Alþýðublaðið - 25.05.1975, Side 3
Blaðamaður Alþýðublaðsins með sveitarstjóranum a Lyrarbakka í „tilraunarallýi”
ðvæntur 4 km krókur var skemmtilegasti
hluti leiðarinnar
„Fimmtán sekúndur — tiu —
fimm — KEYRA! ” Með þessum
orðum ræsti Sveinn Oddgeirs-
son, framkvæmdastjöri Félags
islénskra bifreiðaeigenda bil
með rásnúmer tvö i fyrsta rally-
inu, sem haldið er á íslandi,
laust eftir klukkan niu á þriðju-
dagskvöldið — og þessum bil,
Mercedes Benz 250, ók Þór
timaáætlanir, sem þeir hjá FÍB
og félagar úr tslenska vélhjóla-
og bifreiðaklúbbnum hafa unnið
að undanfarnar vikur. Tima-
verðirnir voru farnir á sina
staði með talstöðvar, úr og
skeiðklukkur áður en keppendur
lögðu af stað frá Loftleiðabygg-
ingunni, og „generalprufan”
var hafin.
Þrír keppnisbílanna við timavaröstöðina þar sem enginn tlmavörður
var. Þar var gerður stuttur stans þar til stjórnendur tilkynntu um tal-
stöð að mistök hefðu átt sér stað.
Hagalin, sveitarstjóri á Eyrar-
bakka og ritari FIB, en korta-
lesari var umsjónarmaður
þessar siðu. t bil með rásnúmer
1 Hillman Hunter voru Kristinn
Helgason, gjaldkeri FIB og eig-
inkona hans, í bil númer 3, Opel,
Eggert Steinsen, formaður FÍB
og Jón Björgvinsson blaðamað-
ur á Visi, i bil nr. 4, Citroen DS,
voru Páll Gústafsson og Gunnar
Andrésson ljósmyndari Timans
og i bil nr. 5, Toyota jeppa, voru
bræðurnir Arni og Andri Arna-
synir.
Fyrsta rallyið á Islandi sagði
ég, — en það er þó ekki fyllilega
sannleikanum samkvæmt, þvi
það fer raunverulega ekki fram
fyrr en i dag, og þá verða ekki
ræstir fimm bilar, heldur um
sextiu. Þó varð þetta að kallast
rally, eða nánar tiltekið „til-
raunarally”, þvi ætlunin var að
aka leiðina, sem keppendur aka
idag, og yfirfara tæknileg atriði
keppninnar og reyna að finna út
hvernig standast allar þær
Við ókum i rólegheitunum
norður Flugvallarveg, ennþá
var ekkert farið að gerast, sem
minnti á rally. Ég fór að fletta
leiðabókinni i óðaönn, fann
leiðalýsinguna yfir fyrsta hluta
leiðarinnar. „Meðalhraði er 45
km á klst. á þessari leið”, til-
kynnti ég Þór, og hélt áfram að
reyna að glöggva mig á leiðinni,
sem framundan var.
Þegar þetta er skrifað, á
fimmtudagsmorgni, er aksturs-
leiðin ennþá algjört leyndarmál
fárra manna, sem hafa bundist
þagnarheiti, og þótt þessi pistill
Komi ekki fyrir almennings-
sjónir fyrr en i dag, liggja leiðir
hans um margra hendur og fyr-
ir margra augu áður en hann
kemst á þrykk, þvi ætla ég ekki
að hætta á að neitt siist út og
ræða sem minnst um leiðina en
halda mér við aksturinn sjálfan.
Reyndar birtist heildarkort yfir
leiðina hér á siðunni, en það
kom ekki i prentsmiðjuna fyrr
en i gærkvöldi og fer ekki um
margra hendur þar.
Keppendaskrá
Keppendur verða ræstir með minútu millibiii eftir þeirri röð sem
þeir eru taldir hér. Ræst verður frá Hótel Loftleiðum, og fer
fyrsti billinn af stað kl. 13.30.
í.Guömundur Tómasson, Svan-
ur Magnússon — P 1527, Citroen
GS '74.
2. GuörilnRunólfsson, Ingibjörg
Jónsdóttir — Y 21, Toyota ’73
3. Halldór Úlfarsson, Hlynur
Tómasson — X 3940, Buick ’55.
4. Vökull h/f: Jóel Jóelsson,
Gunnar Borg — R 2070, Simca
1100S '75
5. Guöjón Jónsson, óskar Páls-
son — G 297, Datsun 1200 '73
6. Hans Emanuel Jóhannsson,
Guömundur Björnsson — R
41730, Fiat 132GLS ’74.
