Alþýðublaðið - 18.04.1975, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 18.04.1975, Qupperneq 5
(Jtgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson Fréttastjóri: Helgi E. Helgason Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir Afgreiðslustjóri: örn Halldórsson Ritstjórn: Siðumúla 11, simi 81866 Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, simar 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi 14900 Prentun: Blaðaprent hf. Verð I lausasölu kr. 40. EINAR STEINÞEGIR Skömmu áður en Einar Ágústsson kom heim frá Sovétrikjunum skýrði Alþýðublaðið frá þvi i forystugrein, að það myndi spyrja hann við heimkomuna hvort hann hefði reynt i viðræðum sinum við helstu ráðamenn Sovétrikjanna að fá þá til þess að falla frá banninu, sem þeir hafa sett við þvi, að David Ashkenazy, faðir Vladim- irs Ashkenazy, fái að heimsækja son sinn og fjölskyldu hans á íslandi — og hverjar undir- tektirnar hefðu orðið. Þetta gerði Alþýðublaðið sl. þriðjudag og birti svar Einars Ágústssonar daginn eftir, miðviku- daginn 16. april sl. Þegar Einar Ágústsson var spurður að þvi, hvort honum hefði tekist að fá ráðamenn Sovét- rikjanna til þess að breyta um skoðun i þessu efni svaraði Einar orðrétt: ,,Ég neita að svara spurningum þar að lútandi”. Þegar Einar var þá beðinn að svara þeirri einföldu spurningu, hvort hann hefði rætt málið við sovéska vald- hafa, svaraði hann: ,,Ég neita einnig að svara til um það, hvort ég hafi rætt þetta við þá sovésku valdamenn, sem ég hitti”. M.ö.o.: Einar Ágústsson neitar ekki aðeins að upplýsa islenskan almenning um, hvort hann hafi einhver áhrif getað haft á þá tignarmenn Sovétrikjanna, sem hann átti fund með ytra, i málum þeirra Ashkenazyfeðga. Hann neitar einnig að svara þeirri spurningu, hvort hann hafi yfirleitt minnst á málið! Hefur hann kannski gleymt þvi að sinna liðveislubón Vladimirs Ashkenazy — mannsins, sem valdi sér ísland að föðurlandi og hefur gert meira fyr- ir lista- og menningarlif i þessu landi en svo, að það verði nokkurn tima fullþakkað? Þeirri ein- földu spurningu fæst alls ekki svarað. Hér virð- ist vera um að ræða eitt af meiriháttar leyndar- málum i islenskum utanrikismálum þótt Al- þýðublaðið fái ekki séð hvað mæli á móti þvi, að Einar Ágústsson svari annað hvort játandi eða neitandi spurningunum, hvort hann hafi minnst á mál þeirra Ashkenazyfeðga i Bjarmalandsför sinni. Slikt einsatkvæðisorð frá utanrikisráð- herranum islenska getur vart orðið til þess að hafa afgerandi áhrif á þróun heimsmálanna hvað þá heldur orðið til þess að torvelda baráttu Vladimirs Ashkenazy fyrir þvi að fá að lita föður sinn, eins og Einar Ágústsson lætur i skina. SYKURSAGAN Alþýðublaðið skýrði frá þvi i gær, að sykur- verð á heimsmarkaði hefði nú lækkað svo, að verð á sykri ætti að geta verið allt frá 245 kr. á kiló niður i 170 krónur á kiló i búðum á Islandi. Algengasta sykurverðið er hins vegar 417 krón- ur á kiló. Verðlækkunin á heimsmarkaðnum virðist þvi enn ekki hafa náð til þorra islenskra neytenda, þótt nokkrar verslanir hafi nú upp á siðkastið tekið sig saman, flutt inn sykur á lækk- aða verðinu og bjóði hann til sölu við verði, sem er 172 kr. lægra á kiló en það sykurverð, sem gilt hefur og gildir enn i flestum verslunum. Þessi tiðindi hljóta að vekja islenska neytend- ur til umhugsunar. Verði verðhækkanir á heimsmarkaðsverði ákveðinna vörutegunda er verðlagið á Islandi fljótt að taka sveifluna upp á við. En fari verðið ytra lækkandi virðast þær fregnir berast ákaflega seint og illa til þeirra, sem sjá um að koma viðkomandi vörutegund á islenska markaðinn. Sykursagan er einmitt lýsandi dæmi um slika verslunarhætti. lalþýðuj HVER ER SEKUR OG HVER EKKI? Hörmungarfólksins i Indo-Kina hljóta að vekja fólk til umhugsun- ar um tilgang þeirra endalausu mannfórna, sem við vesælir jarð- arbúar búum við. Það er sjálfsagt eigingirni að segja, að sem betur fer þekkjum við islendingar ekki slikt nema af afspurn. Við fáum aðeins að sjá sýnishorn af þessum voðaatburðum i sjónvarpi. og les- um um þjáningar og dauða þessa fólks i blöðum. Og smátt og smátt eru Velvakandi og bræður hans að opna augu okkar fyrir þvi, að