Alþýðublaðið - 18.09.1975, Síða 10
í HREINSKILNI SAGT
Trúnaðarmál!
Á siðasta Alþingi kom fram frá dóms-
málaráðherra frumvarp um upplýs-
ingaskyldu stjórnvalda. Við nánari at-
hugun kom i ljós, að þó nokkuð fast væri
að orði kveðið um skylduna að upplýsa
almenning um, hvaðá döfinni væri, þeg-
ar litið var á upphaf frumvarpsins,
reyndist framhaldið á þann veg, að
flest,sem lofað var fyrst, var tekið aftur
siðar i þessu plaggi! Þingmenn voru alls
ekki ginnkeyptir fyrir sliku hátterni og
svo fór, að þessar fyrirætlanir urðu ekki
„barn i brók”.
Ef til vill má segja, að þessi leið sé
nokkuð vandsigld.Vissulega eru til þeir
hlutir, sem ástæða er til að gjalda var-
huga við að opinbera meðan mál eru á
viðkvæmu stigi, eins og það er orðað.En
hitt er jafnhættulegt, að ganga of langt i
allskonar dul.Hætt er við, að ef of langt
er i þvi gengið, verði þjóðlifið einn alls-
herjar forarpollur, sem fáir, nema inn-
vigðir sjá til botns i. Hvorki reykmettað
ioft, né heldur gruggugt vatn er, eða
hefur verið talið sérlega heilsusamlegt
fyrir einstaklinginn.Hið sama gildir um
þjóðarlikamann.Kunnugt er frá öðrum
þjóðum, að bezt varðveittu leyndarmál
þeirra snúast venjulega um hernaðar-
mál og hernaðartækni i ýmsum mynd-
um. Engu sliku er til að dreifa hér
Hvorki er að við séum að undirbúa gerð
sýkla- eða kjarnorkuvopna, sem heim-
inum mætti stafa hætta af. Hér á Islandi
er og nægilega mikið af erlendu fólki,
sem örugglega er þjálfað i að skyggnast
um bekki og skynja flestar okkar lifs-
hræringar, þyki það þess virði.
Það er einnig eftirtektarvert, að svo
virðist sem erlendir fjölmiðlar eigi sizt
ógreiðari aðgang að fregnum héðan
heldur en islenzkir.Hversu oft hefur það
ekki gerzt, að við fáum fregnir erlendis
frá um islenzk málefni, sem innlendum
fréttamönnum hefur reynzt torvelt að
nálgast? Skyggnist hver um bekki, sem
nennir að leggja það á sig.
Við búum hér við framkvæmdarvald,
sem er óeðlilega sterkt i sinum veikleika.
Á
Mafíuslóðum?
Sterkt i þvi, að vefjast fyrir um hvað er
að gerast i raun og veru, vegna allskon-
ar hindrana, sem lagðar eru i götu
fréttamanna, vegna þess, að ef stjórn-
völdum býður svo við að horfa, er hæg-
ast að gera allt að „trúnaðarmálum”!
Þetta er svo notað til að dylja náttúrleg-
an vanmátt i framkvæmdinni og breiða
yfir allskonar axarskaftasmiði. Það
mætti æra óstöðugan að telja upp mý-
mörg dæmi um þessi vinnubrögð.En áð-
ur en að dæmum er vikið, mætti benda
á, að allskonar dul er ekki óþekkt fyrir-
bæri i margháttuðum leynifélagsskap,
sem iðkar meira og minna skuggalega
starfsemi. Engum stjórnanda er . til
framdráttar, að fella á sig grun um þau
vinnubrögð. Sennilega er fátt, sem
Eftir Odd A. Sigurjónsson
styrkir betur opinberar ráðstafanir, en
einmitt vinna fyrir'opnum tjöldum i sem
rikustum mæli. Hvað höfðingjarnir haf-
ast að, hinir ætla sér leyfist það, og ef
stjórnvöld eru ófús á að vinna opinskátt,
er hætt við að fleiri fari i slóðina.An þess
að vilja fullyrða, að nú i augnablikinu sé
um auðugri garð að gresja en oft áður,
sýnast mér vera nokkur mál, sem æski-
legt væri að upplýsa betur, en örðugt er
að fá fulla vitneskju um.
