Alþýðublaðið - 07.01.1975, Qupperneq 5
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Aðsetur ritstjórnar: Skipholti 19, simi 28800
Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, sími 28660 og 14906
Algreiðsla: Hverfisgötu 8—10, sími 14900
Prentun: Blaðaprent
Oháður Alþýðuflokkur
Það er eitt athyglisverðasta einkenni is-
lenskra þjóðmála, að jafnaðarstefnan hefur
hlotið meira fylgi með þjóðinni en stjórnmála-
samtök jafnaðarmanna, Alþýðuflokkurinn. Nú á
dögum eru allir flokkar meira eða minna
hlynntir fjölda hugmynda, sem voru taldar óal-
andi bolsevismi, þegar Alþýðuflokkurinn bar
þær fyrst fram fyrir nokkrum áratugum. Þessar
hugmyndir hafa verið framkvæmdar, og is-
lenskt þjóðfélag er i megindráttum likt þvi, sem
gerist i nágrannalöndum.
Þetta hefur ekki gerst af sjálfu sér, heldur
hefur Alþýðuflokkurinn knúið baráttumál sin
fram i stjórnarsamstarfi við aðra flokka, og
koma allir hinir varanlegu flokkar þar við sögu.
Meðal siðustu dæma um þetta voru lækkun
kosningaaldurs og lögin um sömu laun fyrir
sömu vinnu karla og kvenna, sem Alþýðuflokk-
urinn knúði fram i tið viðreisnarstjórnarinnar.
Þessu ábyrga umbótastarfi hefur fylgt, að
Alþýðuflokkurinn hefur oft orðið að taka þátt i
misjafnlega vinsælum ráðstöfunum á sviði dæg-
urmála. Þetta hefur Alþýðubandalagið notað
sér til þess að ráðast á Alþýðuflokkinn, kljúfa
hann, niða forustumenn hans og lokka frá hon-
um fylgi. Sjálfir hafa alþýðubandalagsmenn og
fyrirrennarar þeirra þrisvar sinnum setið i
rikisstjórn, og verið hvað ánægðastir með ihald-
inu (1944-46). En stjórnir með þátttöku þeirra
hafa aldrei enst nema liðlega tvö ár, og þeir
hafa engum meiri háttar umbótamálum komið
fram, engin minnismerki reist sér i stjórn.
Nú hefur það gerst, sem varla á sinn lika i is-
lenskri pólitik, að formaður Alþýðubandalags-
ins hefur lýst yfir á flokksþingi, að takmark þess
sé að þurrka Alþýðuflokkinn út og fylla rúm
hans i islenskum stjórnmálum án þess að breyta
stefnu sinni. Alþýðuflokkurinn hefur svarað
þessari fruntalegu árás fullum hálsi, sem von
er. Alþýðuflokkurinn er reiðubúinn til heiðar-
legs samstarfs vinstri- og verkalýðsflokka.
Sjaldan hefur slikt málefnasamstarf verið
nauðsynlegra en nú, en þá stendur Ragnar Arn-
alds með rýtinginn á lofti og hugsar um það eitt
að drepa Alþýðuflokkinn. Honum mun ekki tak-
ast það. Alþýðuflokkurinn mun snúast til gagn-
sóknar, sem mun fyrr eða siðar breyta taflstöð-
unni.
Jafnframt þvi að snúast gegn þessari árás,
berst Alþýðuflokkurinn i stjórnarandstöðu gegn
auknum völdum islenskra kapitalista, sem
langflestir eru innan Sjálfstæðisflokksins. Þeir
fögnuðu manna mest núverandi rikisstjórn, sem
er auðvaldssinnuð hægristjórn, og nú reyna þeir
að koma ár sinni sem best fyrir borð. Versl-
unar-, iðnaðar- og útgerðarauðvald þessa lands,
sem lifði furðu góðu lifi á dögum vinstri stjórn-
arinnar svokölluðu,hugsar nú gott til glóðarinn-
ar. Þessi þjóðfélagsöfl, sem sifellt verða rikari,
enda þótt atvinnufyrirtæki þeirra séu — að
þeirra sögn — sifellt að tapa, eru áhrifamikil.
Aðeins ábyrg vinstri- og verkalýðsstefna
Alþýðuflokksins fær haldið þeim i skefjum, þvi
að starfsemi marx-leninista hér á landi virðist
magna þessi öfl og auka fylgi þeirra.
Óháður Alþýðuflokkur er islenskri pólitik
nauðsyn. Óháður berst Alþýðuflokkurinn nú
fyrir þeirri stefnu, sem mun reynast þjóðinni
farsælust. — B.Gr.
alþýöu
I K I I
FRÁ ALÞINGI
flöstoö við líknarfélög og
framkvæmdir á Vestfiörðum
Fjárlög fyrir áriö 1975 voru af-
greidd frá Alþingi siðustu dagana
fyrir jólin. Vegna mikils annrikis
þá daga voru fregnir af einstök-
um breytingatillögum þing-
manna næsta losaralegar. Al-
þýðublaðiö mun þvi nil og næstu
daga gera frekari grein fyrir ein-
stökum breytingatillögum við
fjárlög, sem þingmenn Alþýðu-
flokksins stóðu að, skýra þær og
gera grein fyrir afgreiðslu þeirra.
