Alþýðublaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 8
BRfiMBQLT œSJðö-' CJSU SVÉiflö (.OFTSSQO Gróa á Leiti MVenus and Marz are alrigth alright tonight’’ Nýja platan með Paul McCartney heitir hvorki meira né minna en ,,Venus and Marz are alright tonight” hver var svo að tala um langt nafn á hljómplötu Elton John. En hvað um það, platan er i þann veginn að koma út erlendis, og verður þess þá varla langt að bfða að hún sjáist hér. Likur eru á þvi, að hljóm- sveitin Deep Purple leysist upp á næstunni, Ritchie Black- moore, gitarleikari hljómsveit- arinnar hefur hug á að ganga i ELF, hljómsveit sem lék með þeim á siðasta hljómleikaferða- lagi þeirra um Bandarikin Eitthvað verður hún skrýtin, myndin um Franz Lizst sem Ken Russel er að undirbúa sig undir að kvikmynda. Hvers vegna? Hvað myndir þú halda um kvikmynd sem hefði inni að halda Ringo Starr i hlutverki páfa, Rick Wakemann i hlut- verki Þórs (þrumuguðsins eina og sanna) og Roger Daltrey i hlutverki Lizst. Sannkölluð list. „STÖRA FUGLABÚKIN” Fréttir hafa mér borist, þess efnis, að nú skuli stemma stigu við unglingavandamáli Slag- siðunnar, sem hefur verið svo mikið um sig, ásamt frásögnum menntskælinga um land allt af fyllirium sinum og kvennafari, að popp hefur þar ekki komist fyrir um lengri tlma. En til þess að forða þvi að siðan fái slag, og til höfuðs okkur hinum sem skrifum um popptónlist i hin blöðin, mun nú verða tekin frá siða i Morgunblaðinu á hverjum laugardegi sem ætluð verður skrifum um áðurnefnda tónlist og það sem henni fylgir. En vegna þess hversu feikilega góðar poppsiður hinna blaðanna eru, sérstaklega Brambolt, þá dugar ekkert minna okkur til höfuðs en tveir framkvæmda- stjórar popphljómsveita, þ.e. Ómar Valdimarsson Pelican, og Sveinn Guðjónsson (Haukar). Brambolt mun aö sjálfsögðu halda áfram að verða fyrstur með bestu fréttirnar, hvað svo sem þeim viðvikur. Ekki mun nafn siðunnar enn fastákveðið, en flogið hefur fyrir að hún muni verða skýrð Stóra fuglabókin, samanber Haukar -f Pelican = óttalegir fuglar. Júdas gerist atvinnuhljómsveit Það virðist ætla að verða nóg að gera i stúdióinu hjá Hljóð- ritun HF. Döggin og Eikin hafa áformað að taka þar upp á næstunni, en nú mun allt vera óvist með Eikina. Þá hefur Magnús Kjartansson pantað 300 tima þar, sem hann segir sjálfur að sé miklu meiri timi en hann hafi nokkurn tima haft til þess að vinna að plötu, og eru þær þó orðnar einar sex. Þá sagði Magnús okkur það einnig, að um þessar mundir væru þeir Júdas að gerast atvinnuhljóm- sveit, en fram að þessu hafa þeir allir stundað aðra vinnu, og spilamennskan aðeins verið i fritimum. Ef Júdas ná þeim árangri sem þeir hafa þegar náð, i fritimum, þá hljóta þeir að verða hrikalega góðir, eftir að þeir taka til við að æfa dag- lega. Það er alla vega öruggt að þeir verða ásamt Haukum vin- sælasta hljómsveit sumarsins, þar sem Pelican verða nokkuð lengi i lamasessi og hljómsveit Péturs kemst tæplega strax i gagnið. PELICAN MISSIR AÐALFJÖÐRINA Þá er Pétur ekki lengur Pelican, og Pelican þá varla sami pelicaninn og hún var ...