Alþýðublaðið - 14.09.1975, Side 7
Bridje
Skal eða skal ekki?!
Endurtekið áramótaskaup
Skömmu eftir heims-
meistarakeppnina i Stokkhólmi
1970 var Bobby Wolff spurður,
hvort eitthvað sérstaklega
minnisstætt hefði gerst i keppn-
inni.
„Já, svo sannarlega”, svaraði
hann og hélt svo áfram. „Enda
þótt bridge sé mér ánægjulegur
leikur oftast nær, getur þó syrt i
álinn. Vandi, sem ekkert skyn-
samlegt svar er við, berst þér að
höndum. Og þú situr varnar-
laus. Þú verður að taka
ákvörðun, og ert þess fullviss,
að allteins getursvofarið, að þú
litir heldur kálfalega út, þegar
spilinu er lokið. Ekki bætir það
úr skák, ef þú ert þér þess
meðvitandi, að augu bridge-
heimsins hvila á þér i heims-
meistarakeppni. í keppninni við
Norðmenn hafði ég á höndum
þessi spil:
* Á K 9
V K4
* ÁKD854
* 6 5
Auðvitað vorum við á hættu,
en hinir ekki! Ég sat i Suður.
Vestur opnaði á þremur
laufum, samherji sagði þrjá
spaða og Austur sagði fimm
lauf! Hvað var til ráða?
Ég hnerraði, hóstaði og bað
um isvatn til hressingar, en allt
kom fyrir ekki. Ég átti að segja,
undan þvi varð ekki vikist. Hve
marga tapslagi i laufi, skyldi
samherji hafa? Var hann máske
lauflaus? A ég að segja spaða?,
eða er tigull rétti liturinn? Við
þessu hafði ég ekkert svar. Ég
ákvað að segja sex lauf og láta
svo samherja um ákvörðunina.
Á vissan hátt hafði hann til
matarins unnið með spaðasögn
sinni! Norður sagði sex spaða.
Mér létti. Hann bar nú
ábyrgðina lika, og hér eru
spilin:
A D G 10 7 6 2
V AD 87 5
♦--------
* G 7
*85 A43
V62 hG 10 9 3
♦ 10 92 ▲ G 7 6 3
* K D 10 9 8 4^ A 3 2
♦ A K 9
V K 4
♦ A K D 8 5 4
* 6 5
Auðvitað tóku andstæðing-
arnir tvo fyrstu slagina á lauf og
ég var viss um, að nú hefði ég
gloprað niður 13 Impum. Er
hægt að gleyma slíku?!! En
sveitarfélagar okkar Jacbys,
Goldman og Eisenberg gerðu
mest litið til að auðvelda sagnir
fyrir Norðmönnum. Goldman
opnaði einnig i vestri á þremur
laufum. Norður sagði fjögur
lauf og Austur fimm lauf. Þetta
setti Suður i enn verri klipu en á
hinu borðinu. Hann ályktaði, að
samherji hefði enn sterkari spil
en raun var á og sagði sjö tigla.
3 niður og við fengum 5 Impa.
I Afturúrverkið Ringulreið var
I frumframið i Þjóðleikhús-
I kjallaranum á þriðjudagskvöldið.
I Höfundur texta er Flosi Ólafsson
I en músik eftir Magnús
j Ingimarsson.
