Alþýðublaðið - 04.01.1975, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.01.1975, Blaðsíða 3
DÓMSRANNSÓKN Á ÁHALDAHÚSI BORG- ARINNAR LOKIÐ Lokið er ddmsrannsókn, rekstri Ahaldahúss Reykja- sem hófst hjá Sakadðmi vikur. Niðurstöður rannsókn- Reykjavikur i október s.l. á arinnar hafa nú verið sendar FÉBÓTASKYLDA LIGGI VIÐ FLOKKUN VINNU í KVENNA - KARLASTÖRF Alþjóðlega kvennaárið er gengið i garð. A þvi munu konur og kvennasamtök um allan heim heygja öfluga baráttu fyrir réttindum sinum. Það er von og ósk MFIK að islenskar konur standi saman i baráttu sinni á árinu og vinni málefnum sinum allt það gagn er þeir mega. MFIK beinir þvi til allra Islendinga að hafa hugföst þau orð Kurt Waldheims, fram- kvæmdastjdra SÞ, að timi sé til kominn að ihuga i alvöru á hvern hátt megi bæta stöðu kvenna i þágu alls sam- félagsins. 1 tilefni kvennaársins setur MFIK fram eftirfarandi kröfur fyrir hönd islenskra kvenna: 1) að skýlaus ákvæði verði sett i stjórnarskrá islenska lýðveldisins um jafnan rétt kvenna og karla til atvinnu og menntunar; um jafnrétti á sviði stjórnmála, i öllum stofnunum islenska rikisins og á heimilum; 2) að vinnuveitendum, verk- stjórum og öðrum sé óheimilt að flokka vinnu i kvenna- eða karlastörf og liggi við þvi fébótaskylda að lögum; 3) að öll börn á höfuðborgar- svæðinu og i kaupstöðum landsins eigi rétt á dagvistun undir umsjón sérhæfðra starfskrafta, sé barn a fram- færi einstæðs foreldris eða séu bæði foreldri i launa- vinnu. MFIK hvetur konur til að hrista af sér þá venjubundnu kvöð, að karlar hafi forgangs- rétt i námi og starfi. Rekstur heimilanna verður að breytast og þjónustuhlutverk húsmóðurinnar að hverfa úr sögunni, en samhjálp fjöl- skyldunnar að koma i staðinn. Konur þurfa að standa fast á mannlegum réttisinum til sömu menntunar og sömu starfa og karlar. Höfum það hugfast, að konur standa körlum fyllilega á sporði, þegar þær taka að sér ábyrgðarstörf. saksóknara rikisins, sem tek- ur ákvörðun um hugsanlega málshöfðun, en yfirmaður stofnunarinnar hefur haft leyfi frá störfum siðan rannsóknin hófst. Haraldur Henrýsson, saka- dómari, sem hafði rannsókn málsins með höndum hjá Sakadómi Reykjavikur, sagði i samtali við Alþýðublaðið i gær, að rannsókn þessi hafi verið allumfangsmikil og seinleg. Haraldur kvaðst ekki vilja tjá sig um niðurstöður hennar, en saksóknari myndi sjálfsagt á næstu dögum taka ákvörðun varðandi framhald málsins. Borgarráði hefur enn ekki borist nein skýrsla um rann- sóknina hjá Sakadómi, en bú- ist ér við, að mál þetta komi á dagskrá i borgarráði fljótlega. Upphaf þessa máls var, að i framhaldi af sérstakri könnun endurskoðenda borgarreikn- inga á reikningum Áhalda- hússins, sem nú er árlega gerð hjá einu eða fleiri fyrirtækjum borgarinnar, lögðu nokkrir borgarfulltrúar til, að enn frekari rannsókn yrði gerð á rekstri Ahaldahússins. Varð úr, að óskað var eftir rann- sókn á tilteknum atriðum i rekstri Ahaldahússins. Á næstu dögum kemur i ljós, hvort saksóknari telur ástæðu til málshöfðunar út af þeim at- riðum, sem athugasemdir hafa verið gerðar við i rekstri stofnunarinnar. — KENNSLA HEFST SEM HÉR SEGIR: 4. bekkur og 3. bekkur miðvikud. 