Alþýðublaðið - 07.01.1975, Page 7

Alþýðublaðið - 07.01.1975, Page 7
Skólabílar og kynþáttavandamál eru skaðvænleg fyrir bandaríska skóla Dr. Gordon M.A. Mork prófessor ræðir um bandarísk vandamál — Ég held, að banda- rískir skólakennarar hafi mestar áhyggjur af skólabílunum. Við höfum lesið lítillega um þetta í íslenskum blöðum, en í Bandaríkjunum er þetta hversdagslegt brauð og því ætlar prófessor Gordon M.A. Mork frá ríkisháskólanum í Minneapolis í Minnesota að útskýra málið lítið eitt. Dr. Mork fæddist í Bandar ík j unum og foreldrar hans einnig, en afi hans og amma voru ættuð úr Noregi — afinn frá Lom í Guðbrandsdal og amman frá Toten. Mork lærði norsku hjá afa sínum og ömmu og hefur haldið málinu við. — Það hefur lengi verið tilhneiging til þess, að sumir skólar væru aðeins fyrir ,hvíta" en aðrir fyrir ,,litaða", segir hann. ,,Ríkisstjórnin vill gjarnan binda endi á þessa þróun og ákvað því, að lituð börn ættu að fara í ,,hvíta" skóla og öfugt. Þetta hefur kostað mun meira álag á skólabílana, því að nú þarf að flytja börnin langt að til að þau komist í þá skóla, sem þau eiga að ganga í. Ég vil bæta því við, að þetta er ákvörðun stjórn- valda en ekki kennslu- málaráðuneytisins. Það er ekki unnt að svara því, hvort þetta hefur haft skaðsamleg áhrif. I Minneapolis hefur það ekki skipt svo miklu máli, því að þar hafa lituð börn alltaf setið á skólabekk með hvítum, en í Boston í Massachusetts urðu skaðvænlegar óeirðir út af skólabílunum. Það er erf itt að útskýra þetta fyrir fólki, sem aldrei hefur kynnst kynþáttavandamálum og til þess að unnt sé að íhuga málið gaumgæfi- lega er nauðsynlegt að fara nokkur ár aftur í tímann. Ég byrjaði skömmu eftir heimstyrj- öldina síðari. Þá var það algengtí Bandaríkjunum, að unga fólkið flytti úr gömlu bæjarhverf unum og í úthverfin. Þar sem það var aðallega unga fólkið, sem flutti, jókst mjög barnaf jöldinn í úthverfunum. Nú eru íbúarnir að eldast og smábörnin ekki lengur jafnmörg, en hins vegar er mikið um unglinga á gagnf ræðastigi. Af leiðingarnar hafa orðið þær, að mörgum barnaskólum í úthverf- unum hefur verið lokað, því að þar eru ekki nægi- lega mörg börn á barna- skólaaldri. Þetta hefur fólkið í gömlu bæjar- hverfunum — í mörgum þeirra býr aðallega ,,litað" fólk — tekið eftir og sótt um að fá að senda börn sín í þessa skóla, sem eru langt frá þvf fullnýttir. I gömlu bæjar- hverfunum, sem ,,litaða" fólkið býr í, eru nefnilega mörg börn, en tiltölulega fáir skólar. En þeir, sem í úthverf- unum búa, vilja ekki sjá þessi börn í ,,sínum" skólum og þessar mót- setningar gera sitt til að efla strfðið um skóla- bílana. Það er ýmislegt gert til að ráða bót á þessu vandamáli. I Minneapolis er eins og áður er sagt lítið um þessi vandamál, þvf að skólakerfið þar er orðin f yrirmynd annarra. Nýlega kom skólastjórn frá Boston til að kynna sér aðstæður hjá okkur. Það sérstæða við þessa heimsókn var, að menn- irnirfrá Boston tóku með sér þó nokkra nemendur, sem vildu sjá með eigin augum, hvernig kynþáttavandamálið hefði verið leyst í okkar hluta landsins. Þessir nemendur komu í heim- sókn í skólana og ræddu við nemendurna. Þegar skólastjórnin frá Boston fór heimleiðis tók hún sér nemendur frá Minneapolis, sem áttu að fá að kynna sér aðstæður í Boston, en þar eru kynþáttaskilin mun skarpara dregin. Ég ætla þó ekki að halda því fram, að það séu kynþáttavandamálin ein, sem hér skipta máli. Margir hafa að vísu mestan áhuga á þeim, en