Alþýðublaðið - 15.03.1975, Qupperneq 1
(H)RÓS
I
HNAPPA-
GATIÐ
---- BAK
ISLENSK OG ERLEND
FYRIRTÆKI í HARÐRI
SAMKEPPNI UM VERK-
EFNI FYRIR VERKA-
MANNABLJSTAÐINA
alþýöu
LAUGARDAGUR
15. mars 1975 — 63. tbl. 56. árg.
I gær voru opnuð tilboð
i innréttingar i 1. áfanga
Verkamannabústaðanna
i Seljahverfi i Breiðholti,
samtals 380 ibúðir i fjöl-
býlishúsum.
„Eg er mjög ánægður
með þessi tilboð”, sagði
Eyjólfur K. Sigurjónsson,
stjórnarformaður bygg-
ingarfélagsins, ,,og tel, að
við eigum þess kost að
velja vandaða fram-
leiðslu á hagstæðu verði,
kaupendum til góðs.”
Ot hafði verið boðin
smiði innréttinga og
skápa þar með talið i eld-
hús, allar hurðir, bæði úti
og innihurðir, stigahand-
rið, teppi og dúka i þessar
380 ibúðir, Eyjólfur
kvaðst vænta þess, að
fyrstu ibúðirnar gætu
orðið tilbúnar i haust.
,,Ég er ekki hvað sist á-
ánægður yfir þvi, að is-
lensku fyrirtækin, sem
gerðu tilboð, standast vel
samkeppnina við erlend
fyrirtæki, sem einnig
komu tilboð frá, meðal
annars frá Noregi”,
sagöi Eyjólfur. Hann
sagði, að tilboð i þessi
verk hefðu borist frá nær
öllum helstu fyrirtækjum
á þeim sviðum, sem út-
boðið tók til, bæði hér i
Reykjavik og nágrenni,
Akureyri, Selfossi,
Hveragerði og Vik i Mýr-
dal.
„Við erum ekki búnir
að reikna tilboðin út end-
anlega og er þvi ekki hægt
aö nefna neinar tölur, en
óhætt er að segja, að
samkeppnin er hörð, og
ekki neinn krepputón að
heyra i tilboðsgjöfum”,
sagði Eyjólfur að lokum.
FELAGSMALA-
RÁÐHERRA VILL
HÆKKA LÁN TIL
KAUPA Á ELDRI
ÍBÚÐUNUM
„Það er og hefur ver-
ið til umræðu i ráðu-
neytinu, að hækka
framlag það sem veitt
hefur verið til lána
vegna kaupa á eldri
ibúöum. Þetta hefur
meðal annars verið rætt
ýtarlega við Húsnæðis-
málastjórn og stefnt er
aö þvi að hækka heild-
arupphæðina, sem veitt
er til slikra lána all
verulega.” sagði Gunn-
ar Thoroddsen, félags-
málaráðherra, i viðtali
við Alþýðublaðið i gær.
„Heimild sú sem nú
er i gildi”, sagði ráð-
herra ennfremur,
„hljóðar upp á 80 millj-
ónir króna hámarks-
framlag, sem er of litið.
Eg geri ráð fyrir þvi að
það verði hækkað og að
lánin til kaupa á ein-
stökum ibúðum, hækki
þá einnig. Hvort þau
nálgast það að nema
sömu upphæð og lán til
kaupa á nýjum ibúðum,
get ég ekki sagt um að
svo stöddu.”
„0 jamm. Þetta hefst
allt með þolinmæðinni.
Það er heldur ekki
eins og skipiö komist
eitt eða annað. Ekki
á meðan tryggilrga
er gengið frá
landfestum”.
Ljósmyndari
Alþýðublaðsins,
Hallur.
Bergsprungur ganga á misvíxl
„Jarðskjálftarnir úti
fyrir Eyjafirði virðast
mikið fremur stafa frá
þvi að brúnir bergs-
A íslandi er meðalfjöldi dauðaslysa I umferðinni,
miðað við 100.000.000 ekna kilómetra, lægstur af 13
löndum, sem tekin eru til samanburðar i yfirliti
International Road Federation, sem birt er i nýút-
komnu ársriti Umferðarráðs, „Umferö ’74”. Á ís-
landi er meðalfjöldi dauöaslysa 3,2, miðað við, að
fjöldinn er 3.3 i Bandarikjunum, en 19 i Júgóslaviu
og 71 I Sambiu, þar sem tiönin er mest, miðaö við
fyrrgreindar aðstæður.
Næst i röðinni, á eftir Islandi og Bandarikjunum,
koma England með 3,8 slys, þá Kanada með 4,2,
Nýja Sjáland með 4,4. Noregur meö 5, Danmörk
með 5, Astralía með 5.8, Finnland meö 6, Holland
með 7, Þýskaland með 7, og mestur fjöldi umferðar-
slysa á ári, miðað við 100.000.000 ekna kilómetra, er
I Júgóslaviu og Sambiu, eins og fyrr segir.
sprungna, sem eru þar
fyrir utan, séu að ganga á
misvixl, heldur en þær
séu að vikka. Þetta er
mikið jarðskjálftasvæði,
þaö næstmesta á landinu,
og skjálftar þar mikið tið-
ari en fólk verður vart
við. Stærsti skjálftinn að
þessu sinni, var um fimm
stig, en flestir voru af
stærðargráðunni þrjútil
fjögur. Ég tel að búast
megi við áframhaldandi
skjálftum þarna á næst-
unni, en liklega verða það
ekki skálftar semmenn
finna mikið fyrir”, sagði
Sveinbjörn Björnsson,
jarðskjálftafræðingur, i
viðtali við Alþýðublaðið i
gær.
