Alþýðublaðið - 07.05.1975, Page 4
I hreinskilni
sagt
eftir Odd Á. Sigurjónsson
Furðuleg
vinnubrögð
Ég leyfði mér í gær, að vekja
frekari athygli en þegar var
orðið á þeim einstæðu tilboðum
til iþróttamanna, að gerast
einskonar sorptinslumenn fyrir
tiltekna innflytjendur vindlinga.
Þar með varð ekki betur séð, en
að þeim væri skipað á næsta stig
við ruslatunnuna að þessu leyti.
En þetta „tilboð” hlýtur að
vekja athygli á öðru, sem er
ekki siður furðulegt.
Alkunna er, að hér er einka-
sala á tóbaki og áfengi og hefur
verið svo um langan aldur.
Hvað sem liður löngu genginni
tiö, þegar innflutningur á þess-
um vörum var algerlega frjáls,
þá er eitt vist, að þær verða nú
að ganga gegnum hendur einka-
sölunnar (ATVR). Af dæminu,
sem á var minnst, verður þó
ekki betur séð en að mál þetta sé
aldeilis ekki einfalt.
Máske er ein og hálf milljón
ekki ,,stór peningur” þegar allt
kemur til alls. Samt er næsta ó-
trúlegt, að einstaklingar taki sig
fram um að verðlauna einn eða
opinberum tóbaks- og vinaug-
lýsingum. Hvað sem öðru liður
virðist laglega gengið á snið við
þau og sennilega löglega einnig.
Ekki er ætlunin að ræða þenn-
an þátt frekar. Hitt er nærtæk-
ara að hugleiða hverskonar
starfshættir eru iðkaðir við öfl-
un varanna, sem einkasalan
hefur á boðstólum.
Menn skyldu nú halda að ó-
reyndu, að rikiseinkasala á
munaðarvörum eins og tóbaki
og vini, ætti að vera einfær um
orði. Efalaust er það þó síður en
svo sérlega stjúpmóðurlega
skammtað. Tilboðið vegna söfn-
unar einnar tegundarvindlinga-
umbúða bendir sannarlega ekki
til þess. Þegar þess er nú gætt
að-tala tegunda af tóbaksvörum
og vinum, sem hér er fáanlegt,
er legio, má geta sér til að sam-
tals nemi þetta engum smá-
summum.
Menn geta skipzt i flokka um
nytsemi eða ógagn af umrædd-
um vörum. Það er ekki aðalat-
Sérkennileg kaupsýsla
annan með slikri fjárhæð, ef
hagsmunir lægju þar ekki bak-
við. Hversu miklir þeir kunna
að vera, skal hér ekkert fullyrt
um. En likur mættu þó benda til,
að hér væri ekki um skiptimynt
eina að ræða.
Hér skal heldur ekki fullyrt,
hvort starfsemi sem þessi brýt-
ur i bága við lögin um bann við
aö afla sér þeirra milliliðalaust.
Jafnvel þótt um sé að ræða kot-
riki eins og okkar, er heldur ó-
trúlegt að erlendir seljendur
hefðu ekki fullan hug á þvi að
koma vöru sinni út, án þess að
hún þurfi að fara um hendur
milliliða. Hér skal ekki rætt um
hvað þeir hafa fyrir snúð sinn og
snældu, enda ekki á minu vit-
riðið. Hitt er staðreynd að þær
eru hingað fluttar og seldar hér,
hverjum sem hafa vill og aldur
hefur til. Og seljandi þeirra er
einkasala, sem rikið rekur. Þvi
hlýtur sú spurning að vakna,
hverskonar verzlunarhættir það
eru, að láta innflutning þessara
vara fara um annarra hendur
en einkasölunnar sjálfrar.
Ekki dettur mér i hug og það-
an af siður að láta mér það um
munn fara, að ráðamenn einka-
sölunnar þurfi að leita á náðir
einstakra kaupsýslumanna eða
fyrirtækja, til þess að afla vör-
unnar. En þeir hafa umboðin,
verður ef til vill sagt. Þetta má
rétt vera. En einhverntima
hefðu nú verið sett lög af minna
tilefni en þvi, að svona stofnun
eins og ATVR bókstaflega hefði
einkainnflutning milliliðalaust.
Enginn lifandi maður trúir
þvi, þótt sagt yrði, að erlendir
framleiðendur létu það fyrir
kaupi standa, að einhver annar
aðili þyrfti að annast milli-
göngu.
Það væri annars fróðlegt að fá
það upplýst, hve umboðslaun
milliliða nema háum fjárhæð-
um. Ekki get ég séð, að það
þyrfti að rjúfa neinn trúnað,
þótt heildarf járhæðin yrði kunn-
gerð. Ósk um þetta er hérmeð
komið á framfæri til réttra aðila
og verður ekki talið, að til mikils
sé mælzt.
Þegar skyggnzt er um bekki
fslenzkra verzlunar- og inn-
flutningsmála getur vissulega
margt furðulegt að lita. Þessi
þáttur er einn af þeim.
Sérfræðingur
Staða sérfræðings I orkulækningum við Endurhæfinga-
deild Borgarspitalans er laus til umsóknar.
