Alþýðublaðið - 21.01.1975, Page 9

Alþýðublaðið - 21.01.1975, Page 9
Framarar eru með ennþá Framarar sýndu nú sitt rétta andlit, þegar þeir mættu Haukum i Hafnarfirði á sunnudagskvöldið. Liðið kom mjög ákveðið til leiks enda greinilegt að leikmenn liðs- ins gerðu sér grein fyrir mikil- vægi leiksins. Eftir að hafa tapað tveim siðustu leikjum sínum sýndu nú Framarar ágætan leik og unnu verðskuldaðan sigur 15- 18 og verða þvi áfram með i baráttunni um Islandsmeistara- titilinn. Fyrri hálfleikur var lengi vel mjög jafn og skiptust liðin á að skora. En þegar staðan var 7-7 náðu Framarar mjög góðum leikkafla og skoruðu þá 4 mörk I röð 7-11, en Haukum tókst að minnka muninn i 8-11 i lok hálf- leiksins. 1 seinni hálfleik gerðu Haukarnir örvæntingarfulla til- raun til að minnka þennan mun, en Framararnir héldu þá vel um sitt og gáfu aldrei eftir. Tókst þeim með mjög skynsamlegum leik að halda þvi forskoti sem þeir náðu i fyrri hálfleik og var sigur þeirra 15-18 aldrei i hættu. Lið Hauka var óvenju dauft i þessum leik, Hörður Sigmarsson var óvenju daufur til að byrja með og var tekinn útaf .Var hðnum haldið utan vallarins nær allan leikinn og lék aðeins með siðustu minútur leiksins og skoraði þá 2 mörk. Er þetta vægast sagt nokkuð undarleg ráðstöfun hjá Viðari Simonarsyni • þjálfara Haukanna, þar sem Hörður hefur verið þeirra aðalmaður sem sést best á þvi að hann er búinn að skora nær helming marka liðs- ins. Af öðrum leikmönnum var það helst Gunnar Einarsson i markinu sem eitthvað lét að sér kveða. Mörkin; ölafur ólafsson 4 (2), Hörður Sigmarsson 3, Logi Sæmundsson 2(1), Elias Jónsson 2, Stefán Jónsson, Arnór Guð- mundsson, Frosti Sæmundsson og Hilmar Knútsson 1 mark hver. Lið Fram lék nú mjög vel eftir að hafa tapað tveim siðustu leikjum sinum. Vörnin var góð og varði markvörður þeirra Guðjón Erlendsson mjög vel allan leikinn og á hann ekki hvað minnstan þátt i sigrinum. Af öðrum leik- mönnum má nefna Pálma Pálmason, Hannes Leifsson og Björgvin Björgvinsson. Leiki liðið eins i þeim leikjum sem það á eftir og það gerði nú, verður það ekki auðunnið. Mörkin; Pálmi Pálmason 6, Hannes Leifsson 5, Björgvin Björgvinsson 3, Guðmundur Sveinsson 2, Kjartan Gislason og Stefán Þórðarson 1 mark hvor. Slakur leikur Valsara 1. deild Birmingham — Everton ' 0-3 Burnley — Luton 1-0 Carlisle —Ipswich 2-1 Chelsea — Leeds 0-2 Leicester — Stoke 1-1 Liverpool—Coventry 2-1 Manch.City — Newcastle 5-1 MiddlesbroArsenal 0-0 Tottenham — Sheff. Utd. 1-3 West Ham — QPR 2-2 Wolves—Derby 0-1 2. deild Blackpooi — Fulham 1-0 Bolton—-BristolRov. 5-1 BristolCity — Hull 2-0 Millvall —Notts.Co. 3-0 Norwich — York City 2-3 Nottm.For. — Orient 2-2 Oldham — WBA 0-0 Oxford — Aston Villa 1-2 Sheff.Wed,—Portsmouth 0-2 Southampton—-Cardiff frestað Sunderland —Manch. Utd. 0-0 Staðan er nú þannig: 1. deild Everton 26 10 13 3 39-25 33 Ipswich 27 15 2 10 37-21 32 Burnley 27 13 6 8 47-40 32 Liverpool 25 13 5 7 36-23 31 Derby 26 12 7 7 41-33 31 Middlesb. 27 11 9 7 37-30 31 Stoke .27 11 9 7 40-34 31 M.anch .City 27 12 6 9 37-35 31 Leeds 27 12 5 10 39-31 29 West Ham 27 10 9 8 45-37 29 Sheff.Ut. 26 10 7 9 35-38 27 QPR 27 10. 