Alþýðublaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 12
alþýðu n M Plasl.os lif plastpokaverksmioja Símar 82639-826S5 Vatnogörfcum 6 Box 4064 — Reykjavík KÓPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 SENDIBIL ASTÖOIN Hf ÞORRABLOT i FULLUM GANGI Agúst H. Pétursson, Patreks- firði. Hér er snjóþyngra nú, en ég minnist nokkurn tima áður, þó það teljist samt létt miðað við marga aðra staði eftir fréttum að dæma. Veðráttan var mjög erfið allt fram á siðustu helgi. Gæftir hafa verið stirðar, en afli nokkuð sæmilegur, þegar gefið hefur. Héðan eru gerðir út sjö bátar á lfnu og einn á net. Auk þess er einn bátur héðan á loðnu. Atvinnuástand er hér gott. Við höfum meira að segja flutt inn fólk til starfa i frystihúsunum. Hjá Skildi h/f hafa starfað i eitt ár 10 Astraliubúar, raunar ekki alltaf þeir sömu. Til Hraðfrysti- húss Patreksfjarðar komu um áramótin átta Astraliubúar til viðbótar til starfa. Héðan er reynt að halda opn- um vegi um Hálfdán til Tálkna- fjarðar og Blldudals i tengslum við flug Flugfélagsins hingað og um Kleifarheiði til Barða- strandar vegna mjólkurflutn- inga, en alltaf lokast þó af og til. Leikfélag Patreksfjarðar hélt „Daviðskvöld” fyrir nokkru sið- an. bar voru kynnt verk Daviðs Stefánssonar frá Fagraskógi. betta er I fyrsta sinn, sem þann- ig kynning fer fram hér. Hingað til hefur leikfélagið einbeitt sér að leiksýningum. Fór samkoma þessi mjög vel fram. bá hélt kirkjukórinn tónleika. Kórinn söng og stjórnandi kórs- ins Jón Ólafur Sigurðsson lék einleiksverk á orgel. bá eru hin árlegu borrablót komin i gang. Um siðustu helgi var haldið eitt, að ég held við al- menna ánægju. Gestur borsteinsson, Sauðár- króki. begar aðalhriðin var hér, stóð beint af sjónum, þannig að ekki náði að skafa að. bvi er tiltölu- lega litill snjór hér i bænum, en þvl meiri I sveitunum. Héðan er illfært austur fyrir og ófært þar út, en fært er i Varmahlið og á- fram til Reykjavikur. Framhér- aðið er að mestu fært, en öxna- dalsheiði er ófær og verður ekki rudd fyrr en hlánar, eftir þvi sem vegagerðarmenn segja. bar eru snjóþyngslin svo mikil. Allir flutningar hafa verið hér erfiðir. t gær komu menn nokkr- ir saman á dráttarvélum með mjólk úr Hjaltadal og frá Hofs- ósi kom bátur með mjólk úr Fljótum og þar um kring. Lionsklúbburinn og Rauða- krossdeildin hafa beitt sér fyrir kaupum á snjóbil með fjársöfn- unum og stuðningi opinberra aðila. Hann fór i dag frá Gauta- borg með skipi. Snjóbill þessi verður væntanlega afhentur Slysavarnadeildinni Skagfirð- ingasveit til eignar og reksturs. Héðan eru gerðir út þrir skut- togarar. Afli þeirra hefur verið sæmilegur, þannig að hér hefur alltaf verið einhver atvinna við fiskverkun, en tæpast nóg. Minni bátarnir stunda dragnót á sumrin, en eru yfirleitt ekki að yfir veturinn. borrablót eru hafin frammi i sveit, og nú I borrabyrjun er flensa farin að stinga sér niður. SPJALLAÐ VIÐ FRÉTTARITARA ÚTI Á LANDI Guðmundur Vésteinsson, Akra- nesi. Hér er atvinnuástand ágætt. Raunar hefur fiskiri verið klént hjá