Alþýðublaðið - 07.05.1975, Síða 1

Alþýðublaðið - 07.05.1975, Síða 1
HÁMARKSHRAÐI í HAFNARFIRÐI 18 KM/KLST - BAKSÍÐA alþýðul lilRtiTril MIDVIKUDÁGÚR 7. maí 1975 - 103. tbl. 56. árg. I VILMUNDUR VELDUR FJAÐRAFOKI I KERFINU Erindi Vilmundar Gylfasonar, menntaskólakennara, Um daginn og veginn, sem hann flutti i hljóð- varpi s.l. mánudagskvöld, virðist hafa valdið taisverðu fjaðrafoki. Erindi Vilmundar og reyndar fieiri erindi, sem flutt hafa verið undir sama dagskráriið að und- anförnu, voru til umræðu á fundi útvarpsráðs f gær. Vilmundar Gylfasonar, sagði Ell- ert: ,,Já, ég hef orðið var við mjög ákveðin viðbrögð vegna þessa er- indis. Menn hafa hringt 1 mig og kvartað yfir, að þátturinn væri notaður tii að setja fram órök- studdar dylgjur um nafngreinda einstaklinga”. „Já, viö gerðum ályktun á fundinum i dag, þar sem við hÖrmum, að þátturinn sé notaður til að setja fram órökstuddar dylgjur um nafngreinda einstak- linga”, sagði Ellert B. Schram, varaformaður útvarpsráðs, sem stjórnaði fundi ráðsins I gær, er Alþýðublaðið hafði tal af Ellert i gærkvöldi. „Enginn maöur er nafngreind- ur I þessari ályktun ráðsins”, sagði Ellert, „og enginn hefur verið settur I bann”. Aðspurður, hvort hann eða aðr- ir útvarpsráösmenn hefðu orðið varir við viðbrögð vegna erindis Alþýðublaðinu er kunnugt um, aö á fundinum var tekið fram, að Matthias A. Mathiesen, fjármála- ráðherra, og Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis, hafi ver- ið meðal þeirra, sem ekki likaði erindi Vilmundar. Þá er Aiþýðubiaðinu tjáð, að Vilhjálmur Hjálmarsson. menntamálaráðherra, hafi f gær óskað eftir því við útvarpsstjóra, að hann fengi I hendur útskrift ekki aðeins af fyrrnefndu erindi Viimundar Gylfasonar, heldur og á hverju orði, sem hann hefur lát- ið frá sér fara I sjónvarpsþættin- um Kastljós á síöastliðnum vetri. VARAFULLTRUAR AFGREIDDU KROFLUMALIÐ SOLNES SVIKINN AF FLOKKSBRÆÐRUM „Kröfumálið er prófsteinn á byggðastefnuna svonefndu, sem allir tala nú um. Heyrst hefur, að verktakafyrirtæki i Reykjavik, Miðfell h.f. eigi að annast virkj- unarframkvæmdirnar við Kröflu og margt bendir til þess, að samningar við Miðfell h.f. verði undirritaðir bráðlega”, sagði Tómas Ingi Olrich, varabæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, i umræðum á fundi bæjarstjórnarinnar i gær um til- lögu, sem einn aðalfulltrúi og fjórir varafulltrúar Sjálfstæðis- flokksins fluttu á fundinum um virkjunarframkvæmdirnar við Kröflu. Svq vildi til á bæjarstjórnar- fundinum i gær, að af fimm full- trúum Sjálfstæðisflokksins i bæj- arstjórn var aðeins einn aðalfull- trúi mættur, svo og fjórir vara- fulltrúar. Aðalfulltrúarnir, sem fjarverandi voru, sitja allir landsfund Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik, þar á meðal Jón Sól- nes, alþingismaður, bæjarfulltrúi og formaður Kröflunefndar, en gegn honum er tillögunni beint. Tillaga sjálfstæðismanna er svohljóðandi: „Bæjarstjórn Akureyrar telur eðlilegt, að verk- tökum á Norðurlandi verði falið að annast fyrirhugaðar virkjun- arframkvæmdir við Kröflu. Bein- ir bæjarstjórnin þeim tilmælum til Kröflunefndar, að hún láti kanna það — án tafar — að hve miklu leyti norðlenskir verktakar geti annast virkjunarfram- kvæmdirnar”. Vegna þess hve siðla tillagan kom fram varð að leita afbrigða um afgreiðslu hennar og þurfti 2/3 atkvæða til að hún fengist tek- in á dagskrá. Allir bæjarfulltrúar samþykktu, að hún skyldi tekin á dagskrá, að undanteknum Sigurði Óla Brynjólfssyni, fulltrúa Fram- sóknarflokksins, sem sat hjá. Mjög miklar umræður urðu á fundinum um þetta mikla hita- mál. Tómas Ingi Olrich, einn af flutningsmönnum tillögunnar og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði m.a.: ,,t Kröflunefnd og á r~7) BAK » | ÞEGAR ROFAR TIL NEITA AÐ MÆTA TIL PRÖFS Aðeins þrir nemendur fyrsta árs Kennaraháskóla tslands mættu til fyrsta prófsins, sem fór fram i gærmorgun. Aðrir nem- endur mótmæltu með fjarveru sinni frá prófi þeirri ákvörðun skólayfirvaida að visa fimm nemendum frá prófi af þeim sök- um, að þeir hafa ekki fullnægt skyldu um 80% mætingarskyldu, sem kveðið er á um i reglugerð um Kennaraháskóla tslands. Skömmu fyrir hádegi komu sið- an nemendur allra þriggja ára- ganga háskólans saman tii fund- ar, og gekk þar milli manna und- irskriftarskjal þar sem lýst var samstöðu með nemendum fyrsta árs. Er á skjalinu farið fram á, að skólayfirvöld endurskoði afstöðu sina með það i huga, að miklu fleiri en þessir fimm nemendur fyrsta árs fullnægi ekki tilskilinni mætingarskyldu, og þess krafist, að verði reglugerðarákvæðinu framfylgt engu að siður verði eitt yfir alla nem. að ganga. En ennfremur er bent á, að verði á- kvæðið látið gilda um þriðja ár muni að likindum ekki nema einn nemandi útskrifast úr Kennara- háskóla tslands i vor. Segjast nemendur annars og þriðja árs ekki mæta til prófs fyrr en mál þetta hefur verið leyst, en próf hjá þriðja ári hefjast á laugar- daginn kemur. Orðrómur um kaup ó þotum - - en Flugleiðir svara: AI LATIIII Allli í „ENGIN AFRAMHALDAHI Dl ÞOTUKAUP 1 BILI - Þ0 ENDURSKOI DUN FLUGKOSTS” Eru Flugleiðir h.f. að undir- búa kaup á einni eða tveim flug- vélum, til nota i leiguflug, til viðbótar þcim tveimur stóru þotum, sem það hefur óskað eft- ir ríkisábyrgð á? i bréfi, sem Alþýöubtaöinu barst i gær og birt er á þriðju siðu i dag, er þeirri spurningu beint til þingflokks Alþýðu- flokksins, hvort þingntönnum hans sé kunnugt um, að flug- vélakaup þessi séu i bigerð. Bréfritari kveðst haf heyrt, að umrædd vélakaup séu I undir- búningi „i krafti rikisábyrgðar og stuðnings islenska rikisins”. Alþýðublaðið hafði i gær sam- band við Örn Johnson, hjá Flug- leiðum h.f., og spurðist fyrir um fiugvélakaup þessi. „Það er ekki rétt að til standi kaup á einni eða fleiri flugvélum hjá okkur I bili”, sagði örn, „en aö sjálfsögðu erum við I sifellu að endurskoða flugvélaeign okkar, aðra en þá, sem við höfum sótt um rikisábyrgð fyrir.” Þess má svo geta aö svar hef- ur ekki enn borist til Flugleiða hf. frá rikisstjórninni, um það hvort ríkisábyrgð verður veitt á lánum vegna kaupa á tveim DC 8 63 vélum, sem nú eru i þjón- ustu félagsins á leigusamningi, enda hefur rikisstjórnin ekki enn lagt fram frumvarp þess efnis á þingi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.