Hvað td.um heykögglainnflutning SfS,
sem kom jafnflatt upp á landbúnaðar-
ráðuneytið og raun var á? Hvernig ligg-.
ur i þvi? Hvað um meint dreifibréf frá
einhverjum úr bændasamtökunum, um
„boykott” á tilteknar verzlanir ef ekki
væru stöðvuð landbúnaðarskrif Jónasar
Kristjánssonar? Hvað um bann á fiski-
fræðinga, að láta álit i ljós um, hvernig
beri að standa að fiskverndarmálum
okkar? Hvað um hið sérstæða Ármanns-
fellsmál, sem einn hlutaðeigandi metur
sem árás „morðsveita” á mannorð sitt,
án þess að skilgreina það frekar?
Hvað um hina frægu nautakjötssölu til
kaupsýslumanna i tonnatali undir þvi
yfirvarpi, að verið sé að kaupa fyrir ein-
staka neytendur? Hér er drepið á örfátt
og það nýlegt, sem fólk vill fá reiður yfir.
Er ekki allur sægurinn af „trúnaðar-
málum” orðinn uggvekjandi likur
starfsháttum hinnar heimsfrægu og ill-
ræmdu Mafiu ftalanna?
Hún er itölsk og
heitir Patrizia Gori og er
kvikmyndaleikkona að
atvinnu. Við töku rhyndar-
innar Exorcist 2, en sú mynd
er framhald af djöflahroll-
vekjunni Exorcist, sem
bráðlega verður sýnd
hérlendis, Patrizia vakti
mikla athygli vegna útlits
sins, er hún kom fram i
þessari nýju djöflamynd.
Pian var nefnilega algerlega
snoðklippt! Ekki stingandi
strá á hennar fagra kolli. Og
eins og þið sjáið á meðfylgj-
andi mynd, þá voru fötin
henni ekki til trafala i mynd-
inni, frekar en hárið. Hún
hefur látið hafa það eftir sér,
að hún vonist eftir nýju hlut-
verki fljótlega, hlutverki þar
sem hún fái að halda hárinu,
en það er nú farið að vaxa á
nýjan leik.
*
orðinn sextán ára og farinn
að haga sér á allan hátt eins
og aldurinn gefur tilefni til
og hlutverkin sem hann fær
núna, eru að sama skapi
sniðin við aldurinn. Sem
sagt, kappinn er engin
bamastjarna lengur. Nýlega
lék hann i italskri söngva-
mynd, þar sem mótleikarinn
var engin önnur en bomban
Anne Heywood. Annars er
sagt, að kappinn hafi mun
meiri áhuga á nýja mótor-
hjólinu sinu, og skóla-
göngunni og lætur sig frægð-
inalitlu skipta. Aðaltakmark
hans þessa dagana er að ná
góðu prófi i ensku, sögu og
frönsku, en þetta kváðu vera
hans uppáhaldsfög i skól-
anum. Næsta hlutverk hans
verður I mynd, er nefnist á
ensku: Tomorrow You Will
Be A Man.
*
Hann Mark litli
Lester, íitii pjakk-
urinn sem lék aðalhlutverkið
i söngvamyndinni um hann
Oliver Twist, er nú heldur
betur orðinn stór. Hann er nú
f< Ik
Raggi rólegi
FJalla-Fúsi
Bíóin
Leikhúsin
IflSKQLABÍÓ sin,i 22140 (
Lausnargjaldið
Ransom
Afburöaspennandi brezk lit-
mynd, er fjallar um eitt djarf-
asta flugrán allra tima.
Aðalhlutverk:
Sean Connery
Jan Mc. Shane
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
ÓNflBÍÓ Simi :tIIH2
Umhverfis jöröina
á 80 dögum
Heimsfræg bandarisk kvik-
mynd, sem hlaut fimm
Oscarsverðlaun á sínum tima,
auk fjölda annarra viðurkenn-
inga. Kvikmyndin er gerð eftir
sögu Jules Verne.
