Alþýðublaðið - 29.12.1974, Page 2
BRflMBQLT
yM5JQW: G/5LI SVEJftlLi LQFT55QLI
HÆTTAN MIKLA
Tvær elstu og vinsælustu popphljómsveitir okkar hætta störfum
mrn~
iT flB * * -í: .>
|| ■íWs»&eBBL v&i < : ISrsAs v * * -;■ t‘ ? ■ jl
i * aKl. '\iSSf
IMJk 4 .
U Á j*
Eins og fram hefur komið, þá
eru tvær af þekktustu og elstu
popphljómsveitum sem starfaö-
hafa á Reykjavikur og
Keflavikursvæðinu að leggja
upp laupana um þessar mundir.
Bramboit setti sig
þvi I samband við for-
sprakka umræddra hljómsveita,
Guðmund Hauk i Roof Tops, og
Gunnar Þórðarson I Iiljómum.
Gunnar Þórðarson hafði þetta
um máliö að segja:
„Hljómsveitin mun spila I sið-
asta skipti á gamlárskvöld, en
siöan erum við hættir að spila á
böllum i óákveðinn tima. Astæö-
urnar fyrir þessari ákvörðun
okkar eru f jölmargar, en meg-
inorsakirnar eru þær, að mark-
aðurinn hefur dregist saman
upp á siökastið, og atvinna
minnkað og svo þaö, að við er-
um búnir aö vera svo lengi i
þessu og orðnir þreyttir. Það
sem liggur næst fyrir er hrein-
lega að slappa vel af.
Að öðru leyti er allt óákveöiö,
engar hreinar linur um framtiö-
ina, og ég hef ekki hugmynd um
hvað strákarnir ætlast fyrir. Ég
sjálfur stefni að þvi að koma
saman plötu með lögum eftir
sjálfan mig, það liggur aö mestu
leyti ljóst fyrir hvernig hún
verður uppbyggð, en peninga-
málin i sambandi við hana og
útgáfu hennar eru enn óráðin.
En eins og ég sagði fyrr, þá
verður þetta kærkomin hvild frá
hljóðfæraleiknum, þaö eru kom- •
in 12—13 ár siðan ég byrjaði að
spila i hljómsveit, þaö er ansi
langur timi svona i einni lotu.”
Þá höfum viö það á hreinu, að
hljómsveitin Hljómar er hætt
störfum frá gamlárskvöldi að
telja, og óvist með öllu hvort
hún taki til starfa aftur i sömu
mynd. Hljómar hafa ekki starf-
að óslitið siðan þeir byrjuðu
fyrst. A milli kom hljómsveitin
Trúbrot sem naut mikiila vin-
sælda eins og menn eflaust
muna, en i henni voru um tima
þrir liðsmenn Hljóma, auk
nokkurra þekktustu og bestu
hljóðfæraleikara okkar, sem
ýmist komu og fóru á þvi tfma-
bili sem Trúbrot starfaöi. Þegar
svo Trúbrot spilaði endanlega
út, stofnuðu þeir Gunnar, Engil-
bert og Rúnar Hljóma að nýju,
þó án Erlings Björnssonar. 1
hans stað var i fyrstu Birgir
Hrafnsson, en hann fór fljótlega
yfir i Change, og kom þá I hans
stað Björgvin Halldórsson, og
var þá um Ieið kennt á gitar af
Gunnari Þórðarsyni svo aö ekki
þyrfti að bæta við öðrum gitar-
leikara.
Hijómsveitin Roof tops sem
starfaö hefur nokkurn veginn ó-
slitiö f sex ár, hefur nú ákveðið
að hætta störfum. Um aödrag-
anda þess og ýmislegt i þvi
sambandi sagði Guðmundur
Haukur eftirfarandi. „Þetta
gekk ósköp rólega fyrir sig,
enda var þaö ætlunin. Við héld-
um fund um máliö, og á honum
ákváðum við að hætta að standa
i þessu um óákveöinn tima.
Þetta var allt I mestu vinsemd,
og það var alls ekki út af þvi að
við værum ósammála, sem við
tókum þessa ákvörðun. Megin-
ástæðan fyrir þessari ákvörðun
okkar eru launamál hljóm-
sveita, og þaö hvað við höfum
litiö upp úr þvi að spila á dans-
leikjum. Ég get nefnt sem
dæmi, að á öldurhúsum borgar-
innar var okkur borgað eftir
lægsta taxta F.Í.H. og erum viö
þó engir nýgræðingar, búnir að
spila i sex ár. Manni finnst það
fjandi hart að þurfa að spila
fyrir þau laun sem þessir ágætu
staöir skammta manni, og illt til
þess að vitá, að taxtinn skuii
vera misnotaöur til þess aö
halda laununum niðri.
Þá spilaði lika inn i þessa
ákvörðun, að gefa þeim hljóm-
sveitarliöum sem vildu tækifæri
á að breyta til, og gera það sem
þeir vildu. En hljómsveitin Roof
tops er sem sagt formlega hætt,
og kemur ekki irheira fram. Hitt
er annað mál, aö við eigum
sjálfsagt eftir að koma saman
aftur, svona að tveim þrem
mánuðum liðnum, og þinga þá,
sjá hvort ástand hafi nokkuö
batnaö, og finna út, hvort við
höfum áhuga á að byrja að nýju.
Þangað til er allt óráðið, og
óvist hvað hinir ýmsu liðsmenn
munu gera. Sjálfur hef ég nóg
að gera sem kennari. Sjálfsagt
mun svo timinn verða notaður
að einhverju íeyti til lagasmiða,
en hvort um plötuupptöku verð-
ur að ræða, get ég ekki sagt um
á þessu stigi málsins. Við erum
mjög ánægðir með plötuna okk-
ar, og söluna á henni, og þurf-
um ekkert að skammast okkar
fyrir hana, hún stendur fyrir
sinu.”
Hverjar fylla í skarðið?
Það er ekki auðvelt að
spá fyrir um það/ hverjir
komi til með að fylla í
skarðið sem myndast eft-
ir Hljóma og Roof tops/
enda sðórt skarð og mikið.
Það er þó vfst/ að eftir
standa Pelican með
pálmann í höndunum sem
vinsælasta og ein besta
hljómsveit landsins. A
eftir þeim mætti svo
nefna Júdas og Change/
ef þeir verða þá eitt-
hvað starfandi hérlendis
á næstunni. Svo verðum
við bara að bíða og sjá til
hvernig rætist úr yngri og
óreyndari hljómsveitum.
o
Sunnudagur 29. desember 1974.