssyni, vélstjóra, Reykjavik. Vigdis, hin mæta kona og trausti förunautur Bjarna á lifsleiðinni, er nú farin að heilsu og dvelur nú hjá Guð- rúnu dóttur sinni og Herði tengdasyni sínum i Reykjavik. Við hjónin og þorpsbúar al- mennt senda Vigdisi og fjöl- skyldu hennar samúðarkveðjur. En minningin um Bjarna M. Sigurðsson, hinn hægláta og háttprúða völundarsmið mun lengi lifa i þessari byggð. Ottó Arnason o Laugardagur 7. desember 1974.- Laugardagur 7. desember 1974.- o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.