6 11 34-36 26 Newcastle 25 10 6 9 36-41 26 Wolves 26 8 9 9 33-33 25 Coventry 27 8 9 10 36-44 25 Arsenal 26 8 7 11 30-31 23 Tottenham 27 8 7 12 36-40 23 Birmingh. 27 9 5 13 35-42 23 Chelsea 26 6 10 10 27-44 22 Carlisle 27 8 3 16 28-36 19 Leicester 26 4 9 13 23-41 17 Luton 26 4 8 14 23-39 16 2. deild Manch.Utd. 27 17 6 4 43-19 40 Sunderland 27 13 9 5 44-22 35 Norwich 26 11 9 6 36-25 31 Aston Villa 26 12 6 8 38-22 30 WBA 26 11 8 7 30-18 30 Bristol C. 26 11 7 8 26-18 29 Blackpool 27 10 9 8 25-20 29 Notts. Co. 27 8 11 8 32-36 27 Nottm.For. 27 10 7 10 30-34 27 Oxford 27 11 5 11 27-37 27 Hull City 27 9 9 9 29-44 27 Bolton 25 10 6 9 31-25 26 Orient 26 5 15 6 20-27 25 Fulham 27 7 10 10 24-21 24 York City 27 9 6 12 33-38 24 Brist.Rov. 27 9 6 12 28-40 24 Southampt. 25 7 9 9 31-34 23 Portsmouth27 7 9 11 25-34 23 Cardifí 25 7 8 10 26-33 22 Oldham 25 6 8 11 24-30 20 Millvall 26 6 7 13 27-37 19 Sheff.Wed. 27 5 8 14 27-42 18 Valsmenn sigruðu Gróttu i frekar tilþrifalitlum leik i Hafnarfirði á sunnudagskvöldið 20-25. Hafa nú Valsarar sigrað I 5 leikjum I röð og allt virðist benda til þess að þeir verði með i baráttu efstu liðanna. Jón Karls- son handarbaksbrotnaði á æfingu i siðustu viku og verður frá allri keppni um tima, er hann þriðji leikmaðurinn i liðinu sem handarbaksbrotnar I vetur. Þetta þýðir að sjálfsögðu að Jón getur ekki tekið þátt i Norðurlanda- mótinu með landsliðinu i næsta mánuði. Það kom strax i ljós I leiknum að Valsliðið saknaði Jóns illilega i leiknum. ólafur H. Jónsson var tekinn úr umferð til að byrja með, en hann lét það ekki á sig fá og virtist geta skorað mörk eftir vild. Er hann greinilega okkar besti handknattleiksmaður hér i dag, heur gifurlegan kraft og skorar stórglæsileg mörk. Fyrri hálfleikur var jafn lengstum, en i lokin skoruðu Valsmenn þrjú mörk i röð og höfðu yfir i hálfleik 9-11. Það sama má segja um siðari hálfleikinn, hann var lengi vel jafn, en um miðjan hálfleikinn tókst Gróttumönnum að minnka muninn i 2 mörk, 17-19 og virtust vera að ná sér á strik. En þá tók ólafur H. Jónsson sig til og skoraði 4 af næstu 5 mörkum Ólafur H. Jónsson átti enn einn stórleikinn með Val og er erfitt að hugsa sér liðið án hans. A myndinni hefur hann snúið vörn Gróttu af sér og skorar eitt af 7 mörkum sinum i leiknum. Vals hvert öðru glæsilegra og breytti stöðunni i 17-24. Þetta réðu leikmenn Gróttu ekki við og lokatölurnar urðu 20- 25 fyrir Val. Gróttuliðið var óvenju dauft i leiknum og var eins og liðið hefði þegar sætt sig við að tapa leikn- um fyrirfram. Björn Pétursson þeirra markaskorari var tekin úr umferð i fyrri hálfleik og skoraði þá ékki mark. 1 seinni hálfieik hættu Valsmenn að elta Björn, en hann fann sig aldrei og var nýting hans i leiknum slæm. Það voru helst þeir Halldór, Magnús og Atli Þór sem eitthvað létu að sér kveða. Arni Indriða var óvenju daufur. Mörkin; Halldór Kristjánsson 5, Magnús Sigurðsson 5, Atli Þór Héðinsson 4, Arni Indriðason 3, Björn Pétursson 2 (1) og Axel Friðriks- son 1 mark. Lið Vals lék ekki vel þrátt fyrir sigurinn i leiknum. Ef Gróttu- mönnum hefði tekist betur að gæta Ólafs H. Jónssonar hefðu úr- slit leiksins orðið önnur. En auk Ólafs sluppu þeir Agúst ögmundsson Og - Ólafur Benediktsson