Alþýðublaðið - 21.01.1975, Síða 5

Alþýðublaðið - 21.01.1975, Síða 5
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm) Sighvatur Björgvinsson Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir Afgreiðsiustjóri.örn Halldórsson Ritstjórn: Skipholti 19, sími 28800 Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, simi 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, simi 14900 Prentun: Blaðaprent hf. HVER A SÖKINA? Blöð stjórnarflokkanna deila enn um, hverju megi kenna það ófremdarástand, sem rikt hefur og rikir enn i islenskum efnahagsmálum. Timinn kennir utanaðkomandi aðstæðum um ófarirnar, en Morgunblaðið stjórnleysi þeirrar rikisstjórnar, sem Framsóknarflokkurinn hafði forystu fyrir. Hvað svo sem þeir Framsóknarmenn segja, þá verður þvi auðvitað ekki á móti mælt, að óðaverðbólgan, sem ráðið hefur rikjum á íslandi að undanförnu, er að mjög verulegu leyti af innlendum rótum runninn. Þótt utanað- komandi aðstæður hafi vissulega skaðað þjóðar- búið, þá er meginvandinn heimatilbúinn. Þetta liggur auðvitað i augum uppi þegar litið er á stjórnartimabil rikisstjórnar ólafs Jóhannes- sonar i heild. Meginhluta þess timabils voru allar ytri aðstæður óvenjulega góðar. Mjög mikil verðhækkun varð mest allt þetta timabil á islenskum útflutningsafurðum og sú verð- hækkun ásamt öðrum hagstæðum ytri að- stæðum skilaði óhemjumiklu fé til þjóðarbúsins. Ef stjórn landsins hefði verið styrk á þessum tima hefði þjóðarbúið þvi átt að vera vel undir það búið að mæta timabundnum áföllum siðar. En sú varð ekki raunin á. Vegna algers stjórnleysis i efnahagsmálum þjóðarinnar á þessum árum fékk hún ekki notið ávaxta góðærisins. Feitu árin voru ekki notuð til þess að styrkja stöðu þjóðarbúsins að einu eða neinu leyti. Þvert á móti lauk þeim þannig, að þjóðin var skuldugri eftir en áður, varasjóðir höfðu ekki aukist, heldur rýrnað og alveg hefði gleymst að gera ráð fyrir þvi, að i kjölfar feitu áranna kynnu mögur ár að koma. Ekki bætti það úr skák, að meira en hálft siðasta valdaár rikisstjórnar ólafs Jóhanness. var hún i raun- inni orðin valdalaus , gat engum málum komið fram, en neitaði þó að vikja. Landið var i raun réttri stjórnlaust allan þennan tima, og að fá það i tilbót við þá ábyrgðarlausu stjórnarhætti, einkum i meðferð efnahagsmála, sem stjórnin hafði gert sig seka um, var auðvitað til þess að bæta gráu ofan á svart. Meginábyrgðina á þvi bar Framsóknarflokkurinn, sem einnig bar meginábyrgðina á stjórnleysinu meðan rikis- stjórn ólafs Jóhannessonar hélt þó enn sinum þingmeirihluta. Allt þetta ófremdarástand ábyrgðar- og stjórnleysis er auðvitað megin- skýringin á þvi öngþveitisástandi, sem varð i efnahagsmálum þjóðarinnar þegar á leið og syrta tók i álinn og Framsóknarflokkurinn getur ekki firrt sig þeirri ábyrgð hversu heitt, sem þeir framsóknarmenn kunna að óska þess. / Frá þvi núverandi rikisstjórn tók við hefur svo enn sigið á ógæfuhliðina. Ekki er það Fram- sóknarflokknum einum að kenna. Nú er það Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur stjórnar- forystuna, en honum hefur með öllu láðst að móta þá heildarstefnu i efnahagsmálum, sem nauðsynlegt er að mótuð sé svo von sé til þess, að takast megi á við vandann með árangri. Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki öllu lengur varpað allri sök yfir á Framsóknarflokkinn og fyrri stjórn. Hann hefur sjálfur fengið tækifæri til þess að stöðva öfugþróunina i islenskum efnahagsmálum, en hefur ekki náð árangri. alþýðu I K I ! EYJÓLFUR JÓNSSON, FLATEYRI „Nð LÝGUR HERLEG- DAO AB KÚNGINUM” Þjóðinni var birtur sá áramótaboðskapur em- bættismanna heilbrigðis- ráðuneytisins að lækna- þjónusta í strjálbýli væri með ágætum og hvergi væri þar læknislaust. Væri þetta nú eitthvað annað en gífurleg vandamál Reyk- víkinga. þar sem þúsundir væru án heimilislæknis. Spakir landsfeður