við feigum einnig i höggi við önnur vandamál. Ein þeirra eru fjármálin og þau eru að vissu leyti tengd fækkun skólabarna í mörgum skólum. Á mörgum stöðum er ákveðið svokallað „skóla- gjald", sem ekki má hækka og afleiðingarnar verða þær, að framlag til skólanna verður ekki í samræmi við verðhækk- anir. I fyrra var hér 13% hækkun og það merkir það, að færri peningar koma til skólanna, ef framlagið hækkar ekki. Kennaralaunin eru þar ofarlega á baugi, en kennarasamtökin eru sterk og geta komið miklu fram, ef þau leggja hart að sér. Fyrir nokkrum árum var rekin mikil herferð í Bandarfkjunum fyrir því, að börn hættu ekki í skólum, þegar skóla- skyldualdri væri lokið. Þetta átti þó fyrst og f remst við í þeim fylkjum þar, sem skólaskyldan var 10 ár, en ekki 12 ár eins og í öðrum. Nú er hins vegar minna um það, að börn hætti i skólum, þegar þau eru 16 ára — við köllum þau ,/drop outs", þvi að það kom fljótlega í Ijós, að þessir unglingar áttu erfitt með að komast inn i atvinnu- lifið, því að vinnuveit- endur vildu þau ekki. Ég geri ráð fyrir, að þetta hafi haft þau áhrif að gera þau hrædd, svo að þau Ijúki sínu skyldunámi og helst meira. Það mikilvægasta er þó, að nú er byrjað með svo- kallaða „opna skóla" í Bandaríkjunum í ríkara mæli en áður. „Opinn skóli" er eins konar „tilraunaskóli" og þar eru valmöguleikarnir meiri og nemendurnir hafa áhrif bæði á kennsluna og að vissu marki á rekstur skólans. Þetta hefur gefið síbatnandi raun og þá sérstaklega í gömlu bæjarhverf unum þar sem búa nemendur sem eiga ekki heima í venju- legum skólum. Þeir búa við erfið kjör og nær engar bækur né blöð finnast á heimilum þeirra. Aftur á móti er þar sjónvarp, en það hjálpar ekki baun við námið. Ég ætti kannski að bæta því við, að hér er átt við fólk, sem við myndum kalla menningarsnautt. Það á ekki sérstaklega við litaða fólkið, því að hvíta fólkið er þar einnig með. Mig langar einnig til að minnast á innflytj- endurna frá Mexíkó og Púertó Ríkó. Þetta fólk hefur spönsku sem móðurmál og kærir sig ekkert um að læra ensku. I þeim skólum, sem mikið er um slíka nemendur reynum við að kenna á spönsku. Áður var þess krafist af öllum, að þeir lærðu ensku, en þeim skiiyrðum hefur ekki verið haldið hvað viðkemur þessum inn- f lytjendum. Ef minnast á á kennaramenntun í Bandaríkjunum er aftur nauðsynlegt að leita allt til loka heimstyrjaldar- innar fyrri, því um það bil var fyrst farið að gera meiri kröfur til kennara- menntunar. Gömlu kennaraskólarnir voru þá gerðir að fjögurra ára skólum, sem ná allt að lægsta háskólapróf i, B.A.-gráðunnar. Um leið og þetta gerðist bættust fleiri kennslufög við, svo að það eru ekki aðeins verðandi kennarar, sem fara í kennaraskóla í Bandaríkjunum. Eftir heimstyrjöldina síðari jókst enn fjöldi kennslufaga. Þá komu hinir svo kölluðu „state colleges", sem í eru allt að8 þúsund nemendur við hvern skóla. Nýtt þróunarstig er það, að ungt fólk með háskólamenntun fær ekki lengur stöðu, sem það er ánægt með. Þess hefur gætt mjög á undan- förnum árum, að ungt fólk velur svokallað „junior-colleges" og fer eftir það í iðnskóla. Áhrifin á „state- colleges" hafa orðið sú, að nú eru laus sæti í flestum námsgreinum. Það væri ódýrara hlut- fallslega að senda ung- linga héðan til „state- colleges" í Bandaríkj- unum en bæta við skóla- byggingar hér eftir því sem dr. Gordon M.A. Mork prófessor segir. Þriðjudagur 7. janúar 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.