Alþýðublaðið - 18.04.1975, Side 2
20 MILUÖNIR í
EINUM VINNING HJA DAS
„Aðalvinningur næsta happdrættisárs
verður þetta fallega einbýlishús hér að Furu-
lundi 9, Garðahreppi,” sagði Baldvin Jónsson
framkvæmdastjóri happdrættis DAS við
blaðamenn sl. föstudag, þegar þeim var sýnt
nýja DAS húsið. „Húsið verður dregið út i 12.
fl. i april 1976 og verður þá sennilega að sölu-
verðmæti 20 millj. kr.” hélt hann áfram.
„Héðan er fagurt útsýni og umsamið er, að
pkki verði byggt fyrir það síðar. Við erum
■ neyddir til að gera nokkrar breytingar á nýja
happdrættisárinu, vegna þess hvað miðaverð
hefur dregist afturúr hjá okkur. bað verður
nú kr. 350 á mánuði.
Ibúðavinningar hækka nú í 2—5 milljónir
hver og bilavinningar i 1/2—1 milljón. bar að
auki eru þrir bilavinningar á 1,7—2,3 milljón-
ir. Svo tökum við upp þá nýjung að hafa 150
utanlandsferðir á 100—250 þús. hverja. Hús-
búnaðarvinningar eru frá 10 þús.—50 þús.”
,,bað er alger nýlunda,” sagði Pétur Sig-
urðsson, form. sjómannadagsráðs við sama
tækifæri, ,,að falli stærsti happdrættisvinn-
ingur á óseldan miða, þá sé hann látinn i
aukavinning á næsta ári, eins og happdrætti
okkar áformar. Væntanlega verður það hús
dregið út í des. n.k. 1 næstu viku hefst útboð á
1. hluta bygginga DAS i Hafnarfirði,” hélt
hann áfram. ,,Við væntum þess að geta opnað
tilboð i það næsta sjómannadag, þ. 1. júni.
Fyrirhuguð eru þrjú hús sem eiginleg elli-
heimili á borð við Hrafnistu nema hið þriðja
á að vera hjúkrunarheimili aðallega eða al-
farið, eftir þvi sem þarfir krefja.
barna á fólk að geta notið lifeyrisáranna
við þá þjónustu, sem best má verða.
Við erum þakklátir fyrir allan stuðning,
sem þjóðin hefur veitt okkur i viðleitni til að
bæta lifi við árin hjá eldra fólki. Menn hafa
skilið þörfina og það kunnum við vel að meta.
betta glæsilega hús, sem hér er til sýnis og
verður um sinn hér eftir, er að minum dómi
hið allra vandaðasta, sem við enn höfum boð-
ið. bað er okkur lika gleðiefni og vegna auka-
vinningsins verður nú vinningshlutfall okkar
65% af útgefnum miðum i stað 60% áður.
Verðmæti vinninga verður kr.
177.165.000,00,” sagði Pétur Sigurðsson að
lokum.
SIÐSUMARSVIÐBURÐUR I
SÝNINGARHÖLLINNI
Sérsýning á minni-bilum, þýsk
„glerkona”, sem notuð er til
kennslu i liffærafræði og innlend
sýning á rafeindatækni verður
meðal nýjunga á stórri vörusýn-
ingu i sýningahöllinni i Laúgardal
dagana 22. ágúst til 7. sept. nk.
betta verður önnur „Alþjóðleg
vörusýning”, sem fyrirtækið
Kaupstefnan — Reykjavik held-
ur, sú fyrri var árið 1971, en sum-
arið 1973 stóð sama fyrirtæki fyrir
stórri heimilissýningu á sama
stað.
bessi sýning verður stærri i
sniðum en hinar fyrri, og verður
sérstakur skáli, þúsund fermetr-
ar að stærð reistur við hlið hallar-
innar, en sá skáli er jafnframt
einn af sýningargripunum, en
hann má reisa og taka niður á
stuttum tima, og er talinn henta
vel við margs konar framkvæmd-
ir og mannvirkjagerð.
Um 75% sýningarsvæðisins
hefur nú verið leigt út og er við-
tæk þátttaka þegar ráðin, eins og
eftirfarandi yfirlit ber vott um:
— Tvær erlendar samsýningar
fyrirtækja frá Italiu og Póllandi.
— Sýningar erlendra fyrir-
tækja frá nágrönnum okkar á
Norðurlöndum og allt til frum-
legra skartgripaframleiðenda i
Nigeriu.
— Heilbrigðissafnið i Dresden
setur uþp sýningu i baksal Sýn-
ingahallarinnar. Hefur hún vakið
athygli viða um lönd fyrir liflega
uppsetningu og meistaralega út-
færðar glereftirmyndir af fólki og
dýrum sem sýna á glöggan hátt
innri starfsemi likamans.
A.m.k. þrjár aðarar sérsýning-
ar verða innandyra:
1. Matvælasýningunni „Borð og
búr” verður tileinkað sérstak
svæði. Innlend og erlend fyrirtæki
munu þar gefa sýningargestum
kost á að sjá og smakka á fram-
leiðslu sinni eða kynna hana á
annan hátt.
2. bá mun án efa vekja athygli
sérsýningin „Rafeindatækni”,
sem fyrirtækið Iðntækni hf.
skipuleggur. Verður hún á sviði
Sýningahallarinnar.
3. Unnið er að undirbúningi sér-
sýningarinnar „Minfdbilar” á 100
ferm svæði i hliðarskála við Sýn-
ingahöllina. bar verður boðin
þátttaka innflytjendum svokall-
aðra ,,mini”bila. bá á trúlega eft-
ir að vekja athygli sýning á svo-
kölluðum „micro”bilum, eða
minnstu „a 1 v ö r u ”b i 1 u m
sem framleiddir hafa verið i
heiminum. Talið er að þeir muni
ryðja sér til rúms sem samgöngu-
tæki m.a. i miðborgarkjörnum,
innan stærri vinnusvæða o.s.frv.