„Stórir jarðskjálftar
koma ekki reglulega hér-
lendis”, sagði Sveinbjörn
ennfremur, ,,en segja má
að meðaltimalengd á
milli þeirra sé um tiu ár.
Siðasti stóri jarðskjálft-
inn var i Borgarfirði i
fyrravor, en hann náði
um sex stigum.
Annars geta
jarðskjálftar haft undar-
lega hluti i för með sér”,
sagði Sveinbjörn að lok-
um, „til dæmis geta skip,
sem eru á siglingu á jarð-
skjálftasvæði, fengiðá sig
höggbylgju, sem er ná-
kvæmlega eins og högg
það sem skip fá þegar þau
taka niðri. Veldur þetta
stundum misskilningi.”
FLUGLEIÐIR
VILJA SELJA
AIR BAHAMA
„Það er ekkert leynd-
armál, að við höfum
staðið i samningaum-
leitunum um sölu á AIR
BAHAMA og höfum
boðið Bahamamönnum
sjálfum meirihluta i
fyrirtækinu”, sagði Sig-
urður Helgason hjá
Flugleiðum á blaða-
mannafundi i gær.
„Bahama er nú orðið
sjálftætt riki og við telj-
um eðlilegt, að þróunin
verði i þessa áttina”,
sagði Sigurður enn-
fremur.
Aðspurður sagði Sig-
uröur, að Flugleiðir
væru tilbúnir til að láta
allt félagið (Air Ba-
hama) af hendi til inn-
lendra aðila, en lét i ljós
efasemdir um, að þeir
treystu sér til að taka
þennan rekstur alger-
lega i sinar hendur.
Þá kom fram, að sú
hugmynd hefur verið til
umræðu, að rekstri Air
Bahama yrði breytt
þannig, að það yrði þri-
skipt eign með jöfnum
eignarhluta Islendinga,
Lúxembourgmanna og
Bahamamanna. —
V rið g etu im spara ð 41 DO mill jónir
rr ieð still lingui ri á olíl ukötlunum
Nemendur Vélskóla is-
lands hafa framkvæmt
könnun, sem bendir til
þess að með árlegum
stiilingum oliukyntra
katla gætum við sparað
um 400 milljónir króna
„Upphaf þessa máls”,
sagöi Ólafur Eiriksson
tæknikennari við Vél-
skóia Islands, við frétta-
menn,” var að við
kennslu I 3. stigi A i Vél-
skólanum, bar á góma, að
skemmtilegt væri að gera
rannsóknir á hitanýtingu
oliukyntra katla, með
vettvangsathugunum.
Tveir nemendur deildar-
innar, sem búsettir voru á
Akranesi, gripu við hug-
myndinni og gerðu nokkr-
ar athuganir, færðu þær
upp i tæknilegt form og
lögðu fram. Sú vinna var
þannig af hendi leyst að
hún hvatti eindregið til
frekara framhalds.
Alls voru athugaðir 56
katlar, hreinsaðir þar
sem þess þurfti og siðan
stilltir á nýjanleik. Fram
kom, að meðaltalsnýtni
katlanna hækkaði um 9-
10%, nákvæmlega 9,2%,
en jjess ber þá að gæta, að
við suma katlana var
engu tauti komið. Ef við,”
hélt ólafur áfram, „ger-
um ráð fyrir, að oliu-
eyösla Akurnesinga sé
u.þ.b. 140 milljónir á ári,
mætti þvi álita að árs-
sparnaður á þessum eina
stað væri 13-14 milljónir.
Sé hinsvegar tekinn
kostnaður á öllu landinu
við húsakyndingar árið
1974 og miðað við núver-
andi oliuverð (20,20 á
lltra) yrði heildarsparn-
aður kr. 376.1 milljón.
Liklegt má þó telja, að
nýtnina mætti auka
meira, eða allt að 12-13%.
Þá yrði heildarsparnaður
um 450 milljónir árlega.
Með þvi að athuganir
okkar og skýrslugerðir
eru unnar i eða jafnfr.
daglegu starfi skólans, og
nemendur ekki æfðir
rannsóknarmenn, bárum
við niðurstöðu okkar und-
ir próf. Valdimar K.
Jónsson, sem kennir
vélaverkfræði við Há-
skólann.” Próf. Valdimar
tjáði sig um þessar rann-
sóknir á eftirfarandi hátt:
„Ég er i öllum meginat-
riðum sammála fram-
lögðum niðurstöðum
rannsóknarmanna. Ég
tel, að þær sýni, að full
þörf er á, að standa öðru-
vfsi að þessum málum en
nú er gert.
Hér er um gifur-
legt hagsmunamál að
ræöa. En ég vil undir-
strika. að kunn^tumenn
verða að framkvæma
stillingarnar.