Alþýðublaðið - 21.01.1975, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 21.01.1975, Blaðsíða 12
alþýðu Ð Bókhaldsaóstoö með tékka- færslum BÚNAÐAR- \g\J BANKINN KÓPAVOGS APÓTEK Opiö öil kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 SBNDIBIL ASTÖOIN HF FYRSTA ANNAÐ OG... ÞRIÐJA o „Haldiö þið aö þetta sé spiri. Þaö er nii ósennilegt”. Hvort þessi athugasemd uppboös- haldara hefur haft áhrif á bjóöendur skal ósagt látiö, en svo mikiö er vist, aö númer 67 tveir kútar, vara óþekkt 120 kg fór á aöeins 500 krónur. Uppboö. Oröiö sjálft vekur mörgum hroll. Uppboö táknar oft endalok einhvers, stundum lifsbaráttunnar, hjá öörum bresta vonirnar. Þau uppboö, sem mest er á lofti haldiö frá fyrri tiö eru uppboð sveitar- limanna, þeirra, sem oröið höföu undir i lifsbaráttunni og voru á framfæri heima- sveitarinnar i óþökk þeirra, sem meira máttu sin. Þá var boöið upp til aö kanna, hver vildi taka einstaklinginn fyrir lægst meölag. Besta boöiö var þaö lægsta. Svo var það þess, sem átti boðiö að láta vinna fyrir þvi, sem á vantaði i fæöis- og klæöiskostnað. Annars eölis voru uppboð á eignum þeirra, sem fluttu bú- ferlum. Þau voru haldin að beiöni eigendanna á þeim munum, sem ekki var hægt aö flytja meö sér, eða ekki talin þörf fyrir á nýja staðnum. Enn- fremur uppboð dánarbúa, að beiöni ierfingja. Nú 4ru uppboð fátið, nema uppboðstilkynningunni fylgi nauöung, nauðungaruppboð haldiö að kröfu banka, sjóðs, hrl, eöalhdl. til lúkingar skuld að fjárhæðlo.s.frv. Þá 'má ekki gleyma uppboðu^n yfirvalda á óskila- munum, hið árlega „reiðhjóla- uppboð” lögreglunnar og uppboð ^missa hreppstjóra á óskilahrossum. Tilvitnunin hér að ofan er hins vegar fengin á uppboði, sem haldið var i vörugeymslu Eim- skips við Dugguvog i Reykjavik siðastliðinn laugardag. Eftir auglýsingu um „Nauðungar- uppboð”, sem birt var i blöðum skyldi selja „allskonar vörur og áhöld, sem komu til landsins meö skipum félagsins á árinu 1972 og fyrr. Avisanir ekki teknar gildar nema með leyfi uppboöshaldara eöa gjaldkera. Greiösla við hamarshögg”. Þetta uppboð var haldið til greiðslu flutningsgjalda og geymslukostnaðar til Eimskips ogalltþað, sem boðið er rennur til félagsins. Það er upp og ofan, hvort innflutt vara hefur verið greidd erlendum sendanda, en i flestum tilfellum er þaö búiö. Ennfremur hafa tollgreiðslur veriö inntar af hendi. 1 mörgum tilfellum hefur tollheimtan veriö búin aö auglýsa uppboð, sama varnings, en viötakendur bjargað vörunni frá þvi og siðan ekki söguna meir. öllum send- endum og viötakendum, sem vitað er um, eru sendar til- kynningar um aö uppboö varn- ingsins sé fyrir dyrum og þeim gefinn kostur á aö innleysa hann, áöur en uppboðið fer fram. Þess sá raunar staö á uppboöinu sjálfu, aö slikt hafi gerst, þvi sumt af þvi, sem skráö var á uppboösskránni kom ekki fram. Þarna kenndi margra grasa. Timbur, járn, varahlutir, hús- búnaður, bygginarefni,umbúöir fatnaöur, auglýsingaspjöld, og matvara. Við flest númer uppboösskrárinnar stóö þó „Vara óþekkt”. Sumt af þvi var raunar ekki óþekkt, þegar til uppboðsins kom, þvi þá v.oru kassar opnaðir, svo enginn „keypti köttinn i sekknum” um- fram það sem nauðsynlegt var. Uppboðshaldari tók raunar oft fram: „Engin ábyrgð tekin, en allt á að seljast”. Af matvöru voru þarna hrökkbrauð 5 karton, sem seldust á 3100 krónur, 300 kiló niöursoðnar rauðrófur fóru á sjö þúsund krónur. Fiskur stóð á skránni. Það reyndust vera niðursoðin þorskhrogn, 50 kiló og fóru á eitt þúsund. Það mátti heyra á sumum viðstaddra, að þeim þótti þarna vera sameiginlegt verkefni kaupmanna og neytendasam- taka að kanna notagildi mat- vörunnar áður en hún færi i verslanir,þvi hver kaupir 600 dósir af rauðrófum tif heimilis- nota? Þegar blaðamaður Alpýðu- blaðsins kom á uppboðið af for- vitni, eins og margir aðrir virtust vera haldnir,þá var verið aö bjóða upp einn poka af óþekktri vöru, liklega til smjör- likisgerðar, ef marka mátti áletrun á pokanum. Fyrsta boð var 50 aurar, en var hækkað af sama aðila i eina krónu, þegar uppboðshaldari hafði bent honum á, að krónan væri lægsta mynteiningin, sem miða mætti viö. Og pokinn fór á krónu. Litiö flutningsfjald það. Hæsta verö, sem greitt var fyrir einstakt númer var 260.000- krónur fyrir 19 tunnur af óþekktri vöru 4550 kfló.Hvað Iþessum tunnum