Alþýðublaðið - 30.01.1975, Side 3

Alþýðublaðið - 30.01.1975, Side 3
Gáfu þvotta- vél og þurrkara Nýlega afhenti Kiwanisklúbb- urinn Helgafell Elliheimilinu i Vestmannaeyjum sjálfvirka þvottavél og þurrkara til afnota fyrir dvalargesti. Einnig afhenti klúbburinn jólatré, seriur og jólaskraut sem meölimir komu fyrir i Elliheimilinu. Samtals var þetta aö verömæti um 240 þúsund krónur. bá er i undir- búningi aö koma upp bókasafni i Elliheimilinu og væntum viö þess að þvi veröi lokið innan tiö- ar. A meöfylgjandi mynd eru (frá v.) Magnús Magnússon bæjar- stjóri, frú Unnur Pálsdóttir for- stööukona, Viktor Helgason for- seti Helgafells og Sigurgeir Kristjánsson forseti bæjar- stjórnar Vestmannaeyja. Hver á kaktusinn? Siöastliðinn laugardag veitti Alþýöublaðiö Iþróttasam- bandi Islands kaktusorðuna, fyrir aö hafa endurtekiö hafn- aö umsóknum Bridgesam- bands Islands og Skáksam- bands Islands um aðild — á þeim grundvelli aö i þeim iþróttagreinum væri ekki um likamsæfingar að ræða. I gær, þriöjudag, haföi Her- mann Guðmundsson samband við blaöið og haföi athuga- semdir við veitinguna fram að færa. Kvaö Hermann blaöiö fara alrangt meö staöreyndir, þvi aö Bridgesambandiö heföi aöeins einu sinni sótt um aöild, BARNAMJOLI HENT ÚR VERSLUNUM Bandariska fyrirtækiö H.J. Heinz hefur fariö þess á leit viö allar smávöruverslanir hætti sölu á fjórum tegundum Heinz barnamjöls: Instant Rice Cer- eal, Instant Barley Cereal, In- stant Oatmeal Cereal og Instant Mixed Cereal. Er kaupmönnum gert að fjarlægja allar birgðir þessara tegunda af hillum sin- um og eyðileggja vöruna. Astæöa til þessa er sú, aö ná- kvæm rannsókn hefur leitt i ljós smáar álmagnir i tveim pökk- um af Heinz barnamjöli, sem talið er hugsanlegt að hafi borist I þaö á einhverju framleiöslu- stigi þess. Rannsókn þessa þarf hver einstakur pakki og krukka aö gangast undir, áður en mat- urinn er sendur úr verksmiöun- um til kaupenda og talið er mjög óliklegt aö samskonar galli geti leynst i fleiri pökkum en þeim tveim sem fundust. Ekki er vit- aö um neitt tjón, sem hlotist hef- ur af þessu, en i samræmi viö öryggisreglur verksmiöjanna eru allar markaðsbirgðir af Heinz barnamjöli innkallaöar, á kostnaö verksmiðjanna. I tilkynningu verksmiöjanna er tekiö fram aö ofangreint mál snerti á engan hátt aöra fram- leiöslu Heinz og sé ekki tengd hinum venjulega Heinz barna- mat, heldur aðeins þessum fjór- um tegundum af þurri mjöl- vöruframleiöslu. MYNDLISTARMENN SETIA KIARVALSSTADI I DANN ,,Ég hlýt, sem formaður sýningarráös Kjarvalsstaöa aö harma þessa ákvörðun Félags islenskra myndlistarmanna”, sagöi Olafur B. Thors, borgar- fulltrúi, þegar Alþýðublaöiö spuröi hann hver afstaöa hans væri gagnvart samþykkt þeirri sem F.I.M. hefur gert, vegna þeirrar ráðstöfunar borgarráös, aö láta sýningin á verkum Kjar vals vlkja fyrir sýningu á verkum Jakobs Hafstein. ólafur sagöi enn fremur: ,,Ég tel persónulega aö samþykktin byggi á of mikilli viökvæmni af þeirra hálfu, og að þegar striös- móöurinn rennur af þeim, þá veröi hægt aö setjast viö samningaborð og ræöa málin frekar”. „F.I.M. mun hvetja alla félagsmenn sina, svo og alla félaga i Bandalagi islenskra listamanna aö sniöganga Kjar- valsstaöi, sýna þar ekki, veita enga listræna aöstoö meöan málum er skipað sem raun ber vitni” segir i ályktun, sem sam- þykkt var einróma á fundi F.I.M. þann sextánda janúar siöastliöinn. Hjörleifur Sigurösson, formaöur F.l.M. sagöi eftir- farandi á blaðamannafundi i gær. ,,Þaö er ekki okkar vilji, aö þessar deilur hafa risið upp, þaö var borgarráö sem hrinti þeim af staö, meö þeirri ákvöröun sinni, aö taka niður sýningu á verkum Kjarvals, og setja upp þar i staöinn sýningu Jakobs Hafstein. Viö teljum aö grund- völlur fyrir okkar samstarfi sé brostinn, hann var ekki mikill i upphafi, en viö vorum þó reiöu- búnir til þessa samstarfs. Borgarráð kærir sig ekki um neitt gæöamat á verkum þeim sem óskaö er eftir aö fái inni á Kjarvalsstööum, en viö leggjum höfuðáhersluna á þetta gæöa- mat. Þá hefur llka oft veriö talaö um aö viö gerum strangar kröfur, þetta er rangt. Viö gerum