Alþýðublaðið - 31.05.1975, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 31.05.1975, Blaðsíða 8
alþýðu mum Plastns liF PLASTPQKAVERKSMIÐJA Stmar 82639-82655 Vatnagör&um 6 Box 4064 — Reykjavtk KQPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 SfNDlBILASTÖDIH HF (H)RÖS HNAPPAGATKI Ólafur hefur um langt árabil starfað að málefnum blindra á ýmsa vegu, meðal annars með þvi að sjá um blindraheimilið að Bjarkargötu 8 I Reykjavik, og þá ekki siður með þvi að lesa upp úr bókum inn á segulband, sem blindir fá siðan til að hlusta á. ,,Það er margt fólk, sem vinnur sjálfboðastörf I þágu blindra og mest við upplestur á segulbönd,” sagði Clafur í gær, þegar hann veitti (h)rósinni viðtöku. ,,Ég er þar ekki stærri hlekkur en hver annar, en mér er ánægja að þvi að veita (h)rósinni viötöku fyrir hönd hópsins alls. Það er svo ' margt, sem þarf að gera i þessum málum og ég vildi nota þetta tækifæri til að hvetja fólk til þátt- töku ilestrinum. Þótt margt sé nú orðið til á segulböndum, er hitt miklu fleira, sem eftir er aö lesa upp. Einnig biður okkar það starf að skipuleggja blindraaðstoðina og margt annað. Til dæmis er það einn af draumum okkar að koma upp hljóðeinangruðu herbergi til upptöku. En eins og ég sagði, það er margt sem þarf að gera og að- stoð nýrra handa og radda er allt- af vel þegin.” Það var Aðalheiður Birgisdótt- ir, sem afhenti ólafi (h)rósina og myndin var tekin við það tæki- færi. Breyttir tímar Hér áður gerðum við út á saltfisksveiðar, áttum jafnvel stundum til hnifs og skeiðar, kæstur hákall jók kjarkinn og létti sporið og komst inn i blessunarorðin og faðirvorið. Og hákallslýsið var likast himneskum veigum, hinn ljúffengi drykkur var solginn i stórum teyg- um, en nú er spurið og kókið komið i staðinn, á kirkjuloftinu uppétinn þorskhausahlaðinn. Og það er margt sem eykur á okkar vanda, andskotakornið það veiðist nokkur branda, timi hverskonar sjókinda sýnist liðinn og saltfiskurinn er hættur að ganga á miðin. ^ ' (H)rós Alþýðublaðsins er að þessu sinni veitt Ólafi ögmundar- syni, fyrir hönd allra þeirra, sem vinna fórnfús sjálfboðaliðsstörf i þágu blindra á Islandi. KAKTUS- ORÐAN Frá þvl aö Alþýðublaðið hóf veitingu vikulegrar kaktus- orðu, hefur það ekki brugðist að einhver fyndist hennar veröugur, hverja viku. Aldrei hefur veiting hennar þó verið jafn verðskulduö og nú, þvi þau tiöindi hafa gerst, að stærsti atvinnurekandi landsins hefur tekið sér ger- ræöisvald og rekiö launþega við tvö af fyrirtækjum sinum úr verkfalli til vinnu, án þess að láta svo litið að skikka þeim svo mikið sem málamynda- kjarabótum. Það er að sjálfsögðu rlkis- stjórnin, fulltrúi rikisins, sem kaktusoröan veitist, fyrir bráöabirgðalög þau, sem sett voru I vikunni til þess að stööva verkfall launþega I rlkisverksmiðjum. Einhvern tima hcföu það þótt tiðindi að vinnuveitendur gætu beitt launþega slikum gerræðistök- um, enda færa lög þessi is- lenska kjarabaráttu aftur um ófáa áratugi. Framhöld Verksmiðjurnar » AF FORSÍÐU » birgðalögum. Við teljum að ástæður þær, sem rlkisstjórnin færir fram fyrir þeim, séu I meira lagi hæpnar, og nægir að benda á, að engum manni I byggingaiðn- aðinum hafði verið sagt upp. Ennfremur er ljóst, að búið var aö undirbúa þessi lög fyrir löngu, og ráðherra hafði ekki hugmynd um, hvernig samningaviðræðurn- ar stóðu, þegar lögunum var skellt á. Þá má benda á I þessu sambandi, að menn virðast alveg sleppa úr út dæminu þeim kosti fyrir verksmiðjurnar að vera með einn samning fyrir allt starfsfólkið i stað þess að eiga alltaf yfir höfði sér verkföll ein- stakra hópa. „En eina lausnin á þessu máli,” sagði Skúli að lokum, ,,er, að samningaviðræður verði teknar upp I beinu framhaldi af þvl, sem frá var horfið á fimmtudags- morguninn, og litið verði algjör- lega framhjá þessum lögum.” Að sögn Skúla er ekki enn farið að greiða úr verkfallssjóði á Akranesi, en hann taldi, að drag- ist verkfallið enn, yrði farið til þess. Til þessa hafa verkamenn ekki verið svo illa settir, þar eö þeir eru allir á mánaðarkaupi og fá greitt um þessi mánaðamót fyrir vinnu sina fram til 12. mal, þegar verkfallið hófst, og enn- fremur er eftir að gera upp yfirtið á þessu tlmabili. „Okkar menn eru þvl ekki á heljarþröm enn- þá,” sagði Skúli Þórðarson.