Alþýðublaðið - 07.05.1975, Qupperneq 7
SLANDS
Dönsk-islensk ráð-
stefna
I jtinl 1973 var haldið að Leirá
i Borgarfirði dönsk-islensk ráð-
stefna, sem stjórn og utanrikis-
málanefnd undirbjuggu i sam-
einingu.
Ráðstefnan fjallaði um m.a.
dansk-islenska sögu, æskulýðs-
starf i löndunum og pólitisk á-
hrif i félagsstarfi ungs fólks, en
ráöstefna þessi var þáttur i tvi-
hliða samstarfi við Danska
æskulýðssambandið.
Farið var með ráðstefnugesti
til Vestmannaeyja og gosstöðv-
amar þar skoðaðar, en þar unnu
ráðstefnugestir að mokstri i tvo
daga og lögðu þar með sitt af
mörkum við endurreisnarstarf-
ið i Eyjum.
Jónas Sigurðsson, formaður
ÆSt.
Með tilliti til tveggja framan-
taldra ráðstefna er það þátttöku-
leysið sem aðildarsamböndin
verða að ihuga gaumgæfilega.
Stjórn og utanrikismálanefnd
unnu að undirbúningi með þá
von I brjósti að slikar ráðstefnur
gætu orðið aðildarsamböndun-
um mjög gagnlegar og áhuga-
verðar. Niðurstaðan er þvi
miður sti að aðildarsamböndin
sýna ráðstefnum þessum litinn
sem engan áhuga þegar tilnefna
átti þátttakendur, en ljóst er að
hér verður að gera bót á svo ein-
hver árangur náist titúr sliku
starfi.
Byggðamálaráðstefna
í mars á þessu ári var haldin
hér á landi samnorræn ráð-
stefna um byggðamál, en stjórn
og utanrikismálanefnd stóðu
saman að undirbúningi hennar
hér heima.
Ráðstefnugestir fóru i skoð-
unarferð austur fyrir fjall, skoð-
uðu islenska ylrækt, fisk-
vinnsluver, hafnarmannvirki i
byggingu og kynntust uppbygg-
ingu kauptúns sem er i örum
vexti. Hverri sendinefnd var og
afhent að gjöf bók á ensku um
sögu tslands sem Seðlabanki ts-
lands hafði nýgefið tit og gaf.
Einnig gafst ráðstefnugestum
kostur á að sjá uppfærslu á leik-
ritinu Intik, en sérstök sýning
var höfð fyrir ráðstefnugesti.
tslenska þátttöku i ráðstefnunni
verður að telja mjög góða og
var ráðstefnan að allra mati tal-
in heppnast mjög vel. Til nánari
upplýsinga visast i skýrslu
utanrikismálanefndar.
Samtals sátu 48 islensk ung-
menni 33 fundi og ráðstefnur i 13
þjóölöndum á vegum ÆSl á sið-
asta stjórnartimabili.
Stefnan í
erlendum
samskiptum
Laugardaginn 26. mai voru
haldin erindi. Ólafur R. Einars-
son ræddi um starf ÆSl á innan-
landsvettvangi og Skúli Möller
um starf þess á erlendum vett-
vangi.
Að loknum þessum erindum
og á surínudeginum fóru fram
umræður um þau, skýrslur
stjórnar og utanrikisnefndar og
starfsáætlanir, sem vinnu-
nefndir höfðu unnið fyrir þingið.
Þessi grein hófst á áliti um inn-
anlandsstarf. Hér verður getið
þess helsta tir stefnumörkun á
utanlandsvettvangi:
„Æskulýðssamband Islands
mun I alþjóðlegu samstarfi hafa
eftirfarandi meginatriði að leið-
arljtísi:
að auka og efla samvinnu
ungs fólks hvaðanæva að tir
heiminum,
að veita lið baráttunni fyrir
friði, frelsi og sjálfsákvörðunar-
rétti allra þjóða,
að styðja málstað þeirra, sem
eiga við arðrán, kúgun og mis-
rétti að etja,
að styðja frelsisbaráttu þjóða
gegn heimsvaldastefnunni,
að veita lið baráttunni fyrir
mannréttindum i samræmi við
mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna.
Með þessi meginmarkmið i
huga mun Æskulýðssamband
íslands leggja áherslu á eftir-
farandi:
1. NORRÆNT
SAMSTARF:
að tengja æskulýð i Færeyjum
og á Grænlandi i reynd inn I nor-
ræna samstarfið,
að ákvæði samstarfssamn-
ingsins um ályktunarhæfni
tengslafunda um almenn mál
verði virt i reynd,
FRAMHALD SAMANTEKTAR
CECILS HARALDSSONAR
að leggja áherslu á norrænt
samstarf á vettvangi Cenyc.
að áfram verði unnið að
byggðamálum i framhaldi af
ráðstefnunni i Reykjavik,
að unnið verði sameiginlega
aö athugunum á kjörum og að-
stöðu ungs verkafólks, þar á
meðal með tilliti til þeirrar
efnahagskreppu, sem ýmist riki
Vesturlanda hafa átt við að
striöa,
að unnið verði að kynningu á,
og stuðningi við, baráttu frelsis-
hreyfinga i löndum þriðja
heimsins, bæði i tengslum við
fyrirhugaða ráðstefnu Cenyc og
PAYM og eftir hana.
að samstarfinu við norðmenn
verði haldið áfram, og stefnt að
árlegum ráðstefnum ef kostur
er
að halda áfram samstarfinu
við Dani með sameiginlegum
ráðstefnum annað hvort ár,
að unnið verði að þvi að halda
sameiginlega ráðstefnu æsku-
lýðs frá tslandi, Noregi, Fær-
eyjum og Grænlandi um land-
helgismál,
að hafa frumkvæði að virku
tvihliða samstarfi við æskulýð
annars vegar á Grænlandi og
hins vegar i Færeyjum
að vandað verði til verkefna-
vals á áðurnefndum tvihliða
ráðstefnum, og þar jöfnum
"höndum lögð áhersla á land-
kynningu, þjóðmál, sem efst eru
á baugi, og sameiginleg hags-
munamál ungs fólks i þessum
löndum.