hljóta að reyna að ráða bóta á þessum vandræðum Reyk- víkinga. Leiða þeir þá sjálfsagt hugann að því hvort ekki væri hag- kvæmasta lausnin að að- stoða þá heimilislæknis- lausu við að flytja frá Reykjavík og þangað sem læknisþjónustan er með ágætum, að sögn em- bættismannanna. Yrði þá uni leið stuðlað að jafn- vægi í byggð landsins, sem flestir stjórnmála- foringjar segja okkur að sé eitt hjartfólgnasta áhuga- mál þeirra. Og í athafna- sömu strjálbýli vantar alltaf fleira fólk til fram- leiðslustarfa og byggingarf ramkvæmda. Þessi lausn vandans hjá Reykvikingum væri sú sjálfsagða, nema þá að einhverjum dytti í hug að ATHUGASEMD Jóhann Möller á Siglufiröi hefur beðið blaðið fyrir eftir- farandi athugasemd. „Frétt sú, sem birtist á annarri siðu Morgunblaðsins, föstudaginn 10. janúar s.l. og bar fyrirsögnina „Verka- lýðsforingja sparkað úr trúnaðarráði”, er byggð á misskilningi og er röng. Ég hefi nú verið kosinn i varastjórn Verkalýðsfélags- ins Vöku, en þar hefiégekki gengt neinum trúnaöarstörf- um i 15ár, þ.e.a.s. meöan ég var i stjórn Sildarverk- smiðja rikisins. Meðlimir stjórnar og vara- stjórnar félagsins eru sjálf- kjörnir i trúnaða'rmannaráð þess. A ég þvi áfram sæti i ráðinu. Nú væri hægt að álykta af þessari röngu frétt, að eip- hver átök ættu sér stað i verkalýðsfélaginu, eins og svo oft áður. En svo er ekki. A félagsfundum og fundum i trúnaðarráði á s.l. ári hafa félagsmálin verið rædd á skynsamlegan hátt, svo og hvernig best væri að fylkja islenskri verkalýðshreyfingu til sóknar gegn hverskonar misrétti i launa- og kjara- málum og gegn áráttu vald- hafa á hverjum tima að nema úr gildi kjarasamn- inga með tilskipunum, eins og nú hefir átt sér stað og áð- ur. Við sjáum nú betur en nokkurn tima fyrr, að alger eining verður að nást innan verkalýðshreyfingarinnar um baráttumál hennar, svo að jákvæður árangur náist. Siglufirði 11. janúar 1975 Jóhann Möller.” skugga vantaði á glans- myndina af ágætri læknis- þjónustu utan Reykjavíkur. Þar sem nú- verandi heilbrigðisráð- herra er þingmaður úr Vestf jarðakjördæmi hefðu embættismennirnir mátt, áður en þeir birtu glans- myndina, ómaka sig við að spyrja ráðherrann um læknasetur á Vestfjörðum og inna hann eftir þvi hvort nokkuð vantaði á að lækna þjónusta væri þar með ágætum. Fyrsta athugasemdin Framhald á bls. 4 FLOKKSSTARFIÐ Kvenfélag Alþyðuflokksins i Reykjavík FÉLAGSFUNDUR Kvenfélag Alþýðuf lokksins í Reykjavík boðar til al- menns félagsfundar fimmtudaginn 23. janúar n.k. Fundurinn verður haldinn i Félagsheimili prentara að Hverfisgötu 21 og hefst kl. 20,30. GESTUR FUNDARINS VERÐUR BENEDIKT GRÖN- DAL, FORMAÐUR ALÞÝÐU- FLOKKSINS. Félagskonur eru hvattar til >ess að mæta vel og stundvís- lega. Stjórnin. FUJ félagar i Beykjavík BORGARMÁLIN Björgvin Guðmundsson bor jarfulltrúi ætlar að ræða við okkur.um borgarmálin >g hvað sé f ramundan þeim. Fundurinn verður haldinn í Ingólfscafé, þriðjudaginn 21. anúar kl. 20.30. Mætið vel og stundvíslega. — Nýir félagar velkomnir. Stjórnin. Alþýðuflokksfólk Hafnarfirði bæjarmaun Alþýðuf lokksfélag Hafnarf jarðar boðar til almenns félagsfundar þriðjudaginn 21. janúar n.k. Fundurinn verður haldinn í Alþýðuhúsinu i Hafnarfirði og hefst kl. 21.00. Fundarefni: Fjárhagsáætlun Hafnarf jarðarkaupstaðar fyrir árið 1975. Framsögumenn verða bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins, Haukur Helgason og Kjartan Jó- hannsson. ■ Stjórnin. ísfirðingar og nágrannar FELAGSFUNDUR Alþýðuflokksfélag isaf jarðar boðar til fundar n.k. laugardag, eftir hádegi. Fundurinn er opinn Alþýðu- flokksfólki og stuðningsfólki A-listans á Isafirði og í nágrenni. Gestur fundarins verður Sig- hvatur Björgvinsson, atþm., og mun hann ræða um stjórnmála- viðhorfin. Nánar auglýst síðar. STJÓRNIN Þriðjudagur 21. janúar 1975. o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.