Alþýðublaðið - 10.01.1975, Síða 7
Frægustu höfuð
heims hvíla
í greipum hans
Heimsins
frægasti
hárgreiðslu-
maður má
ekki vera
að því að
klippa konu
sína og
dóttur
Það er eins og að
fletta alþjóðlegu bláu
bókinni að fletta dag-
bók hans.
Jaqueline Onassis,
Anna prinsessa af Eng-
landi, Sophia Loren,
Liza Minelli, Grace
prinsessa af Monaco,
Caroline dóttir hennar,
Elizabeth Taylor,
Maria Callas og fjöl-
margar aðrar.
Frægustu konur
heimsins leggja höfuð
sitt i hendur hans og
kalla hann „Alexander
mikla”. Hversdagslega
er hann litill,
fimmtugur Frakki,
sem eyðir mestum
hluta ævinnar i loftinu
— i flugvélum, sem
flytja hann um gjör-
vallan heim til að sjá
um hárgreiðslur
þeirra, sem peninga-
ráðin hafa.
Stjórnmálakænska
— Það, sem þær
segja mér, fer inn um
annað eyrað og út um
hitt, segir Alexandre
alltaf, þegar blaða-
menn reyna að fá hann
til að segja frá þeim
leyndarmálum, sem
stjörnurnar hafa
hvislað i eyra hans.
— Ég hef þagnarheit
ekki siður en læknar og
sýni sömu kænsku og
stjórnmálamennirnir
— en þar með er ekki
sagt, að ég þegi, þegar
viðskiptavinirnir leita
ráða hjá mér. Það gera
þeir oft og ég hef án efa
átt minn þátt i að
betrumbæta og eyði-
leggja allmörg hjóna-
bönd um ævina”, segir
Alexandre.
,,Uppgötvaður"
Það var hertoga-
ynjan af Windsor, sem
uppgötvaði hann i litilli
hárgreiðslustofu i
Cannes. Hún mælti
með honum við kunn-
ingja sina ogþar með
var sigurinn unninn.
Alexandre flutti til
Parisar og varð heims-
frægur.
Eftirfarandi hefur
Alexandre að segja um
viðskiptavinina:
— Drottningin i Siam
(Thailandi) er einhver
fegursta kona, sem ég
hef augum litið
Hún ætti að vera
alheimsdrottning! Hún
var með svo sitt hár, að
hún fékk höfuðverk. Ég
klippti 20 sm af þvi.
Sophia Loren
— Sophia Loren
hafði ekki látið klippa
sig i 15 ár, en ég fékk
hana til þess. Hún lét
klippa sig og fékk sér
vægt „permanent” og
varð þar með „tatara-
leg”einsog húner
núna.
Elizabeth Taylor
— Elizabeth Taylor
er dásamleg kona. Hún
er dýra- og mannvinur.
Þó að hún eigi erfitt i
einkalifi er hún alltaf
vingjarnleg, elskuleg
og góð i umgengni. Ég
hef búið til marg-
vislegar hárgreiðslur
fyrir hana og ég hef
lika klippt Richard
Burton.
Grace af Monaco
— Grace prinsessa
hefur verið vinkona
Hér er Elizabeth Taylor með drengjakoll,
en Alexandre heldur á lokkunum i hendinni.
min i tuttugu ár. Hún
vill helst vera stuttklipt
— og vill láta klippa
dóttur sina stutt lika.
Caroline varð öskureið,
þegar ég klippti hana
samkvæmt skipun frá
Grace.
Jackie Onassis
— Jackie Onassis er
athyglisverð mann-
eskja. Hún elskar allt,
sem glæsilegt er, en
velur helst það, sem er
einfalt...
Hún liggur mikið i
sólbaði og kemur til
min til að láta klippa
sig og „lifga” upp á
hárið.
Engan tíma
Alexandre hefur tvær
hárgreiðslustofur i
Paris. Eina handa
konum og þar vinna
niutiu manns — og eina
fyrir karlmenn, en þar
vinna fimmtiu.
Hann á dóttur, sem
er læknir og son, sem
er innanhússhönnuður.
— Ég klippi þær
mæðgurnar i mesta
lagi tvisvar á ári. Ég
hef ekki tima til þess
oftar....
Ö^GEIR FUGb T lA.. ffl
Sophia Loren — klippti sig ekki i 15 ár.
Föstudagur 10. janúar 1975.
o