7.1ngólfur Tryggvason, Sveinn
Tryggvason — Y 150, Blazer ’74
8. Kristján óskarsson, Ivar
Magnússon — R 8473, Peugeot
404 ’74.
9. Jón Sigurösson, Kristján
Hálfdánarson — R 7066, CJ5 ’74.
10. Sigurbjörn Báröarson, Ey-
steinn Torfason — R 3791, Buick
Riviera ’72.
n. Jóhann P. Jónsson,
Guömundur Ingi Sigurösson —
R 6461, Bronco ’74.
12. Guöbergur Guönason, Sig-
mar ólafsson — 1320, Bronco ’73
13. Guömundur A, Pétursson,
Bergsteinn Gunnarsson — U
1771 Mustang 302 CI ’69
14. Gunnar Jónasson, Pétur
Haraldsson — G 6465, Viva '74
15. Vilmar Þ. Kristinsson,
Siguröur ólafsson — R 9075,
Bronco ’74.
16. Bragi Ragnarsson, Magnús
B. Pétursson — R 39651, Javelin
'68
17. Hallgrimur Guömundsson,
Hannes RikharÖsson — R 37225,
Austin Mini 1000
lS.Gylfi Jónasson, Jón Magnús-
son — A 3060, Chevrolet Malibu
'69.
19. SigurÖur Pétur Haröarson,
Sturla Bragason — R 44737,
Volkswagen 1302 ’71
20. Sveinn Björnsson h/f, Saab-
umboöiö: Garöar Eyland,
Högni Einarsson, Saab 96
—varablll, og skrásetningar-
númer ekki komiö I skrána,
þegar þetta er skrifaö.
21. Auglýsingastofan Form:
Baldvin Björnsson, Hilmir
Amórsson — R 1697, Wagoneer
'74.
22. DavlÖ Sigurösson h/f, Flat-
umboöiö: Vigsteinn Vernharös-
son, Theodór S. Friögeirsson —
R 33793, Fiat 128 Rally ’73.
23. Frlmann Frlmannsson,
Helgi Sveinbjörnsson — R 13835,
Volkswagen 1200, ’63.
24. Sveinn Bjömsson & Co,
Saabumboöiö: Magnús Helga-
son, Siguröur Sigurgeirsson R
44111, Saab 99 ’73.
25. Magnús Helgason, Guöjón
Skúlason — R 36287, VW 12
1200L '74
26. Egill Vilhjálmsson h/f: ólaf-
ur Benediktsson, Guömundur
Benediktsson — R 41256, Colt
Lancier '74.
27. Björgvin H. Kristinsson,
Magnús Björgvinsson — R 9190,
Benz 220 ’55.
28. Jón R. Sigmundsson, Guöný
Ottesen — R 16771, Flat 128
Rally ’75.
29. ómar Þ. Ragnarsson, Jón R.
Ragnarsson — R 36595, Fiat 127
'74
30. Alli Rúts, Narfi Hjartarson
— R 703, Bronco ’73.
31. Sverrir Olafsson, Hannes
Ólafsson — JO 6295, Escort RS
1600.
32. Hallgrimur Sigurösson, Páll
Gunnlaugsson — Y 4961,
Chevrolet Camaro ’69.
33. Sveinn Egilsson h/f: Finn-
bogi Asgeirsson, Úlfar Hinriks-
son — R 1385, Bronco ’74.
34. Viöar Halldórsson, Siguröur
Ketilsson — R 3356, Maxda 919
'74.
35. Davlö Sigurösson h/f: Har-
aldur Hjartarson, Siguröur Jó-
hannsson — Y 4440, Fiat 128
Rallv ’74.
36. Veltir h/f: ólafur Friösteins-
son, Jón Jónsson, — R 44890, Daf
66 ’75.
37. Halldór Jónsson, Úlfar
Hauksson — A 2360, Fiat 128
Rally *74.
38. Ami Bjarnason, Ragnar
Gunnarsson — R 8166, Humber
’64.
39.Sævar Björnsson, Guömund-
ur Bjömsson — Y 660, Peugeot
404.
40. Tómas Jónsson, Ragnar
SigurÖsson — R 25737, VW 1300
’74.
41. Helgi Pálsson, Albert
Sigurösson — G 7274, Datsun
100A ’73.
42. Tékkneska bifreiöaumboöiö:
Sigurjón Haröarson, Ragnar
Ragnarsson — Y 3700, Skoda
110R '73.
43. Rlkharöur Már Pétursson,
Jóhann Glslason — R 38762,
Volvo 544 ’63.
44. Kristján Gunnlaugsson, Ami
Asgeirsson — R 44035, Toyota
Mk n '74
45. Veltir h/f: Kristján
Tryggvason, Jón Dahlman — R
45431, Volvo 244-411-2111 ’75.
