Alþýðublaðið - 07.12.1974, Blaðsíða 8
BÓKAHILLAN
Cuðlaugur Cuðmundsson: Enginn má undan líta.
Rvík 1947. Öm og Örlygur.
Margt hefir verið ritað og rætt um morðið á Natan Ketilssyni og
örlög þeirra, er þar stóðu að. Ber þar einkum tvennt til. Hér var
harmsaga meiri og átakanlegri en flestar aðrar, og eftirköstin, af-
taka hinna seku hin síðasta, er fram hefir farið hér á landi. í
þessari bók, sem höfundur nefnir sagnfræðilegt skáldrit, er reynt
að varpa nýju ljósi á öll þessi mál, m. a. með könnun ýmissa
skjala og gagna, sem höf. hefir gert, en aðrir, er um málið hafa
fjallað hafa látið óhreyfð. Þá hefir hann hagnýtt sér eftir föngum
munnmæli, sem enn hafa lifað, og leitast við að vinsa úr þeim
kjarnann. Og að lokum rætt við núlifandi frændur þeirra, sem
við málið koma. Er raunar furða, hversu margt geymist enn í
rainni manna vestur á Vatnsnesi um atburði þessa. Af þessum
þáttum er söguþráðurinn spunninn. Er þar að vísu nokkur galli,
að oft er torvelt að finna, hvað er sannfræði, og hvar höfundur
yrkir í eyðumar. En þar fer hann yfirleitt hvergi lengra en þangað
sem sennilegast er, þegar hann lýsir hugrenningum og athöfnum
fóksins, og getur fundið stoð í skjalfestum heimildum eða trúrri
arfsögn. Hann hefir í hvívetna leitast við að skilja það og gerðir
þess, og mun fara furðu nærri um skaphöfn hvers og eins, og
hversu hún og atburðarásin öll mótast af umhverfi og aldaranda.
eftir GuökiMp Guömnnduum,
höfmd bókaríniia'r
KEYSIST.tl1 XRDRJEÐVR
máundan líta
QRÐMAUK I IlOSAMNGl mgnjrxlSilcal tkáldrit,
mrpar nftjv Ijótti átnMraganda fteirrti otj afkiBingar
Og vér verðum að minnast þess, að ekki má lfta á hlutina frá við-
horfum 20. aldar, heldur verður að reyna að lifa sig inn í upphaf
19. adarinnar, ef vér eigum að geta rakið og dæmt þá atburði,
sem hér segir frá. Höfundur fylgir sakborningum að kalla má frá
vöggu þeirra allt til aftökunnar í Vatnsdalshólum, þar sem enginn
mátti undan líta að boði hins röggsama yfirvalds, síðan rekur
hann örlög Sigríðar Guðmundsdóttur í fangavistinni í Kaup-
mannahöfn, og að lokum segir hann sögu þess, er bein Agnesar
og Friðriks voru grafin upp og greftruð á Tjörn, allt eftir forsögn
úr miðilssambandi. Sú saga ein cr í senn furðuleg og óhrekjandi
sönnunargagn þeim, er durænum málum sinna. Höfundur er rit-
fer vel, og þó að frásögn hans sé sums staðar rofin af birtingu
bréfa og annarra skjala, verður frásögnin samt samfelld heild.
Er þetta tvímælalaust hið besta, sem ritað hefir verið um þessi
mál, og kemst næst hinu sanna, eftir því sem unnt verður að
svo löngum tíma liðnum. Kemur þar til skilningur höf. og samúð
með sögupersónum, þar sem hann þó heldur á málunum af fullu
raunsæi, lætur staðreyndirnar tala og færir persónurnar fram á
sviðið með öllum þeirra göllum og kostum. Fæst þar iniklu sann-
ari mynd og skapfellilegri af þeim en áður, þar sem dómgirni
og jafnvel illvilji almenningsálitsins hefir litað þær að vild sinni.
Natan Ketilsson og banamenn hans eru fólk, sem heitar ástríður
og misheppnað uppehli ásamt villtum aldaranda hafa Ieitt til
óhæfuverka. Mér hefir ætíð fundist vafasamt réttmæti þess að
vera að róta upp í gömlum sakamálum, en hér er það gert á þann
hátt, að málin skýrast. Skilningur höf. breiðir mildari svip á at-
burðina, og gefur samtíð vorri furðusanna mynd liðins tíma.
Fyrir það á hann þakkir skilið.
Þetta er ritdómur úr HEIMA ER BEZT,
sem þirtist hér sem auglýsing.