Staðan veitistfrá 1. júlieða eftir nánara samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykja-
vikur við Reykjavikurborg.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Stjórn sjúkrastofnana Reykjavfkurborgar fyrir
X. júni n.k.
Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir Grensás-
deildar, dr. med. Asgeir B. Ellertsson.
Reykjavik, 5. mai 1975,
Stjórn sjúkrastofnana
Reykjavikurborgar.
ELÍZUBÚÐIN
auglýsir
Erum fluttir
í SKIPHOLT 5
Elízubuöin, Skipholti 5.
ni Námskeið í
II sænsku I Svíþjéð
Norræna félagið i Norrbotten i Sviþjóð
efnir til námskeiðs i sænsku og kynningar
á sænsku þjóðfélagi i Framnes lýðhá-
skóla, 28. júli til 9. ágúst og að námskeið-
inu loknu er áætluð nokkurra daga skoð-
unrferð um landssvæðin norðan við heim-
skautsbaug. Að minnsta kosti 10 islend-
ingum er boðin þátttaka, þeim er þörf
hafa fyrir sænskukunnáttu eða þekkingu á
Sviþjóð i vinnu eða námi. Umsóknarfrest-
ur rennur út 27. mai. — Eyðublöð fást i
skrifstofú Norræna félagsins i Norræna
húsinu, simi 10165. — Opið kl. 16—19.
I0GT
St. Einingin nr. 14.
Fundur i Templarahöllinni I
kvöld kl. 20.30. Kosning fulltrúa
til Umdæmisstúkuþings. Get-
raunir — Leikir — Bingó. Æösti-
templar verður til viðtals i
Templarahöllinni frá kl. 17-18
simi 13355. Nýir félagar velkomn-
ir.
Æ.T.
|f) Aðstoðarlæknir
Staöa aðstoðarlæknis við Endurhæfingadeild Borgar-
spftalans er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. júli n.k.
Laun samkv. kjarasamningi Læknafélags Reykjavikur
við Reykjavikurborg.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar fyrir
1. júni n.k. Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir
Grensásdeildar dr. med. Ásgeir B. Ellertsson.
Reykjavik, 5. mai 1975.
Stjórn sjúkrastofnana
Reykjavikurborgar.
Eyvakvöld —
Myndakvöld,
I Lindarbæ (niöri) I kvöld (mið-
vikudag) kl. 20.30.
Einar Haukur Kristjánsson og
fleiri sýna.
Gönguferðir á uppstigningardag.
Kl. 9.30 Norðurbrúnir Esju. Verð
kr. 600,-
Kl. 13.00. Blikdalur. Verð kr.
400.-
Brottfararstaður B.S.l.
Á föstudagskvöld
kl. 20.
Þórsmörk.
Farmiðar á skrifstofunni.
' . \
Ferðafélag íslands,
Oldugötu 3,
simar: 19533 og 11798.
Auglýsing
um breytingu á auglýsingu nr. 145 frá 30.
april 1975 um niðurfellingu söluskatts af
nokkrum tegundum matvöru.
Við lista yfir vörur, sem felldur er niður
söluskattur af frá og með 1. mai 1975, bæt-
ist eftirfarandi:
Tollskrárnr.: Vöruheiti:
21.02.10 Kaffiextraktar, kaffikjarn-
ar, kaffiseyði, og vörur úr
21.02.20 þessum efnum.
Extraktar, kjarnar og seyði
úr tei eða mate og vörur úr
þessum efnum.
Fjármálaráðuneytið,
5. mai 1975.
Íí
UTIVISTARFERÐIR
Fimmtudagur 8. mai:
1. Eyrarbakki, Stokkseyri og
strönd Flóans. Brottför kl. 10.
Verö 1000 kr. Fararstjóri Eyjólfur
Halldórsson.
2. Krossfjöll — Fjallsendi (einnig
hellaskoðun). Brottför kl. 13.
Verö 600 kr. Fararstjóri Einar
Ólafsson.
Laugardagur 10. mai:
Móskarðshnúkar. Brottför kl. 13.
Verð 500 kr. Fararstjóri Þorleifur
Guðmundsson.
Sunnudagur 11. mai:
Fjöruganga við Hvalfjörð. Brott-
för kl. 13. Verð 600 kr. Fararstjóri
Friðrik Sigurbjörnsson.
Brottfararstaður B.S.l. Fritt fyrir
börn i fylgd með fullorðnum.
Útivist, Lækjargötu 6,
simi 14606.
Lausar stööur
Danska utanrikisráðuneytið hefur óskað
eftir þvi, að auglýstar yrðu, allsstaðar á
Norðurlöndum, 13 ráðunautastöður við
norræna samvinnuverkefnið i Tanzaniu.
Góð enskukunnátta er nauðsynleg, en að
öðru leyti er einkum krafist, viðskipta-
menntunar, bókhaldsþekkingar eða
starfsreynslu við samvinnufyrirtæki, til
þess að ráðning komi til greina. Umsókn-
arfrestur er til 20. mai n.k. Nánari upplýs-
ingar um einstakar stöður og launakjör
eru veittar á skrifstofu Aðstoðar íslands
við þróunarlöndin Lindargötu 46,. herbergi
12. En hún er opin á miðvikudögum og
föstudögum kl. 17-19. Þar fást einnig um-
sóknareyðublöð.
Aðstoð íslands við þróunarlöndin.
0
Miðvikudagur 7. mai 1975.