8. janúar kl. 7 e.h. ATH. EKKI 6. JANÚAR. Verslunar- og skrifstofustarfadeild mæti 9. jan. kl. 8 e.h. Leshringar á framhaldsskólastigi hefjast 9. jan. samkv. fyrri töflu. Almennir námsflokkar hefjast mánud. 13. janúar. INNRITUN I ALMENNA NAMSFLOKKA: i Laugalækjarskóla fer fram 7. og 8. jan. kl. 19 til 21.30 i Breiðholtsskóla fer fram 9. jan. kl. 19.30 til 21. i Árbæjarskóla fer fram 10. jan. kl. 19.30 til 21. KENNSLUGJALD GREIÐIST VIÐ INN- RITUN. SKRÁ YFIR KENNSLU- GREINAR Félag járniðnaðarmanna FELAGSFUNÐUR verður haldinn miðvikudaginn 8. jan. 1975 kl. 8.30 e.h. i Lindarbæ, niðri. HED HVAÐfl BÉTTI. HERHA LÖGBEGLUSTIÓRI? Nú hefur Guðlaug Svein- bjarnardóttir, ritað lögreglu- stjóra bréf, þar sem hún dregur i efa rétt lögreglustjóra til að beita stöðumælasektum og innheimta þær. Bréf Guðlaug- ar fer hér á eftir i heild: ,,Með bréfi, dags. 10. desem- ber 1974, tilkynnið þér mér und- irritaðri, skráðum eiganda bif- reiðarinnar R-40T39, að yður hafi borist skýrsla um, að bif- reið min hafi staðið ólöglega við stöðumæli 287 viö Grettisgötu 18. október 1974 kl. 14:08. 1 bréfi yðar er jafnframt rakið, að samkvæmt tilkynningu, sem fest hafi verið á bifreiðina, hafi ökumanni hennar verið gefinn kostur á að ljúka máli út af brot- inu með greiðslu aukaleigu- gjalds innan viku. Þar sem þvi boði hafi eigi verið sinnt, sé nú gefinn kostur á að ljúka máli þessu án dómsmeðferðar með greiðslu sektar kr. 500,- til rikis- sjóðs. Mér, eins og öðrum ibúum Grettisgötu, hafa að undanförnu borist fjölmargir miðar vegna stöðu bifreiðar við rauð-merkta stöðumæla á Grettisgötu. I fjöl- skyldu minni er ekki haldin dag- bók yfir notendur bifreiðarinnar hverju sinni. Þar sem efni bréfs yðar, hr. lögreglustjóri, er beint til ökumanns þess, er lagði bif- reiðinni viö stöðumæli 287 i það sinn, er þér tilkynnið, verð ég að fara þess á leit við yður, að þér beinið sektarkröfum yðar að ökumanni þeim nafngreindum, er þér teljið hafa framið meint brot. Meðal miða þeirra, sem I minum fórum eru, er tilkynning sú, er þér greinið frá i bréfi yðar og sendi ég hjálagt ljósrit af þvi skjali. Tilkoma skjals þessa I minar hendur svo og efni þess vekja upp nokkrar spurningar, sem hér með er leitað svara við. 1. Stöðumælavörður G.S., starfsmaður Reykjavikurborg- ar, hengir á bifreið mina til- kynningu frá lögreglunni i Reykjavik, sem er rikislög- regla. Mér eru ekki kunnir nein- ir samningar rikis og sveitarfé- laga né lög, er heimila slikar gjörðir starfsmanna sveitarfé- laga á ábyrgð rikislögreglu né heldur um heimild til handa sveitarfélögum til að dreifa seðlum með nafni lögreglunnar i Reykjavik. Starfar stöðumælavörður G.S. i umboði yðar og eru gjörðir hans, sem sliks á ábyrgð rikis- ins? 2. Skv. ákvæðum reglna nr. 185/1966 eru gjöld i stöðumæla leigugjöld fyrir afnot stöðu- mælareits i ákveðinn tima sbr. ákv. 4. gr. Standi bifreið fram yfir tilsettan tima, skal greiða „aukaleigugjald” 50 kr. sbr. 4., 6. og 14. gr. Leigugjöld og auka- leigugjöld renna til stöðumæla- sjóðs, sem er eign Reykjavikur- borgar. A skjali þvi, sem hér um ræðir, er skrifstofa lög- reglustjóra tilgreindur inn- heimtuaðili þessara leigu- gjalda. Eru til ákvæði laga eða samn- inga, er heimila lögreglustjóra að taka að sér innheimtu fyrir sveitarfélög eða ábyrgð á fjár- reiðum þeirra? 