Við aðra umræðu fjárlagafrum-
varpsins fluttu þingmenn Alþýðu-
flokksins m.a. eftirfarandi breyt-
ingatillögur:
Aðstoð við líknarfélög
1. Eyjólfur Sigurðsson, Jón Arm.
Héðinsson og Sighvatur Björg-
vinsson fluttu tillögu um nokkrar
hækkanir áframlögum til ýmissa
liknarfélaga.
Tillagan hljóðaði svo:
Eyjólfur Sigurðsson mælti fyrir
þessum tillögum og hefur sil ræða
hans verið birt i Alþbl. I ræöu
sinni benti Eyjólfur m.a. á, hve
mikiö hjálpar- og liknarstarf þau
félög ynnu, sem rætt er um i til-
lögunni. Sagði hann það ekki vera
sæmandi fyrir menningarþjóðfé-
lag, sem teldi sig þurfa aö styrkja
starfsemi svo sem eins og Þjóð-
leikhús og Sinfóniuhljómsveit
með milljónatugaframlögum að
láta við það sitja, að leggja
liknarfélögum til örfáa tugi
þúsunda.
Flutningsmenn drógu tillögu
þessa til baka til þriðju umræðu i
þvi skyni, að hún gæti fengið með-
ferð hjá fjárveitinganefnd milli
umræðna og i þeirri von, að fjár-
veitinganefnd féllist á að mæla
með samþykki hennar.
Sum atriði þessarar tillögu
fengu jákvæða afgreiðslu hjá
fjárveitinganefnd. Þannig gerði
fjárveitinganefnd tölulið 7 — um
hækkaðan styrk til Neytenda-
samtakanna — að tillögu sinni,
svo og töluliö 9 um styrk til út-
gáfustarfsemi á vegum Afengis-
varnarráðs. Einna bestar viðtök-
ur hlaut þó tillagan um styrk til
Foreldrafélags fjölfatlaðra
barna, en skv. þeirri tillögu Al-
þýöuflokksmannanna átti að taka
þetta félag i fyrsta sinn inn á fjár-
lög með styrk. Fjárveitinganefnd
féllst á tillöguna um 300 þús. kr..
styrk til félagsins og einnig á ósk-
ir, sem þetta félag haföi m.a.
staðið að, um að verja 5 m.kr. til
undirbúnings byggingu skólahús-
næðis fyrir þroskahömluð börn.
önnur atriði I tillögunni fengu
ekki jafn góðar viðtökur og fluttu
þeir Eyjólfur, Jón Ármann og
Sighvatur þau þvi aftur viö 3. um-
ræðu fjárlaga. Þær tillögur voru
allar felldar með atkvæðum
stjórnarsinna gegn atkvæðum
stjórnarandstæðinga.
Framkvæmdir á
Vestfjörðum
2. Karvel Pálmason, Sighvatur
Björgvinssonog Kjartan Ólafsson
— stjórnarandstöðuþingmenn frá
Vestfjörðum — fluttu saman til-
lögur um framkvæmdir I hafnar-
og flugvallamálum á Vestfjörö-
um. Tillögurnar voru þrjár. Sú
fyrsta var um 8. m.kr. fjárveit-
ingu til Isafjarðarhafnar og var
við það miðað, að þaö fé yrði not-
að til þess að ganga frá lögnum
(vatn og rafmagn) við gömlu
höfnina á Isafirði svo og til þess
að ljúka malbikun hennar. önnur
tillagan var um 6. m. kr. fjárveit-
ingu til hafnargerðar á Súöavik,
en hafnarmál þar eru i miklum
ólestri, svo miklum, að skuttogari
og bátar staðarmanna eiga i
miklum erfiöleikum með að at-
hafna sig þar. Einnig töldu þeir
Súðvikingar sig hafa loforð fyrir
þvi frá opinberum aðilum að fá
umbætur f hafnarmálum á árinu
1975, en skv. frumgerð fjárlaga og
tillögum Hafnarmálastofnunar-
innar virtist ekki eiga að standa
við það loforð.
Þriðja tillaga þeirra Karvels
Sighvatar og Kjartans var svo um
20 m. kr. fjárveitingu til malbik-
unar á flugvellinum á Isafirði.