46. Davlö Sigurösson h/f: Karl
Harry Sveinsson, Jón Gestur
Viggósson — R 33819, Fiat 125p
'73.
47. Halldór Sigurþórsson, Karl
Rósinkjær — R 41451, Peugeot
404 '63.
48. Hekla h/f: Finnbogi Eyjólfs-
son, Jón Armann Jónsson — R
3828, VW Golf '75.
49. Hafrafell: Guöjón
Guömundsson, Sveinn Torfi
Sveinsson — R 125, Peugeot ’73.
50. Egill Vilhjálmsson h/f:
Gunnar Pétursson, Siguröur
Sigurjónsson — R 22506, Jeep-
ster ’67.
51. Oli Haröarson, Finn Sjöberg
Nielsen — R 36596, Fiat 128 ’74.
52. Gisli Hauksson, Orn Úlfars-
son — Y 3448, Datsun 2200 diesel
’71.
Þegar við tókum að nálgast
borgarmörkin fór ég að hafa
augun á úrinu og kilómetratelj-
aranum til skiptis og reyna að
átta mig á þvi, hvort við hefðum
haldið meðalhraðanum. En
flestum ökumönnum reynist
heldur erfitt að halda svo litlum
hraða sem tilgreindur er i leiða-
bókinni á breiðum götum borg-
arinnar, svo áður en langt um
leið fór Þór að hægja verulega á
sér, og Eggert Steinsen seig ró-
lega framúr. Loks stöðvaði Þór
bilinn alveg, og ég fylgdist vel
með klukkunni: „Nú er minúta
eftir — hálf minúta”... og Þór
fór af stað, ók nú nokkuð greitt
og við sigldum framúr Eggerti,
sem hafði numið staðar.
Fimmtán sekúndur — tiu —
fimm, og við beygðum útaf
aðalveginum, og þegar
'sekúnduvisirinn tifaði yfir
stoppuðum við hjá fyrsta tima-
verðinum — timakortið út og
komutimi skráður, og við af
stað aftur.
Nú sagði leiðabókin, að með-
alhraði ætti að vera 60 km á
klst., og vegurinn farinn að
versna að mun, og alvara
rallysins hafin. Þór hélt sér á 60
kílómetrunum eftir þvi sem
hægt var og billinn rann til i
beygjunum. „Hætta á gangandi
fólki” stóð við fyrsta kennileitið
i leiðabókinni, og áfram héldum
við — fórum framhjá fyrstu
gatnamótunum og snerum við.
Vegurinn versnaði enn meira.
púkkið stóð bert upp úr eftir
þurrkana undanfarna daga og
Benzinn tók niðri að framan
hvað eftir annað. Hvernig verð-
ur vegurinn ef fer að rigna?
Það var ekki mikill timi til að
velta þvi fyrir sér, ég varð að
hafa mig allan við að fylgjast
með kennileitunum i leiðabók-
inni, sekúnduvisinum og kiló-
metrateljaranum. Hann var
raunar ekki nákvæmur, sýnir
um það bil 5% of litið, sagði
Þór, en það bætti úr skák , að
sveitarstjórinn þeirra Eyrbekk-
inga er reikningshaus hinn
mesti og hamaðist nú við að
reikna út meðalhraðann miðað'
við þetta gefna frávik á teljar-
anum. Onnur timavarðstöð
nálgaðist og við höfðum farið
ýfið of hratt. Þá var ekki um
annað að ræða en hægja á, og
þegar við komum auga á tima-
vörðinn byrjaði niðurtalningin,
og samkvæmt minni klukku
renndum við upp að honum ná-
kvæmlega á slaginu. En þarna,
eins og sumsstaðar annarsstað-
ar, bar úrinu minu ekki saman
við úr timavarðarins — sam-
stilling úranna hafði ekki verið
nógu nákvæm, en það hlaut að
verða lagað fyrir keppnina
sjálfa.
Þannig héldum við áfram, og
stundum gekk þetta eins og
smurt, en ýmsar snurður hlupu
þó á þráðinn; á einum stað var
timavörðurinn ekki mættur, — á
öðrum stað fletti ég yfir á rangt
blað i leiðabókinni og við vissum
ekki okkar rjúkandi ráð lengi
vel. Um það bil i miðri keppn-
inni komu skyndilega i ljós um-
ferðarskilti sem sýndu, að
framundan væri vegavinna, en i
leiðabókinni var sýndur beinn
og hindrunarlaus vegur. Það
var ekki um annað að ræða en
beygja út á slæman afleggjara
og gefa hraustlega i. Vegurinn
var krókóttur og með afbrigðum
slæmur, en Benzinum var ekki
hlíft, við vissum ekki hvað þetta
yrði langur krókur, en vorum
staðráðnir i þvi að láta hann
ekki tefja okkur.
