Alþýðublaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 1
HVERJUM KLUKKAN BLYMUR
Atburðir þeir, sem nú eru að
gerast i Portúgal, munu siðar
eflaust verða taldir til heims-
sögulegra viðburða. Fyrir ári
steyptu herforingjar einræðis-
stjórn af stóli, leyfðu starfsemi
stjórnmálaflokka og boðuðu
kosningar, sem nýlega voru
haldnar, þótt herforingjar hafi
að visu áskilið sér úrslitavald i
landinu um takmarkað skeið.
Talið var, að kommúnistaflokk-
ur Portúgala, sem starfað hefur
i útlegð i áratugi og verið mjög
vel skipulagður, mundi hljóta
mikið fylgi og verða jafnvel
stærsti flokkur landsins. Miklu
færri spáðu þvi, að afturhalds-
samur flokkur eða flokkar, hlið-
stæðir t.d. kristilegum demó-
krötum á Italiu, mundu hljóta
mikinn stuðning. Varla nokkur
spáði hins vegar þvi, sem gerð-
ist, að jafnaðarmannaflokkur
Soaresar mundi verða ótviræð-
ur sigurvegari kosninganna og
stærsti flokkur landsins.
Afleiðing þessa hefði auðvitað
átt að verða sú, að áhrif hans i
stjórn landsins hefðu aukizt. En
svo er ekki. Þótt kommúnista-
flokkur landsins hafi fengið litið
fylgi og miklu minna en leiðtog-
ar hans höfðu gert sér vonir um,
draga herforingjarnir augljós-
lega taum hans. Þeir höfðu áður
tryggt kommúnistum völd i
verkalýðshreyfingunni með ó-
lýðræðislegum hætti og komið i
veg fyrir frjálsar kosningar á
stjórnum verkalýösfélaga.
Þrátt fyrir ósigur sinn i kosn-
ingunum hafa kommúnistar
fært sig upp á skaftið og komið
með ofbeldi i veg fyrir útgáfu á
blaði flokks Soaresar og njóta
einnig við það stuðnings herfor-
ingjanna.
Enginn vafi getur leikið á þvi,
hvað hér er á ferðinni. Komm-
únistaflokkur er hér að sýna sitt
rétta andlit. Sagan er alkunn úr
Austur-Evrópulöndum. Þar var
farið aö á sama hátt i skjóli er-
lends hervalds. 1 Portúgal er
kommúnistaflokkur að hrifsa til
sin völd, sem kjósendur hafa
ekki viljaö fá honum, i skjóli
innlends hervalds. Ef það tekst,
gerist það i fyrsta skipti i Vest-
ur-Evrópu, að kommúnista-
flokkur rænir völdum meö of-
beldi.
Það hefur vakið athygli, að
Þjóðviljinn, sem um nokkurt
skeið hefur látið svo sem hann
aðhyllist ekki lengur hinar
gömlu kennisetningar kommún-
ismans, hefur enga skoðun haft
á þessum atburðum. Hinn 16.
mai birti hann þó fréttagrein af
erlendum vettvangi, þar sem
augljóslega er látin i ljós samúð
með kommúnistum og talað um
„sæmilega útkomu byltingar-
sinna”. Farið er litilsvirðingar-
orðum um flokk Soaresar og
sagt m.a.: „Engu að siður fer
ekki hjá þvi, að Sósialistafl.,
sem er sósialdemókratisk-
ur og þó ef til vill ennþá frekar
vinstrisinnaður af slikum flokki
að vera, liti á sig sem sigurveg-
ara kosninganna og geri sig
digran eftir þvi”. Flokknum er
brugðið um að hafa hlotið stuðn-
ing frá EBE-rikjum — og raun-
ar einnig Sviþjóð — til kosninga-
baráttu sinnar, allt frá beinum
fjárframlögum til skemmti-
krafta — meira að segja is-
lenzkra. Það leynir sér ekki,
hverjum sú klukka glymur, sem
sá hringir, er þarna heldur á
penna.
Þjóðviljinn ætti að segja um-
búðalaust skoðun sina á þeim
atburðum, sem eru að gerast i
Portúgal. Enginn hugsandi
maður getur komizt hjá þvi að
taka afstöðu til þess hildarleiks,
sem þar er háður milli komm-
únistisks ofbeldis og baráttunn-
ar fyrir frelsi. „bf
SUNNUDAGS-
H1 LEIÐARINN
Sunnudagur 25. maí 1975 — 116. tbl. 56. árg