þvæla. Hálf viröist manni allt þetta mál vera þvælukennt, að maður taii nú ekki um þessa aflóga þýddu frasa úr enskum poppblöðum, „tónlistarlegur ágreiningur”. En hvað um það, Pelican verður ekki sama hljómsveitin, eftir að Herbert kemur i stað Péturs, og eiga menn vafalaust eftir að skiptast i tvo hópa, þegar að þvi kemur að dæma um hvort hún verður verri eða betri eftir breyt- inguna. Hins vegar er það öruggt, að hljómsveit sú sem Pétur stefnir að þvi að stofna með ungum og efnilegum hljóð- færaleikurum, getur orðið mjög góð, þvi að Pétur hefur löngum haft lag á þvi að ná þvi besta út úr hljóðfæraleikurum. Er nægi- legt að minna á i þvi sambandi fyrri hljómsveitir hans, Svan- friði og Pelican. Hitt er svo annað mál, hvort hann fær umsvifalaust þá hljóðfæra- leikara sem eru efnilegastir um þessar mundir, i lið með sér strax eða yfirleitt. Brambolt er kunnugt um það, að hann reyndi að stela mönnum úr Dögginni, en þeir vildu frekar halda áfram að vera Paggardropar. Þá hefur hann einnig reynt að fá menn úr Eikinni, og þar sem Herbert er stokkinn úr henni, er liklegt að einhver úr hljómsveitinni gæti hugsað sér að skipta um. Þá er öruggt að Ragnar og ólafur úr Fjólunni munu æfa með Pétri. Hljómsveitin er sem sagt þeg- ar tekin að fæðast. Eins og mönnum er kunnugt, þá eru Fjólan og Eikin og liðsmenn þeirra samningsbundnir við Demant hf, og ynntum við þvi Jón Ólafsson eftir þvi, hvað þeir myndu gera i málinu. Hann . sagði, að lagalega séð gætu þeir stöðvað öll slik brotthlaup liðs- manna úr sinum hljómsveitum, en að tæplega myndi þó til þess koma, og að hann væri bara sæmilega hress yfir þessum breytingum. .Ekki tókst Bram- bolt að hafa samband við Pétur Kristjánsson t tæka tið, en nánari fregnir fást sjálfsagt af málunum i næstu viku. JIMI HENDRIX GENGUR AFTUR Jú, það er rétt, að minnsta kosti er farið að gefa út plöt- urmeð honum með upptökum siðan 1975 Þá skortir ekki hug- myndafiugið þessa kalia, þegar á að fara að græða á þeim dauðu. Hér er ekki um að ræða gamait rusl sem þeir hafa skrapað saman á eina piötu, heldur ýmislegar forvitnilegar upptökur, sem allar höfðu það sameiginlegt, aö innihalda góð- an gitarleik Claptons, og stund- um hljóðfæraleik þeirra Billy Cox og Buddy Miles. En það hrjáði allar upptökurnar, að á þeim varlika lélegur hljóðfæra- leikur ýmissa annarra aðila, sem rýrðu gildi laganna að mun. En biðum við, upptökurn- ar voru gerðar á fjölrásartæki, og með þvi að renna þeim i gegnum samskonar tæki, var hægt að þurrka það út af bönd- unum sem menn vildu, og halda hinu er gott þótti. Er þetta haföi verið gert, voru fengnir Htt þekktir hljóðfæraleikarar til þess að spila það semá vantaði. Var nú dundað i þessu i nokkrar vikur, eða þar til útkoman þótti eins góð og menn gátu búist við, siðan búinn til master, og platan „Crash landing” með Jimi Hendrix gefin út. Sniðugt, eða hvað? Það er ekkert nýtt, að gefnar séu út plötur með löngu látn- um listamönnum, nægir þar að nefna Jim Reeves, Jim Croce og Jimi Hendrix, sem hefur orðið einna mest fyrir barðinu á þess- um vinnubrögðum. Plöturnar „Cry of Love” Hendrix in the West”, og „War Heroes” voru allar gefnar út að honum látn- um. Og af nógu er að taka, þvi að siðustu æviárum sinum eyddi Hendrix að mestu leyti i stúdió- um, ogtalið er að til séu um 3000 upptökutimar með honum á bandi. Þá er það bara spurning- in, hvort Hendrix hafi nokkurn tima ætiast til þess að þetta kæmi út á plötu, ef svo, þá hvað af þvi. Annars þykir „Crash landing” sú besta sem gefin hef- ur verið út að honum forspurð- um, og fyrsta upplag hennar seldist upp á mánuði, eða 250 þúsund eintök. 0 Sunnudagur 25. maí 1975

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.