1 tengslum við þessa sérsýn-
ingu er einnig fyrirhuguð sýning á
mótorhjólum og vélsleðum, þar
með talinn islenskur vélsleði, sem
nú er i undirbúningi að hefja
fjöidaframleiðslu á.
Á útisvæði, sem nú verður
stærra en fyrr, verða m.a. sýndar
nokkrar tegundir sumarhúsa, þar
á meðal bjálkahús og hjólhýsi,
einnig leiktæki, bifreiðar, fjöl-
breytilegt úrval vinnuvéla, bygg-
ingareiningar og fleira.
Eins og á fyrri sýningum verð-
ur mikið um að vera á sýning-
unni, svo sem forvitnilegt gesta-
happdrætti, skemmtiatriði, tlsku-
sýningar o.fl. bá er útlit fyrir að
nýjungar 1 veitingum muni vekja
athygli.
Færeyska ferjan
Mikla athygli hefur vakið sá
stórhugur frænda okkar, Fær-
eyinga, að festa kaup á stórri
bilferju, er þeir hyggjast hafa
i förum milli íslands-Færeyja
og Skandinaviu. Hafa Færey-
ingarnir komist að þeirri nið-
urstöðu, að hagkvæmt sé að
ferja þessi komi að Aust-
fjarðahöfnum —annað hvort á
Reyðarfirði eða á Seyðisfirði
— og taki þar þá islenska
ferðalanga, sem vilja fara sjó-
leiðis til Skandinaviu með eða
án bifreiðar sinnar. Hefur
þessi framkvæmdasemi Fær-
eyinga vakið verðskuldað um-
tal og aðdáun tslendinga —
ekki sist þar sem við eigum nú
ekkert farþegaskip sjálfir i
ferðum milli tslands og ann-
arra landa.
Gátum gert
þetta sjálfir
En þótt framkvæmdin sé
Færeyinga vaknaði sams kon-
ar hugmynd þó á tslandi fyrir
all-nokkru. Einn af þingmönn-
um Alþýðuflokksins — Jón Ar-
mann Héðinsson — hefur nú á
nokkrum þingum einmitt flutt
tillögu um, að íslendingar
festu kaup á farþega- og bif-
reiðaflutningaskipi, sem sigldi
milli islands, Færeyja og
Skandinaviu og i tillögu sinni
gerði Jón Arraann Héðinsson
einmitt ráð fyrir því, að
heimahöfn sliks skips yrði á
Austfjörðum. Hafði Jón Ar-
mann m.a. reiknað út sigl-
ingatima og þar með likleg
rekstrarútgjöld i þvi sam-
bandi og komist að þeirri nið-
urstöðu, að þetta fyrirtæki
gæti orðið hagkvæmt miðað
við það, að skip þetta hefði
viðkomu á Austfjörðum, en
ekki i Reykjavik.
Færeyingar fljót-
ari aö átta sig
Þegar þessi tiilaga Jóns Ar-
manns kom fyrst fram á þingi
var henni næsta lítill gaumur
gefinn — hún jafnvel ekki tek-
in nema i meðallagi alvarlega
af þeim aðilum, sem þóttust
sitja uppi ineð alla þekkingu á
slikum málum. En hafi is-
lendingar ekki viljað skilja
hvað I þessari hugmynd fólst,
þá hafa Færeyingar a.m.k.
gert það. Þvi nú hafa þeir
framkvæmt hana — svo til ná-
kvæmlega eftir þeim for-
skriftum, sem Jón Armann
gaf i tillögu sinni. Og sjálfsagt
heföu Færeyingar ekki ráðist I
þetta risafyrirtæki á þeirra
mælikvarða — stórfyrirtæki á
okkar — nema þvi aðeins að
þeir hafa sannfærst um það,
að það væri hagkvæmt.
íslendingar eru oft ákaflega
seinirað hugsa þegar þeim eru
kynntar nýjar hugmyndir. Svo
fór um þetta mál og eins er þvi
farið um þau fleiri.
—SB
Félagslegt
vandamál aldraðra
Almennur borgarafundur 19. april, nk.
Reykjavikurdeild Rauða Kross íslands efnir til almenns borgara-
fundar laugardaginn 19. april, kl. 14.00 i Domus Medica.
Fundarstjóri: Páil S. Pálsson hrl.
Dagskrá:
I. Fundur settur með ávarpi:
Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir, formaður Reykjavikurdeild-
ar R.K.l. 5 min.
II. Framsöguerindi:
1. Þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða: Þór Halldórsson yfirlæknir,
15 min.
2. Félagsleg þjónusta fyrir aldraða: Geirþrúður Hildur Bernhöft,
ellimálafulltrúi, 15 min.
3. Atvinnumál aldraðra: Jón Björnsson sálfræðingur, 15 min.
4. Sjúkrahússþörf aldraðra: Ólafur Ólafsson landlæknir, 15 min.
III. Fyrirspurnir og frjálsar umræður.
IV. Samantekt fundarefnis.
Fundarlok kl. 17.00.
Öllum heimill aðgangur að fundinum.
Stjórn Reykjavikurdeildar
Rauða Kross Islands.
1 Hafnarfjarðar Apótek
”• Afgreiðslutími:
Virka daga ,kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasími 51600
I
%
1
i
fé
I
mEVFILL
Sími 8-55-22.
allan sólarhringinn
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐVERZLAÍKRON
Dunn
í GlflEflDflE
/ími 64200
6
0
Föstudagur 18. apríl 1975.