Alþýðublaðið - 06.04.1975, Síða 5
)RSETI:
vÐURINN í AFRÍKU
eignir þeirra aftur. Elisabetu,
prinsessu af Toro, geröi hann aö
utanrikisráðherra.
Elisabet þakkaði fyrir sig
með lofsyrðum svo sem eins og:
„Amin hershöfðingi er ákveðinn
og hreinskiptinn leiðtogi, sem
vissulega er fulltrúi þjóðar sinn-
ar”. Og hún varði sjónarmið
Amins af glæsileik og atorku á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Gegn gyðingum
Elisabet og Amin snerust ekki
aðeins gegn gyðingum, heldur
einnig gegn kristnum mönnum.
Hann visaði kristnum trúboðum
úr landi, fór i pilagrlmsför til
Mekka og hóf ákaft múhameðs-
trúboð „með undursamlegum
hætti”. Menntaskólakennari i
Uganda hefur sagt, að fjöldi
múhameðstrúarbarna I skólum
landsins hafi vaxið úr 6% i 50% i
valdatið Amins.
Allir ráðherrarnir, sem störf-
uðufyrirhann árið 1971, hafa nú
ýmist verið myrtir eða eru land-
flótta. 1 rikisstjórn hans nú eru
aðeins múhameðstrúarmenn,
og næstum allir eru þeir bæði ó-
læsir og óskrifandi, en þeim
mun meira i náðinni hjá hers-
höfðingjanum.
Hreinn asni
Það er erfitt fyrir Uganda-
menn að fylgjast með öllum
hliðarstökkum Amins. Árið 1972
visaði hann öllu Asiufólki úr
landi, en árið 1975 flytur hann
það beinlinis inn — t.d. bæði frá
Pakistan og Bangla Desh. Þess-
ir innflytjendur — kennarar,
verkfræðingar og annað
menntafólk — býr nú i stórhýs-
um hinna fyrri nýlenduherra og
fá miklu hærri laun, en Uganda-
menn sjálfir.
1 Uganda eru einnig margir
Rússar og Tékkar, sem þjálfa
herinn. Fyrir Sovétrikin er Ug-
anda kjörin bækistöð i Afriku.
Þaðan geta þeir m.a. fylgst með
athöfnum Kinverja i nágranna-
landinu Tansaniu.
En ýmislegt bendir þó til þess,
að Rússar vildu gjarna hafa
traustari mann við stjórnvölinn
i Uganda. í mars á sl. ári gerðu
nokkrar herdeildir uppreisn
undir stjórn manns, sem hlotið
hafði hernaðarmenntun i Sovét-
rikjunum. Uppreisnin mistókst
og liðsforinginn var skotinn.
Afrikumenn eru sammála um
álit sitt á Idi Amin. „Hreinn
i/ gert gyðingum til miska og lát-
mífa". Hafið þér nokkra uppá-
>yggja mér skot- og sprengjuhelt
asni”, segir Kenyatta, forseti
Kenya. „Geðsjúklingur”, segir
Kaunda i Zambiu. En enn hafa
þeir ekki getað fundið neina
„mixtúru” gegn Amin og
hneykslið mikla biður hinum
megin við hornið. I júli I sumar
eiga Einingarsamtök Afriku að
halda fund — i Kampala með
Amin sem gestgjafa.
Utanrlkisráðherra Zambiu
hefur kallað Amin Hitler Afriku
og hefur lýst þvi yfir, að hann
muni ekki sitja fundinn.
Aðrar rikisstjórnir hafa sagt,
að þær muni ekki senda fulltrúa
til fundarins ef eitthvað hafi
komið fyrir Elisabetu Gagaya,
sem Amin hefur sett af sem
utanrikisráðherra. Lengi var
ekkert vitað um örlög hennar,
en nú er sagt að hún hafi sloppið
lifs úr landi. Heppin kona,
Elisabet.
Ýmsar sögur eru um að upp-
reisnir séu I undirbúningi gegn
Idi Amin. Sagt er, að nýlega hafi
a.m.k. tvær skotárásir verið á
hann gerðar — „en kúlurnar
hrökkva af brjósti hans”, segja
aðdáendurnir.
Fram til þessa hefur Amin
sloppið vel frá vitfirringsleik
sinum. En eitt er þó vist. Siðasta
skotinu hefur enn ekki verið
hleypt af i áttina til hans.
Sameiginlegt
takmark
Sú var tíöin að þjóðin átti tilveru sína beinlínis
undir samgöngum við umheiminn. Svo er að
vissu leyti enn í dag.
En jafnvel þótt þjóðin gæti lifað hér sjálfri sér
nóg, þá hefur hún aldrei ætlað sér það hlut-
skipti að búa við einangrun, um það vitnar sagan.
Takmark þjóðarinnar hefur ætíð verið að sækja
allt það besta sem umheimurinn hefur boðið
upp á, og einnig að miðla öðrum því besta sem
hún hefur getað boðið.
Þess vegna markaði tilkoma flugsins þáttaskil í
samgöngumálum íslendinga, þar opnaðist ný
samgönguleið, sem þjóóin fagnaði, og þegar
reglubundið áætlunarflug til útlanda hófst, varð
bylting í samgöngumálunum.
Félög sem byggðu upp flugsamgöngur þjóóarinnar
Það varð hlutverk félaganna beggja að hafa á
hendi forystu í þróun flugmálanna. Hvernig til
hefur tekist skal látið ósagt, en eitt er víst að
aldrei hefur skort á stuðning landsmanna sjálfra.
Nú hafa félögin verið sameinuð.
Það er gert til þess að styrkja þennan þátt
samgöngumála. Með sameiningunni aukas't
möguleikar á þjónustu við landsmenn og
hagræðing í rekstri verður meiri. Þannig þjónar
sameiningin því takmarki sem þjóðin hefur sett
sér að hafa á hverjum tíma öruggar og greiðar
samgöngur til þess að geta átt samskipti við
umheiminn.
Það er sameiginlegt takmark félaganna og
allrar þjóðarinnar.
FLUGFÉLAG LOFTLEIBIR
ISLANDS
0
Sunnudagur 6. apríl 1975.