Flosa hefur tekist bráðvel upp á
J köflum og þarna flugu margir
I
Kona úr Vesturbænum hringdi
til okkar:
Fyrst af öllu vil ég koma á
framfæri þakklæti til ykkar Al-
þýðublaðsmanna fyrir ykkar
ágætu neytendaopnu, hún hefur
veitt mörgum mjög góðar og á-
reiðanlegar upplýsingar um mál
sem varða neytendur. Erindið
var nú samt aðallega að fá upp-
lýst, hvort verslunareigendur eru
ekki skyldugir til að verðmerkja
þær vörur sem þeir stilla út I
búðarglugga sina? Mér finnst
mjög óhentugt fyrirkomulag hjá
þeim að gera þetta ekki. Til
dæmis förum við, ég og maðurinn
minn, oft á laugardögum og
sunnudögum til að skoða i búðar-
glugga. Þá sér maður oft eitt og
annað, sem maður hefði gjarna
viljað eignast. En svo hættir
manni til að hugsa ekki meira um
hlutina, ef ekki er neina verð-
merkingu að sjá. Ég mundi ætla,
að það væri oftar sem kaupmenn
Innlendu
fréttirnar
að utan
Landhelgismálið virðist vera
ofarlega i hugum margra um
þessar mundir. Landhelgismaður
hringdi og hafði þetta að segja:
t fréttum útvarpsins var fjallað
um landhelgismálið og mótað-
gerðir við þvingunaraðgerðum
Þjóðverja og afgreiðslubann á
þýsku eftirlitsskipin. Meðal ann-
ars kom það fram, að samkvæmt
skeyti, er fréttastofa útvarpsins
hefði fengið erlendis frá, væri bú-
iðað ákveða fund með utanrikis-
ráðherrum landanna, það er að
segja tslands og Þýskalands. Er
það misskilningur minn, eða get-
ur það verið rétt, að okkar eigin
fjölmiðlar verði að sækja sér upp-
lýsingar, sem varða lifshags-
munamál okkar allra, út fyrir
iandssteinana? Ef þetta er rétt,
hvernig getur það hugsast, að
ráðamönnum haldist uppi svona
framkoma átölulaust af hálfu
fjölmiðla? Sé ofangreint rétt, þá
finnst mér full ástæða til þess
fyrir fjölmiðla að bindast sam-
tökum um að sauma rækilega að
þessum ráðamönnum, er fyrir
svona nokkru standa. Þetta má
alls ekki vara svona lengur.
góðir brandarar. 1 heild er ver'kið
ópera i þrem þáttum og 21 atriði
með prolog og epilog. Þetta
afturstefnuverk Flosa er þann-
ig úr garði gert að erfitt er
að lýsa þvi með orðum og
vonlaust er að rekja söguþráðinn
þar sem hann er litill sem enginn.
töpuðu á þvi, að verðmerkja ekki
útstilltar vörur en hitt, að þeir löC
uðu að sér viðskipti. Vona svo að
þessu verði kippt i lag sem fyrst.
Bílstjórinn á
beinni línu
Laufeysendi okkur nokkrar lin-
ur vegna strætisvagnanna:
Ég ferðast með strætisvögnum
borgarinnar, meira eða minna, á
hverjum degi. Éghefveitt athygli
ýmsum skiltum, er fest eru upp i
vögnunum og sjálfsagt ætlast til
að bæði bilstjórar og farþegar
fari eftir þvi, sem á þessum skilt-
um stendur. Þar má lesa t.d.:
Reykingar bannaðar, Standið
ekki i tröppunni, Haldið fast,
meðan vagninn er á ferð, og svo
er eitt skilti, sem blasir við vagn-
stjórum ogfarþegum: Viðræður
bannaðar við vagnstjóra i akstri.
Um daginn var ég á leið niður i bæ
með leið 4 og ekki færri en þrir
menn, einn lögregluþjónn og tveir
vagnstjórar, sem sennilega hafa
verið að koma af vakt, stóðu yfir
vagnstjóranum og kjöftuðu við
hann, svo lengi sem ég var i vagn-
inum, en ég fór út niður i Lækjar-
götu. Hvernig erhægt að ætlast til
að fólk fari eftir svona reglum,
þegar sjálfir vagnstjórarnir og
meira að segja lögreglan gerir
það ekki?
KvartiÖ -
EF m ER Á RÉTT
YKKðR GEMGIb -
LÁI IB OKKOR HfyRA
UM ÞM) 5EM AF -
UACA PER
EN KOMiS ljka
þakklaeii oshrosi
ófraiwfaeri
-hnngið ‘ HoRMÆ)
HORNID llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllil
Verðmerking í búðargluggum
Glæsileg húsgagnaverslun opnuð
Emil Hjartarson, sem i 20 ár ur opnað húsgangaverslun að
hefur rekið trésmiðjuna Meið hef- Siðumúla 30 undir nafninu T.M.
húsgögn. Hér er sennilega um að
ræða eina stærstu húsgagnaversl-
un iandsins og gefst þar gott yfir-
lit yfir hið fjölbreytta úrval ný-
tisku húsgagna sem verslunin
hefur upp á að bjóða.