var vissi uppboðshaldari ekki, en trúi hver, sem vill, að sá, sem keypti, hafi ekki vitað það. Má vera að einhver hafi séö sér hag i aö kaupa á þennan máta frekar en greiöa allt sem til þurfti eftir venjulegum leiðum. Þaö skal tekiö fram aö til við- bótar viö slegiö verö þarf kaup- andinn aö greiöa söluskatt og uppboöskostnaö, þannig að dýrasta „partiiö” hefur kostað um 317 þúsund aö öllu meötöldu. A uppboöinu voru um eitt hundraö manns. Þarna rikti gáski eins og oft vill verða viö slik tækifæri. Einn viöstaddra sagöi að afloknum góöum hlátri: „Segið svo að ekki sé hægt aö skemmta sér fyrir litið i Reykjavik”. Og ekki spillti uppboðs- haldarinn þeim orðum. Boðið var upp baðker. Það var til- kynnt sem „vestur-þýsk gæða- vara, gæti verið gölluð gæða- vara”. Fariö var með karið út og margir skoðuðu. Þar var kveöinn upp sá úrskuröur, að þaö væri alveg gallalaust. A meöan var þaö slegið á 7000 krónur inni. Næst á eftir kom annað. Þá þurfti enginn að skoöa. Það fór á 15000 krónur. Skömmu siðar skósett. „Hollenskt. Ekki var það nú verra. Sennilega konunglegt”. Fór á 7000 krónur. Átta kassar af skóm voru boðnir upp. „Allt á hægri fótinn”, sagði einhver og rifjaöi um leiö upp söguna af innflytjanda, sem keypti sjö þúsund pör af hönskum, lét senda hanskana á vinstri hend- ina I einum kassa og hægri handar hanskana i öörum. Keypti siöan allt á slikk á uppboöi, þvi hver vill eiga 7000 vinstri handar hanska án þess aö eiga von á samsvarandi á hina hendina, og hver vill eiga 7000 hægri handar hanska, þegar annar á alla hina á móti? Boönir voru upp auglýsinga- bæklingar. Þrátt fyrir upphróp- anir eins og „Sjáiði myndina af henni þessari” fóru þeir ekki nema á 10 krónur Hins vegar fóru teppasýnishorn á 500 krónur. Litill naggur, á hæfi- legum aldri til aö horfa að- dáunaraugum á skellinöðru- gæjana hrósaði happi yfir baki á skellinöðrusæti, sem hann keypti á sama verði. Þarna voru boðin upp i einu lagi niu pör af kvenkulda- stigvélum, sem fóru á 3000 krónur. Burtséð frá tiskubreyt- ingum þætti þaö ekki mikið verð fyrir ein „útúr búð”. 14 pör af kvenkuldastigvélum og 14pör af kvenskóm uppháum fóru i einu lagi á 5.500 krónur. Á uppboðinu voru mestmegnis karlar, Þeir hafa sennilega ekki mikið vit á slikum hlutum. (Eða svo mikið að þeir viti að hlutir fluttir til landsins 1972 eða fyrr, séu ekki gjaldgengur lengur I þessu til- liti.) Margt fleira var þarna góöra gripa aö þvi er virtist. 250 kilóa pakki með blýöntum seldist fyrir 5000 krónur. Tveir loft- belgir eða þvi um líkt fór á 10.500.-, Siritandi hitamælir á ÍO.OOO-.Tvær kistur af loftljósum fóru á 11 þúsund og kassi meö svipuöu innihaldi á 3600. Tvö tonn af blýi voru seld á þrjátiu þúsund. Samkvæmt upp- lýsingum fengnum hjá brota- járnskaupanda i gær gefast um 20 krónur fyrir blý i brotajárn. Atta vatnskassaelement fóru á 23.500— „Reyfarakaup”, sagði einn, sem tekið haföi þátt í boöum. Þarna voru seld likön. „Breiðholt eins og það átti að vera”, tilkynnti uppboös- haldari. Það fór á 500 krónur. „Vara óþekkt”, einhvers konar raftæki. Boð 1000 — krónur, „Fyrsta annað og....fyrsta, annað og ...þriðja. Já, hann er rafvirki þessi og veit hvað hann eraðgera. Græddi 190 þúsund. Þú gefur það upp til skatts góöi”. Heildarsala á bögglauppboði þessu varö um 830 þúsund. Skyldu þessir veröa meðal númera á uppboöi, þegar boðinn veröur upp ýmiss konar varningur, fluttur tii iandsins 1974 og fyrr? PIMM á förnum vegi FERÐU Á SKIÐI? Þorsteinn Adamsson, nerai: „Ég, nei. Hef aldrei iðkaö þá iþrótt, og býst ekki við þvi, að ég geri það héðan af.” Þórhallur Sigurðsson, sjón- varpsstarfsmaður: „Nei, það geri ég ekki. Hef reyndar ekki gert það siðan ég var fimm ára, og þá voru það bara tunnustafir sem ég notaöi i stað skiða, en siðan ég fór að stækka, þá hef ég ekki getað fengið nægilega stóra tunnustafi til að renna mér á.” GuðniGuðnason, hljóðfæraleik- ari: „Nei, nei, blessaður góði, ég hef aldrei getaðstaðið á skiðum. Ég reyndi það þegar ég var strák- ur, en datt alltaf á rassinn.” Björk Hreiðarsdóttir, nemi: „Nei, hef aldrei getað þaö. Ég dytti örugglega ef ég reyndi.” Sigrún Páisdóttir, húsmóöir: „Nei, það geri ég ekki. Ég hef einstaka sinnum skroppið á snjóþotur, mér finnst reglulega gaman að þeim.” J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.