GÓD BÓK ER GÓÐ GJÖF
Úrn og Örlygur, Vesturgötu 42, Simi: 25722
KR-ingar svndu storleik
en það dugði hvergi
gegn atvinnumönnunum í liði UBSC sem sigruðu 122 - 78
„Kolbeinn Pálsson í liði KR er ekki hár, en hann kæmist samt í flest lióin í
Evrópu”, sagði þjálfari UBSC eftir leikinn
Eftir hinn ógurlega skell
sem KR fékk í Austurríki f
fyrri leik liöanna, voru
menn ekki bjartsýnir fyrir
þennan leik, en í Ijós kom
að með hinni frægu KR
„seiglu'Mókst leikmönnum
KR allvel upp í þessum
erfiða leik.
Ekki var útlitiö bjart eftir
fyrstu minútur leiksins, UBSC
náði góðri byrjun og komst i 8:0,
en KR tekst að svara aðeins fyrir
sig með þvi að gera tvær körfur
með stuttu millibili og staðan er
12:4, siðan var staðan 19:10 og
27:18 fyrir UBSC og siöan 30:20,
þá gera KR-ingar tvær körfur i
röð og staðan er þvi 30:24 aðeins 6
stiga munur, en þegar Kolbeinn
fer útaf virtist allt fara úr sam-
bandi hjá KR-liðinu.
Eðlilega varð að taka Kolbein
útaf við og við til smáhvildar, og
þegar Kolbeinn var ekki inná lágu
skyndisóknirnar aö mestu niðri á
meðan , en þær voru aðalvopn
liðsins i leiknum.
Hinir frábæru atvinnumenn
austurriska liðsins pressuðu KR-
ingana allt frá körfu KR og yfir,
og dekkuðu þeir oft svo vel að KR-
ingur gat ekki fundiö samherja til
að gefa á, og þarafleiðandi náðu
Austurrikismennirnir boltanum.
Þaö vakti athygli i byrjun siðari
hálfleiks að Kristinn Stefánsson
fyrirliði KR-liösins tók uppkast
við negrann Marioneaux sem er
„aðeins” 212 sm á hæð, sjálfur er
Kristinn litlir 197 sm, vel gert
Kristinn!
Bandarisku leikmennirnir i liöi
UBSC eru hæstu menn liösins 214
og 212 sm á hæð, var oft gaman aö
sjá aðfarir þeirra i leiknum, þeir
þrýsta boltanum af krafti ofani
körfuna, meðan KR-ingarnir
skjóta i boga uppáviö, vegna þess
hve háir þessir leikmenn eru gátu
KR-ingar ekki dekkað þá, þeir
spiluðu á næstu hæð fyrir ofan.
Þegar á heildina er litiö mega
KR-ingar vel viö árangurinn i
þessum leik una, þarna voru jú á
ferðinni hreinir atvinnumenn sem
æfa 4 tima á dag 6 daga vikunnar,
og þarna er um að ræða lið sem
stefni raö Evrópumeistaratitlin-
um i ár.
Kolbeinn Pálsson átti nú mjög
góðan leik, hann stakk stundum
mótspilarann af og lék oft laglega
i gegnum vörn UBSC og skoraði,
þá átti Þröstur Guðmundsson
góðan leik i sókninni, Birgir Guð-
björnsson kom á óvart með mjög
góða skotnýtingu i leiknum
framan af, Bjarni var sterkur á
köflum, Gunnar, Hilmar og Krist-
inn komu ágætlega út en af hverju
var Gunnar svona spar á lang-
skotin?
Einn var sá leikmaður i liöi
UBSC sem hitti úr næstum öllum
sinum skotum sem voru þó ófá,
það var leikmaður nr. 13 Pawelka
aö nafni, risarnir Marioneaux og
Taylor voru eins og kóngar i riki
sinu i þessum leik enda enginn
risi til að kljást við þá, leikmaður
nr. 10 Tecka átti góðan leik.
Eftir leikinn sagöi hinn tékk-
neski þjálfari liðsins, I.J. Hiuchy
að KR hefði veriö með góða skot-
nýtingu i leiknum og geta liðsins
komi sér á óvart i þessum leik,
hann sagði og að sér fyndist Kol-
beinn Pálsson bestur i liöi KR og
að Kolbeinn kæmist I mörg
evrópsk lið, en hann væri hins
vegar i það minnsta af körfu-
boltamanni að vera.
Ef úrslit beggja leikjanna eru
lögð saman kemur út að UBSC
sigrar meö 254 stigum gegn 112
gifurlegur munur, en er þá mun-
urinn á islenskum og erlendum
körfuknattleik svona mikill? Stór
spurning þaö, en er hægt aö gera
samanburð á áhugamannaliðum
og hreinum atvinnumannaliðum?
Alls ekki, á meöan viö búum viö
þau lög um áhugamannareglur
sem viö búum við i dag er senni-
lega bestað sleppa allri þátttöku i
Evrópumótum.
P.Kr.
0
Laugardagur 7. desember 1974.-