lágmarkskröfur. Þá teljum við að ákvöröun borgar- ráðs sé reist á röngum for- sendum, og aö sýningarráö ráöi yfir báðum sölunum. Samkvæmt reglunum heföi átt aö tala viö sýningarráöiö fyrst, en þegar reglurnar eru þeim ekki hagstæöar, þá beita þeir valdi. Við itrekum, að gera veröi lágmarkskröfur gagnvart þvi sem boöiö er upp á i opin- berum sýningarsölum, og aö hér eru hagsmunir listarinnar i veöi.” Þá kom þaö einnig fram, aö enginn annar haföi sótt um aö fá aö sýna á sama tima og Jakob, enda þessi timi almennt talinn slæmur til sýninga. GISLI AFTUR A SVIDID Dauöadans og Fló á skinni veröa nú tekin aftur til sýninga hjá Leikfélagi Reykjavlkur um helgina, en þessi verk hafa legiö niöri i hálfan mánuö vegna veikinda Gisla Halldórssonar, sem fer meö aöalhlutverk i báöum verkunum. Flóin veröur sýnd á föstu- daginn og er þaö 238. sýning á þessum mikla hláturleik, sem um 55 þúsund manns er búið aö sjá, eöa fleiri en sótt hafa nokkra sýningu hér á landi. Dauöadans veröur sýndur I áttunda sinn. Uppselt var á báðar þessar sýningar þegar aflýst var og flestir leikhúsgest- anna hafa beöiö meö miöana sina siöan, en þeir munu gilda á sýningarnar um helgina. Orari mannfjölgun hér á árinu 1973 „íslendingum fjölgaði um 1.46% frá árinu 1973 til 1974, eöa um 3102 einstaklinga.” Þetta kemur fram i skýrslu frá Hag- stofu tslands sem hefur inni aö halda bráöabirgöatölur mann- fjöldans þann 1. des. 1974. I skýrslunni kemur enn fremur fram, aö þetta er nokkuð meiri fjölgun en áriö áöur, en þá var hliöstæö fólksfjölgun 1.29%. A öllu landinu eru þvi nú 109.276 karlar, 106, 896 konur, eða alls 216,172 manns. Konurnar eru ennþá i minnihluta, þaö vantar 2.380 konur til þess aö konur verði jafn margar og karlmenn. 1 Reykjavik búa nú alls 84,642 manns, i Kópavogi 11.941 ibúar, Hafnarfj. er með 11.394 ibúa og Akureyri með 11.646 ibúa. 1 kaupstööum utan Reykjavikur búa alls 69,894 manns. I sýslum búa svo alls 69,894 manns og óstaösettir eru 57 manns. Þá hlutu kaupstaðaréttindi á árinu 1974, eftirfarandi bæir: Grinda- vik, Seltjarnarnes, Bolungar- vik, Dalvik og Eskifjörður. Þeir hreppar sem hafa færri en 50 ibúa eru alls 14, en 7 mannfæstu eru: Múlahreppur, 22 ibúar, Selvogshreppur meö 25 ibúa, Fjallahreppur meö 25 ibúa, Ketildalahreppur meö 30ibúa, Klofningshreppur með 32 ibúa, og Nauteyrar- og Fellshreppur með 38 ibúa hvor. Mannfæsta byggð er þvi Múlahreppur meö 22 ibúa, en sú mannflesta Reykjavik meö 84,642 Ibúa. fyrir mörgum árum, en aldrei ftrekað þá umsókn eöa á ann- an hátt sýnt aö þaö felldi sig ekki viö þá afgreiöslu sem hún fékk. Skáksambandiö kvaö Hermann aldrei hafa sótt um aðild að tþróttasambandi ts- lands. Upplýsingar þær sem leiddu til veitingar kaktusins i þetta sinn, voru haföar eftir Hjalta Eliassyni, i frétt fyrr i vik- unni. Ekki leggur blaöiö dóm á hvorar upplýsingarnar eru réttar, en ef Hermann Guömundsson fer meö rétt mál, drögum við að sjálfsögöu orðuveitinguna til baka og veitum Hjalta Eliassyni kakt- usinn fyrir frjálslega meöferö staöreynda. Hjalti getur þá vitjað kaktusins á ritstjórnar- skrifstofu Alþýöublaðsins viö hentugleika. Aö öörum kosti stendur veitingin eins og hún var birt. Nvr útibús- stióri á Akurevri A fundi bankaráðs Lands banka Islands þann 24. janúai s.l. var fallistá ósk Jóns G. Sól nes, útibússtjóra á Akureyri um aö hann fengi leyfi frá störfum i bankanum frá 1 febrúar n.k. Jafnframt var Halldór Helgason, skrifstofustjóri út- búsins, settur útibússtjóri Landsbankans á Akureyri i fjarveru Jóns G. Sólnes. Félagsvist Félagsvist Félagsvist í Iðnó n.k. laugardag (1. febrúar) kl. 2 e.h. stundvislega. GÓÐ VERÐLAUN. SKEMMTINEFNDIN. Alþýðuflokksfólk Akranesi Vígsluhátíð og Þorrablót Alþýðuflokksfélögin á Akranesi halda sameiginlega vigsluhátið ogþorrablót, laugardaginn 1. febrúar, i Félagsheimilinu Röst kl. 20.00 Skemmtiatriði og dans Þátttaka tilkynnist fyrir hádegi á föstudag 31. janúar, i sima 1285 — 2268 — eða 1306. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórnirnar. Fimmtudagur 30. janúar 1975. e

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.