Alþýðublaðið - 14.09.1975, Qupperneq 2
Kosningabaráttan er hafin
í Bandaríkjunum
Segja má að undanrásir i for-
setakosningum i Bandarikjun-
um séu nú um það bil áð hefjast.
Flokkur Fords forseta, Repu-
blikanar, hefur nú ákveðið að
borgin Kansas i Missouri verði
aðsetur flokksþingsins, sem
velja á forsetaefni flokksins
fyrir kosningarnar 1976. Flokks-
þing Republikana var siðast háð
i Kansasborg árið 1928, þegar
Herbert Hoover var valinn for-
setaefni flokksins. Hann var sið-
an kjörinn forseti og fóru Repu-
blikanar eftir það með stjóri#
landsins i tvo áratugi.
Spurningin er nú, hvort
Kansas City verði eins mikil
happaborg fyrir flokkinn eins og
hún reyndist á kreppuárunum
um 1928. Flestir telja að Ford
núverandi forseti verði fyrir
valinu, sem frambjóöandi
flokksins, en hann hefur þá sér-
stöðu að vera eini forseti
Bandarikjanna, sem ekki þurfti
að ganga i gegnum kosningar til
þess að verða æðsti valdhafi
landsins. Eins og menn muna
unnu Republikanar einhvern
glæsilegasta sigur i sögu
Bandarikjanna i siðustu for-
setakosningum, þegar Nixon og
Spiro Agnew hlutu kosningu.
Ekki reyndust þessir stjórn-
málamenn jafn happasælir og
ástæða hefði verið til að ætla,
miðað við kosningasigurinn.
Agnew hrökklaðist úr embætti
og Nixon valdi Ford i hans stað
og þaðan hófst Ford siðan upp i
forsetastólinn og þá sögu þekkja
flestir nokkuð vel.
Ef Ford verður nú fyrir val-
inu, sem forsetaefni flokksins
fær hann i fyrsta skipti að
spreyta sig i forsetakosningum.
Ýmsir hafa velt þvi fyrir sér
hvort Republikanar muni nú
ekki fá á sig skell fyrir Water-
gate-málið og er enginn vafi á
þvi að þetta mál mun hafa sin
áhrif á kosningarnar. Á hinn
bóginn kemur einnig til, að Ford
forseti hefur tekið á þessu máli
með allmikilli festu og hlotið
vinsældir á kostnað Nixons, sem
þjóðin var guðsfegin að losna
við. Þannig má segja, að
skakkaföll flokksins hafi öll
grafist með Nixon.
Nú liggur reyndar ekki ljóst
fyrir hvort Ford verður forseta-
efni Republikana. Or þvi verður
skorið i forkosningum. Gerald
Ford hefur þegar lýst þvi yfir,
að hann muni gefa kost á sér og
ýmsir telja að ríkisstjóri Kali-
forniurikis, Ronald Regan, fyrr-
verandi kvikmyndastjarna,
muni einnig verða i kjöri. Sam-
kvæmt siðustu skoðanakönnun
Gallups eru vinsældir Fords
45% á móti 19% fyrir Regan.
Þessar tölur segja ekki mikið og
getur margt breyst á skömmum
tima. Vinsældir bandariskra
stjórnmálamanna eru mjög
háðar dægurmálum. Almenn-
ingur er ekki eins tryggur
stjórnmálaflokkunum eins og
gerist i Evrópu. Fólk vegur og
metur stjórnmálamenn og
flokkana vægðarlaust og kýs þá,
sem þeir treysta best.
Mörg dæmi eru til þess, að
stjórnmálaflokkur sem fékk
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða við forkosningar hafi
tapað i aðalkosningum. Dæmi af
þessu tagi má taka úr kosning-
um i Tennessee riki fyrir nokkr-
um árum við kosningu annars
öldungadeildarþingmanns
rikisins. 1 forkosningum Demo-
krata fengu tveir frambjóðend-
ur flokksins nokkuð svipað at-
kvæðamagn. Annar hlaut tæp
300 þúsund atkvæði en hinn um
20 þúsund atkvæðum færra. í
forkosningum Republikana um
sama leyti fékk einn frambjóð-
andi flokksins i sama riki um 60
þúsqnd atkvæði en aðrir fram-
bjóðendur flokksins mun minna.
t kosningunum sjálfum féll svo
Demokratinn, sem fengið hafði
um 300 þúsund atkvæði i for-
kosningum en Republikaninn,
sem fékk um 60 þúsund atkvæði
i forkosningum, hlaut kosningu
til Oldungadeildarinnar. Ljóst
er af þessu dæmi, að stuðnings-
menn þess frambjóðanda
Demókrata, sem hlotiö natoi
rúmlega 200 þúsund atkvæði
kusu i aðalkosningunum fram-
bjóðanda Republikana. í þessu
tilteknu dæmi er einnig at-
hyglisvert að það voru i raun og
veru vinstri-hægri átök, ■ sem
þarna áttu sér stað milli fram-
bjóðendanna, en ekki átök milli
flokkanna sem slikra.
Enda þótt margt sé ólikt um
hegðun bandariskra kjósenda
við forsetakosningar og i kosn-
ingum til öldungadeildar eða
fulltrúadeildarinnar er ljóst að
persónuleg áhrif frambjóðend-
anna skipta yfirleitt mjög
miklu. Kjósendur eru fúsir til að
greiða þeim frambjóðanda at-
kvæði sem þeim list vel á. A
hinn bóginn eru kjósendur jafn-
fljótir til að styðja einhvern
annan ef þessi frambjóðandi,
sem þeir kusu áður hefur ekki
staðið sig sem skyldi, ef hann þá
náði kosningu.
