Alþýðublaðið - 18.04.1975, Blaðsíða 3
LISTIDN SYNIR IS-
LENSKA NYTJALIST
Fyrsta sýning félagsins List-
iðnar, sem listiðnaðarmenn,
iðnhönnuðir og arkitektar stofn-
uðu i janúar i fyrra, verður opn-
uð i dag i húsakynnum Heimilis-
iðnaðarfélags Islands að
Hafnarstræti 3. Sýningin er köll-
uð „Islensk nytjalist I” og er hin
fyrsta i röð tiu daga sýninga,
sem félagið hyggst efna til á
næstunni, og er hugmyndin, að
vika llði frá þvi einni sýningu
lýkur þar til hin næsta hefst.
Félagið Listiön var stofnað i
þeim tilgangi að stuðla að bættu
listmati og betri framleiðslu-
háttum islensks listiðnaðar,
kynna islenskan listiðnað hér á
landi og erlendis, stuðla að
bættum skilyrðum til menntun-
ar i listiðnaðinum hér á landi og
gæta hagsmuna þeirra, sem
starfa að islenskum listiðnaði.
Þessi sýningaröð er eitt fyrsta
átak félagsins til að kynna is-
lenskan listiðnað, og er það ekki
einungis gert með þvi aö sýna
hluti, heldur er einnig leitast við
að sýna fólki hvernig þeir verða
til, og hvaða vinna liggur á bak-
við gerð þeirra.
Sýnendur að þessu sinni eru
fimm, þau Asa ólafsdóttir,
textilhönnuður, Sigrún Guðjóns-
dóttir listiðnhönnuður, Jens
Guðjónsson gullsmiður, Pétur
Bergholt Lúthersson húsgagna-
arkitekt og Baldvin Björnsson
teiknari, en hann hefur séð að
mestu leyti um uppsetningu
sýningarinnar. Auk verka þessa
listafólks verða á sýningunni
ýmis tæki og áhöld, sem þau
nota við iðn sina, svosem
vefstóli, teikniborð og
keramikofn, auk þess sem
Baldvin sýnir m.a. auglýsingu á
ýmsum stigum, frá þvi fyrsta
hugmyndin er sett á biað, og þar
til hún er fullgerð, tilbúin til
birtingar.
ALDARFJORÐU NGSAFMÆLI
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Nú á sunnudaginn á Þjóðleik-
húsið 25 ára afmæli. Afmælinu
verður fagnað með ýmsu eftir-
minnilegu móti. A sunnudags-
kvöld fer fram boössýning fyrir
starfsfólk leikhússins og áhang-
endur þeirra. Höfundar leikrita,
sem flutt hafa verið verða þar
gestir og eins erlendir leikhús-
stjórar, sem leikhúsið býður sér-
staklega. Dagskráin mun taka
u.þ.b. tvær stundir og nær yfir um
20atriði, þar sem valið verður úr
flutningi leikrita, ópera,dansa og
söngva. GIsli Alfreðsson sér um
uppsetningu og stjórn. Atriði
verða flutt úr þessum verkum:
Pétri Gaut, íslandsklukkunni,
Gullna hliðinu, GIsl, Fiðlaranum
á þakinu, My fair lady, Þrettánda
kvöldi og Ó þetta er indælt stríð.
tir þessum óperum: Þrymskviðu,
„A sunnudaginn kemur,
klukkan fimm verður boð inni I
Krystalssal leikhússins,” sagði
Sveinn Einarsson þjóðleikhús-
stjóri við blaðamenn I gær. „Þá
verður úthlutað úr Menningar-
sjóði Þjóðleikhússins, en hann
er jafngamall leikhúsinu.
Torbjörn Egner, höfundur
Kardemommubæjarins hefur
sýnt þá velvild og rausn að gefa
höfundarlaun sin, sem leikhús-
ráð ráðstafar i samráði við
Rigoletto, Töfraflautunni, Leður-
blökunni og II Trovatore.
Þá verður Kabaréttsýning og
Þjóðleikhúskórinn syngur.
A miðvikudaginn siðastan i
vetri verður flutt á litla sviðinu i
Þjóðleikhúsinu Ljóða- og söngva-
dagskrá, sem nefnist Ung skáld
og æskuljóð. Það verður flutt af 5
leikurum og auk þess aðstoða
þrjú á palli. Þetta er opinber
sýning og er ekki ráðstafað nema
einni, eins og nú stendur. Sýning-
una annast Stefán Baldursson.
Stefán sagði blaðamönnum, að
reyntyrði að hafa sem mesta fjöl
breytni bæði i höfundavali og
ljóöum. Ýmis af ljóðunum yrðu
jafnframt lestri, leikin.
