Alþýðublaðið - 18.09.1975, Side 12
alþýðu
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmda-
stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit-
stjóri: Sighvatur Björgvinsson.
Ilitstjórnarf uiltrúi: Bjarni
Sigtryggsson. Auglýsingar og af-
greiðsla: Hverfisgötu 10 — simar
14900 og 14906. Prentun: Blaða-
prent hf. Askriftarverð kr. 800,- á
mánuði. Verð i lausasölu kr. 40.-.
KÓPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
r- Vedriö
Blessuð rigningin ætlar
ekki að gera það enda-
sleppt þessa vikuna. í dag
mun verða suðvestanátt,
sem mun snúast i suð-
austur með kvöldinu. bað
bætist riflega við Gvend-
arbrunnavatnið okkar i
dag, þvi fyrri hluta dags
verður rigning, og skúrir
siðdegis. Sem sagt: Upp
með regnhlifarnar!!
Gátan
INJ
R/EF /LL SÖNCx U mfíLfí mmá /fíENN
V
sm
‘A L/r/MN ym/n
V
/?/
FfíCr ’fíFoRm f YF/R Bl/RÐfí C/fíFfí
t 5KST. l'/tm
5JON F/BRR
i/T/NR S/n'fíR \S*0iHL.
i
f
'lfmh TÓRN /n'fíun OR i
MEGUM
VIÐ KYNNA
örn Friðriksson prestur,
Skútustöðum, Mývatns-
sveit.
fæddist i Kanada 27/7 1927, en
fluttist til tslands 6 ára gamall og
'ólst upp á Húsavik. Tók stúdents-
próf frá MA árið 1949, en var
siðan við tungumála- og bók-
menntanám i Kaupmannahöfn
um tveggja ára skeið. Embættis-
próf i guðfræði tók hann árið 1954
og framhaldsnám við kirkjusögu i
Kaupmannahöfn árið 1960—61.
Frá árinu 1954 hefur séra örn
verið prestur á Skútustöðum i
Mývatnssveit og þjónar hann þar
enn. Samhliða preststörfum hefur
hann kennt töluvert við barna- og
unglingaskólann i Mývatnssveit.
Um áhugamál utan hefðbund-
innar atvinnu hafði séra örn
þetta að segja: „Ahugamál min
eru mörg. Ég hef t.d. starfað mik-
ið að söngmálum, hef áhuga á
málarlist og Ijósmyndatöku. Þá
hef ég starfað að félagsmálum á
hinum margvislegustu sviðum.”
Um prestkosningar sagði séra
örVi Friðriksson: ,,Ég er algjör-
lega á móti þeim. Ég tel að úrslit-
in liggi oft i höndum þeirra, er lit-
inn áhuga hafa á málinu. Ég tel
að sóknarnefnd ætti að tilnefna
presta, þvi að fámenn sóknar-
nefnd á meiri möguleika á að
mynda sér skoðun um viðkom-
andi umsækjendur, en það er oft
vonlaust fyrir þorra almennings i
stórum prestaköllum.”
„Trúaráhuga tslendinga tel ég
ótrúlega almennan. Flestir, sem
ég tala við telja trúaráhuga sinn
undantekningu, en frá sjónarmiði
prestsins, sem fólkið talar við, þá
virðast þessar „undantekningar”
vera ótrúlega margar,” sagði
séra Örn Friðriksson að lokum.
HEYRT, SÉÐ
HEYRT: Að Samvinnubankinn sé
nú að opna útibú viðs vegar um
landið og yfirleitt byggi bankinn
sjálfur yfir sig. Hins vegar séu
ekki neinar áætlanir uppi um að
opna útibú i einu höfuðeinvigi
Sambandsins, Akureyri. Ástæðan
ku vera sú, að Landsbankinn
leggist eindregið gegn þvi vegna
mikilla viðskipta útibúsins þar
við SIS.
HEYRT: í framhaldi af
umræðum um veitingar fræðslu-
stjóraembætta til siður hæfari
umsækjenda, að prófessor i
uppeldisfræði við háskólann hafi
ekki viðurkennt háskólapróf i
þessari grein. Og ennfremur að
formaður Stéttarsambands
bænda, Gunnar Guðbjartss., hafi
beitt sér fyrir þvi að réttinda-
minnsta umsækjandanum um
fyrst greint embætti i Vestur-
landsumdæmi, af þeim sjö sem
sóttu um, hafi verið veitt
embættið, — en Gunnar er einnig
formaður fræðsluráðs
umdæmisins.
EINNIG : 30. ágúst s.l., var hald-
inn á Blönduósi, stofnfundur
nýrrar Rauða kross deildar. t
stjórn félagsins voru kosnir: Séra
Arni Sigurðsson, formaður,
Hávarður Sigurjónsson, gjald-
keri, Ingvi Þór Guðjónsson, rit-
ari, Eyrún Gisladóttir og Valur
Snorrason. t varastjórn voru
kjörin: Margrét Hafsteinsdóttir,
Pétur Agnar Pétursson og
Kolbrún Ingjaldsdóttir.
HEYRT: Að lagning byggðalin-
unnar norður hafi dregist mjög úr
hófi fram — m.a. vegna skorts á
efni. Hafi menn þvi brugðið á það
ráð að taka linuefni „að láni” frá
ýmsum öðrum framkvæmdum.