Framkvæmd þessi hefur dregist
um mörg ár og það m.a. verið
notaðsem afsökun, að engar mal-
bikunarvélar væru á staðnum og
svo dýrt að flytja þær þangað
fyrir þessa framkvæmd, að það
yrði nær óviðráðanlegt. Nú sem
stendur eru afkastamiklar mal-
bikunarvélar á Isafiröi og munu
verða þar fram yfir mitt næsta
sumar, en siðan fluttar i burtu
skv. upplýsingum Vegagerðar
rlkisins. Rökstuddu þingmenn-
irnir tillöguna með þvl, að ef
verkið yrði ekki unnið á árinu
1975, meðan vélarnar væru til
staðar, væri ómögulegtum þaö að'
spá, hvenær næsta tækifæri til
þess myndi bjóðast og yrði þvi nú
að veita fjármagn til
framkvæmda ef af malbikun
flugvallarins ætti að verða i ná-
inni framtið.
Mjög’miklar umræður urðu á
Alþingi um þessar tillögur vest-
firðinganna þriggja og mun
meira hafa verið um þær rætt, en
flestar tillögur aðrar.
Þingmennirnir drógu tillögur
þessar til baka til þriöju umræöu I
beirri von, að fjárveitinganefnd
og fjármálaráðherra fengjust til
þess að fallast á þær milli um-
ræðna. Varð nokkuð ágengt i þvi
efni.
Fjárveitinganefnd féllst á að
leggja til, að inn á heimildará-
kvæði fjárlaga yrði tekinn nýr
liöur þar sem rikisstjórninni væri
heimilað að taka allt að 20 m.kr.
lán til þess að leggja varanlegt
slitlag á flugvöllinn á tsafirði á
yfirstandandi ári, en lán þetta
Eyjólfur Sigurðsson
Jón Ármann Héðinsson
Sighvatur Björgvinsson
yrði svo endurgreitt af
framkvæmdafé til flugvalla á ár-
inu 1976. Gaf samgönguráðherra
þá yfirlýsingu, að þessi heimild
yrði notuð, þannig að fastlega má
gera ráð fyrir þvi, að malbikunin
á ísafjarðarflugvelli verði unnin
nú I sumar.
Ekki fékkst fjárveitinganefnd
til þess að fallast á hinar tvær til-
lögur stjórnarandstöðuþing-
mannanna af Vestfjörðum og
endurfluttu þeir þvi þær tillögur
viö 3. umræðu. Uröu einnig mikl-
ar umræður um þær við þá um-
ræðu og lögðu þeir Karvel og Sig-
hvatur sérstaka áherslu á
framkvæmdina við Súðavikur-
höfn. Höfðu þeir lækkað tillögu
sina um fjárveitingu til Súðavik-
urhafnar úr 6 milljónum I 3, en þá
upphæð telja heimamenn nægja
til þess að greiða kostnað af allra
brýnustu framkvæmdunum.
Lýsti samgönguráöherra þvi þá
yfir, að hann myndi beita sér
fyrir þvi, að Hafnarbótasjóður
veitti þessa fjárhæð að láni til
Súðavikurhafnar á yfirstandandi
ári, en flutningsmenn tillögunnar
vildu, að fjárveitingin yrði tekin
inn á fjárlög þvi ella væri ekki
öruggt,að hún fengist. Létu þeir
þvi bera tillöguna upp til atkvæöa
ásamt tillögunni um
framkvæmdirnar við gömlu höfn-
ina á Isafirði og voru þær báðar
felldar.
I Alþýðublaðinu á morgun
veröa svo raktar fleiri af tillögun-
um, sem þingmenn Alþýðuflokks-
ins fluttu viö fjárlagaumræðurn-
ar.
Þús. kr.
1. Við 4. gr. 1 07 974 Styrktarsjóður fatlaöra.
Fyrir ,,3 300” kemur...................................... 4.500
2. Við 4. gr. 999 02 Barnaheimilið Sólheimar I Grimsnesi.
Fyrir „65” kemur ........................................... 300
3. Við 4. gr. 999 03 Fávitahælið i Skálatúni.
Fyrir „65” kemur .......................................... 300
4. Við 4. gr. 999 05 Geðverndarfélag Islands.
Fyrir „75” kemur ........................................... 300
5. Við 4. gr. 999 06 Tjaldanesheimilið.
Fyrir „200” kemur .......................................... 400
6. Við 4. gr. 999 15 Styrktarfélag vangefinna.
Fyrir „100” kemur .......................................... 300
7. Við 4. gr. 1 07 999 21 Neytendasamtökin.
Fyrir „250” kemur .......................................... 550
8. Við 4. gr. 1 07 999. Nýr liður:
24 Félag f jölfatlaðra...................................... 300
9. Við 4. gr. 1 08 481 Bindindisstarfsemi. Nýr liður:
03 Útgáfustarfsemi á vegum Afengisvarnaráðs................. 500
Breytingatillögur Alþýðuflokksþingmanna viö fjárlög 1.
Þriðjudagur 7. janúar 1975.
0