Samstarf við
aðra aðila
að viðhalda tengslunum við
Rússa og bjóða sendinefnd frá
þeim til tslands á næsta ári.
að auka tengslin við Austur-
Þjóðverja, einkum með tilliti til
þátttöku i æskulýðsráðstefnu
Eystrasaltsvikunnar og undir-
btiningi hennar.
að taka eftir þvi sem kostur er
virkan þátt i undirbúningi
Heimsmóts æskunnar, sem
haldið verður á Kúbu.
að vinna að samstöðu með
æskulýð þriðja heimsins hvar
sem þvi verður við komið.
Samstarf á vett-
vangi CENYC
að vinna af krafti að málefn-
um ungs verkafólks. Fylgt verði
eftir niðurstöðum þess starfs,
sem þegar hefur verið unnið, og
áætlað er, svo tryggt sé að það
beri árangur,
að efla samstöðu aðildarsam-
bandanna allra, og leggja i þvi
sambandi sérstaka áherslu á,
að styrkja tengslin við æskulýð
svonefndra jaðarsvæða,
að vinna gegn fyrirhuguðum
æskulýðsvettvangi EBE-rikj-
anna og þátttöku Cenyc i slikri
starfsemi bandalagsins,
að efla svo sem unnt er tengsl-
in við æskulýð I A-Evrópu
að leita leiða til þess að gera
öllum aðildarsamböndum Cen-
yc kleift að taka virkan þátt i
þeirri þróun,
að vinna kröftuglega að
myndun samstarfsvettvangs
æsku Austur- og Vestur-Evrópu,
að taka virkan þátt i undir-
btiningi Heimsmóts æskunnar á
Ktibu. Æskulýðssambandið
fagnar þvi sérstaklega, að Cen-
yc hefur ákveðið að taka sæti i
undirbtiningsnefnd Heimsmóts-
ins.
Stjórn
Að lokum var kosin stjórn
ÆSÍ og utanrikisnefnd. Stjórn
skipa: Jónas Sigurðsson, for-
maður, Eirikur Valsson, vara-
formaður, Rúnar Armann
Arthtirsson, ritari, Garðar
Sveinn Arnason, gjaldkeri og
meðstjórnenduiLars Andersen,
Egill Asmundsson og Pétur
Pétursson.
í utanrikisnefnd eru: Elias
Snæland Jónsson, formaður,
Cecil Haraldsson, Sveinn Rtinar
Hauksson, Svanur Kristjánsson,
Siguröur Geirdal og Tryggvi
Þór Aðalsteinsson.
Lokaorð
Þegar rætt er um Æskulýðs-
samband Islands, sem starfs-
vettvang æskulýðsfélaga á ís-
landi, verkefnaval þess og
starfsaðferðir verður að hafa i
huga að I sambandinu eru til-
tölulega ólik samtök að upp-
byggingu, starfsháttum og
stefnumiðum. Þvi er ekki hægt
að velja þeim langtfma afmörk-
uð stefnumið eða verkefni. Þvi
er augljóst að sambandið og
samtök þau, sem að þvi standa,
verða á hverjum tima að vera
opin fyrir þeim möguleika, sem
ÆSl er til baráttu eða þrýstings
ákveðnum málum til fram-
gangs eða stuðnings.
A þessu þingi ÆSI var vegna
fenginnar reynslu samþykkt
veigamikil breyting á lögum
þess. Ilögunum var ákvæði um
aö teldi eitthvert aðildarsam-
banda þess, að ákveðin yfirlýs-
ing eða tillaga bryti i bága við
stefnuskrá þess gæti það krafist
frávisunar og nægði 1/3 at-
kvæða fyrir frávisun væri hún
orðin að veruleika. Nú var þvi
bætt við, að tillögu, senj þannig
væri samþykkt gegn mótmæl-
um einhvers aðildarsambands,
mætti ekki birta i nafni ÆSl án
þess að geta sérstaklega um
leið, hvaða aðildarsambönd
hefðu verið henni andvig.
Þvi ættu engin af núverandi
samtökum innan ÆSt að þurfa
brott vegna þess að þau væru
opinberlega bendluð við aðgerð-
ir eöa yfirlýsingar, sem ekki
samrýmdust stefnuskrám
þeirra. A sama grundvelli gætu
þau samtök æskufólks, sem ut-
an ÆSl cru nú, komið inn með
fullri reisn til þátttöku i baráttu
fyrir hagsmunamálum ungs
fólks hérlendis sem erlendis.
% föstudag er síóasfi endurnýjunardagurinn.
Miövikudagur 7. maí 1975