þeim bátum, sem gerðir eru út á linu, en togararnir hafa fiskað ágætlega og bjargað miklu I haust og vetur. Hefðu þeir ekki komið til, væri ástand atvinnulifsins mun verra. Hins vegar á þessi útgerð i rekstrar- erfiöleikum, þvi þær ráðstafan- ir, sem koma áttu i kjölfar gengisfellingarinnar i haust, eru ekki komnar, og ber sjávar- útvegsráðherra fyrir sig skorti á skýrslum. Við vorum seinni fyrir en flestir að fá þessi skip. bað fyrra kom fyrir ári siðan, en nú er svo komið að þegar Ver kem- ur inn um eða eftir helgina, þá gætí hann stöðvast. Linubátarnir eru ekki farnir aðbúastánet ennþá. Einir átta bátar eru héðan á loðnu. Framkvæmdum við ferju- bryggju fyrir Akraborgina er langt komið hér á Akranesi og lýkur væntanlega með vorinu. Ég hef trú á þvi að lausn fáist i Reykjavik þannig að skipið nýt- ist eins og til er stofnað, þegar við erum búnir að koma okkar hluta i gott lag. ■* Hér hefur verið ákveðið að halda áfram jarðborunum eftir heitu vatni á Leirá. Við vonumst til að fá gufubor rikisins og Reykjavikurborgar þangað seinnipart vetrar eða með vor- inu. bá á að bora eina til tvær holur til að fá úr þvi skorið, hvort þar sé það mikill jarðhiti að grundvöllur sé tii að nota hann til upphitunar á Akranesi. Verði árangur neikvæður er al- mennt álitið hér, að við munum ráðast i nýtingu Deildartungu- hvers, ásamt Borgnesingum. Sú ráðstöfun yrði mun dýrari. Frá Akranesi að Deildartungu eru rúmlega 60 kilómetrar, en að- eins 18—20 km héðan að Leirá. A móti kemur þó borkostnaður á Leirá sem er mikill og það, að Borgnesingar myndu lika nýta um 30 km af lögninni frá Deildartungu. Landsmót ungmennafélag- anna verður haldið hér á Akra- nesi á næsta sumri og er undir- búningur undir það þegar haf- inn. Framkvæmdir eru i fullum gangi við Iþróttavöllinn til að bæta þar aðstöðuna, leggja hlaupabrautir gera bilastæði og fleira. bá verður gert átak við iþróttahúsið nýja og hefur verið tryggð veruleg fjárveiting á fjárlögum þessa árs I þá fram- kvæmd. bvi lýkur þó ekki á ár- inu, en ætlunin er að nota alla aöstöðu þar á landsmótinu. bá eru hér þorrablót i stórum stil. Jafnvel þrjú til fjögur hverja helgi. PIMM á förnum vegi örn Clausen, hæstaréttar- lögmaður:Ekkinóg. Ef ég heföi nægan tima, færi ég aldrei i bil. Billinn er ill nauðsyn, en rösk ganga er einhver besta hreyfing, sem maður fær. Stefanla Scheving Thorsteinsson: Já, þegar ég get og veðrið er gott. Annars syndi ég talsvert, en að visu ekki nógu oft. Haukur óskarsson, rakara- meistari: Um hverja helgi. Alltaf rétt fyrir utan bæinn. 1 rigningu gengur maður fjörur. beir segja, að þetta lengi lifið og geri mann hamingjusaman. Stundarðu gönguferðir? Kjartan Bergmann Guöjónsson, skjaiavörður Alþingis: Ekki beiniinis, en ég á engan bil, og geng yfirleitt allt, sem ég þarf að fara. bá geng ég mishratt, allt frá þvi að ganga hægt og að hlaupa við fót. Jakob Hafstein, forstjóri: Eins mikið og ég get með blýant og blað i hönd. Með kveðju til menningarvitanna. J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.