Það kom i ljós, að krókurinn
var fjórir kilómetrar, og við
næsta kennileiti, sem við fund-
um á aðalveginum, vorum við
orðnir einar tvær minútur á eft-
ir timanum. Eftir fáeinar min-
útur i viðbót og miskunnarlaus-
an akstur reiknaðist okkur til,
að við værum búnir að vinna
upp töfina, og aftur var farið
Rallý-keppni FÍB 24. mai 1975
Akstursleið og timovarðstöðvar
Skýringar ■
TV-5 * tímavarðstöð nr. 5
(TC-5)= tim* control no.5
■ ■ I
15 20 1
■ I ■ ■ ■ 1 I 1 ■ 1 1
BILAR
OG
UMFERÐ
Umsjón:
Þorgrímur Gestsson
niður i uppgefinn meðalhraða,
sem þarna var 65 km á.klst.
Þarna kom skyndilega og óvænt
kafli, sem olli þvi, að við fund-
um rétt aðeins smjörþefinn af
þvi hvernig er að keyra rally
eins og „Safari” þar sem gefinn
er upp mjög stifur timi á milli
varðstöðva og aldrei má slaka
á.
Toyota jeppinn hafði verið
næst á eftir okkur góða stund, en
skyndilega hvarf hann og
Citroen var kominn i ljós.
Seinna fréttum við, að hvell-
sprungið hefði á tveimur hjól-
um á jeppanum, — og aðeins eitt
varahjól. Þar með var hann úr
leik.
Við tindum upp varðstöðvarn-
ar, hverja á eftir annarri og
reyndum að halda okkur á rétt-
um tima, en oft vildi skakka ein-
hverju, hvort sem um var að
ræða misreiknun okkar eða
ósamræmi á úrunum. En áfram
héldum við, staðráðnir i að
sigra — hraðakaflinn kom þar
sem vegurinn var verstur, og
vegfarendur á kvöldakstri með
fjölskylduna viku óttaslegnir úr
vegi, óvitandi um það, að allrar
varúðar var gætt.
Borgin tók að nálgast á ný og
aftur villtumst við, en kenndum
i þetta sinn ónákvæmri merk-
ingu i leiðabókinni um, og
renndum upp að Loftleiðahótel-
inu þegar klukkuna vantaði
rúmlega þrjár minútur i tólf.
Það færði okkur sjö stig i min-
us!
En hver urðu úrslitin? Þótt
ekki væri verið að keppa i „al-
vöru” voru stigin reiknuð út. Ef
miðað var við síðustu timavarð-
stöð áður en komið var inn i
borgina lentum við i öðru sæti
með Í0 stig i minus, næst á eftir
Citroen, sem fékk átta stig. En
væri miðað við endastöð vorum
við i þriðja sæti með 17 minus-
stig. Þá var Hunterinn i fyrsta
sæti með 11 stig og Citroen I
öðru safeti með 13 stig.
Og að lokum höfðum við tal af
Sveini Oddgeirssyni, fram-
kvæmdastjóra FIB, og spurðum
hann hvernig keppnin hefði
komið út i þessari tilraun. „Við
lærðum mjög mikið af þessu”,
sagði Sveinn, „og gallarnir voru
ekki margir. Við sáum hvað við
þurfum að hafa marga tima-
verði á hverjum stað til þess að
timaskráningin gangi fljótt fyr-
ir sig, og það þarf að laga og
leiðrétta leiðabókina á nokkrum
stöðum. Annars tókst þetta
mjög vel, og þetta á að ganga
eins og smurt á laugardaginn”.
Með birtingu meðfylgjandi
korts er svipt hulunni af leið-
inni, sem ekin verður i Rallýi
FIB og ÍBOV i dag, en hingað til
hafa aðeins örfáir menn vitað
hver hún er.
Eins og sést er byrjað og end-
að I Reykjavík, nánar tiltekið
við Hótel Loftleiðir, og ekið sem
leið liggur austur Miklubraut og
siðan eftir Vesturiandsveginum
að Olfarsfellsvegamótunum.
Eftir það er ekið fyrir Hafra-
vatn, út á Suðurlandsveg og af
honum aftur á gamla Hellis-
heiðarveginn, framhjá Kolvið-
arhóli og enn á Suðurlandsveg
yfir Hellisheiði og niður á Þor-
lákshafnarveg, Krisuvikurveg,
Reykjanesbraut, Vifilsstaða-
veg, Útvarpsstöðvarveg, niður
Breiðholt og Miklubraut og að
Hótel Loftleiðum.
Sunnudagur 25. maí 1975
©