OG HLERAÐ
SPURT: Er það rétt, að svo mikil
vandkvæði hafi komið i ljós varð-
andi Bessastaðaárvirkjun, þegar
farið var að kanna málið nánar,
að menn séu komnir á fremsta
hlutt með að hætta við fram-
kvæmdir?
VEITT ATHYGLI: Að enginn is-
lenskur aðili vill kannast við að
hafa rætt við Belgiumenn um
samvinnu um útgerð fiskibáta frá
tslandi. Málið hefur þó verið bor-
ið undir sjávarútvegsráðherra af
islenskum aðila. En hverjum?
LESIÐ: Að menn viti ekki hvað
eigi að gera við orkuna, sem fá á
með Kröfluvirkjun. Skyldi vera,
að sumir sem að safna i orkusjóð
til þess að leggja grundvöll að
s.tóriðju með þátttöku erlendra
aðila nyrðra?
ER ÞAÐ SATT, að ákveðin fyrir-
tæki i bænum, sem veitt hafa
stuðning til byggingar Sjálf-
stæðishússins, hafi þurft að
leggja mikla aukavinnu á starfs-
fólk sitt vegna vissra mála i beinu
framhaldi af skrifunum um Ar-
mannsfellsmálið?
ZÖRVAR HEFUR ORÐIÐ^I
Menn hafa gert sér tið-
rætt um hina svonefndu
„rikisstyrki” til dagblað-
anna. Staðreyndin er þó
sú, að dagblöðin veita þvi
opinbera þjónustu, sem
þau fá ekki greitt fyrir, er
nemur mun hærri upp-
hæðum, en rikisstyrknum
nemur. „Styrkurinn”
svonefndi er aðallega
fólginn i kaupum rikis-
stofnana á ákveðnum ein-
takafjölda af hverju
blaði. Hér er þvi fyrst og
fremst um að ræða á-
skriftargjöld, en ekki
„styrk” og sannleikurinn
er sá, að i þessum áskrift-
argjöldum er ekki einu
sinni fólgin full greiðsla
fyrir öll þau eintök, sem
rikisstofnanir fá send frá
minni blöðunum. Eins og
nú standa sakir verður
Alþýðublaðið t.d. að
borga með þeim eintök-
um, sem rikisstofnanirn-
ar fá af blaðinu éf reiknað
er með þvi áskriftarverði,
sem nú er i gildi. Við
þessa þjónustu bætist svo
sú ókeypis þjónusta, sem
blöðin láta t.d. rikisút-
varpinu i té með birtingu
dagskrár sjónvarps og
hljóðvarps. t raun og
sannleika eiga dagblöðin
stórfé inni hjá rikissjóði
um hver áramót, ef
reikningarnir væru gerðir
upp.
En er i sjálfu sér nokk-
uð athugavert við það,
þótt islenska rikið styrkti
dagblaðaútgáfu á tslandi
— sem það ekki gerir nú
— til þess að stuðla að
frjálsri skoðanamyndun I
landinu. Er það réttlátt,
að rikidæmi aðstandenda
blaðs verði látið ráða þvi,
hvort sjónarmið eigi sér
málsvara meðal þjóðar-
innar, eða ekki? Hvaða
réttlæti er fólgið I þvi, að
fjármagnsöflin eigi sér
málsvara i mynd dag-
blaðs, en aðrir ekki? Eru
blöð, sem auðugir menn
gefa út, eitthvað frjálsari
og óhlutdrægari, en önn-
ur?
Auðvitað ekki. Hitt er
svo annað mál, hvernig
haga á rikisaðstoð við
dagblöð út frá þeirri for-
sendu, að tryggja eigi
frjálsa skoðanamyndun i
landinu. Það virðist
a.m.k. vera öfugmæli I
þvi sambandi, að rikustu
útgáfufélögin fái hæsta
framlagið. Einmitt þann-
ig er þvi nú háttað. Þeir
fá mesta aðstoð, sem sist
þurfa.
Ef frjáls skoðanamynd-
un á að vera markmiðið
með stuðningi rikissjóðs
við blaðaútgáfu, þá verð-
ur auðvitaðaðhagahonum
með öðrum hætti. Það er
m.a. gert I flestum ná-
grannalöndunumog þang-
að getum við sótt ýmsar
fyrirmyndir i þvi efni, ef
við leggjum þá á annað
borð út á þá braut, að rik-
ið styrki dagblöð, sem
það gerir ekki eins og
málum er nú háttað.
FIMM á f örnum vegi
Ert þú fullgildur menntaskólonemi eftir vígsluna?
%
Sigurlaug Siguröardóttir: „Ég
er það sko sannarlega, en þessi
móttökuathöfn finnst mér þó
einum of.”
Trausti Leifsson: „Ég veit að ég
er tilbúinn i menntaskólanámið,
það er sko alveg öruggt. En það
er ekkert varið i þessa vigslu.
Guðbjörg Hákonardóttir: „Já,
ætli það ekki, veit þó varla. En
ég hlakka sko til að fá útrás á
busum næsta árs, þegar þeir
verða skirðir.
Kristin Andersen: „Ég mundi
ekki kæra mig um aðra svona
meðferð. Samt er þetta nauð-
synlegt, sem inngönguskilyrði.
Friðrik.Halldórsson: „Já, já, og
endilega að hafa þessa móttöku-
athöfn. Agætt að hafa þetta einu
sinni á ári, alveg nauðsynleg
meðferð.
/
Nýskírðir busar: