Alþýðublaðið - 16.01.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.01.1975, Blaðsíða 1
„LoBnuafli okkar fslendinga takmarkast aö 1 miklu leyti af vinnslugetunni, en þaö er raunar fleira, sem ræöur þvi, aö viö þurfum ekki aö bera sama ugg i brjósti og Norðmenn,” sagöi Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, i simtali viö Alþýöu- blaðið i gær, en Jakob var þá staddur á Seyöisfiröi. Alþýöublaöið bar undir Jakob ummæli i norska blaðinu Fiskaren þess efnis aö Norðmenn óttast nú mjög rýrnandi loönuafla, vegna þess að norska loðnan færi smækkandi. „Það er hér mjög óliku saman aö jafna,” sagöi Jakob, „Norðmenn stunda veiöar aö sumarlagi og veiöa þá nær eingöngu ókynþroska fisk, en hér er sumarveiöi bönnuö.” Um loönuvertiöina, sem fram undan er sagöi Jakob: „Það eru að koma óvenju sterkir árgangar og viö teljum að um góða loðnugengd sé aö ræöa. Þaö fer svo eftir veöráttu og öörum ytri aöstæöum, hver afl- inn verður.” ELLIÐAÁRNAR ..FUKU ÚT” ræktun. Þar hefur verið sleppt laxaseiðum og þar var gerður laxastigi sl. sumar, þannig aö forvitnilegt veröur aö sjá, hvernig þau skila sér. Einnig er verið að rækta upp mjög mikið vatnasvæði i og viö Lag- arfljót, og einnig Breiö- dalsá. Blaöið haföi samband viö nokkra aðila, sem aöallega selja út- lendingum veiöileyfi i nokkrum bestu lax- veiöiám landsins. Skoö- un þeirra á horfum á sumri komanda voru nokkuö mismunandi, en yfirleitt telja þeir, að erlendir laxveiðimenn séu nú almennt miklu seinni til að staðfesta pantanir en undanfarin ár, ef frá eru taldir öruggir fastagestir. Astæöurnar til þessa telja veiðileyfissalar fremur ótryggt efna- hagsástand f heima- löndum laxveiðimanna en þverrandi fjárhag þeirra persónulega. Ekki reyndist unnt að fá vitneskju um verð á veiðileyfum til útlend- inga, enda sitja þar ekki allir viö sama borö. Sumir hafa selt lax- veiðileyfi fyrirfram á föstu verði, en aðrir selja aöeins til eins veiðitímabils í senn. Þeir telja yfirleitt óhjákvæmilegt aö hækka veröiö. Má því ætla, að hver stöng á dag kosti útlendinga mismunandi mikið á annaö hundrað dollara, en innifaliö i veiðileyf- um þeirra eru húsnæöi, fæði og ferðir hérlendis. „Elliöaárnar fuku út”, sagði Friðrik Ste- fánsson, framkvæmda- stjóri Stangaveiöifélags Reykjavikur, er frétta- maöur biaðsins spurði hann um horfurnar á sölu laxveiðileyfa á næsta veiöitimabili i sumar. „Við uröum nán- ast aö búta niður leyfin, til þess aö gefa sem flestum félagsmönnum kost á að renna i þær”, sagði Friðrik. Hann kvað mikla eft- irspurn vera eftir veiði- leyfum i Norðurá, en eitthvaö minni i aörar ár, sem félagið hefur umráð yfir. Veiöleyfi i Grimsá frá 6. júli til 17. ágúst eru seld útlendingum og kvaö Friörik eftirspurn eftir þeim svipaða og var i fyrra. Gerði hann ráö fyrir þvi að útlend- ingar myndu fylla kvót- ann þessar 5 vikur. Þá hefur Stangaveiði- félagið Gljúfurá og Tungufljót, sem er i FIMMTUDAGUR 16. janúar 1975 - 12. tbl. 56, árg. ff UTLENDINGAR SEINIR TIL .AD STAÐFESTA PANT- ANIR SÍNAR Á LAXVEIÐIDÖGUM EÐA FLEIRI? Ekki þykir sann- að að „smyglmálið mikla", sem svo hefur verið