þaðeru kommúnistar, sem drepa mest. Og i einlægni er þeirri spumingu varpað til Vietnam nefndarinnar, hvort ekki sé sama hver drepur hvern. Þeirri spurn- ingu hefðu Velvakandi og bræður hans átt að spyrja á Napalm regntimabilinu mikla, á árunum kringum 1970. Þá þjónaði dauði þúsunda barna og kvenna þeim göfuga tilgangi, að frelsa kúgaða þjóð undan oki kommúnismans. „Eigi skal höggva” heyrðist hér eitt sinn sagt vesældarlega. En þó var höggvið. Hið sama má lesa úr andlitum þess fólks sem sjá má á myndum, sem berast frá S.A. Asiu. En það er höggvið hvað eftir annað. Stór- veldin setja sina hagsmuni ofar öllu, og láta sig engu skipta þá dreyrugu slóð, er þau skilja eftir sig. Ekkert fær haggað samvisku þeirra manna, sem ábyrgð bera á þeim viðurstyggilegu útrýming- araðferðum, sem stundaðar eru þar austurfrá. Hörmungum þessa fólks virðist seint ætla að linna og kaldhæðnislegt er til þess að hugsa, að allt þetta blóðbað skuli hafa hafist i nafni frelsis. Ibúar þessara landa hljóta að hugsa hlýlega til þeirra, sem lagt hafa kapp á að varðveita frelsi þeirra. Sérstaklega það unga fólk er hef- ur ekki kynnst öðru en dauða og limlestingu landa sinna. Margir hafa sjálfsagt orðið dol- fallnir yfir þvi siðleysi og þvi of- leikna hlutverki sem forseti Bandarikjanna lék, i auglýsinga- myndunum um mannúðarstefnu Bandarikjanna. Að forseti þess rikis sem ljótustu örin hefur sett á þessi hrjáðu landsvæði skuli láta mynda sig með barn i fanginu, sem vopn hans eigin þjóðar hafa gert munaðarlaust, er undravert virðingaleysi við almennt sið- gæði. Stoltir megum við Islendingar vera að hafa vopnað lið þessarar drenglunduðu þjóðar i landi okk- ar. Það er okkur allavega mikil huggun að vita til þess.að drög- umst við inn i ófrið og verði okkur kálað, er börnum okkar komið vel fyrir undir persónulegri umsjón Bandarikjaforseta. Við skulum bara vona, að sá ágæti maður sé jafn umhyggjusamur þó mynda- Vélar séu hvergi nærri. Það er engum vafa undirorpið, að storveldin láta sér aldrei nægja litla fingurinn. Smáþjóðir þær er á einhvern hátt ánetjast þeim eru notaðar sem taflmenn i þeirri skák, sem engu máli skiptir hver vinnur. Sigurinn, hvoru megin sem hann lenti, yrði það dýru verði keyptur, að liklegast yrði engin öfundsverður af þvi að lifa hildarleikinn af. Þá ályktun má draga af þeirri hryllilegu staðreynd, að enn eru að fæðast vansköpuð börn i Japan, þrjátiu árum eftir að helsprengjan féll þar. Og allir vita, að sú sprengja er barnaleikfang miðað við tól þau, er nú standa reiðubúin til að flytja öllum þjóðum heims boð- skap sinn. Margar eru þær raddir sem telja okkur ekki koma við þeir at- burðir er gerast fjarri okkar heimilum. Okkur væri nær að beina kröftunum að vandamálun- um hér heima. Það er sjálfsagt auðvelt að láta sér slik orð um munn fara, þegar við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þvi hvort við fáum satt hungur okkar næsta dag. Og þegar við getum sofnað róleg að kvöldi, án þess að eiga á hættu að vera sprengd i tætlur i loftárás eða álika frelsisverjandi aðgerð. Það er örugglega engin leið að gera sér i hugarlund lif það, sem striðshrjáðir vesalingar búa við nema hafa reynt það sjalfur. Það getur heldur enginn imyndað sér þá miklu hjálp, er þetta fólk þarfnast, nema hafa kynnt sér það af eigin raun. Og sú hjálp kemur aðeins frá þeim, er lausir eru við áþján styrjalda og hung- urs. Þeir einir eru aflögufærir um þá hjálp, sem nauðsynleg er. Og sú hjálp getur aðeins orðið að raunverulegu gagni, að hún komi frá hópi þjóða er aðstoða vegna mannúðar, en ekki vegna þess að á móti komi hernaðarleg aðstaða á viðkomandi landi. Þvi verður það að teljast skylda okkar Islendinga aðskipa okkur á bekk með löndum þriðja heims- ins. Með þvi stuðlum við að þeirri þróun, að sjálfskipuð áhrifasvæði stórveldanna verði á bak brotin. Meðan Island er i hernaðar- bandalagi og hefur erlenda her-' stöð i landinu, hlýtur það að telj- ast viðurkenning þjóðarinnar á þvi, að strið og kúgun þjóða eigi tilverurétt. ,,Það getur heldur enginn Imyndað sér þá miklu hjálp, sem þetta fólk þarfnast....” Föstudagur 18. apríl 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.