markvörður vel frá sinu. Guðjón Magnússon lék nú með aftur eftir langt hlé. og er greinilega ekki búinn að finna sig. Mörkin; Ólafur H. Jónsson 7, Jón R Jónsson 5 (1) Agúst ögmunds- son 4, Guðjón Magnússon, Gunn- steinn Skúlason og Stefán Gunnarsson 2 mörk hver og Gisli Blöndal, Bjarni Guðmundsson og Steindór Gunnarsson 1 mark hver. Leikinn dæmdu þeir Kristján Orn Ingibergsson og Jón Frið- steinsson. STAÐAH i 1. Ot 2. DEILD 00 MARKHÆSTU MENN Orslit leikjanna i Hafnarfirði á sunnudagskvöldið urðu þessi: Grótta — Valur 20-25 Haukar — Fram 15-18 Staðan i 1. deild er nú þessi: FH 7 5 0 2 142:134 10 Valur 8 5 0 3 155:136 10 Haukar 8 5 0 3 153:135 10 Fram 8 4 2 2 140:142 10 Vikingur 7 4 1 2 137:124 9 Armann 8 4 0 4 130:141 8 Grótta 8 1 2 5 156:170 4 1R 8 0 1 7 142:173 1 Eftirtaldir leikmenn hafa skor- að 15 mörk eða fleiri i 1. deild. Hörður Sigmarss. Haukum 70 (22) Björn Pétursson Gróttu 51 (20) Einar Magnúss. Vikingi 34 (10) Ólafur H. Jónsson Val 34 Stefán Halldórss. Viking. 33 (9) Pálmi Pálmason Fram 33 (13) Geir Hallsteinsson FH 31 (2) Jón Karlsson Val 31 (8) Ágúst Svavarsson ÍR 30 (2) Viðar Simonarson FH 28 (7) Brynjólfur Markússon 1R 28 • Halldór Kristjánsson Gróttu 26 (3) Ólafur ólafsson Haukum 25 (11) Magnús Sigurðsson Gróttu 24 Páll Björgvinsson Vikingi 23 Björn Jóhannsson Armanni 23 (4) Hörður Harðarson Ármanni 22 (9) Jens Jensson Ármanni 21 Guðmundur Sveinsson Fram 21 (4) Þórarinn Ragnarsson FH 20 (9) Jón Ástvaldsson Armanni 20 (2) Arni Indriðason Gróttu 19 Hannes Leifsson Fram 19 (1) Jón P. Jónsson Val 19 (4) Björgvin Björgvinsson Fram 18 Ellas Jónsson Haukum 18 Stefán Jónsson Haukum 15 Atli Þór Héðinsson Gróttu 15 í 2. deild var leikinn einn leikur i Garðahreppi og áttust þar við Stjarnan og ÍBK. Lauk leiknum með jafntefli 18- 18. i hálfleik var staðan 8-10 fyrir IBK. t lokin hafði Stjarnan yfir, en Keflvikingum tókst að jafna á siðustu sekúndum leiksins. Staðan i 2. deild er nú þessi: KA 7 6 0 1 164:125 12 KR 7 5 0 2 140:122 10 Þróttur ’ 5 4 0 1 123:86 8 Þór 5 4 0 1 101:81 8 Fylkir 7 2 0 5 120:150 4 IBK 6 1 1 4 95:121 3 UBK 4 1 0 3 80:100 2 Stjarnan 7 0 1 6 113:151 1 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPiTALINN: ADSTOÐARLÆKNIK. — Tveir að- stoðarlæknar óskast til starfa á Barnaspitala Hringsins frá 1. marz nk. i sex mánaða stöður. Umsókn- arfrestur er til 15. febrúar nk. Nán- ari upplýsingar veitir yfirlæknir Barnaspitalans. AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa á endurhæfingadeild Land- spitalans nú þegar eða eftir sam- komulagi. Upplýsingar veitir yfir- læknir deildarinnar. KLEPPSSPÍTALINN: IIJÚKIIUNARKONUR óskast til starfa á hinum ýmsu deildum spitalans i fast starf og til afleys- inga. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðukona, simi 38160. LÆKNARITARI óskast til starfa við spitalann, hið fyrsta. Umsókn- arfrestur er til 26. þ.m. Umsóknum, er greini aldur, menntun og fyrri störf, ber að senda skrifstofu rikisspitalanna. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik, 17. janúar 1975. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765 Þriðjudagur 21. janúar 1975. o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.