Aðalhlutverk: David Niven,
Cantinfias, Robert Newton,
Shirley MacLaine. (I mynd-
inni taka þátt um 50 kvik-
myndastjörnur).
ÍSLENZKUR TEXTI.
Leikstjóri: Michacl Anderson,
framleiðandi: Michael Todd.
Endursýnd kl. 5 og 9.
IAFNARBÍÚ
Villtar ástriður
* 'utmAxcoioiij
Hiulers Keepers...
li'vers Weejiers!
Anne CHAPMAN • Paul LOCKWOOD
Jan SINCLAIR • Duncan McLEOD •
Spennandi og djörf bandarisk
litmynd, gerð af Russ (Vixen)
Meyer.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
LAUBARÁSBÍli- simi 12075
Rcd Zinneinanns film of
TIIIiMYOl
rnr%iA(iL\L
AJohn Wbolf Pitxluction
Rised ou the book bv Krcderick Kirsyth
U"> striliutcd Ið'Citiciuiiliiteniátknul Ciitimritkiii
Framúrskarandi bandarisk
kvikmynd stjórnað af meist-
aranum Fred Zinnemann,
gerð eftir samnefndri met-
sölubók. Frederick Forsyth
sjakalinn, er leikinn af Ed-
ward Fox. Myndin hefur hvar-
vetna hlotiö frábæra dóma og
geysiaösókn.
Sýnd kl. 5, 7,30 og 10.
Bönnuð börnum.
TROLÖFUNÁRURINGAR
' Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu ,
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
iMÐLEIKHÚSIf
STÓRA SVIDIÐ
DJÓÐNÍÐINGUR
laugardag kl.20.
sunnudag kl.20.
LITLA SVIÐIÐ
RINGULREIÐ
i kvöld kl.2030.
sunnudag kl.2030.
Matur framreiddur frá kl. 18
fyrir leikhúsgesti kjallarans.
Sala aðgangskorta (ársmiða)
er hafin.
Miðasala 13,15—20.
Simi 1-1200.
®LÉIKFEÍAG^|
öq^ykiavíkurJB
SKJ ALDIIAM RAIt
l.sýn.i kvöld,— Uppselt.
Ilauð kort gilda.
S.sýn.föstudag kl.2030.
Blá kort gilda.
G.sýn.laugardag kl.2030.
Gul kort gilda.
7.sýn.sunnudag kl.2030.
Græn kort giida.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14.
tlÝJA B.Í0 stmi i
From the producer of "Bullitt"
and "The French Connection"
TI4I:
SEVEN
« UPS
ISLENZKUR TEXTI
Æsispennandi ný bandarisk
litmynd um sveit lögreglu-
manna, sem fást eingöngu við
stórglæpamenn, sem eiga yfir
höðfi sér sjö ára fangelsi eða
meir. Myndin er gerð af
Philip D’Antoni, þeim sem
gerði myndirnar Bullit og The
French Connection.
Aðalhlutverk: Roy Schneider
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuö innan 16 ára.
iKÚPAVOBSBÍÓ s.-n~^T
IBióinu lokaö um óákveöinn
tima.
^TJÖRNllBIÓjVji^^ill,^
Undirheimar New York
Hörkuspennandi amerisk
sakamálakvikmynd i litum
um undirheimabaráttu i New
York.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds,
Dyan Cannon.
ÍSLENZKUR TEXTI
Endursýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuð innan 14 ára.
Kerndum
& líf
rerndum
yotlendi
Vélhjólaeigendur
Moto-x - Moto-x
Otbúnaöur, hanskar hllfar. Lewis
leðurjakkar og stígvél. Plaköt ofl.
Bögglaberar f. IIONDU 35Q.KETT,
hanskar. DUNLOP-dekk.
MÖLTUKROSS speglar og aftur-
ljós. ofl. ofl. Póstsendum.
Vélhjolaverslun
Hannes Ölafsson
Skípasundi 51. Sími 37090
Fimmtudagur 18. september 1975.