Alþýðublaðið - 07.05.1975, Page 12

Alþýðublaðið - 07.05.1975, Page 12
alþýðu mmnftl PliKllHt llF PLASTPOKAVERKSMÐJA Stmar 82639—8265S Vetnegör6um 6 Box 4064 - Reykjevik KOPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 ^NDIBIL ASTÖBINHf Lögreglusamþykktin í Hafnarfiröi er það úr- elt að lögreglan getur ekki farið eftir lienni Mesti leyfður ökuhraði er 18 km. á klukkustund Samkvæmt lögreglusamþykkt Hafnarfjarðar er leyfður hó- markshraði á götum bæjarins að- eins 18 km á klukkustund, og áð- ur en ekið er fyrir horn er öku- mönnum skylt að þeyta flautur bifreiða sinna. Ennfremur skulu ökumenn ekki aka hraöar en svo, að þeir geti stöðvað bifreiðar sin- ar samstundis, ef þeir sjá skammt frá sér. „Þessi lögreglusamþykkt er svo gömul, að við förum varla eft- irhenni, en hún tók gildi 1. janúar 1929”, sagði Steingrimur Atlason yfirlögregluþjónn i Hafnarfirði, þegar Alþýðublaðið hafði tal af honum i gær. ,,Ég hef verið að biðja um það undanfarin 4—5 ár, að hún verði endurskoðuð, og lagt til að það mál veröi lagt fyrir Samband islenskra sveitar- stjórna þar sem vafalaust er þörf á að endurskoða fleiri lögreglu- samþykktir og samræma þær”, sagði Steingrimur. Að sögn Stein- grims kom lögreglusamþykktin 1929 i stað lögreglusamþykktar frá árinu 1908, sem siðan var auk- ið við 1911 og 1919. A þessum ár- um hefur endurskoöun umferðar- mála i Hafnarfirði þvi verið mun örari en nú er, þótt umferðarmál- in hafi tekið margfalt meiri breytingum frá árinu 1929 til þessa dags en á árunum 1908 til 1929. 1 núgildandi lögreglusamþykkt Hafnarfjarðar eru einnig áll itar- legar reglur um umferð riðandi manna og umferð hestvagna, þótt það teldist vafalaust til tiðinda ef á götum bæjarins sæist slik um- ferð nú. Til gamans má geta þess, að ekki er leyfilegt að riða né aka hestvögnum hraöar en á hægu brokki, og ekki hraðar en fót fyrir fót þar sem útsýni er takmarkað. Þá skal setja rauðan borða á tagl hesta, sem bita éðaslá. Nú er komin hreyfing á, að lög- reglusamþykkt Hafnarfjarðar og annarra staða þar sem gamlar og úreltar lögreglusamþykktir eru i gildi, verðí færð i nútimalegra horf, en nýlega skoraði Fulltrúa- ráð Sambands islenskra sveitar- félaga á dómsmálaráðuneytið að gangast fyrir þvi, að gerð verði fyrirmynd að samræmdri lög- reglusamþykkt fyrir allt landið. — 1 Reykjavik hefur lögreglu- samþykktin verið endurskoðuð með nokkru millibili, og stendur m.a. nú yfir ein slik endurskoðun. „Póstgiróstofan er nú að senda út þessa dagana orlofsá- vísanir til um 60 þúsund viðtak- enda”, sagði Þorgeir Þorgeirs- son, yfirmaður Póstgiróstofn- unarinnar við blaðið i gær. „Þetta eru um 1100 milljónir króna”, hélt hann áfram og nær yfir ailt iandið. Launatimabilið er frá 1. mai 1974 og til marsloka 1975. Orlof fyrir aprilmánuð og vetrarvertiðina verður sent sið- ar”. Aðspuröur upplýsti Þor- geir Þorgeirsson ennfremur. „Til þess að geta hafið orlofsá- visunina á pósthúsum landsins, verður að vera skráð vottorð vinnuveitanda á hana um, hve- nær orlof sé fyrirhugað eða á- kveðið, ennfremur vottorð trún- aðarmanns stéttarfélags orlofs- þega. Þetta giidir þó ekki um orlofsávisanir, sem eru lægri en kr. 15000 (var kr. 10000 i fyrra). Avisunin er greiðsluhæf þrem vikum fyrir upphafsdag orlofs. Nú misferst orlofsávisun til ein- staklings. Þá verður hann að út- fylla eyðublað, sem pósthús hafa með höndum, en ekki fæst orlofið greitt fyrr en að tveim mánuðum liðnum, takist svo slysaiega til”. Að sjálfsögðu er þetta fremur sjaldgæft, en getur þó hent, ef ORLOFS- GREIÐSLUR ERU AÐ HEFJAST breytingar verða á heimilis- fangi og i örfáum tilfellum öðr- um. Yfirleitt er búseta sam- kvæmt þjóðskrá lögð til grund- vallar og ef hlutaðeigandi fólk gætir þess að tilkynningar um búsetuskipti berist hagstofunni, ætti að vera girt fyrir að mestu, að orlofsbréfin misfarist. Þau eru samt ekki send i ábyrgð, né skráð á viðtökupósthúsum”. Rétt er að benda fólki á, að láta ekki flutningstilkynningar dragast úr hömlu, svo að greiðslur orlofsfjár tefjist siður eða misfarist. HSTflGHftHftT EB AIVEG UR TEHGSLUM VID VEROLAGID „Fasteignamat er alveg úr tengslum við verðlagið og er i engu samræmi við mismunandi fjárþörf sveitarfélaganna”, sagði Unnar Stefánsson hjá Sambandi islenskra sveitarfélaga i samtali við Alþýðublaðið. „Þess vegna gerði fulltrúaráðsfundurinn m.a. ályktun um, að sett verði lög, sem tryggi að fasteignamat sé