A sumardagskvöldið fyrsta
verður frumsýning á Silfur-
tunglinu eftir Laxness. Leik-
hann. Styrkur úr þeim sjóði
verður tilkynntur af sviði Þjóð-
leikhússins, aölokinni sýningu á
Kardemommubænum þennan
dag, að höfundi viöstöddum.
1 haust mun koma út 25 ára
afmælisrit leikhússins samið af
Vilhjálmi Þ. Gislasyni. Þá er
einnig I ráöi að gefa út hljóm-
plötu meö sýnishornum af flutn-
ingi islenskra söngvara á óperu-
hlutverkum, sem flutt hafa ver-
ið hér i húsinu,” sagöi Þjóöleik-
hússtjóri að lokum.
verkið er talsvert breytt frá fyrri
gerð, jafnvel um persónur. Leik-
stjórn annast Briet Héðinsdóttir
og Sveinn Einarsson, þjóðleik-
hússtjóri. Leikmynd er gerð af
Sigurjóni Jóhannssyni og tónlist
er eftir Jón Nordal. Hún er einnig
breytt að efni og flutningi, enda
eru 20 ár siðan verkið var fyrst
flutt. Með stærstu hlutverk fara:
Lóa.Anna Kr. Arngrímsd. Feilan
Erlingur Gislason, !sa Ingunn
Jensdóttir, Mr. Peacock Róbert
Arnfinnsson, óli Sigmundur Orn
Arngrimsson, Laugi faðir Lóu
Valur Gislason, Róri Guðmundur
Magnússon og aflraunamanninn
Samson Umslopogaas leikur
Hákon Waage.
Alls munu um 35 leikendur
koma fram.
NÝI SÍMINN
OKKAR ER
-----EGNER GAF--
HÖFUNDARLAUNIN í
MENNINGARSJÓÐINN
NÝ STEFNfl í
STJÓRN EFNA-
hagsmAla
I lok ræðu sinnar á Iðnþingi i
gær, gerði formaður Félags isl.
iðnrekenda, Davið Scheving
Thorsteinsson grein fyrir tillög-
um sinum um nýja stefnu i
stjórn efnahagsmála.
Tillögur Daviðs eru þessar:
1. Gengi.
Grundvöllur gengisskráning-
arinnar verður að vera réttur,
þannig, að starfsskilyrði þeirra,
sem flytja út framleiðslu sina,
eða selja hana innanlands i
samkeppni við erlenda fram-
leiðendur, séu sem likust.
Gengisskráningin sjálf á að
miðast við að vel rekin fyrirtæki
I útflutningi séu rekin með
hagnaði og að sem mest jafn-
vægi sé með gjaldeyristekjum
þjóðarinnar og gjaldeyriseyðslu
hennar.
Gæta verður þess að skekkja
aldrei gengisskráninguna með
tilfærslum og afnema i áföng-
um, t.d. á næstu 10 árum, allar
útflutningsuppbætur, hverju
nafni sem þær nefnast.
Taka ber upp auðlindaskatt,
þar sem þeir sem nýta auðiindir
landsins. greiða fyrir afnot
þeirra tii þjóðarinnar.
2. Verðjöfnunarsjóðir
Til þess að draga úr þeim
sveiflum i efnahagskerfinu sem
orsakast af mismunandi afla-
brögðum og verði sjávarafurða,
þarf að beita verðjöfnunarsjóð-
um i mun rikari mæli en hingað
til og gæta þess, að sjóðirnir séu
varðveittir i erlendri mynt og
alls ekki hleypt út i efnahags-
kerfið, fyrr en til þeirra þarf að
gripa til verðbóta.
3. Fjárlög
Afnema þarf öll lög og
ákvæði.sem orsaka sjálfvirkni i
gerð fjárlaga. Upphæð fjárlaga,
þ.e. hve hárri upphæð er hægt
ab veita’ til opinberra fjár-
festinga og svokallaðra sam-
neyslu, svo sem tryggingar-
mála, menntamála, heilbrigðis-
þjónustu o.s.frv. verði ákveðin
með tilliti til efnahagsástands-
ins á hverjum tima.
Aldrei má afgreiða fjárlög
með halla eða skuldasöfnun á
þenslutima. Hætta þarf útgáfu
verðtryggðra spariskirteina
rikissjóðs, til að fjármagna
óarðbærar framkvæmdir.
I. Arðsemi
Arðsemissjónarmið ráði fjár-
festingu i atvinnuvegunum og
lagasetningum þeirra vegna.
5. Tekjuskipting I sjávarútvegi
Breyta þarf tekjuskiptingu i
sjávarútvegi þannig, að hægt
verði að hætta þeim skollaleik,
sem þar er leikinn vegna óraun-
hæfra kjarasamninga.
(i . V c r ð m y n d u n
landbúnaðarafurða.
Breyta þarf verðmyndunar-
kerfi landbúnaðarafurða og
rjúfa tengsl þess við afkomu
annarra atvinnuvega og miða i
þess stað verð þeirra við erlent
markaðsverð búvöru.
7. Niðurgreiðslur
Hætta þarf öllum niður-
greiðslum og lækka söluskatt
um sömu upphæð.
Niðurgreiðslur hafa m.a.
áhrif á neysluvenjur og geta
stöðvað eða skaðað, þróun
nýrra framleiðslugreina i land-
búnaði. Auk þess er óeðlilegt að
nálega enginn viti kostnaðar-
verð þeirra afurða, sem þeir
neyta.
8. Kjarasamningar
Aldrei verði samið um launa-
kjör opinberra starfsmanna og
þeirra sem vinna við bygginga-
starfsemi, samgöngur, verslun,
viðskipti, þjónustuiðnað og
ýmiss konar aðra þjónustu,
nema á grundvelli samninga við
þá, sem starfa við framleiðslu-
atvinnuvegina, þ.e. fiskveiðar,
fiskiðnað og framleiðsluiðnað,
en það eru þeir atvinnuvegir,
sem selja afurðir sinar I beinni
samkeppni við erlenda fram-
Daviö Scheving Thorstcinsson.
leiðendur hérlendis eða er-
lendis.
Tekin verði upp ný kaup-
gjaldsvisitala, sem breytist i
samræmi við raunverulegar
þjóðartekjur.
!). Skattar
Staðgreiðslukerfi skatta verði
tekib upp. Virðisaukaskattur
verði tekinn upp. Afskriftarregl-
um verði breytt þannig, að fé sé
fyrirhendi innan fyrirtækjanna
til endurnýjunar vélakosts að
afskriftartima loknum.
10. Peningar i umferð
Peningamagn i umferð aukist
ekki meira ár frá ári, en sem
nemur vexti þjóðarframleiðslu,
nema beita þurfi aðgerðum i
peningamálum til að örva fram-
leiðsluna.
Lokaorð
Ég veit að hér er hægara um
að tala en i að komast og þeir
harösnúnu hagsmunahópar,
sem mestu ráða hér á íslandi,
bæði innan þings og utan, geta
orðið erfiðir viðureignar. Ég
treysti þó á drengskap og þjóð-
hollustu þeirra manna, sem
stjórna þessum hagsmunahóp-
□ Af Iðnþingi
um, þvi öllum er ljöst, að svona
getur þetta ekki lengur til
gengið.
Við verðum að losna úr þeim
vitahring verðbólgu og gengis-
fellinga, sem við höfum verið i
undanfarin 30 ár. Við verðum að
gera okkur ljóst, að ekki er hægt
að halda uppi fölskum lifskjör-
um hér á landi með skuldasöfn-
un erlendis, þvi einhverntlma
kemur að skuldadögum.
Við verðum lika að gera okkur
grein fyrir þvi að lifskjörin geta
þvi aðeins batnað að fram-
leiðslan aukist og allar aðgerðir
i efnahags og kjaramálum
verða að miðast við þá stað-
reynd.
Fyrir 100 árum bjuggu aðeins
70.000 manns á Islandi en þó
fækkaði þeim verulega á árun-
um milli 1880 og 1890, vegna
fólksflutninga úr landi.
Astæðan var sú, að vegna ein-
hæfs atvinnulifs voru lifskjörin
svo rýr og atvinnumöguleikarn-
ir svo fábrotnir, að fólkið kaus
heldur að leita gæfunnar annars
staðar.
Ég vona að okkur takist að
standa þannig að atvinnuupp-
byggingu landsins, að þessi
gamla saga endurtaki sig ekki.
Til þess að svo verði ekki, verða
atvinnuvegirnir að geta boðið
bömum landsins störf við fjöl-
breyttan atvinnurekstur, sem
gerir kröfur til dugnaðar og
menntunar starfsmanna sinna,
én getur jafnframt boðið þeim
lifskjör eins og best gerast með
öðrum þjóðum.
A tslandi viljum við búa og
hér getur okkur liðið vel, ef við
berum gæfu til að vinna saman
að þeim málum, sem horfa til
heilla fyrir þjóðina alla.
Föstudagur T8. april 1975.
o