Alþýðublaðið - 18.04.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 18.04.1975, Blaðsíða 1
NÝ STEFNA í EFNAHAGSMÁLUM ---------* 3. SÍÐA FðSTUDAGUR 18. april 1975 - 89. tbl. 56. árg. SIGALDA: LOFAÐ BÓT OG BETRUN Júgóslavneski verktakinn við Sigöldu, Energoprojekt, hefurnú lofað bót og betrun og heitið að beita á næstunni öll- um tiitækum ráðum til að vinna upp þær tafir, sem hafa orðið á virkjunarframkvæmd- um þar eystra;svo virkjuninni verði iokið á næsta ári, eins og ráð var fyrir gert í útboðs- samningum. Lofa Júgóslavarnir að auka og bæta vélakost sinn, lagfæra stjórn sina með hliðsjón af fenginni reynslu, lagfæra ým-s » BAK » Lögreglan kærir og kærir - en enginn dómur fellur HUNDARNIR ERU STRAND í RÉTTAR- KERFINU ÞAÐ ENDAÐI MEÐ AUGLÝSINGU! loeandi aiök I menntamálaráðunevtinu RAÐHERRANN HUNSAR FULLTRUANA i hádegisútvarpi i gær auglýsti menntamála- ráðuneytið lausar til umsóknar tvær deildar- stjórastöður af fjórum, sem Alþýðuhlaðið gat um i gær. Eru það stöður deildarstjóra i Verk- og tækni- menntunardeild, sem Stefán Ólafur Jónsson, áður fuiltrúi i fræðsludeild var settur i með ráðherra- bréfi 20. júni 1974, þegar sú deild varð til við klofning fræðsludeildar, og deildarstjóra i fræðsludeild, sem enginn hefur gegnt frá þvi dr. Braga Jósefssyni var vikið úr henni 6. desembcr 1974 þar til i fyrrakvöld, að Sigurður Helgason, fulltrúi, var settur i stöðuna. Setning Sigurðar i þessa marg- umræddu stöðu og auglýsing ráðuneytisins i hádegisútvarpi i gær koma i kjölfar logandi átaka, sem átt hafa sér stað i ráðuneyti menntamálanna að undanförnu og Alþýðublaðið skýrði frá i gær. Um miðjan dag i gær barst Al- þýðublaðinu meðfylgjandi bréf frá Vilhjálmi Hjálmarssyni, menntamálaráðherra, en það skal tekið hér fram, að blaðið gerði margitrekaðar tilraunir til að ræða við ráðherrann sjálfan um hin logandi átök i ráðuneytinu i fyrradag. Fékk blaðið þau svör, að menntamálaráðherra gæti þvi miður ekki talað við Alþýðublaðið sökum annrikis. 1 bréfi menntamálaráðherra til Alþýðublaðsins segir: „Ég hef ekki hugsað mér að ráða aðstoð- arráðherra”. Um þetta atriði vill Alþýðublaðið taka fram, að á timabili stóð til, að Alferð Þor- steinsson færi i starf i mennta- málaráðuneytinu. Ekki var talið liklegt, að hann færi i sérhæft starf þar og var reyndar altalað meðalráðuneytisstarfsmanna, að starfsheiti Alfreðs yrði einmitt „aðstoðarráðherra”. Hins vegar —----------------------------------------------------- MFNNTAMALARÁDDKFRA Reykjavík, 17. apríl 1975 VH/þeá. Alþýöublaðiö ritstjóm Skipbolti 19 Bevkjavík. Vinsaalegast birtið eftirfarandi leiðrétt- ingu á viöeigandi stað í blaðinu: Aöalforsíðufrétt Alþýðublaðains í dag er mjög orínjn aukin. Vanti ég að Alþýðublaöiö vilji, eins og aörir góðir "sannleikslcitendur", lafa heldur þaö, sem sannara reynist. Scal ég því upplýsa eftirfarandi: 1. £g hef ekki hugsaö mér aö ráöa aöstoöar- ráöherra. 2. Siguröur Itelgascn, fulltrúi í menntcmnla- rúöuneytinu var í ger settur deildarstjóri fraösÍLrúladeiIdar. 3. Stööur deildarstjóra í fraöalunála- og verk- og taknimemtunardeild hafa veniö auglýstar lausar til unsóknar. Góö kveója, . 'ii fiJ Bréf menntamálaráðherra. munu hafa orðið breytingar á þessu, þegar Alfreð var ráðinn aðstoðarmaður stjórnmálarit- stjóra Timans fyrir rúmum hálf- um mánuði. Sigurður Helgason, fulltrúi i fræðsludeild sagði upp fulltrúa- starfisínumeð bréfi sl. mánudag. Þar mun hann hafa látið i ljós þá skoðun, að „freklega væri fram hjá sér gengið” eftir rúmlega tveggja áratuga starf að mennta- málum, þar af i tólf ár sem skóla- stjóri og á fræðslumálaskrifstof- unni og i fræðsludeild ráðuneytis- ins i fimm ár. Það var ákveðið — áður en upp- sagnarbréf Sigurðar og mótmæli starfsmanna ráðuneytisins bár- ust menntamálaráðherra — að bjóða Kristinu H. Tryggvadóttur deildarstjórastöðuna án auglýs- ingar. Þegar hún vildi vita, hvernig þvi yrði tekið af öðrum starfsmönnum ráðuneytisins, var henni tjáð, að enginn þeirra sækt- ist eftir stöðunni. Féllst hún þá á að taka við henni og átti Kristin að hefja störf i dag, föstudag. Eftir móttöku mótmælaskjals starfsmannanna kallaði ráðherra Sigurð Helgason á sinn fund og bað hann um að draga uppsögn sina til baka. Þeirri málaleitan hafnaði Sigurður. Þá bauð ráð- herra honum starf deildarstjóra. Sigurður vildi hins vegar ekki samþykkja að taka henni, nema hún yrði auglýst strax. Lauk fundi ráðherra og Sigurðar svo, að ekkert var ákveðið um ráðn- ~ BAK » | Lögreglan i Reykjavik hefur til þessa sent að minnsta kosti þrjá tugi kæra vegna brots á banni við hundahaldi til sakadómara, en þaðan hafa enn sem komið er að- eins tvær kærur verið afgreiddar til saksóknara. Lauk öðru málinu með þvi, að saksóknari bauð dómssátt, þar eð hundinum hafði verið lógað, þegar að dómi kom. Hitt málið hefur enn ekki fengið afgreiðslu. „Ef lögreglumenn veröa varir við hunda, hafa þeir fyrirmæli um að hafa tal af eigendum þeirra og benda þeim á, að hundahald sé ó- löglegt”, sagði Sigurjón Sigurðs- son, lögreglustjóri, þegar Alþýðu- blaðið spurðist fyrir um þetta mál hjá honum i gær. „Siðan er mönn- um gefinn frestur i nokkra daga til að losa sig við hundana og haft tal af þeim aftur. Ef þeir hafa þá ekki losað sig við hundana, er málið sent sakadómara til rann- sóknar. Við höfum sent frá okkur nokkra tugi slíkra kæra, og enn fleiri lögregluskýrslur, en lög- reglumennirnir skrifa skýrslu i hvert sinn, sem þeir hafa afskipti af slikum málum. Hins vegar veit ég ekki til þess, að dómur hafi fallið i einu einasta máli, og þvi verðum við að fara að þessu með gætni, þar sem við eigum mjög erfitt um vik að framfylgja lög- um, sem við vitum ekki, hvaða augum dómsvaldið litur á”, sagði lögreglustjóri. Þá sneri Alþýðublaði sér til Halldórs Þorbjörnssonar yfir- sakadómara, og sagði hann, að liklega hefðu ein 30 mál komið til hans, en þau væru ekki flokkuð sérstaklega, svo hann vissi ekki á hvaða stigi þau væru stödd. Þó vissi hann, að tvö mál væru kom- in til saksóknara. „Liklega hafa þessi mál lent einhvernveginn ut- anhjá i öllum þeim sæg mála, sem rannsóknarlögreglan fær til meðferðar, þvi enda þótt hunda- haldsmálið sé i sjálfu sér ekki smámál, þá er hvert einstakt þeirra ekki ýkja mikilvægt”, sagði Halldór. Þá snerum við okkur að lokum til siðasta stigsins i réttarkerfinu — saksóknara rikisins. „Ég veit ekki um fleiri en tvö mál af þessu tagi”, sagði Þórður Björnsson rikissaksóknari við Al- þýðublaðið, „öðru þeirra lauk af okkarhálfu með áminningu, enda eigandinn búinn að láta lóga hundinum, þegar málinu var lók- ið, en hitt málið er ennþá hjá okk- ur. Og auk þess höfum við fengið eina eða tvær kærur frá Húsavik vegna hundahalds, en þá eru upp taldar þær kærur, sem okkur hafa borist”, sagði rikissaksóknari. Utanríkisráðherrann og Ashkenazy OLÍULEITIN: EIGUM VIÐ AÐ VERA MEÐ EÐA EKKI? EINAR ÞAGÐI í MOSKVU Eftir fyrirspurnir Alþýðu- blaðsins i leiðara og fréttuin uin livort utanríkisráðlierra myndi i Moskvuför sinni taka ntál Haviðs Ashkenazys til umræðu við sovésk stjórnvöld hcfur ráð- herra að lokinni för svarað þvi til að það hefði orðið að sam- komulagi að gcfa engar yfirlýs- ingar til fjölmiðla um ntálið. Ráðherra hefur Itvorki neitað né játað að hafa fengið loforð um lausn, en óneitanlega gefið i skyn að máiið sæti nú venjulegri diplómatiskri nteðferð. Alþýöublaðiö hefur nú fregnað eftir heimildum, sem það telur fullkom- lega öruggar, að Einar Ágústsson hafi i Moskvu ALDREI bryddað á þessu máli við sovéska ráða- menn. Þar af leiðandi er það augljóst að viðtöi utanrikisráðherra við Timann og sjónvarpið eru út i hött og eiiiúngis til aö villa um. Væri óskandi að ráðherra gerði nú fyrir fullt og allt grein fyrir stöðu mæalsins. „Sem dæmi um áhugaleysi is- lenskra stjórnvalda má nefna það, að nýlega sótti ég um að fá að sækja ráðstefnu i Brighton, þar sem fjallað var mikið um oliuleit á miklu dýpi, en fékk ekki að fara. Þá má einnig telja til, að fjárveiting fæst ekki til kaupa á ritum um þessi efni, þannig að ekki er nóg með, að leitarheimild- ir séu ekki veittar, heldur er einn- ig forboðið að kynna sér tækni og annað, sem að oliuleit á miklu dýpi lýtur”, sagði Reynir Huga- son, verkfræðingur hjá Rann- sóknarráði rikisins, i viðtali við Alþýðublaðið i gær. „Danir eru i dag að veita leitar- heimildir á svæði, sem ekki er nærri jafn öruggt og landgrunn okkar", sagði Reynir ennfremur, „enda er ljóst að þegar oliulindir á þurru landi fara að tæmast verður olia undan ströndum landa megin orkulind veraldar- innar. Þessu virðast islensk stjórnvöld engan skilning sýna, jafnvel svo litinn að þau virðast óttast þann möguleika að olia kynni að finnast. Ég fæ ekki séð neitt þvi til fyrirstöðu, að við kynnum okkur á hvaða stigi tækni stendur og annað það, sem að oliuvinnslu á hafsbotni lýtur, en það virðast vera allir annmarkar á þvi að fá heimildir til sliks. Þess má svo einnig geta, að þrátt fyrir itrekaðar eftirgrennslanir höfum við ekki fengið nein svör eða skýrslur frá Rússunum, sem leit- uðu oliu hér við land á sinum tima”.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.