1 kósningunum á næsta ári
liggur ekki ljóst fyrir hverjir
muni verða liklegustu fram-
bjóðendur Demókrata. Oft hef-
ur nafn Edwards Kennedy kom-
ið upp þegar rætt hefur verið um
sigurstranglega frambjóðendur
fyrir flokkinn og enginn vafi er á
þvi að lagt verður hart að
Kennedy að gefa kost á sér til
framboðsins. A hinn bóginn
mun ýmsum þykja nóg komið af
NATO BÝÐUR SOVÉT-
BLOKKINNI Á HERSÝNINGU
Sovétrikin og önnur rlki Var-
sjárbandalagsins (Búlgaria,
Tékkóslóvakía, Austur-Þýska-
land, Ungverjaland, Pólland og
Rúmenia) hafa fengið boð frá
Atlantshafsbandalaginu (NATO)
um að senda fulltrúa sina tii að
fylgjast með heræfingum NATO,
sem hefjast munu i Vest-
ur-Þýskalandi 14. október nk. Um
57.000 hermenn frá Vest-
ur-Þýskalandi, Bandarikjunum,
Kanada og Frakklandi munu taka
þátt i þessum æfingum.
Samkvæmt frétt frá Bonn i gær
mun þetta vera i fyrsta skipti
sem umrædd hernaðarbandalög
hafa með sér þess konar sam-
vinnu. Talsmaður vestur-þýsku
stjórnarinnar sagði að lita mætti
á þetta, sem framhald þess ár-
angurs sem náðst hefði á ör-
yggisráðstefnunni i Helsinki.
Bandaríkjamenn ræðast við
Svíar og
Aðstoðarutanrikisráðherra
Bandarikjanna, Robert Ingersoll
er nú i opinberri heimsókn i Svi-
þjóð og er það I fyrsta sinn sem
háttsettur ráðherra i Bandaríkja-
stjórn heimsækir Sviþjóð frá þvi
að slitnaði upp úr stjórnmálasam-
bandi milli rikjanna árið 1972 út
af sprengjuárásum Bandarikja-
manna á Hanoi. Stjórnmálasam-
band milli Sviþjóðar og Banda-
rikjanna var siðan endurnýjað i
mai á siðasta ári. Ingersoll mun
m.a. ræða við Olaf Palme for-
sætisráðherra og Sven Andersson
utanrikisráðherra.
Viðræðurnar eru sagðar munu
snúast um samskipti þjóðanna,
en einnig mun samningurinn milli
ísraels og Egyptalands fyrir
milligöngu Bandarikjanna bera á
góma og ef til vill málefni
Portúgals, að þvi er segir I frétta-
skeyti frá Reuter i gær.
Lynette Fromme fékk byssuna að láni
Astmaöur Lynette Fromme,
þeirrar sem reyndi að myrða
Ford Bandarikjaforseta i siðustu
viku, segist hafa haft stöðugt
bréfasamband við Charles Man-
son, sem nú situr I lifstiðarfang-
elsi. Hann segist einnig hafa látið
Lynette hafa byssuna, sem hún
notaði við tilræðið við forsetann,
að sögn lögreglunnar. Að sögn
mannsins kvaðst Lynette þurfa á
byssunni að halda til þess að
verja sjálfa sig, sem ekki þykir i
frásögur færandi i Bandarikjun-
um. Hún fékk byssuna að láni fyr-
ir um það bil sex vikum frá kunn-
ingja sínum, eins og fyrr greinir.
Samband þeirra beggja við Man-
son virðist hafa verið allnáið.
Manson situr i fangelsi fyrir að
hafa fyrirskipað hippafélögum
sinum aö setja á sviö morðið á
kvikmyndastjörnunni Sharon
Tate árið 1969.
Alþýðublaðið
hörmungum vegna stjórnmála-
afskipta þeirra bræðra, fyrst
morðinu á John F. Kennedy og
siðar morðinu á Robert
Kennedy i miðri kosningabar-
áttunni til forsetakjörs. Eftir til-
ræðið við Gerald Ford nú fyrir
skömmu munu ýmsir ef til vill
benda á, að þetta sé áhætta, sem
hver og einn verði að taka á sig
og skipti þvi engu máli hvort
maðurinn heitir Kennedy eða
Jackson.
Fyrir stuttu ákváðu Demó-
kratar að halda flokksþing sitt i
New York-borg. Hafa þeir með
þvi undirstrikað áhuga sinn á
þvi að leysa vandamál stór-
borganna, sem stöðugt hafa far-
ið vaxandi ár frá ári. Ljóst er að
Demókratar hugsa sér gott til
glóðarinnar en flestir frétta-
skýrendur eru sammála um að
flokkurinn þurfi mjög sterkan
frambjóðanda til þess að bera
sigurorð af Ford, sem er líkleg-
astur af frambjóðendum Repu-
blikana eins og nú horfir. Má
vera að það sé aðeins eitt nafn
sem geti veitt Demókrötum sig-
urinn, þ.e. Edward Kennedy.
-----------------SKEYT,
Dómar i Aþenu
Herdómstóll I Aþenu dæmdi I
gær 16 herforingja og aðra ein-
staklinga i varðhald, frá fimm
mánuðum til 23 ára.
Portúgal
Talsmenn kommúnistaflokks
Portúgais sögðu I gærkvöldi að
flokkurinn mundi ekki taka þátt
i stjórnarmyndun með Jafnað-
armönnum og Miðdemókrötum.
Flokkurinn mundi þó sam-
þykkja að einstakir leiðtogar
kommúnista tækju sæti i stjórn-
inni og þá sem einstaklingar en
ekki sem fulltrúar flokksins.
Sunnudagur 14. september 1975.