Alþýðublaðið - 15.12.1974, Page 4
Þannig lést Marilyn Monroe
MARGAR SÚGUSAGNIR HAFA VERIÐ UM LÁT MARILYN MONROE, EN PETER LAWFORD VEIT MANNA
BEST, HVAD GERÐIST OG HER GETUM VIÐ LESIÐ FRASÚGN HANS UM LÁT HENNAR.
Kennedy-naf nið var
jafnvel þekkt og nafn
Marilyn Monroe um 1960
og almenningur hefur
tengt þessi nöfn saman.
Peter Lawford þekkti Marilyn
Monroe áður en hann kvæntist
einni Kennedy-systurinni.
Hún gekk inn til umboðs-
manns hans, þegar hann var
þar og hann veitti þvi eftirtekt,
hve falleg hún var.
Hann reyndi að vera fyndinn
og sagði: „Hvað segirðu um
okkur?”
Þau ákváðu að fara út saman
og hún sagði: ,,Ef ég er i sturtu,
þegar þú kemur, heyri ég ekki i
dyrabjöllunni, svo að ég skil
bara eftir opið. Komdu inn.”
„Ég puntaöi mig”, segir
Lawford. „Hún var svo falleg og
ég vildi lita vel út. Við ætluðum
að skemmta okkur vel. Ég för
heim til hennar á Sunset Boule-
vard og hringdi, opnaöi, kallaði
á hana, opnaði dyrnar og fór
inn.”
Almáftugur!
Inn fór hann. Inn i stifburstuð-
um skóm og steig beint i hunda-
skit. Glæsilega búinn maður I
finum skóm ötuðum i hundaskit.
Þá leit Marilyn út um gættina
með handklæði vafið um sig og
sagði afar bliðlega:
„Almáttugur, nú hefur hann
aftur gert skömm af sér!”
„Hann” var agnarlitill
chichuahua-hundur og enginn
veit, hvernig honum tókst að
skita svona mikið i einu.
Peter Lawford og Marilyn
Monroe fóru nokkrar feröir út á
ströndina saman, i bió og út að
borða, en ástarsamband varð þó
ekki úr þvi.
Þau voru vinir.
Hún kom oft i heimsókn til
Lawfords og konu hans,
Patriciu Kennedy og án efa hafa
margir séð til ferða hennar
þangað.
Elskuð
Það er hins vegar fráleitt að
imynda sér, að hún hafi staðið i
ástasambandi við einhvern af
Kennedy-fjölskyldunni og Law-
ford skilur ekki, hvernig á þeim
orðrómi stendur. Hann segir, að
þeim hafi öllum þótt vænt um
hana eins og sér — sem vini.
Pat, kona hans, var einkavin-
kona hennar og fékk Marlyn til
að hætta að taka þessar hroða-
legu töflur, sem hún tók til að
geta sofið.
Einu sinni átti Lawford að sjá
um afmælisboð fyrir Jack
Kennedy i New York og bað
Marilyn um að syngja „Hann á
afmæli i dag”.
„Marilyn hafði orð á sér fyrir
að koma alltaf of seint og við
sömdum smáleik áður en hún
kæmi inn,” segir Lawford.
Lawford sagði: „Nú kemur
Marilyn Monroe, herra forseti”,
en Marilyn lét ekki sjá sig.
Þá sagði Lawford i
hátalarann: „Hún er oft dálítið
sein, herra forseti, en við getum
reynt aftur.”
Loks sagði hann: „Og nú
kemur Marilyn Monroe heitin”.
Þá birtist hún og söng afmælis-
sönginn með prýði.
Mörgum árum seinna horföi
Lawford á myndina og heyröi
sjálfan sig segja: „Hér kemur
Marilyn Monroe heitin”. Það
fór hrollur um hann. Orð hans
höfðu ræst.
Slys
Lawford telur, að Marilyn
hafi undir niðri langað til að
deyja. Hann er sannfærður um,
að hún hafi ekki framið sjálfs-
morð viljandi.
Áfengi og svefnlyf geta haft
uggvænleg áhrif.
Hún átti að heimsækja þau
hjónin og spila póker við þau
kvöldið, sem hún dó, en hringdi
og sagðist ekki treysta sér til að
koma.