i fullu samræmi við verðlag á hverjum tima og fasteignaskattarnir tryggi nægilegt svigrúm til tekju- öflunar eftir mismunandi verk- efnum og aðstæðum á hverjum tima. Það má segja, að þetta sé stór liður i byggðastefnunni”, sagði Unnar. Frumvarp til laga um tekju- stofna sveitarfélaga hefur verið fyrir þingi um nokkurn tima, en hefur enn ekki verið afgreitt, og leggur fulltrúaráðið áherslu á, að það verði endurskoðað, og stefnt að gildirtöku þess frá ársbyrjun að gildistöku frá ársbyrjun á fyrrgreint atriði, og sagði Unn- ar Stefánsson i samtali viö Al- þýðublaðið, að það sé mikið atriði fyrir þau sveitarfélög, sem eru i uppgangi, að endurmat fari fram hið fyrsta. Benti hann á, að ekki sé réttlátt, að sama mat gildi á stöðum eins og Reykjavik eða Hveragerði þar sem sveitarfélög- in verða að leggja i mikinn kostn- að vegna uppbyggingar, eins á stöðum þar sem litil sem engin uppbygging á sér stað. Fulltrúaráð Sambands is- lenskra sveitarfélaga gerði enn- fremur ályktun um, að við endur- skoðun fyrrnefnds frumvarps verði lögð áhersla á, að þjónustu- gjöld svéitarfélaganna verði á- kvörðuð af sveitarstjórnum án af- Sólnes svikinn Af forsíðu Alþingi eru á yfirborðinu fulltrú- ar Norðurlands, en i reynd svæsn- ustu fulltrúar Reykjavikur valds- ins og miðstjórnarvaldsins i land- inu”. Tillaga Sjálfstæðismanna um forgang norðlenskra verktaka til virkjunarframkvæmdanna, sem fyrirhugaðar eru við Kröflu, var á endanum samþykkt með sjö at- kvæðum sjálfstæöismanna og jafnaðarmanna gegn fjórum at- kvæðum framsóknarmanna og komma. Eins og áður kemur fram er Jón Sóines, aiþingismaður og bæjarfulltrúi á Akureyri, formað- ur Kröflunefndar. Er haft á orði nyrðra, að hann noti vel aðstöðu sina formannssætinu til að sýna frændum sinum ræktarsemi, þannig hafi hann ráðiö son sinn tæknilegan ráðunaut Kröflu- nefndar, en auk þess hafi hann gefið systursyni sinum, aðaleig- anda verktakafyrirtækisins Mið- fell h.f. i Reykjavik, fyrirheit um, að verklegar framkvæmdir við Kröflu verði ekki boðnar út, en fyrirtæki hans ráðið til að annast þær. Orkumál Norðlendinga hafa lengi verið mikið hitamál og kom heimamönnum ekki áóvart, að upp úr skyldi sjóða i bæjarstjórn Akureyrar i gær. FIMM á förnum vegi skipta rikisvaldsins, jöfnunarsj. sveitarfélaganna fái sömu hlutdeild i söluskattsviðauka og i almennum söluskatti, felldur verði niður söluskattur af notkun vinnuvéla sveitarfélaga i eigin þágu og félagsmálaráðuneytinu verði gert skylt að gera áætlun um skiptingu Jöfnunarsjóðsfram- lags i greiðslur fyrir 15. janúar ár hvert, og stjórn sambandsins verði falið að vinna að þvi aö út- borganir úr sjóðnum til sveitarfé- laganna verði inntar af hendi mánaðarlega og greiddar milli- liðalaust. Þá gerði fulltrúaráð Sambands islenskra sveitarfélaga ályktun um nokkur atriði, sem stuðla mættu að sem jafnastri aðstöðu til búsetu i landinu og telur þar eitt þýðingarmesta atriðið, að fjár verði aflað til varanlegrar gatnagerðar, og bendir á leiðir i þeim efnum. Ennfremur varar fulltrúaráðið við þeirri stefnu, sem felst i skefjalausri skerðingu tekna sveitarfélaga með lögum um ráðstafanr i efnahagsmálum, og að dregið verði úr fram- kvæmdamætti sveitarfélaganna nú þegar atvinnuöryggi i landinu hefur minnkað, og jafnvel hætta á atvinnuleysi. Finnur þú til streitu? Hreinn Lindal, söngvari: „Nei, sliku finn ég aldrei fyrir. Það fer alveg eftir hverjum og einum sjálfum, hvort hann verður streitu að bráð. Um að gera að slappa af og vera ekki að æsa sig.” GIsli Garðarsson, kjötiðnaðar- maður: „Ojá, ég hef oft fundið fyrir henni. Það er svo margt i umhverfinu sem veldur henni, vinnan og skuldirnar, bygginga- stand og fleira. Ég veit ekki hvernig nokkur maður kemst hjá streitu.” Unnur Sigurardóttir, ritari: „Þegar mikið er að gera, finn ég til streitu. Annars er þaö mis- jafnt, hve mikið ég finn fyrir henni. Það er vinnan og ekkert annað sem veldur, hún getur verið svo mikið an og kan og bara helv.... stress.” Hallgrimur Hafliðason, verka- maður: „Nei. Ég á mér Jesú Krist að leiðtoga i lifinu, svo ég er laus við alla streitu, Að eiga hann að daglegu leiöarljósi er ó- brigðult.” Sigurður Pálsson, skrifstofu- stjóri: „Þaö er svona upp og niður með streituna, likt og allt annað. Þegar of mikið er færst I fang, þá sækir hún að. Ef hófs er gætt i hvivetna, þá helst hún frá.”

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.