— Saksóknari | » flF FORSÍÐU » við rikisstjórnina um meðferð mála, ef til kæmi. — Ólafur Jóhannesson sagði enn- fremur, að ,,nú væri um að gera að taka þessu með ró, bara væri best, að menn fengju að hvila sig.” Hann kvað bráðabirgðalög- in „afar frjálsleg”, þvi að aðilar „gætu gengið til samninga strax I dag og iosnað þannig við lögin.” Dómsmálaráðherra gat þess einnig, að hann „efaðist um, að nokkur rikisstjórn ailt frá árinu 1940 hafi komist hjá þvi að gefa út einhver lög um kjaramál.” Skipasmiðir mótmæla... Almennur fundur i Sveinafélagi skipasmiða, haldinn 29/5 1975, mót- mælir harðlega þvi gerræði rikisvaldsins, að leysa vinnudeilu verka- fólks með gerðardómi. Einnig mótmælir fundurinn stefnu núverandi rikisvalds 1 efnahags- máium, þar sem stefnt er að minnkandi atvinnu og stórfelldri kjara- skerðingu, ofan á þá miklu skerðingu, sem orðiö hefur á síöustu mánuðum. Nú þegar er orðið mjög alvarlegt afkomuástand heimilanna.þar sem brýnustu nauðsynjar hafa hækkað um 55-65% á sama tima og kaup hef- ur hækkað um aðeins 10-15% og atvinna stórlega minnkað nú þegar. Sveinafélag skipasmiöa skorar á alla launamenn að standa saman um verndun þeirra réttinda og kjara sem fengist hafa I margra ára baráttu verkafólks, STEFNT FYRIR SAMÚÐARVERKFÖLL Atvinnurekendur hafa nú stefnt Farmanna- og fiskimannasam- bandinu vegna Vélstjórafélags tslands fyrir samúðarverkfall vélstjóra á kaupskipum til stuðnings vélstjórum á togur- um. Stefnur Itveim málum voru þingfestar I Félagsdómi I gær. Finnur Torfi Stefánsson, hdl., er lögmaður Farmanna- og fiskimannasambandsins I þess- um málum. Hafði fréttamaður blaðsins tal af honum og spurði hann um álit hans og horfur I þessum óvenjulegu málaferl- um. Lögmaðurinn sagði: „Af þeim gögnum málsins, sem ég hefi þegar séð, virðist málshöfö- unin nær alfarið vera byggð á sjónarmiðum, sem ekkert fyrir- finnst um I islenskum rétti, og er einna helst lýsing á þvl, hvernig vinnuveitendur vildu að vinnulöggjöfinni væri háttað, gætu þeir einir ráöið. Mér finnst heldur óliklegt að Félagsdómur muni byggja áfellisdóm á slík- um grundvelli.” Eins og áður greinir, er hér um tvö hliðstæð mál að ræða. Annars vegar stefnir Vinnuveit- endasamband Islands fyrir um- bjóðendur slna, sem eru Eimskipafélag Islands hf., Haf- skip hf., Jöklar hf og Jón Frank- lln, skipaútgerð, en hins vegar Vinnumálasamband samvinnu- félaganna fyrir hönd Skipa- deildar Sambands islenskra samvinnufélaga. Stefndi er I báðum málum hinn sami, Farmanna- og fiskimannasam- band íslands vegna Vélstjóra- félags tslands. I stefnum atvinnurekenda er krafist ábyrgðar Farmanna- og fiskimannasambandsins á sam- úðarverkfalli kaupskipavél- stjóra sem þeir telja ólöglegt, og einnig þess, að viðurkennd verði skaðabótaábyrgö vegna tjóns, sem af samúðarverkfallinu hef- ur hlotist. ... og einnig rafvirkjar Fundur i Félagi islenskra rafvirkja, haldinn 29. mai 1975 mótmælit harðlega bráðabirgðaiögum þeim, sem gefin voru út i dag, sem banna vfirstandandi verkföll starfsfólks Sementsverksmiöju rikisins, Aburðarverksmiðju rikisins og Kisiliðjunnar h/f, og kveður á um, að kaupgjald skuli úrskurðað af gerðardómi. Jafnframt lýsir fundurinn yfir fyllsta stuðningi við samþykkt sameiginlegs fundar miðstjórnar ASl, samninganefndar ASl og samninganefndar rikisverksmiöjanna. Fundurinn telur viðbrögð þeirra visbendingu um samhug og styrk verkalýðshreyfingarinnar á örlagastundu.” Fundurinn gaf trúnaðarmannaráði félagsins heimild til að boða til vinnustöövunar, sem hefjast skuli 11. júni, hafi samningar ekki tekist áöur. Ofanritaðar tillögur voru samþykktar á fundi Fél. isl. rafvirkja 29/5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.