Kona Lawfords var i New
York þá og Bobby Kennedy á
austurströnd Bandarikjanna.
Það var mikið skrifað um það,
að hann hefði verið heima hjá
Lawford og Marilyn margoft
reynt að hringja til hans og
heimsækja hann, en orðið niður-
brotin, þegar það tókst ekki.
Lawford segir þetta ósatt.
Hann segist hafa hringt i
Marilyn kl. 7 að kvöldi og spurt:
„Ætlarðu ekki að koma?”
Marilyn svaraði lágt: „Nei,
en ég kem seinna ”.
„Er eitthvað að?” spurði
Lawford. „Hefur eitthvað
komið fyrir?”
„Nei,” svaraði hún og lagði
ó-
Lawford hringdi , en
siminn var á tali og hélt áfram
að vera á tali. Lawford hélt, að
ekkert væri að.
En hann reyndi að hringja
aftur kl. hálf niu og kl. tiu, en
alltaf var síminn á tali. Þá fór
hann að gruna margt.
Hann hringdi heim til
umboðsmanns hennar, Milt
Ebbins, og sagðist álita, að
einhver ætti að gæta að henni.
Milt hringdi i lögfræðing
Marilyns, Mickey Rudin og
honum var sagt, að lögfræðing-
urinn væri i veislu. Þegar náðist
1 Rudin sagðist hann ætla að tala
við ráðskonu Marilyns, frú
Murray.
Hann hringdi i Milt og sagði,
að Murray segði, að allt væri i
besta lagi. Útvarpiö i gangi og
ljós um allt. Lawford var látinn
vita.
Hann var háttaður, þegar Milt
hringdi og sagði, að Rudin hefði
farið heim til hennar með lækni
og hún væri látin. Lögreglan
væri á leiðinni og kl. var 4 um
nótt.
Hver getur lýst tilfinningum
hans?
Gat hann gert eitthvað til að
koma i veg fyrir þetta? Hann
blygðaðist sin fyrir að hafa ekki
farið beint heim til hennar I stað
þess að leita til annarra.
Ef til vill hefði hann komið of
seint og ef til vill hefði þetta
aðeins komið fyrir seinna.
En sannleikurinn er sá, að
það er betra að gera eitthvað
sjálfur, en láta aðra um það.
SNUUM VÖRN I SÖKN
Vinningur: MAZOA 818
Landshappdrætti
Verð miða: 200 krónur
Miðaupplag: 20.000
Alþýðuflokksins
Verðmæti vinnings: 740.000
TAKMARKIÐ ER:
ALLIR MIÐAR
SELDIR 24. DESEMBER
Eins og fram hefur komið I fjölmiðlum, þá var 35. þing Alþýðuflokksins haldið nú nýlega.
Mjög athyglisverðar umræður fóru fram um stöðu og framtið Alþýðufiokksins I Isienskum
stjórnmálum. Það sem einkenndi þessar umræður, var óbilandi trú á framtið flokksins og
mikill áhugi fyrir auknu starfi.
Það vandamál er flokkurinn hefur haft viö að etja og er honum erfiðast eru f járhagsörðug-
leikar og hafa þeir erfiðleikar haft iamandi áhrif á starf Alþýöuflokksins út á við og inn á
við.
Hin nýja stjórn flokksins hefur ákveðiö, að bæta nokkuð úr þessum erfiðleikum og snúa
vörn i sókn.
Svo mikii nauðsyn er á skjótum aðgerðum, að við höfum tekið þá ákvörðun að leita nú þeg-
ar til flokksmanna og annarra velunnara flokksins um aðstoð, og væntum við góðrar við-
töku, þátt fyrir að margt valdi þvl að ekki er eins rúmt um fjárhagsgetu almennings og oft
áður.
Hlutverk flokksins er svo mikilvægt við þær aðstæður er nú hafa skapast I islenskum þjóð-
málum, að við þurfum á aöhalda árangursríkum aðgerðum.
Með von um góðar viðtökur og fjárhagslegan stuöning, sendum viö þessa happdrættis-
miöa.
F.h. Alþýðuflokksins,
Kristin Guðmundsdóttir Eyjólfur Sigurðsson
gjaldkeri varagjaldkeri
0
Sunnudagur 15. desember 1974.