nefnt, sé aðeins eitt mál, heldur að þar geti verið um að ræða þrjú eða f leiri mál, aðskilin og á á- byrgð hvers smyglarahóps fyrir sig. Við mál þessi eru riðnir skipverjar af að minnsta kosti þrem skipum Eim- skipafélagsins, einn eða fleiri af hverju, Mánafossi, Dettifossi og Reykjafossi. Vörurnar sem smygl- að var eru áfengi, vindl- ingar og matvara og var meginhluta áfengis- ins, 96% spira, varpað fyrir borð i plastbrús- um þegar skipin komu að landinu, og siðar sótt með bátum. Það áfengi sem flutt var inn á flöskum, vindlingarnir og matvaran, hafa þó komið á einhvern annan hátt i land og að öllum likindum eftir að skipin voru komin i höfn. Eins og kunnugt er, er mál þetta nú i höndum Sakadóms Reykjavikur og rannsókn þess i full- um gangi. Samkvæmt upplýsingum Rann- sóknarlögreglunnar sitja nú sex menn i gæsluvarðhaldi. Velklæddur og vel studdur í hálkunni, eins og vera ber. AÐALVERKTAKAR ÞURFA EKKI AÐ BÆTA VIÐ SIG STARFSMÖNNUM TIL AÐ BYGGJA Á VELLINUM „Ég held ekki að við þurfum að bæta við okk- ur mannskap vegna byggingar þessara 200 ibúða, að minnsta kosti verður það ákaflega lit- ið,” sagði Thor O. Thors, framkvæmda- stjóri Islenskra aðal- verktaka, i viðtali við Alþýöublaðið i gær, en ákveðið hefur verið að á þessu ári verði byggðar 200 ibúðir á Keflavikur- flugvelli. Thor sagði ennfrem- ur: „Annars er um fleiri framkvæmdir að ræða og um þær hefur ekki verið tekin ákvörðun, svo ég get ekki sagt um þáð i dag hverju þær breyta. Við höfum alltaf bætt við okkur mann- skap á sumrin, mest skólafólki, en reynt að halda fagmönnum og kunnáttumönnum hjá okkur yfir veturinn, svo að litið verður ráðiö af þeim til viðbótar, ef eitthvað.” EKKERT AÐ FRETTA AF KÖNNUN EINARS „Það er ekkert af þvi að frétta hjá mér”, sagði Einar Agústsson, utan- rikisráðherra, þegar Alþýðublaðið innti hann eftir könnun þeirri, sem hann lofaði i sjónvarps- þættinum Kastljósi að yröi gerð innan skamms á möguleikum heimafyrir- tækja utan Keflavikur- flugvallar til þess að taka einhvern þátt i fyrirhug- uðum byggingarfram- kvæmdum þar. Siðan ráðherrann lýsti þessu yfir eru nú liðnir tveir mánuðir og ekkert bólar á könnuninni. Blaðamaður innti þvi ráðherra nánar eftir þessu. Blaðamaður: Er þá könnunþessi ekki kom- in af stað að neinu leyti? Utanrikisráðherra: Það eru að minnsta kosti ekki komnar neinar nið- urstöður. Nánari upplýsingar fengust ekki um málið aö sinni. alþýöu ÞVERT NEI „Fulltrúar út- gerðarmanna svör- uðu okkur því einu til, að þeir væru ekki tilbúnir til að gang- ast inn á neinar breytingar á kjörum bátasjómanna, þeir hefðu ekkert til að láta", sagði Jón Sigurðsson, formað- ur Sjómannasam- bands Islands, að loknum viðræðu- fundi um bátakjara- samningana í gær. Þetta var fyrsti fundurinn, sem haldinn er síðan málinu var vísað til sáttasemjara ríkis- ins. Stóð f undurinn í um það bil tvær klukkustundir og lauk án þess að boð- að væritilnýsfundar. I fyrradag átti að halda fund um togarasamningana, en honum var frest- að til 21. janúar n.k.- EKKi EINN SMYGLHÚPUR HELDUR ÞRÍR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.