Sérstaka athygli vekja mjög
smekklegar raðeiningar, en hver
eining er 90 cm breið. Fólk getur
keypt þarna hvort sem um er að
ræða bar eða bókasafn, og alltaf
er hægt að bæta við einingum eft-
ir efnum og ástæðum. Húsgögn
þau sem verslunin selur eru að
langmestum hluta framleidd i
Meiði og eru fyllilega samkeppn-
isfær við innflutt húsgögn hvað
snertir verð og gæði.
Emil Hjartarson sagði i samtaii
viðblaðið, að verð innfluttra hús-
gagna væri mun hærra en is-
lenskra ef miðað væri við sömu
gæðaflokka.
Flosi gerir grin að flestu þvi sem
nú ber hæst i þjóðfélaginu en
áhorfandinn fær það fljótt á til-
finninguna að hann hafi séð eða
heyrt þetta áður. Og tilfellið er,
Flosi endurnýjar þarna áramóta-
skaup sitt úr sjónvarpinu og
heldur hefði þetta orðið þunnt ef
ekki hefðu komið til frábærir
leikarar.
Sigriður Þorvaldsdóttir og
Randver Þorláksson báru uppi
sýninguna með frábærum leik.
Arni Tryggvason kom engum á
óvart þar sem hann hefur áunnið
sér sess sem gamanleikari okkar
númer eitt með allri virðingu
fyrir Bessa Bjarnasyni. Ingunn
Jensdóttir sýndi þarna á sér
alveg nýja hlið og gaf Árna ekkert
eftir I grininu.
t upphafi sýningarinnar kom
Guðrún Stephensen fram sem
sjónvarpsnotandi og leyndist
engum að þar lék hún hlutverk
Svölu Thorlacius. Þetta „Kast-
Tjós” var besta atriði sýningar-
innar og þar fóru allir leikarar á
kostum.
Ekki vil ég spá neinu um
aðsókn i framtiðinni að þessu
afturúrstefnuverki Flosa og
Magnúsar en frekar iit ég á þetta
sem tilraun heldur en alvöruverk
og þeir félagar hljóta að geta gert
betur.
Sæmundur Guðvinsson.
Auglýsing
Auglýstar eru lausar til umsóknar stöður
skattendurskoðenda og staða ritara við
embætti skattstjórans i Reykjanes-
umdæmi. Umsækjendur um stöður skatt-
endurskoðenda þurfa að vera reiðubúnir
að sitja námskeið i skattamálum og sýna
hæfni sina að þvi loknu. Umsóknir sendist
skattstjóranum i Reykjanesumdæmi,
Strandgötu 8-10, Hafnarfirði, veitir hann
jafnframt nánari upplýsingar um Störfin
sé þess óskað.
Fjármálaráðuneytið,
11. sept. 1975.
Auglýsing
um skoðun bifreiða með G-skrásetningar-
merki i Gullbringusýsiu og Grindavík
um skoðun bifreiða með G-skrásetningar-
merki i Gullbringusýslu og Grindavik.
Það tilkynnist hér með, að skoðun bifreiða
með G-skrásetningarmerki i Gullbringu-
sýslu og Grindavik fer fram mánudaginn
22. september, þriðjudaginn 23. septem-
ber, miðvikudaginn 24. september og
fimmtudaginn 25. september 1975.
Skoðunin fer fram við Bifreiðaeftirlitið i
Keflavik að Iðuvelli 4, Keflavik áður-
nefnda daga kl.,9—12 og 13—16:30.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. At-
hygli skal vakin á þvi, að skráningarnúm-
er skulu vera læsileg.
Eigendur reiðhjóla með hjálparvél eru
sérstaklega áminntir um að færa reiðhjól
sin til skoðunar.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Til athugunar fyfir bifreiðaeigendur:
Við fullnaðarskoðun bifreiða skal sýna
1 jósastillingar vottorð.
Þetta tilkynnist öllum þeim sem hlut eiga
að máli.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði og á
Seltjarnarnesi, sýslumaðurinn i
Kjósarsýslu.
Bæjarfógetinn i Keflavik og i
Grindavik, sýslumaðurinn i
Gullbringusýslu 11. september 1975.
Sunnudagur 14. september 1975.
Alþýðublaðið