3. Allt frá þvi að bifreiðar tóku að flytjast til Islands, hefur ibúum húseignarinnar Grettis- götu 35 svo og þeim, sem þangað hafa átt erindi, verið heimilt að leggja bifreið sinni hér við götu endurgjaldslaust. I október s.l. var farið að krefja mig leigu- gjalds fyrir bifr.stæði við göt- una og nam þvi hækkun gjalds- ins hinu óendanlega að hundr- aðshluta. Hefur farið fram at- hugun á þvi hjá embætti yðar, hvort hækkun þessi striði eigi gegn ákvæðum laga nr. 88/1974 um viðnám gegn verðbólgu (verðstöðvun)? 4. A skjalinu er „aukaleigu- gjald” talið vera 100 kr. Skv. ákvæðum 6.1 og 14. gr. reglu- gerðar nr. 185/1966 er auka- leigugjald þetta ákveðið 50 kr. Mér er og kunnug auglýsing borgaryfirvalda frá s.l. sumri um að gjald þetta skuli vera 100 kr. Að undanförnu hefur gilt i landi hér bann við verðhækkun- um nema þar til bær verðlags- yfirvöld leyfi hækkanir. Með hliðsjón af þessum ákvæðum ákvað dómsmálaráðherra t.d. að biðja saksóknara um rann- sókn á þvi, hvort eigendur Iðnó mættu hækka leigugjöld af þvi húsi. Hefur embætti yðar athugað eða fengið um það úrskurð, að umrædd hækkun á aukaleigu- gjaldi hafi verið heimil? 5. I bréfi Höskulds Jónssonar, Grettisgötu 35, til borgarráðs, dags. 1. október s.l., sem jafn- framt birtist i dagblöðum, er að þvi vikið, að uppsetning stöðu- mæla við Grettisgötu væri ó- heimil. 1 þvi sambandi var vitn- að til itaks eða hefðar um rétt til gjaldfrjáls stæðis fyrir bifreið svo og að aukin umferð vegna tilkomu mælanna ylli óhóflegri röskun á stöðu og högum ibúa við Grettisgötu. Ljóst má vera, að ágreiningur um þessi atriði er einkamálalegs eðlis. Leiða má og að þvi rök, að vangreitt stöðumælagjald sé i sjálfu sér vangreidd leiga og þvi einkamál ein eigi lögreglumál. Hver eru rök yðar sem starfs- manns rikisins til afskipta af deilu einkamálalegs eðlis milli ibúa Grettisgötu og borgaryfir- valda Reykjavikur? Ljós má vera, að með afskipt- um yðar og fullyrðingum um „brot”, sbr. bréf yðar frá 10. desember 1974, gerist þér, á ábyrgð rikissjóðs, úrskurðar- aöili i mjög flóknu máli án þess að aðili sá, er þér nefnið brot- legan, hafi haft tækifæri til að kynna yður rök sin i máli þessu.” Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Samningamál 3. önnur mál Mætið vel og stundvislega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna A Alfabrenna í Kópavogi Á vegum Tómstundaráðs og ýmissa i- þrótta- og æskulýðsfélaga i Kópavogi verður haldin álfabrenna sunnudaginn 5. jan. n.k. Hefst dagskráin með skrúðgöngu frá Vall- argerðisvelli kl. 17.00. Hestamenn úr Hestamannafélaginu Gusti fara fyrir göngunni. Gengið verður niður á Smárahvammsvöll við Fifuhvammsveg. Kl. 17.30 hefjast þar skemmtiatriði. Þar koma meðal annars fram: 1. Félagar úr þjóðdansafélagi Reykjavik- ur. 2. Hornaflokkur Kópavogs. 3. Halli og Laddi. 4. Askasleikir og Stekkjastaur. 5. Álfadans og álfaieikir. iþróttafélagið Gerpla. 6. Hjálparsveit skáta verður með flug- eldasýningu. Kynnir verður Egill Bjarnason. Aðgangseyrir verður kr. 200.00 fyrir full- orðna og kr. 100.00 fyrir börn. Laugardagur 4. janúar 1975

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.